Morgunblaðið - 26.02.1958, Síða 3

Morgunblaðið - 26.02.1958, Síða 3
Miðvikudagur 26. febr. 1958 MORGVNMAÐIÐ 3 Afmælisfagnaður Hvafar Fjölmenn og ánægjuleg samkoma. MÁNUDAGINN 24. febr. hélt Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt, afmælisfagnað í Sjálfstæðishús- inu, í tilefni að 21 árs afmæli félagsins, sem nýlega er liðið. Það var stofnað 15. febr. 1937, í Oddfellowhúsinu, og hélt fundi sína þar, þar til Sjálfstæðishúsið tók til starfa. Síðan hafa fundir félagsins farið þar fram. Afmæl- isfagnaðurinn, sem hófst með sam eiginlegu borðhaldi var fjöl- Hvöt reis upp úr traustum jarðvegi Formaður Hvatar, frk. María Maack, setti samkomuna og stjórnaði henni. Frú Auður Auð- uns, forseti bæjarstjórnar, mælti fyrir minni Hvatar og Sjálfstæð- isflokksms, með snjallri ræðu. Ræddi hún um stefnu Sjálfstæð- isflokksins og kvað meðal ann- ars stefnu hans vera kröfu um frelsi til orð og æðis, einstaklingn um til handa. Hún gat þess, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði frá upphafi átt frábærum forystu- mönnum á að skipa og stjórn flokksins væri mörkuð festu og öryggi. Upp úr þessum trausta jarðvegi væri Sjálfstæðiskvenna- félagið Hvöt sprottin. Með stofn- un Hvatar hefði verið stigið heilla drjúgt spor fyrir Sjálfstæðisflokk inn, þar hefðu leystst úr læðingi miklir starfskraftar. Frú Auður gat þess einnig, að Hvöt væri fyrsta pólitíska kvenfélagið sem stofnað væri á íslandi og einnig það öflugasta. Að lokinni ræðu frúarinnar hylltu fundarkonur Hvöt og Sjálfstæöisflokkinn með húrra hrópum. Aðrar ræður Frú Gróa Pétursdóttir, bæjar- fulltrúi, mælti fyrir minni Reykjavíkur. Bað hún fundar- konur að rísa úr sætum og hrópa ferfallt húrra fyrir Reykjavík. Frú Soffia Ólafsdóttir mælti fyr- ir minni íslands og bað einnig fundarkonur að hrópa ferfallt húrra fyrir íslandi. Var mjög vel tekið máli allra kvennanna. Þökkuð vel unnin störf Áður en staðið var upp frá borðum færði frú Ólöf Benedikts dóttir formanni félagsins, frk. Maríu Maack, fagra blómakörfu fyrir hönd félagsins. Þakkaði frú Ólöf fyrir hönd félagskvenna, formanni frábærlega vel unnin störf í þágu félagsins og bar fram þá ósk, að félagið mætti sem lengst njóta hinna ágætu starfs- krafta hans. Frk. María þakkaði með nokkrum orðum. Ágæt skemmtiatriði Milli ræðuhalda fór fram al- mennur söngur. Hjálmar Gísla- son, gamanvísnasöngvari, söng gamanvísur með undirleik Har- alds Ágústssonar. Einnig sýndu þeir Hjálmar og Haraldur „rugg- og veltudans", sem mjög vakti hlátur áhorfenda, að lokum var dansað af miklu fjöri. Félags- konur og gestir þeirra skemmtu sér ágætlega og fór samkoman í alla staði mjög ánægjulega fram. Pétur Kári Listi lýðræðissinna í lnnnþegn- deild Hreyfils sjólfkjörinn Formaður: Pétur Guðmunds- son, lNyoyraveg Ib, Norourieið, Varaformaður: Kári Sigurjóns- son, Sólvallagötu 68, Steindór. Ritari: Óli Bergholt Lúthersson, Grenimel 20, Landleiðir. Varastjórnendur: Sveinbjörn Einarsson, Seljaveg 33, Steindór, Kristján Kristjánsson. Suður- landsbraut 80, Landleiðir. Xrúnaðarmannaráð: Samúel Björnsson, Eskihlíð 12, Landleið- ir, Þórir Jónsson, Miklubraut 40, Steindór, Ásgeir Gíslason, Barma hlíð 40, Norðurleið, Valgeir Sig- hvatsson, Seljaveg 33, Steindór. Varamenn: Adam Jóhannsson, BaritonsÖngvari frá IWetropolitan syngur hér HINGAÐ TIL LANDS var vænt- anlegur í nótt einn af söngvurum hinnar heimskunnu Metrópolitan óperu í New York, baritónsöng- varinn Robert McFerrin, og mun hann halda þrjá tónleika hér í bænum á vegum Tónlistarfélags- ins. Fyrstu tveir tónleikarnir verða haldnir fyrir styrktarmeð- limi félagsins, í kvöld og annað kvöld, en þriðju tónleikarnir eru opinberir tónleikar og munu fara fram á laugardaginn kemur kl. 7. Allir verða tónleikarnir í Aust- urbæjarbíói. Robert McFerrin hefur undan- farin 4 ár verið fastráðinn óperu- söngvari við Metropolitanóper- una og unnið þar hvern sigurinn af öðrum í óperuhlutverkum. Hann hefur áunnið sér óvenju- miklar vmsældir og álit á til- tölulega skömmum tíma, bæði Ingi R. Jóhnnnsson skókmeistnri Reykjavíkur tJRSLIT í meistara- og 1. fl. urðu á Skákþingi Reykjavíkur þau, að Ingi R. Jóhannsson varð efst- ur með 9í4 vinning og er þvi Skákmeistari Reykjavíkur 1958 Ingi tapaði einni skák fyrir Stefáni Briem og gerði eitt jafn- tefli við Hauk Sveinsson. Ingi var cinnig Skákmeistari Reykja- vikur síðastliðið ár. Ungir afreksmenn 1 öðru sæti varð Stefán Brierr. með 8V2 v. Hann tapáði fyrir Ólafi' Magnússyni og Eggert Gilfer, en gerði jafntefli við Jón- as Þorvaldsson. Stefán er aðeins 19 ára að aldri og er nemandi í 6. bekk Menntaskólans í Rvík. Hann tefldi fyrst opinberlega a Skákþingi Rvíkur 1957 og varin sig þá upp í 1. flokk. Á síðasta Haustmóti T. R. vann hann s-.g upp í meistaraflokk og tefldi þvi nú í fyrsta sinn í þeim flokki og með þessum glæsilega árangri. 1 þriðja sæti varð Olafu. Magnusson með 8 v. Hann tapaði fyrir Inga og Eggert Gilfer og gerði jafntefli við Kára og Gunn- ar Olafsson. Olafur er einnig ao- eins 19 ára. Hann vann sig upp í meistaraflokk á Skákpingr Rvrkur 1957. Stóð sig vel á sití- asta Haustmóti T. R. og náði nu 3. sæti á móti, sem margir sterxir og reyndir skákmenn tóku þátt í 1 fjórða sæti varð Jón Þor- steinsson einnig með 8 v. en að- eins lægri á stigum en Ólafur. — Jón tapaði fyrir Inga, Stefáni og Ólafi. 5. varð Haukur Sveinsson með 7 vinninga, 6. Eggert Gilfer með 6V2 v., 7. Gunnar Ólafsson með 6V2 v., 8. Kári Sólmundarson með 6V2 v., 9. Sigurður Gunnars- son með ö1/^ v., 10. Jón M. Guð- mundsson með 6V2 v., 11. Jónas Jónsson með 6V2 v. Keppendur úr 1. fl. voru 13 og af þeim flytjast tveir efstu upp í meistarafl. Það er þeir Jón M. Guðmundsson er hlaut 6V2 v. og var í 10. sæti og Jónas Þorvalds- son er hlaut 6 vinninga og var í 12. sæti. Þriðji í 1. fl. varð Björn Þor- steinsson. Stefán Briem og Ólafur Magn- ússon öðlast nú rétt til þátttöku í næstu landsliðskeppni. í 2. fl. voru 40 þátttakendur og urðu úrslit þau, að efstur vaið Bragi Björnsson með 9V2 v., 2. Árni Jakobsson með 8Vz v. og 74.5 st., 3. Guðjón Sigurðsson 8^2 v. og 73,5 st., 4. Jón Hálfdánar- son 7 v. og 73 st., 5. Steinar Karlsson 7 v. og 72 st., 6. Kari Eysteinsson 7 v. og 70,5 st., 7. Bergsveinn Jóhanness. 7 v.og 61,5 st., 8. Egill Valgeirsson 6V2 v. og 68.5 st., 9. Daníel Benjamínsson 6V> v. og 62 st. • Sex efstu í 2. fl. flytjast upp í 1. fl. Jón Hálfdánarson sem yar í 4. sæti, er aðeins 10 ára gamali og mjög efnilegur skákmaðíír. meðal tónlistarunnenda og ekki síður gagnrýnenda vestanhafs, og er hann almennt talinn m^ð- al bezt-u baritónsöngvara Bandá- ríkjanna um þessar mundir. Robert McFerrin Enda þótt McFerrin hafi fram til þessa unnið sína stærstu sigra í óperuhlutverkum, þykir hann engu síðri sem einsöngvari. Hefur hann sungið sem einsöngvari með mörgum beztu sinfóníuhljómsv. Bandaríkjanna, svo sem sinfóníu hljómsveitinni í Philadelphia og Chicago, og New York Philharm- onic, en auk þess kemur hann mjög títt fram á einsöngskonsert- um með undirleikara sínum Nor- man Johnson, sem er einnig með McFerrin hér. Hefur túlkun Mc- Ferrins á ljóðsöngvum Schuberts verið mjög hrósað af gagnrýnend um, og þá ekki síður meðferð hans á amerískum negrasálmum. Fyrir ekki iöngu siðan kom Robert McFerrin fram sem em- söngvari með sinfóníuhljómsveit- inni í Pþiladephiu, undir stjórn hins heimskunna tónlistarmanns Eugene Ormandy, sem að tónleik unum loknum let hafa þessi um- mæli eftir sér: „Eg held að það seu engar ýkjur þo ég segi, að rödd hans se ems stórkostleg og noKKurs annars barintónsöngv- ara, sem nu er uppi“, og er oft vitnað tu pessara ummæia, sem von er. Robert McFerrin er fæddur í borginni Marianna í Arkansas- fylki, og er nú 35 ára að aldri. Söngnám sitt hefur hann stund- að nær eingöngu vestanhafs. Sólvallagötu 20, Steindór, Tómas Sigurðsson, Hringbraut 37, Hf. Landleiðir. Endurskoðandi: Samúel Björns son, Eskihlíð 12; Landleiðir. Varaendurskoðandi: Gunnar Jónsson Hátún 29 Norðurleið. í stjórn Styrktarsj.: Sveinbjörn Einarsson Seljaveg 33 Steindór. Varamaður: Guðmundur H. Sigurðsson Tunguveg 3, Borgar- bílstöðin. í Bílanefnd: Garðar Þormar, Engihlíð 7, Norðurleið, Kári Sig- urjónsson, Sólvallagötu 68, Stein dór. Varamenn: Óli Bergholt Lút- hersson, Grenimel 20, Landleiðir, Ólafur Sigurðsson, Njálsgötu 48A, Steindór. I Gjaldskrárnefnd: Grímur Friðbjörnsson, Sólvallagötu 68, Steindór. Varamaður: Richard Felixsson Hverfisgötu 59, Steindór. I fjáröflunarnefnd Húsbygg- ingarsjóðs: Pétur Guðmundsson, Nýbýlaveg 16, Norðurleið. Varamaður: Guðmundur H Sigurðsson, Tunguveg 3, Borgar bílstöðin. í Skemmtinefnd: Samúel Björnsson, Eskihlið 12, Landleið ir. Varamaður: Hafsteinn Sveins- son, Öldugötu 18, Landleiðir. Sjálfkjörinn listi. Sigiingar mllli luslfjarða útlanda HELGI SELJAN Friðriksson sem nú situr á þingi sem varam Lúðvíks Jósefssonar, hefur lagt fram tillögu til þingsályktunav um, að ríkisstjórnin freisti þess að ná samningum við stærstu skipafélög landsins um reglu- bundnar siglingar milli Aust- fjarða og útlanda. Auk þess vill Helgi, að stjórnin vinni að þvi að koma upp umskipunarhöfn á Austfjörðum. Miklll skákáhugl VÍK í MÝRDAL, 25. febrúar. — sl. laugardagskvöld var háð síma- skák milli Víkurbúa og Hvols- vellinga. Keppt var á 10 borðum Keppnin var hin harðasta og stóð yfir allt til morguns. Lauk henni með sigri Víkurbúa. Þeii hlutu 5% vinning gegn 4%. Mikill skákáhugi er nú í Vík Nýlokið er skákkeppni. Var teflt í þrem flokkum, 10 þátttak- endur í hverjum. 1 1. fl. sigraði séra Jónas Gíslason, hlaut 8V2 vinning. Næstir og jafnir urðu Björn Jónsson og Óskar Jónsson með 7 vinninga hvor. í 2. flokki sigraði Ólafur Guðjópsson með 7 vinninga. í 3. fl. sigraði Stefán Guðmundsson sem vann allar sínar skákir og hlaut 9 vinninga Um áramótin var háð símaskáK við Síðumenn á 7 borðum. Lauk henni með sigri Víkurbúa sem hlutu 4V2 vinning gegn 2y2 v. — Jónas. SANDGERÐI, 25. febr. — 1 gær voru 15 bátar á sjó héðan og komu þeir með alls 83 tonna afla að landi og var Mummi þeirra aflahæstur með 10,5 tonn, Magn- ús Marteinsson var með 10 tonr og Mummi II. með 7 tonn. Flestir bátanna voru með 4—6 tonn. STHKSTEINAR Fyrirheit um siðabót Fyrir nokkrum árum, í þann mund, sem núverandi ritstjóri Alþýðublaðsins tók við ritstjórn þess, ritaði bann grein i blað sitt, þar sem hvatt var til aukinnar siðfágunar og prúðmennsku í blaðamennsku. Munu margir hafa talið þau orð réttmæt og tímabær. Því miður hafa blaða- skrif of oft verið persónuleg, rætin og ósiðleg í okkar landi. En hinn góði ásetningur Helga Sæmundssonar frá fyrstu rit- stjórnardögum hans virðist hafa flögrað frá honum upp á síðkast- ið, a. m. k. meðan hann skráði hinn fræga draum draumamanns sins i blað sitt í siðustu viku. Þessi draumur hefur vakið mikla athygli meðal almennings og birt ing hans ekki verið talin bera vott. um siðfágun eða sérstakaa áhuga ritstjóra Alþýðublaðsinj á siðlegri blaðamennsku. Em kjarni draumsins var sá a V draumamaður ritstjórans beindi byssu að Bjarna Benediktssyni og Adolf Hitler. Þá reis þessi spurning í huga hans: „Hvorn á ég að skjóta fyrst?“ Vaknaði draumamaður síðan. „Byssa er hættulaus í draumi“. Auðsætt er, að nokkurn ugg hefir sett að Alþýðublaðinu eftir birtingu draums þessa. í gær reynir það á ýmsa lund að breiða yfir vandræði sín og áhyggjur. Kemst það m. a. þannig að orði að „draumurinn (sé) þannig sönn uð markleysa og sennilcga fyrir meltingartruflun". Þarna fer ritstjóri Alþýðu- blaðsins illa með draumamann sinn. Hann dróttar því bcinlínis að honum, að hann hafi „étið eitthvað ofan í sig“ miður hollt. Sé draumur hans því „sönnuð markleysa“. Ekki þykir þó Helga Sæmunds- syni nóg að gert með þessu. í grein, sem hann ritar í gær, undir nafni, segir hann m. a.: „En byssa er hættulaus í draumi“. Þetta var ágæt huggun hjá Helga. Draumamaður hans gat ekkert illt af sér gert, enda þótt hann hefði fengið svar meðan á draumnum stóð, við spurning- unni um það, hvorn ætti að skjóta fyrst. Látum svo vera. Nú getur blessaður ritstjóri Alþýðu- blaðsins haldið áfram því sið- bótarstarfi í íslenzkri blaða- mennsku, sem hann lofaði svo fagurlega þegar hann hóf rit- stjórnarferil sinni. Allt í stakasta lagi. Sjávarútvegsmálaráðherra kommúnista hefur nú undanfar- ið birt tvær greinar um íslenzk efnahagsmál í blaði sínu. Er meginniðurstaða hans sú, að allt sé í bezta lagi í þeim málum. Ríkisstjórnin hafi þar efnt öll loforð sín með „verðstöðvunar- stefnunni", sem henni hafi tekizt ágætlega að framkvæma. Þeir nýju skattar, sem hún hafi lagt á þjóðina, séu allt annars eðlis en skattar ,,íhaldsins“. Þeir hafi eig inlega alls ekki bitnað neitt á al- menningi, heldur eingöngu á „hin um ríku“. Dýrtíðin hafi ekkert vaxið á sl. ári, framleiðslukostn- aði útvegsins hafi verið haldið niðri, Engra sérstakra „varan- legra ráðstafana" sé því þörf nú. Ekki var Hermann á þessari skoðun í áramótaræðu sinni. Og ekki virtist flokksstjórnarfundur Alþýðublaðsins um daginn líta þannig á málin. Og ekki fannst fundi Landssambands útVegs- manna framleiðslukostnaði sjáv- arútvegsins hafa verið haldið alge.Tega niðri sl. haust.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.