Morgunblaðið - 30.01.1958, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 30.01.1958, Blaðsíða 3
Flrnnitiiflapiu' 30. ian. 1958 MORGTJN fíl AÐIh 3 Yfirgnæfandi meirihluti reykvískra sjómanna kaus Sjálfstæðisflokkinn Uppspuni kommúnistablabsins um oð to'garaskipshöfn hafi verið neitaÖ um oð kjósa „ÞJÓÐVILJINN" spinnur í gær upp skröksögu um það að Bæjar- útgerð Reykjavíkur hafi „haft undarleg vinnubrögð í frammi til þess að koma í veg fyrir að skipverjar á Skúla Magnússyni fengju að greiða atkvæði í bæjarstjórnarkosningunum“. Staðhæfir komm- únistablaðið að Bæjarútgerðin hafi bannað skipstjóranum sl. laug- ardag „að koma til hafnar og lá skipið undir Svörtuloftum í óveðri um helgiiia án þess að nokkuð væri hægt að athafna sig enda mjög gengið á birgðirnar". Mbl. snéri sér í gær til Bæjarútgerðar Reykjavíkur og óskaði þess að fá upplýsingar um, hvað hæft væri í þessu. Var blaðinu þá tjáð að þessi saga kommúnistablaðsins væri uppspuni frá rótum. Fyrirtækið hefði ekkert kosið frekar en að skipverjar á Skúla Magnússyni hefðu getað greitt at- kvæði. Það hefði ekkert bann verið Iagt við því að togarinn kæmi inn á tilteknum degi, hvorki hér í Reykjavík né annars staðar til þess að skípverjar gætu kosið. Skiþstjórinn hefði sjálfur óskað þess að koma inn á mánudag en þar sem annar togari hefði þá verið í liöfn til löndunar hefði verið ákveðið að Skúli Magnússon landaði á þriðjudag. Enn sem fyrr hafa því sannazt rakalausar lygar á kommúnista- blaðið, sem aldrei skeytir því, hvort það fer með satt eða logið. Afstaða sjómanna á kosningunum Því fer líka víðs fjarri að Sjálf stæðisflokkurinn hefði haft ástæðu til þess, eða hagnað af því að bægja heilli togaraskips- höfn frá því að greiða atkvæði. Allir vissu fyrir kosningarnar að flokkurinn átti stórauknu fylgi að fagna meðal reykvískra sjó- manna. Var sú staðreynd stað- fest í kosningunum. Sést það greinilega af því, hvernig utan- kjörstaðaratkvæði féllu. En það eru fyrst og fremsi atkvæði sjó- mar.na og farmanna. Eru þa-l jafnan talin sér og þess getið í I vetur verðu 135—140 bútar á vertíð i Eyjum útvarpsfréttum af atkvæðataln- ingu. Að þessu sinni reyirdust 'gild utankjörstaðaratkvæði í Reykjavík , sem greidd voru fyrir kjördag vera samtals 1465. Skiptust þau þannig á listana. A. -Iisti Alþfl. 116 — 7,9% B. -listi Frsfl. 152 — 10,4% D.-Iisti Sjfl. 919 — 62,7% F. -listi Þjóðvfl. 65 — 4,4% G. -listi kommfl. 213 — 14,6% Af þessurn tölum sést að Sjálfstæðisflokkurinn hefur hlotið 62,7 % af utankjörstaðar atkvæðunum. Sýnir það vel hug sjómanna til flokksins og vantraust þeirra á vinstri ^ptjórninni. Á móti 919 atkvæðum, sem Sjálfstæðisfíokkurinn fær fá allir vinstri flokkarnir, að Þjóðvörn meðtalinni 546 at- kvæði eða 37,3%. Úrslitin 1954 Í ‘ bæjarstjórnarKosningunum árið 1954 voru gild utankjör- staðaratkvæði 1364. Skiptust þau þannig á milli flokka: A. -listi Alþýöufl. 145 B. -listi Framsóknarfl. 93 C. -listi kommúnistafl. 263 D. -listi Sjálfstæðisfl. 728 F.-listi Þjóðvarnarfl. 135 Samtals fengu þá Sjálfstæðis- menn 728 eða 53,4% af utankjör- staðaratkvæðunum en andstæð- ingar þeirra 636 atkvæði eða 46,6%. Það er af þessum tölum auð- sætt að Sjálfstæðismenn hafa stórunnið á meðal sjómanna en vinstri flokkarnir hríðtapað. VESTMANNAEYJUM, 29. jan. — Vertíð hófst hér upp úr áramót- um. Bátum hefur farið fjölgandi dag hvern síðan að heita má. Núna um helgina voru 60 bátar byrjaðir róðra. Allur þorri bát- anna er með línu, en nokkrir eru með liandfæri. Eftir því sem bezt verður vit- að, munu 107 þilfarsbátar verða gerðir héðan út. Er það liærri tala en nokkru sinni áður. Talið er þó að betta muni ekki verða endanleg tala þeirra þilfarsbáta scm hér verða á vetrarvertið, því að ef að vanda lætur, þá munu aðkomubátar koma hingaö þegar líða tekur á vertíð og leggja hér upp afla að meira eða minna leyti. Af þeim 107 bátum sem fyrr eru nefndir munu 75 bátar verða með línu og net. 30 bátar stunda handfæraveiðar og loks 2 sem eingöngu verða með net. Fyrir utan þennan bátafjölda verða gerðir út margir, opnir bátar likl. yfir 20 og byrja þeir róðra þegar líða tekur a vertíð. Munu því láta nærri að 135— 140 bátar verði gerðir héðan út á þessari vetrarvertíð. Að undanförnu hefur aili línubátanna verið sæmilegur, 4—6 tonn af góðum fiski í róðri, nær eingöngu ýsa. Nokkuð hefur dregið úr aflanum seinustu daga. Ýsan er yfirleitt smá og afar seinunnin til flökunar í frystihúsunum og hafa verið mjög miklar annir þar, enda fátt aðkomumanna í verið komið. — Fréttaritari. Yfirlýsing frá ambassador í TILEFNI af grein í Morgún- blaðinu í dag, þar sem það er haft eftir „íslendingi" að ég hafi verið sendur af forsætisráðherra til Akureyrar til þess að fá Jakob Frímannsson kaupfélagsstjóra til ákveðinna samninga um bæjar- mál Akureyrara, óska ég að taka eftirfarandi fram: För mín til Akureyrar var ein- ungis í einkaerindum, m.a. til að finna föður minn, átti að standa í 2—3 daga en varð 8 dagar vegna þess að flugsamgöngur til Akur- eyrar tepptust af illviðri. Af- skipti af bæjarmálum Akureyr. ar hefi ég engin haft, enda það fyrsta sem ég frétti. er ég kom til Akureyrar að þegar væri Lúið að gera samkomulag um samstarf þriggja flokka í bæjarst.jórn kaupstaðarins. Lýsi ég frásögn Mbl. um þetta ferðalag mitt al- gjöriega ranga. Reykjavík, 29. jan. 1958. Kristinn Guðmundsson Morgunblaðið birti orðrétt eft- ir íslendingi það, sem hann sagði um norðurför ambassadorsins. Sjálft lagði Morgunblaðið engan dóm á hvort tilgáta Islendings um orsök ferðalagsins væri rétt. Hins vegar hefur fengizt upplýst, að samkomulagið illræmda á Akur- eyri var ekki undirritað fyrr en 18. jan. s.l. Ambassadorinn mun hins vegar hafa komið til Akur- eyrar hinn 12. janúar. Hér kem- ur því ekki allt heim í frásögn ambassadorsins. En hvað sem um það er, þá virðist heimsókn hans ekki hafa aflað Framsókn- arflokknum margra nýrra at- kvæða á Akureyri, því að þeim fækkaði nú í fyrsta skipti við bæjarstjórnarkosningar. STAK8TEINAR Engin hættn n nð Grænlnndsmnlið fnri fyrir Hnng-dómstólinn segír Intormation KAUPMANNAHÖFN, 29. janúar. — Danska blaðið „Information“ gerði kröfu íslendinga til Grænlands að umræðuefni um helgina. í grein blaðsins er skýrt fró stofnun íslenzka Grænlandsfélagsins: „í Reykjavík hefur nú verið stofnað féiag, sem á að stuðla að því, að Grænland verði sameinað fslandi!“, segir blaðið — og bætir því við, að ekki sé ástæða til þess að ætla, að málið verði aftur lagt fyrir Haag-dómstólinn vegna félagsstofnunar þessarar. „Annars er það aðeins félagið, sem er nýtt“, segir blaðið ennfremur, „kraf- an um að íslendingar fói Grænland er gömul og hefur oft verið borin fram af litlum hópi þjóðernissinna, sem hafa lotið forystu Péturs- Ottesens alþm.“ ísinn verður oft mikill, sem lileðst á bátana þegar mikil frost eru, eins og var í nokkra daga fyrir skömmu. — Ljósm. GRÓ. „Útlægur gerr“ | Síðan skýrir blaðið frá því, á hvaða forsendum krafan er reist: j Grænland hafi veriö byggt fra íslandi, af Eiríki rauða. „Við þetta má bæta“, segir blaðið, „að Eiríkur fór til Grænlands vegna þess að hann var útlægur gerr, en það skiptir þó ekki höfuðmali í þessu sambandi. I Haagréttar- höldunum héldu Danir líka fast við það, að fyrstu landnemarnir í Grænlandi hefðu verið íslena- ingar. En síðan þá hefur annað gerzt sem veldur því, að íslend- ingar geta ekki lengur haft nein- ar lagalegar kröfur til Græn- lands og allra sízt nú, þegar Grænland er orðið hluti af danska ríkinu. Nefnd, sem ís- lenzka stjórnin skipaði á sínum tíma til að fjalla um málið, komst einnig að þeirri niður- stöðu, að krafa Péturs Ottesens væri ekki á rökum reist.“ Síðan vitnar blaðið í ritstjórnargrein 1 Alþýðublaðinu, þar sem þeirri spurningu er varpað fram, hvers vegna íslendingar geri ekki einn- ig kröfu til Ameríku, þar sem íslendingar hafi uppgötvað það meginland. Kvikmyndnhlúbbar Æskulýðsró^s R.víkur taka til staria að aýju SÝNINGAR hjá kvikmynda- klúbbum Æskulýðsráðs Reykja- víkur hefjast að nýju nú um helgina á þessum stöðum: í Háagerðisskóla á laugardag, 1. febr. kl. 4 e.h. og 5,30 e.h. Miðar, sem gilda á fimm sýning- ar í röð og kosta kr. 12,50, veroa seldir á föstudag í Háageröis- skóla kl. 5—7 e.h. og laugardag kl. 3—4 e.h. Sóknarnefnd Bú- staðasóknar stendur að starfsemi þessari ásamt Æskulýðsráðmu. í sýningarsal Austurbæjarskól- ans á sunnudögum, kl. 4 e.h. og 5,30 e.h. Miðar verða seldir að Lindargötu 50 á fimmtudag, kl. 5—7 e.h. og föstudag, kl. 3—4 e.h. I Trípolibíó verða sýningar á sunnudögum kl. 3 e.h. Miðar verða seldir þar á laugardag fra kl. 2—2,30 e.h. og á sunnudag frá kl. 1,30—3 e.h. Oll börn og unglingar geta gerzt félagar í klúbbum þessum, meðan húsrúm leyfir, en unnið er að því að útvega sýningarstaði víðar í bænum. Sýndar verða myndir af ýmsu tagi við hæfi barna og unglinga og unnið er að því að útvega myndir er- lendis frá, svo að fjölbreytni geti orðið meiri. Straumh ^örf í Stykkishólmi. Úrslit hreppsnefndarkosing- anna í Stykkishólmi eru mjög at- hyglisvert dæmi um það, sem er að gerast í stjórnmálunum víða úti á landi. Þar hlaut framboðs- listi Sjálfstæðismanna og óháðra kjósenda 303 atkvæði og 5 menn kjörna. En listi „stuöningsmanna núverandi ríkisstjórnar" hlaut 153 atkvæði og 2 menn kjörna. Listi vinstri manna í Stykkis- liólmi var eini framboðslisti þeirra á öllu landinu, sem sér- staklcga var kaliaður listi „stuðn ingsmanna núverandi ríkisstjórn ar“. En útreið hans var líka ein hin allra versta, sem stjórnar- flokkarnir fengu yfir allt landið. Yfirgnæfandi meirililuti Stykkis- hólmsbúa fylkti sér um lista stjórnarandstöðunnar. Fólk úr öllum stjórnarflokkunum kaus lista Sjálfstæðismanna og óháðra. Verður ekki öðru vísi á það litið en sem hrein og eindregin mót- mæli gegn stjórnarstefnunni. Uppbótarþingmaður Alþýðu- flokksins og Hræðslubandalags- ins á Snæfellsnesi dvaldi fjóra daga í Stykkishólmi fyrir kosn- ingarnar tjl þess að hressa upp á lið „stuðningslista“ vinstri stjórnarinnar. En hægt er að fullyrða að hann liafi haft meira crfiði en erindi á fund Stykkis- hólmsbúa. Hið brjálaða ofstæki. Viðbrögð Tímaliðsins gagnvart kosningaósigri vinstri stjórnar- innar mótast fyrst og fremst af ofstæki. Tímamenn líkja fólkinu í Sjálfstæðisflokknum við brennu menn og morðingja þýzku naz- istanna. Þá Iýsir Tíminn yfir því, að tæknilegum yfirburðum Morgun blaðsins verði að mæta með sér- stökum ráðstöfunum. Má jafnvel gera ráð fyrir, að vinstri stjórnin gefi út bráðabirgðalög um það, áður en Alþingi kemur saman, að Mbl. skuli bannað að prenta myndir eða annað efni í litum!! Svona sturlað er Tímaliðið eft- ir ósigur stjórnarstefnunnar í bæjar- og sveitarstjórnarkosning- unum sl. sunnudag. Þannig sannast það enn aö Tímamenn eru engum öðrum lík- ir. Það er eins og hugur þeirra manna, sem Tímann skrifa sé for myrkvaður af hatri og öfgum. Þessir menn þykjast vera full- trúar „milliflokks" í íslenzkum stjórnmálum! Stritast við að sitja. Af ummælum formanna stjórn- arflokkanna í útvarpið í fyrra- kvöld- er það auðsætt að vinstri stjórnin hyggst, þrátt fyrir van- traustsyfirlýsingu þjóðarinnar í kosningunum, stritast við að sitja. En hvernig halda menn að þess ir úrræðalausu flokkar geti eftir þetta framkvæmt nokkuð af viti í stjórn landsins? Hafa þeir ekki staðið uppi ráðalausir eins og þvörur og svikið öll sín loforð til þessa? Nú hafa tveir stjórnarflokkarn- ir, konimúnistar og Alþýðuflokk- urinn, beðið stórfelldan ósigur meðal kjósenda. Auðsætt er, að af því hlýtur að leiða enn meiri ræfildóm og stefnuleysi gagnvart vandamálum þjóðfélagsins. Nýjar kosningar og stjórnar- skipti eru þess vegna höfuðnauð- syn. Hver mánuður, sem líður með vinstri stjórnina við völd á Islandi gerir því vandamálin að- eins torleystari og verri viðfangs. Valdaafsal vinstri stjórnarinnar er krafa mikils meirihluta ís- lenzku þjóðarinnar í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.