Morgunblaðið - 26.02.1958, Page 11

Morgunblaðið - 26.02.1958, Page 11
Miðvik'udagur 26. febr. 1958 MORCVTSBLAÐ1Ð 11 Sr. Jóhann Hannesson: UM AFBROTAVALDA í SAMBANDI við hina miklu glæpabylgju, sem gekk yfir New York sl. sumar, voru í blöðum birt viðtöl við ýmsa þjóðkunna menn í Vesturheimi.' Voru sumir þeirra sérfróðir í þjóðfélags- og uppeldismálum. Margir meðal al- mennings létu einnig skoðun sína í ljós. Skoðanir manna á þessu vanda máli voru ákaflega sundurleitar. Til voru menn, sem skelltu skuld inni á sumarhitann, svo fjarstæðu kennt sem það var. Dýpra ristu þau svör, sem snerust um þær staSreyndir að afbrot unglinga væru spegilmynd af spillingu eldri kynslóðarinnar. Margir skelltu skuldinni á síðustu styrj- öld, en hún var þó öll háð utan Bandaríkjanna og gæti fremur skýrt afbrotafaraldra í öðrum löndum en þar. Þó bárust nokkur áþreifanleg svör frá sérfróðum mönnum, skýringar, sem ekki var hægt að telja fjarstæðu- kenndar. Lögreglustjóri einn lét þess getið að ný og breytt tækni sem unglingar hefðu tileinkað sér, væri ein meginorsök hinnar óheillavænlegu þróunar. Áður notuðu þeir barefli og bera hnefa til þess að útkljá deilumál sín, en nú hættulega hluti, stóra hnífa og skammbyssur. Hann taldi að við þetta mætti ráða með því að bæta nokkrum þúsundum dug- legra manna við lögreglulið borgarinnar. Nokkrir hinna sérfróðu manna lögðu áherzlu á hve mikil áhrif sjónvarp, kvikmyndir og teikni- myndir hefðu haft og væru nú ávextir þeirra að koma í ljós. Það er mál margra sérfróðra manna að myndræn áhrif séu mjög sterk, ekki sízt vegna þess að þau koma svo snemma til vitundar barna nú, eftir að sjónvarp er orðið algengt heimilistæki. Æs- andi viðburðir í sjónvarpi og kvikmyndum hafa þau áhrif á börn og unglinga að blóðhiti og blóðþrýstingur hækkar og starf- semi kirtlanna breytist. Þetta er allt mælanlegt og auðvelt að sanna að á sér stað í raun og veru. Þá er það almenn reynsla að æsingur skapar þorsta í enn meiri æsing og tilbreytingu í því eíni, sem æsingi veldur. Svo sem kunnugt er, þá byggja sum blöð tilveru sína að verulegu leyti á þessu. „Hvað skyldi nú vera í skolpræsinu? Hver skyldi nú vera skandalinn í dag?“ spyrja menn áður en þeir kaupa dag- biaðið í einu nágrannalandi okk- ar. En þeir kaupa það engu að síður. Hér kemur til greina að börn og unglingar hafa ekki mikið sái- rænt mótstöðuafl, heldur sefj ast auðveldiega. Fullorðnir menn vaða oft í villu og svima í þessum efnum, með því að miða eingöngu við sjálfa sig. Sumir framleið- endur haga sér svo sem þjóðfé- lagið væri til þeirra vegna. Skáld listamenn, útgefendur og skemmtikraftar virðast stundum einnig hugsa á þann veg eða þá gleyma þjóðfélaginu að öllu öðru leyti en hinu efnahagslega. Þá var einnig bent á agaleysi, slark og óreglu foreldra ásamt langdvölum á næturklúbbum og skemmtistöðum. Á daginn dreifir vinnan fjölskyldunni í borgun- um, en skemmtanalífið dreifir henni að kveldi og nóttu. Hvað agann snertir, er orðin mikil breyting á skoðun uppeldisfræð- inga. Áður .börðust þeir (ásamt sálfræðingum og rithöfundum) gegn of miklum aga, sem vissu- lega var oft beitt af hörku, ill- girni og fáfræði og skapaði þræls ótta og kvíða. Nú kemur annar- leg gagnrýni frá uppeldisfræðing unum. Mörg börn hafa engin kynni af aga, vegna þess að for- eldrar vita blátt áfram ekki hvað í hugtakinu felst og geta þar af leiðandi ekki skýrt nauðsyn hans fyrir börnunum. Þegar agalaus börn koma út í þjóðfélagið, geta að stela eða ræna. Og af þeim þau ekki valið og hafnað eðlilega sem lifðu, urðu miklu fleiri betl- heldur verða eins og vængstýfðir * arar en þjófar. Menn átu heldur ferðir sínar af bókum og er skemmst að minnast þess að ný- lega bárust fregnir um þetta frá Rússlandi og var einn skáldsagna höfundur sakaður um að hafa ieitt unga menn út á afbrota- brautina með einni af bókum sínum. Georg Brandes staðhæfir í rit- gerð sinni um lestur að ekki geri fuglar, hikandi í öllu, sem þau tska sér fyrir á eigin spýtur. Ofurverndun í nánum tengslum við agaleys- ið er ofurverndunin (over-pro- tection). Barninu er hlíft við öllu mótlæti og allri áreynslu, sem mögulegt er-að hlífa því við. Það fær hrós fyrir gott og illt jöfnum höndum og hlýtur aðdáun fyrir allt, sem það tekur sér fyrir hend ur. Það kynnist aldrci neinu and- svari frá umhverfinu, sem lætur í ljós andúð eða mótmæli gegn framferði þess, hversu eigin- gjarnt og skaðlegt sem það er. Drengurinn er kallaður sólskins- drengur (Sunny Boy) hvermg sem hann hagar sér. Margir slík- ir ofurverndaðir sólskinsdrengir sitja nú í fangelsum fyrir rudda- lega glæpi. Án þess að þeir hafi siálfir skilið ástæðuna, hafa þeir viljað framlengja ofurverndun- ina með því að komast undir „vernd“ einhvers glæpaforingja, og síðan lenda þeir einnig undir „vernd“ fangelsanna. Ofurvernd- un í barndómi hefir blindað þá fyrir þeirri staðreynd að sérhvert mannlegt samfélag gerir jafnan þær kröfur að maðurinn leggi jafnan nokkuð inn til þess að, hann ávinr.i sér rétt til að taka nokkuð út í hinu sama samfélagi. Þar sem agaleysi og ofurverndun útfylla hvort annað, er ekki von á góðu í óhagstæðu umhverfi stórborgar. Hið nýja í afbrotabylgjunni sl. sumar var fyrst og fremst að mjög alvarlegir glæpir voru framdir af mjög ungu fólki og í öðru lagi að þetta sama unga fólk gerði sér ekki grein fyrir aivöru þeirra og meðfyigjandi afleiðinga. Samvizka pilta, sem höfðu myrt jafnaldra sína, virtist vera alveg róleg eða þá alls ekki vera til svo að jafnvel sérfróðir menn undruðust þessi fyrirbæri, þar eð samvizka unglinga er að jafnaði næmari en fullorðinna manna. Hér kemur fram mjög einfaldur sannleikur um uppeld- iskerfi margra landa nú á dög- um: Það er of einhliða kapp- hlaup um vitsmunalega þekkingu (intellectualismus) með einliliða vanrækslu manngiidis og siðgæð- isvitundar. Meðan þetta birtist aðeins sem fráhvarf frá Guði, eru leiðtogar þjóðanna rólegir. En það fer að fara um þá þegar þjóðfélagið fer að mala sig sjálft í sundur þegar í bernsku og ung- dómi. Þá fórna menn höndum og ákalla sérfróða menn. Skortur, allsnægtir og óhóf Það var áður skoðun margra að menn gerðust ekki sekir um afbrot nema þeir væru til þeirra knúðir af skorti, fátækt, atvinnu- leysi eða hungrj Og vist var svo fyrrum að oft var þessu um að kenna að illa íór, Skortur og at- vinnuleysi var ekki aðeins lík- amleg, heldur einnig mikil and- leg neyð. Eðlilegt hefði verið frá mannúðar-sjónarmiði að vægi lega væri tekið á þeim afbrotum, en það var ekki ævinlega gert, svo sem kunnugt er. En dæmið gengur ekki upp með því að gera ráð fyrir skorti, neyð eða fátækt sem hinum eina afbrotavaldi, er til sé. Það vita menn þó að marg ir stálu aldrei hversu fátækir sem þeir voru. í Kína var myndin mjög greinileg. Þjófar stálu hvernig sem áraði og höfðu sér- stök stéttarfélög til þess að bæta kjör sín og komast að samning- um ef svo fór að þeir urðu að skila þýfinu aftur (en það kom fyrir ef þeir höfðu stolið frá hátt settum mönnum). En þegar hungursneyð barði að dyrum milljónanna, þá dó all- ur þorri þeirra, sem dóu án þess mold en að stela og settust síðan með spenntar greipar og biðu dauðans eins og eitt kínverskt máltæki orðar það. Afbrotin hverfa ekki úr sög- unni þótt skortur hverfi og þjóð- félögin búi við auð og ailsnægtir og sjái farborða þeim, sem ekki geta bjargað sér sjálfir. Menn þurfa ekki að sfela fyrir brauði í velferðarríkjum nútímans, sem betur fer. Það sýnir sig líka að sumir fremja afbrot til þess að geta veitt sér ýmsan munað, til þess að bæta efnahag sinn og lífs kjör. Þetta á einkum við um svindl, smygl, falsanir, fjársvik og óheiðarlega verzlun. Tækni og þjálfun koma því mjög við sögu í afbrotum nútímans. Menn láta leigubíla bíða eftir sér með- an þeir sækja þýfi eða ránsfeng. Aðrir taka ávísanakerfi bank- anna í þjónustu sína. Sumir afla -¥•¥ F/órðo grein sér verkfæra, sem eru bæði dýr og vönduð, til þess að geta leyst af hendi erfið verkefni. Hér er skorturinn ekki að verki, heldur blátt áfram vonin um góð lífs- kjör og góða afkomu, sem menn ætla sér að njóta ef lögreglan ó- náðar þá ekki í miðju verki. Sumir líta á afbrotin sem eins konar fyrirtæki eða „útgerð", sem þeir ætla sér aðeins að stunda skamma hríð. Og á með- an þoka þeir til hliðar hugmynd- um um annarra manna rétt og öryggi. fram að tilraunin hefir ekki ver- ið endurtekin svo mér sé kunn- ugt. Stofnanir eins og sjónvarp (og a.n.l. útvarp) geta leyft sér þann munað að vera leiðinlegar og gera það líka óspart í auglýsinga tímum. En vilji þær þjóna þjóð- félaginu, þá ættu þæ • ekki að vera mjög ruddalegar eða sið- lestur góðra bóka menn betri j spillandi og hafa heldur vaðið heldur en þeir væru án þess að fyrir neðan sig hváð æsandi lesa góðar bækur. Virðist hann I efni snertir. Það skal vissulega líta svo á að menn velji sér frem- | viðurkennt að hér er vandrötuð ur lestrarefni sitt í samræmi við hin rétta leið. Búddha talaði um eðli sitt heldur en í þeim tilgangi að breyta því. Þó verður að taka þessa staðhæfingu hans og ann- arra með nokkurri varúð. En á hinu leikur enginn vafi að menn Jesa mjög oft til þess að skemmta sér, tileinka sér nýja þekkingu og viðhalda áunninni þekkingu. Lesmál er af sérfróðum mönn- það, sem leiðir frá þjáningu til þjáningar, en í skemmtanalifi nú tímans vir'ðist leiðin liggja frá æsingi til æsings. í síauknum kröfum um skemmtiefni gefur almenningur beinlínis tilefni til slíkrar þróunar og enginn dirfist að mótmæla eða meta efnið eftir hollustu eða óhollustu. Það verð- um ekki talið til þeirra afbrota- ;ur fullnægja kröfum áhorf- enda og hlustenda, einkum þeim, sem háværastar eru. Meðan þessi Skortur á ítökum í þjóð- félaginu Þótt skortur á daglegum nauð- synjum sé að mestu úr sögunni á Vesturlöndum, þá er hann það ekki á sviði uppeldisins. Ég hef áður vikið að skorti á lunhyggju og ástúð í öðru sambandi og mun ekki ræða það mál hér. En ég vildi benda á annað, sem er á sviði hinna áþreifanlegu hluta. Margir foreldrar hafa ekki skiln- ing á nauðsyn þess að láta börn og unglinga eignast Rök í þjóð- félaginu. Hér þarf ekki að vera um stór verðmæti að ræða til þess að uppeldislegt gildi þeirra komi í Ijós. Þessi ítök í þjóðfélag- inu geta t.d. verið blóm eða tré, lifandi dýr, veiðarfæri, blettur eða beð í garði, verkfæri eða eitthvað annað, sem heldur gildi sínu eða eykur það í samræmi við þá. meðferð, sem það fær. Mjög æskilegt er að taka einnig tillit til þess að börn þurfa að eiga suma hluti sameiginlega. Meðan stórþjóðirnar rifust um Súez-skurðinn, grófu börn nýjan Súez-skurð í sandinn. Ein stúlka var með í hópnum. Að verki loknu var svofelldur úrskurður kveðinri upp af börnunum sjálf- um: Anna á að eiga nokkuð af skurðinum af því að hún hefir unnið í honum. Þar með var út- kljáð málið um eignarrétt á skurð ínum. Enginn, sem unnið hafði í honum, sxyldi sviptur réttindum sínum og engum datt heldur í hug að eyðileggja þann skurð. Myndrænir afbrotavaldar Þótt greint sé frá glæpum eða afbrotum í frásögn, leiðir það að jafnaði ekki til þess að lesendur taki upp á því að fremja sams konar afbrot. Kemur þetta meðal annars af því að þegar börn hafa lært að lesa svo vel að þau geta tileinkað sér slíkar frásagnir, þá hafa þau þegar náð allmiklum þroska. Þó greina sumir fróðir menn svo frá að ungir afbrota- menn telji að þeir hafi lært að- valda, sem verulega kveður að. Hitt er vitað að slæmt lesmál hef- ir mikil áhrif til þess að halda spillingu við og hindrar menn í von því að snúa bak við henni. Miklu hættulegri eru hin myndrænu áhrif. Það er þegar sannað mál að mynd getur borizt til undirvitundar mannsins og leynzt í henni þótt myndin hafi verið sýnd svo stutta stund að ekki var auðið að festa auga á henni. Þannig hefir auglýsing- um verið „smyglað11 inn í annað myndrænt efni og færðar hafa verið sönnur á verkanir þessarar auglýsingartækni og hafa þær reynzt sérkennilega áhrifamikl- ar. Eins og gefur að skilja hefir kvikmynd eða sjónvarpsmynd, sem gengur með eðlilegum hraða, miklu sterkari áhrif en frásögn eða lestur um sama efni. Á myndum má sem sé fylgjast bet- ur með tilburðum, aðferðum og viðbrögðum manna en auðið er með því einu að lesa frásögn af sama efni. Er þetta þegar fyrir löngu viðurkennt með fræðslu- kvikmyndum. Nú berast þess kon ar áhrif til vitundar barna og unglinga á mjög sterkan hátt löngu áður en gagnrýni þeirra og dómgreind hefir náð verulegum þroska. Eftir að sjónvarpið kom til sög- unnar (og að breyttu breytanda á þetta einnig við um útvarpið) hefir eftirspurnin eftir skemmt- ana-efni aukizt stórkostlega. Ekki virðist vera nóg fyrir hendi af góðu efni og er þá gripið til hms lélega. Reyfarar og ræn- ingjasögur eru dubbaðar upp og gerðar að leikrænum „listaverk- um“, sama er að segja um skáld- sögur með æsandi efni og ýmsum sjúklegum manngerðum. Sjón- varpið verður hér útvarpi og kvikmyndum yfirsterkara, í fyx-sta lagi af því að það er mynd rænt og í öðru lagi af því að það berst inn á heimilin. Beri það með sér skaðleg áhrif, þá stendur ekki í mannlegu valdi að þurrka þau út. Þegar sjónvarps- eða útvarps- menn beita þeirri röksemd að notendur geti „bara skrúfað fyr- ir“, þá sýnir þessi röksemd að þeir hafa ekki skilið þau lögmál sem gilda í fjölskyldu eða í hópi barna. „Þú vilt hlusta á þetta (og sjá það) en þá vil ég líka fá hitt“. Örugg leið til þess að vekja at- hygli á einhverju, er að banna það. En bann þarf að vera hægt að rökstyðja í samfélagi siðaðra manna með því að benda á þæy hættur eða þann skaða, sem gera má ráð fyrir ef bannið er brotið. Það er aðeins hinn frumstæði l maður, fullur af óeðlilegum ótta og hömlum, sem hlýðir tabú-lög- leið er farin, er engra umbóta Áhrif sjónvarpsins eru þegar orð- in stórkostleg. Þeirra gætir jafn- vel á dauðum hlutum, eins og vatnsveitukerfum stórborganna. Þeii-ra gætir þegar á heilsufari manna og ekki sízt gætir þeirra í andlegu lífi unga fóllcsins. „Stjörnudýrkunin“ Meðal yngri kynslóðanna hefir sjónvarpið, ásamt kvikmyndun- um, leitt til hinnar svonefndu stjöi-nudýi-kunnar. Sú trú mynd- ast og verður að bjai-gfastri vissu að „stjörnur" kvikmynda og sjónvarps séu til fyrii’myndar bæði um gott og illt. Siðleysi einhverrar „stjörnu“ leiðir yfir- leitt ekki til þess að „stjarnan“ hrapi, heldur til þeirrar skoðun- ar, að það, sem „stjarnan“ leyfir sér, hljóti að vei’a leyfilegt, hverjar svo sem afleiðingarnar verða. „Stjör-nurnar“ eru dýriingar 20. aldarinnar, ekki aðeins í heimi skemmtanalífsins, heldur einnig í stjórnmálum, íþróttum o. fl. Gegn þessu hefir ekki skap- azt eðlilegt mótvægi (þótt tilraun ir séu gerðar í bókum og blöð- um) hér á Vesturlöndum. En í kommúnistaríkjunum hafa til- raunir verið gerðar með því að draga fam í dagsljósið vinnu- hctjur þjóðanna. Kemur það m.a. af því að ríkisvaldið er hinn eini vinnuveitandi, sem verulega kveð ur að og gerir kröfur um síaukin afköst í eiginhagsmuna-skyni Væri þessi hvöt ekki megindrif- fjöðrin, þá væri ekki nema gott um það að segja að heiðra þá menn, sem skilað hafa mikiu og góðu verki og gæti hér skapazt heilbrigt mótvægi gegn einhliða stjörnudýrkun. Þegar vinsælar stjörnur leika í hlutverkum óþokka eða glæpa- manna, þá eru slík myndræn á- hrif öðrum fremur til þess fallin að lauma illum áhrifum inn i undirvitund unglinga og draga þá nær afbi-otabrautinni en ella. Línurnar milli raunveruleika og ævintýraheims, raunhyggju og óraunhyggju (reistiskrar og de- reistiskrar hugsunar) eru ekki að fullu dregnar í vitund hinna ungu. Baráttan gegn afbrotavaldandi teiknimyndum. hefir þegar náð viðurkenningu meðal sumra þjóða og bóksalar þeirra hafa sýnt þjóðfélagi og ungmennum þann þegnskap að greiða fyrir eftiriiti með þessu efni og ár- angur er þegar farinn að koma í ljós í sumum löndum málinu vélrænt. Einu sinni var slík tilraun gerð hér í útvarpinu, svo ég viti. Börn voru vöruð við að hlusta á til- tekið ieikrit. En hugtakið leikrit er sterkara en hugtakið aðvörun og börnin hlustuðu auðvitað. Um svefnleysi barna og andfæli nótt- ina þar á eftir hef ég að vísu ekki skýrslur, en fréttirnar, sem bárust voru ekki góðar og um- mæli íoreldranna ekki fögur. Til heiðurs útvarpinu skal það tekið Hvað gerir gæfumuninn? Mörg áhrif þeirrar menningar, sem haldið er að hinum ungu, eru allt annað en holl. Menning— in smíðar mönnum bæði gæfu og ógæfu. Þó hefir það jafnan tekizt og tekst víða enn að ala upp mikið af sæmdarfólki í flest- um menningarlöndum. En jafnan koma ný vandamál til sögunnar. Mai’gvíslegum blekkingum er haldið að mönnum í nafni menn- ingar og velferðin er oft mjög Frami. é bxs 12

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.