Morgunblaðið - 26.02.1958, Page 6

Morgunblaðið - 26.02.1958, Page 6
6 MORCUNBLAÐIÐ Miðvik'udagur 26. febr. 1958 Á þessari mynd sést Habib Bourgiba forseti Túnis kanna þjóöher Túnis ÖRLAGASTUND FYRIR EVROPU- MENN OG AFRÍKUBÚA ISEINASTA hefti ameríska tímaritsins Newsweeic birtist viðtal, sem blaða- maður frá tímaritinu hefur átt við forsetann í Túnis, Bourguiba. Túnismálið, styrjöldin í Alsír og viðburðirnir fyrir botni Miðjarð- £u:hafs vekja sífellt mikla athygli, enda eru þeir mjög nánir vest- rænum löndum og hafa hina mestu þýðingu fyrir samvinnu vestrænna þjóða og einingu þeirra. Það er því engin tilviljun að þeim málum er, eins og stend- in:, sérstaklega mikill gaumur gefinn. Þetta viðtal gefur nokkra innsýn í sjónarmið foringja Túnisbúa og fara hér á eftir aðal- atriði þess: Spurning: Hvers vegna köstuðu Frakkar sprengjum á Sakiet-Sidi- Youssef? Svar: Af því að þeir vita aö þeir geta ekki unnið styrjöldina í Alsír og hafa sleppt sér. Þeir ráðast að öllu líkt og sært dýr í örvæntingarfullri nauðvörn. •— Frökkum svíða ósigrarnir í Als'r og heima fyrir er glundroði í stjórnmálunum og stjórnaróein- ing. Loks gripu þeir til örþrifa- ráðs og það örþrifaráð var Saki- et-Sidi-Youssef. Spurning: Hvað um afstöð- una til flotastöðvar Frakka í Biz- erta? Svar: Við Túnismenn mundurn samþykkja að Bandaríkin eða NATO notuðu þá stöð í varnar- skyni. En Frakka viljum við ekki hafa þar. Spurning: Hvað munduð þér óska eftir að Bandaríkin og vest- rænu löndin aðhefðust nú? Svar: Vestræn lönd forðast að taka ákveðna stefnu varðandi Alsírmálið af ótta við viðbrögð Frakka. Það, sem blasir við er þetta: Ef haldið er áfram að styðja Frakka á þann hátt sem verið hefur, munu vestrænii menn ekki eingöngu tapa Alsír. Þeir munu tapa allri Norðui- Afríku í hendur kommúnista og ef til vill öllu meginlandi Afríku. Það gæti orðið óhjákvæmileg af- leiðing. Þessi ógnun er fyrir hendi og það þarf að mæta henni fljótt. Hver dagur er dýrmætur Þið í Ameríku verðið að vísa leið- ina og ganga að því af alefli oe einbeitni að finna lausnina. Ég efast ekki um góðan vilja foi- seta ykkar og amerísku þjóðar- innar. En liðnir atburðir virðast benda til að Vesturlöndum gangi aðeins mjög hægt að hafa áhrif á Frakka — alltof Lægt. Það sem vinir okkar verða að horfast í augu við er að stríðið í Alsír er orðið að franskri sjálfheldu, sem veikir samvinnu vestrænna þjóöa og öryggi þeirra. Spurning: Mér er sagt að efna- hagsvandamál Túnis séu erfið. Ef ekki kemur næg hjálp frá vestri mundu Túnisbúar þá snúa sér til Nassers og Sovétrikjanna? Svar: í þessum málum erun við í sorglegri klípu. Ég hef lagt mín spil á borðið. Þau liggja þar fyrir augliti veraldarinnar og þjóðar minnar. Ég hef tekið méi stöðu með Vesturlöndum. Ég mundi aldrei taka við hjálp frá Nasser eða Sovétríkjunum, eða gera samtök með þeim aðilun: En ég get ekki fullyrt, hvað þjóðin í Túnis mundi gera, ef ástandið versnar og Bandarikin og aðrar Vesturlandaþjóðir neita því að fara að bæn okkar, að binda endi á styrjöldina í Alsír og ef þeir ekki koma okkur til hjálpar á efnahagslega sviðinu Spurning: Hvað yrði ef þjóð yðar heimtaði að þér sneruð yð- ur til Nassers og Sovétríkjanna um hjálp? Svar: Það mun ég aldrei gera. Ég mun annaðhvort bíða þess að mér verði steypt af stóli eða þá að ég fer úr stöðu minni af sjálfsdáðum. Ef Ameríka bregzt okkur, þá er úti um mig. Spurning: Þetta eru þá örlaga- tímar fyrir yður? Svar: Ekki aðeins fyrir sjálf- an mig. Þetta eru örlagaríkustu stundir í sögu Túnis, sem sjálf- stæðs ríkis. Það er einnig ör- lagastund fyrir allan hinn frjálsa heim. Mannlegt frjálsræði og mannleg virðing er í veði. Ef það fer forgörðum, þá tapa Afríku- búar allir trúnni á einlægni Bandaríkjanna og einnig á mögu- leika bandarísku þjóðarinnar til að taka ákveðna stefnu og geia það sem gera þarf á þeim stutla tíma, sem er til stefnu, til þess að bjarga okkur. Þannig er í höfuðdráttum við- tal Newsweek við Bourguiba forseta. Lítið gras og léleg skilyrði Enga finn ég í því bót að þeir mæti hörðu. Þar er lít.ið gras, en grjót, gæist víða úr jörðu. Jón Ólafsson. Miðvikudaginn 27. nóv. sl. birt- ir blaðið ísafold og Vörður, grein eftir Snæbjörn í Kvígindisdal, þar sem hann ræðir lánveitingu til bænda í Rauðasandshreppi, haustið 1955, sem þeir fengu úr ríkissjóði vegna rigningasumars- ins 1955 og notað var til fóður- kaupa, og getuleysi þeirra til að borga, því nú þarf að greiða lán- ið og það ekki í svo smáum stíl. Skilmálar á láni þessu virðast harðir, þegar lánað er undir svona kringumstæðum. Vextir of háir og sérstaklega, of fljótt kraf- ið um afborgun. Þegar þess er gætt að lánið er ekki helmingur af þeirri upphæð, sem bændur í Rauðasandshreppi þurftu til fóð- urkaupa haustið 1955, segir það sig sjálft, að það mikla, sem á vantaði hafa þeir flestir eða all- ir orðið að taka að láni í verzl- unum og ef til vill víxlum, til viðbótar. Eðlilega hafa svo þessar lausa- skuldir, sem myndast hafa haust- ið 1955, vegna þess hvað ríkis- sjóðslánið var langtum of lítið, að greiðast fyrst. Hæfilegra að fyrsta afborgun af ríkissjóðslán- inu hefði komið til útgreiðslu 1. janúar 1960, þá hefðu senni- lega flestir eða allir orðið lausir við lausu skuldirnar frá haustinu 1955. Ekkert furðulegt, þó Snæbjörn sé kvíðandi um greiðslugetu svéit unga sinna nú um þessi áramót. Annars finnst mér sjálfsagðasta leiðin í þessum lánveitingamál- um, að bændum séu gefnar upp að mestu eða öllu leyti þessar sferifar úr daglega lífinu N1 „Skriffinnska IÐURGREIÐSLUFYRIR- KOMULAGIÐ á smjöri er átakanlegt dæmi um kostnaðar- sama og iila skipulagða skrif- finnsku. Útgáfa skömmtunarseðl- anna og dreifing, þar með taiinn sá tími, sem fólk þarf að eyða í að sækja seðlana á þriggja mán- aða fresti, kostar þjóðina eigi alllítið fé, en þar með er sagan þó ekki nema hálfsögð. Til þess að kaupmenn fái endurgreitt það smjör, sem þeir hafa selt með niðursettu verði gegn skömmtun- armiðunum, þurfa þeir að fram- vísa miðunum á Innflutningsskrif stofunni. Þar fá þeir þó aðeins kvittun fyrir móttöku miðanna og hana verða þeir síðan að afhenda Viðskiptamálaráðuneytinu, sem áð hæfilegum tíma liðnum sendir þeim svo niðurgreiðsluna í ríkis- sjóðsávísun. Með þessu fyrirkomu lagi virðast kaupmenn úti á landi því aðeins geta fengið skönnmt- unarmiða endurgreidda, að þeir hafi umboðsmenn í Reykjavík til að reka þessi erindi fyrir sig, og sá, sem þetta ritar, hefir feng- ið nokkur kynni af slíkum erind- rekstri. Auk þeirra annmarka, sem það hefir í för með sér, að Innflutningsskrifstofan er aðeins opin til kl. 3 e.h. hefir það snjall ræði verð fundið upp að láta að- eins vissan starfsmann þar annast móttöku smjörmiðanna, og er sá galli á því, að maður þessi virðist gefa sér mjög lítinn tíma til að sinna störfum sínum í Innflutn- ingsskrifstofunni. Það kostar því oft ærið mikla fyrirhöfn að ná tali af honum, og þegar það loks hefir tekizt, er algengt, að hann aðeins taki við miðunum í það skiptið og segi manni að sækja kvittunina seinna! Þetta er sjálfsagt aðeins eitt dæmi af mörgum um lélegt skipu lag og léleg vinnubrögð í opin- berum rekstri, þar sem ekkert. tillit er tekið til þess að almenn- ingur þurfi að gera sér mikla fyrirhöfn vegna smávægilegra erinda. Væri til dæmis ekki eðli- legast að láta sjálfa afgreiðslu Innflutningsskrifstofunnar ann- ast bæði móttöku og niður- greiðslu smjörmiðanna, úr því að ekki virðist talið fært að af- nema með 011« þetta dýra skömmtunarkerfi? S. H. A,“ Hægri handar akstur V7MISLEGT er »ú rætt og ritað „ um, hvort taka skuli hér á landi upp hægri handar akstur, og sýnist sitt hverjum svo sem oft vill verða. Mér hefir skilizt af lestri blaða greina um þetta efni, að helztu rök með og móti séu þessi: Rök á móti breytingunni: 1) Hætta sú, sem leyst yrði úr læðingi meðan vegfarendur væru að venjast nýbreytninni. 2) Kostnaðurinn, sem breyting in hefði í för með sér, þar sem færa þyrfti öll umferðarmerki og færa dyr á öllum almennings- vögnuin. 3) Sögulegar ástæður, svo sem sú, að reglan um að víkja til vinstri sé eldri meðal germanskra þjóða en hin að víkja til hægri. 4) Viðleitni þjóðfélagsins al- mennt til að halda óbreyttu ástandi (status quo) og við bæt- ist sú skoðun sumra, að allt sé bezt sem íslenzkt er. Rök með breytingunni: 1) Sú tækniþróun, sem stöðlun nefnist (standardisering), hefir leitt til þess, að bílar framleiddir fyrir vinstri handar akstur eru yfirleitt dýrari en sams konar bílar framleiddir fyrir hægri handar akstur. 2) Bent hefir verið á, að tækni- þróun stefni í þá átt að fram- leidd verði farartæki, sem jöfn- um höndum verði notuð á jörðu niðri sem í loft og sjó, og því sé samræmingar þörf á sviði um- ferðarmála í víðtækustu merk- ingu, en eins og allir vita gildir sú regla hér á landi sem í öðrum löndum, að í lofti og á sjó skuli víkja til hægri. 3) Tækniþróun á sviði umferð- aröryggis á jörðu niðri krefst samræmingar á því hvorum meg- in vegarins skuli aka og hefir einkum verið bent á í því sam- bandi, að innan fárra ára muni bíl um að meira eða minna leyti ekið af sjálvirkum stjórntækjum. Einn ig hefir verið rætt um tækniþró- un á sviði ljósastillinga í pessu sambandi. 4) Bent hefir verið á að því lengur, sem dragist að taka upp hægri handar akstur hér hjá okk- ur, þeim mun dýrari verði breyt- ingin, því eins og sagt hefir verið í öðru sambandi: Hvað sem VIÐ segjum eða skrifum um þessi mál, munu SYNIR OKKAR fara sínu fram. Náttfari" rigningaskuldir, sérstaklega þeim sem búa í lakari sveitum, og þá einna helzt bændum í Rauða- sandshreppi, því frá og með Vopnafirði og vestur é landsenda, hér norðan fjalla, er hann grjót- ríkasta og gróðurminnsta sveitin. Ég ferðaðist um Rauðasands- hrepp haustið 1955 í þeim erind- um að kaupa líflömb hingað inn í Vestur-Húnavatnssýslu. Gest- risni og fyrirgreiðsla var öll með ágætum. Hitt var mér undrunar efni hvað fjárbúin voru lítil og hvernig menn komust af með svo fáar kindur, alls staðar fátt nema í Vestur-Botni, hann sýnilega bezta jörðin í hreppnum. Ekki hafa þeir tekjur af stóðeign og ekki taugastríð af henni heldur. Það gerir lika sitt til að halda fjártölunni niðri hjá bændum í Rauðasandshreppi, að minnsta kosti vestan til í hreppnum, verða þeir fyrir stóru tapi í fjáreign sinni við það hvað fé hrapar, sérstaklega í Blakknesinu og Látrabjargi. Minnir mig að Guð- mundur á Láganúpi sem er skýr og hressilegur karl, eins og þeir eru þar í hreppnum, segði mér að af 100 ám, hefði á einu ári hrapað 16 ær til dauða og ónýtis. Ekki er að furða, þó bændur sem búa við slík skilyrði séu getu litlir fjárhagslega. Að vísu eru enn fleiri bjargráð en sauðfjár- eign þarna í hreppnum. Bjarg- sig, eitt sinn var þó kveðið: ,,Enn að sækja björg í björg, björgulegt er varla“ Sjósókn. Hún erþóstofn fjárfrek og ekki þægileg einyrkj- um. Vinna við útgerð á Patreks- firði og nú á síðari árum, Vist- heimilið í Breiðuvík, sem senni- lega veitir talsverða atvinnu og á þann hátt svarar sínum tilgangi, því lítið virðist Jóhann Víglunds- son hafa mannast þar, og ný- heflaður Breiðavíkingur, sem um stundarsakir kom hér á vestur- húnvetnska grund, þótti óralangt fyrir neðan alla ómögulega. Snæ- björn virðist ekki óttalaus um, að ef bændur þar í hreppi mæti hörðu við innheimtu á umræddu láni, gæti það orðið til þess að þeir yfirgæfu jarðir sínar. Og er þá skammt til þess ófarnaðar að eyðingardæmið úr Sléttuhreppi endurtakist í Rauðasandshreppi, og væri slíkt illt, og ómaklegt í alla staði. Það er kunnugt, bæði innanlands og utan hvað bænd- ur í Rauðasandshreppi hafa sýnt mikinn dugnað við björgun úr sjávarháska er togaraströnd hafa orðið þar. Það út af fyrir sig ætti að geta sýnt þeim háu herr- um hvað er fjarri lagi, að vera uppi með harðar innheimtukröf- ur á þessu láni, já, máske svo harðar að fleiri eða færri af þess- um mönnum yrðu brottfluttir þegar næsta strand skeður, því hætt er við að enn eigi togarar eftir að stranda á fjörum Rauða- sandshrepps. Blaðið Tíminn hvað flytja greinar um þetta mál. Því miður hef ég ekki Tímann, sem er slæmt, því mig vantar upp- kveikjuefni í koksvélina. Nýi tím inn of lítið uppkveikjuefni. Mér er sagt að í Tímanum sé Zópur gamli tillöguillur í garð bænda út í þessi mál, og heggur þá sá, er hlífa skyldi. Eitt sinn kvað Káinn: „Þegar að mest ég þurfti við, þá voru flestir hvergi“. Eitthvað svipað í þessu máli. Eins og fyrr segir, hef ég ekki Tímann. En eftir grein Gunnars í Seljatungu, er Páll Zophonías- son hinn æfasti út í eftirgjöld á þessum lánum. Það virðist því ekki úr vegi fyrir kjósendur í Rauðasandshreppi og raunar um allt landið, sem voru svo óheilladrjúgir við áíðustu Alþing iskosningar að styðja til þinsætis flokksbróður Páls og aðra Fram- sóknarmenn á þingi hafa dugað litt í máli þessu og sumir þeirra veitt því ákveðna andstöðu, svo sem Páll Zophoníasson. Gamlárskvöld 1957. Jón Ólafsson, í Efra-Vatnshonu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.