Morgunblaðið - 26.02.1958, Side 17
Miðvik'udagur 26. febr. 1958
MORGVNBLAÐIÐ
17
Frá Búnaðarþingi:
Sfofnuð verði búvísindadeild
við Háskóla íslands
Erindi Ólafs E. Stefánssonar naut-
griparæktarráðunauts um þróun bú-
visinda og æðri búnaðarmenntun
ÓLAFUR E. STEFÁNSSON flutti
á Búnaðarþingi í gær erindi um
þróun búvísinda og æðri bún-
aðarmenntun.
í upphafi máls síns gat Ólafur
um hina milclu vísindalegu og
tæknilegu byltingu, sem byrjaði
fyrir um 200 árum og hefir þróazt
síðan. Eins gat hann þess að vís-
indalegar uppgötvanir koma oft
að haldi í landbúnaði vegna þess
hve fjölbreytilegur hann er.
Landbúnaður er ávallt nauðsyn-
legur þótt aðrir atvinnuvegir efl-
ist. Áður var það bezti undir-
búningurinn til þess að gerast
bóndi að nema hjá góðum bónda
eins og lærlingur hjá meistara.
Nú hefur þetta hins vegar breytzt
og verður bóndinn ávallt að hafa
vakandi auga á öllum nýjungum,
sem að gagni mega koma í bú-
skapnum og vera opinn fynr
leiðbeiningum á þvi sviði.
Nauðsyn aukinnar leiðbciningar
Leiðbeiningarstarfsemin þarf
að vera tiltölulega öflugri í land-
búnaði en í öðrum starfsgrein-
um, vegna þess að framleiðslu-
einingarnar eru svo smáar en
dreifðar. Samfara þessu verður
sú breyting á að viðskipti búsins
aukast og leitar meira í form
iðnrekstrar, þannig að bóndinn
verður háðari öðrum en áður
var. Aukin almenn menntun í
sveitum víða um lönd skapar
betri jarðveg fyrir leiðbeining-
arstarfsemi og bændur gera sí-
auknar kröfur um að fá sér-
fræðilegar leiðbeiningar í ein-
stökum atriðum í búskapnum.
Nánari kynning á högum og
háttum’landbúnaðarins og erfiðri
aðstöðu hans miðað við annan
atvinnurekstur er nauðsynleg,
þar sem eftirspurn eftir fram-
leiðslu hans er ekki eins ört vax-
andi og framleiðslu annarra at-
vinnugreina, sem stafar af bætt-
um efnahag fólks. Fjármagn og
vinnuafl vill því stöðugt leita
til annarra atvinnugreina frek-
ar en til landbúnaðarins. í því
sambandi stendur stéttin belur
að vígi ef hún og starfsmenn
hennar eru vel menntaðir.
Aukin hagnýting vísinda í
þágu landbúnaðarins gerir það
að verkum að þeir vísindamenn,
sem fyrir hann vinna verða að
vera fyllilega jafnvel menntað
ir og vísindamenn, sem vinna
fyrir ýmsar aðrar atvinnugrein
ar, enda eru kröfur í þessum efn-
um stöðugt vaxandi víða um
lönd.
Innlend menntun aeskilcg'
Þá rakti Ólafur þróun leið-
beiningarstarfsemi á sviði land-
búnaðarins hér á landi, ennfrem-
ur þróun hans sem atvinnugrein-
ar borið saman við nágranna-
löndin, en hér hefði hún verið
svipuð. í framtíðinni verður því
að gera mjög auknar kröfur um
menntun starfsmanna landbún-
aðarins hér á landi til þess að
við verðum ekki á eftir í þróun-
inni. Vegna sérstöðu íslenzks
landbúnaðar er æskilegt að æðri
menntun á sviði hans fari fram
í landinu sjálfu og að tilrauna-
starfsemin verði efld til þess
að leysa staðbundin verkefni, en
ttl þess að þessi menntun verði
veitt á viðunandi hátt verður
hún að vera á hinu akademiska
fræðslustigi, sagði Ólafur. Við
Háskóla íslands væri bezt aðstaða
ti. peas að veita siíka fræðslu
og landbúnaðinum væri aðeins
það bezta samboðið.
hins fornfræga Edinborgarhá-
skóla, en þar hefir landbúnaðar-
deild verið frá því 1790. Þar hef-
ir námið nýlega verið lengt í 4
ár og komið upp mjög góðri að-
stöðu á búi fyrir ýmsar rannsókn-
arstofnanir. Deildin var þó ekki
flutt þangað þegar þurfti, sökum
þrengsla, að rýma hinn gamla
háskóla heldur var hún flutt í
nýtt hverfi í borginni þar sem
áður hafði verið byggt yfir ýms-
ar aðrar vísindastofnanir há-
skólans. Þannig var það metið
meir að hafa náin tengsli við aðr-
ar vísindadeildir í fræðilegum efn
um og félagslífi heldur en það
að kennslan færi öll fram á bú-
garðinum.
Samræma búnaðardeild
og atvinnudeild
Nú er svo komið að ekki er
hægt með sæmilegu móti að gera
þær tilraunir og rannsóknir við
búnaðardeild atvinnudeildarinn-
ar, sem aðkallandi eru, sökum
húsnæðisskorts og vöntunar á að-
stöðu og færi því vel á því að
leysa vandamál beggja þessara
stofnana sameiginlega og tók Ól-
afur undir orð Þórðar V. Þórðar-
sonar um að Korpúlfstaðir væri
mjög heppilegur staður til þess
að leysa þennan vanda. Þetta mál
taldi Ólafur að myndi verða bæði
bændastéttinni og Reykjavíkur-
kaupstað til hagsældar og stuðla
að því að auka nauðsynlegan
skilning á landbúnaði meðal ann-
arra stétta þjóðfélagsins.
Ólafur flutti langa ræðu, sem
ekki er unnt í stuttum útdrætti
að gera full skil, vitnaði til víð-
tækrar starfsemi á erlendum vett
vangi, rakti sögu og þróun
landbúnaðarins og vitnaði til er-
lendra vísindastofnana og al-
þjóðaráðstefna um landbúnaðar-
mál, sem hér er ekki nánar getið.
Hann endaði ræðu sír.a á þessa
leið:
„í framtíðarþjóðfélagi munu
vísindi tengd atvinnuvegum
hverrar þjóðar skipa virðulegan
sess í æðstu menntastofnunum
hvers lands. Það hlutverk há-
skóla að leita fegurðar og auka
víðsýni og skilnmg manna og
þjóða á milli er að vísu ekki síð-
ur mikilvægt en að hjálpa til
við uppbyggingu atvinnuvega og
bæta lífskjör manna, þvi að mað-
urinn lifir ekki á brauði einu
saman, en gleymum því þó aldrei
að án þess lifir hann heldur
ekki“.
Ólafur E. Stefánsson.
Þá g'at Ólafur um hinar öru
framfarir, sem orðið hefðu eftir
síðustu styrjöld með aukningu
ræktunar og uppþurrkun lands,
ennfremur nýrrar löggjafar um
þessi efni, sem gerði búnaðar-
samböndunum kieift að ráða til
sin héraðsráðunauta. Framhalds-
deildin á Hvanneyri var stofnuð
um svipað leyti og kom að mjög
góðu gagni eins og óstatt var.
Það hefur verið skortur á lang-
skólagengnum leiðbeinendum í
landbúnaði þar sem launakjör
slíkra manna hafa yfirleitt verið
þannig að þau hafa ekki verið
til þess fallin að hvetja menn
til langskólanáms í landbúnaði.
Framhaldsdeildin hefur gert
mjög mikið gagn til þess að bæta
úr brýnustu þörfum búnaðar-
sambandanna við þessar aðstæð-
ur en hins vegar munu verkefni
ráðunauta verða fjölþættari í
framótíðinni og því þurfa þeir að
fá víðtækari menntun og þjálf-
un í rannsóknarstofum, auk þess
sem þeir þurfa verklega fræðslu
á búi.
Álit Þórðar V. Þórðarsonar
í þessu sambandi má geta þess
að Vestur-íslendingurinn Þórð-
ur V. Þórðarson, sem fenginn var
hingað til lands fyrir tæpum
tveimur árum á vegum Búnað-
arfélags íslands til að gefa ráð-
leggingar í landbúnaðarmálum,
hélt því fram að kennslu í bú-
vísindum væri mjög ábótavant
hér og hann teldi það mál bezt
leyst með því að Háskóli Islands
sæi um kennsluna og benti jafn-
fram á Korpúlfsstaði sem æski-
lega miðstöð fyrir vísindaiðkun
landbúnaðarins. Ekkert ætti að
vera til að fæla nemendur úr
sveit til að stunda nám við Há-
skóla íslands, hins vegar mætti
búast við því að fleiri stúdentar
legðu stund á landbúnaðarnám
er búvísindadeild yrði stofnuð
við Háskólann og þannig yrði
meira úrval sérmenntaðra manna
í landbúnaði.
Ýmislegt hefir verið fundið því
til foráttu að kennsla í þessurn
efnum færi fram í Reykjavík en
hins vegar væri aðstaða til rann-
sókna þar bezt og mikilvægt að
auka kynni milli landbúnaðar-
stúdenta og annarra stúdenta. í
þessu sambandi vitnaði Ólafur til
Landsliðið í
heimsmeist-
arakeppn-
innar
í DAG heldur ísl. landsliðið í
handknattleik utan til Þýzka-
lands þar sem það tekur þátt í
heimsmeistarakeppninni. Liðið
heidur liéðan fluglciðis og lendir
í Kaupmannahöfn. Er þangað
kemur taka gestgjafarnir við því
og sjá því fyrir ferðum á mots-
stað og til baka aftur.
f þcssu skyni senda þeir sér-
staka flugvél til Hafnar eftir lið-
inu. Flytur hún það til Magde-
burg en þar fara leikir íslendinga
fram — ísland er í riðli með
Tékkum, Ungvcrjum og Rúmen-
um. Á morgun, fimmtudag, mæta
íslendingar Tékkum. Hinn 1.
marz er annar leikur þeirra og
síðast mæta þeir Ungverjum.
Myndin hér að ofan var tekin
á einni æfingu ísl. liðsins. Gunn
Iaugur Hjálniarsson hefur komizt
inn fyrir og býr sig undir að
skora. Um leið og landsliðið er
kvatt fylgir því sú ósk, að skot
menn þess megi sém oftast kom
ast í færi. Og, þótt raunin fram
undan sé erfið, að takast megi
að ná árangri sem minnsta þátt-
tökuþjóðin megi una við
handknattleik farið til
ÍR vann KR og í S
vann h-lið KFR
MEISTARAMÓTIÐ í körfuknatt-
leik hélt áfram á þriðjudags-
kvöldið að Hálogalandi. Mótið
hófst síðastliðinn föstudag og var
þetta annað leikkvöldið.
ÍR : KR 48 : S«
Fyrri leikur kvöldsins var á
milli ÍR og KR.
Almennt var búizt við auðunn-
um sigri ÍR, því liðið hefur á
að skipa mörgum af beztu og
reyndustu mönnum íþróttarinn-
ar, en liðsmenn KR eru nýliðar
margir hverjir.
Leikurinn var spennandi fram-
an af, en náði aldrei að verða
skemmtilegur í fyrri hálfleik. —
Sendingar rnanna á milli voru
ónákvæmar og einkennilegt hve
menn hittu illa, þótt þeir væiu
oft í góðu skotfæri. ÍR-ingar
náðu fljótlega yfirhöndinni, en
KR-liðið fylgdi fast eftir, og
endaði hálfleikurinn með 16 stig-
um gegn 11 fyrir ÍR. Síðari hálf-
leikur var mun betur leikinn
og nokkuð jafn framan af. —
skemmtilegasti kafli leiksins
voru fyrstu tíu mínútur seinni
hálfleiks. Spilið var nú léttarr
og jákvæðara en í fyrri hálfleik.
og menn höfðu meiri fjölbreytn:
í samleik og skotum á körfu. —
ÍR-ingar, sem höfðu leikið vörn-
ina maður gegn manni, tóku nú
það ráð, að hver maður fylgdi
mótstöðumanni sínum um allan
völl. KR-liðið hafði ekki lag á að
nota viðáttu vallarins og eyðurn-
ar sem mynduðust í vörn ÍR, og
varð spil þeirra nú aftur þungt
og þvingað.
Þá var það, að knötturinn
lenti af afli miklu í annarri keðj-
unni, sem heldur uppi ljósa-
stæði einu í salnum og með
einhverjum hætti bilaði keðjan.
Svo var guði fyrir að þakka, að
hin keðjan hélt ljósastæðinu
uppi, því stórslys hefði getað
orðið, ef hún heíði brostið. Það
skal tekið íram, að Ijósin virðast
vel fest upp. Með hjálp leik-
manna var örugglega gengið fra
ljósastæðinu og leiknum síðan
haldið áfram.
Það sem eftir var leiksins voru
ÍR-ingar í sókn og skoruðu jafnt
og þétt, eiginlega í hverju upp-
hlaupi. Leiknum lauk með sigri
ÍR, 48 stig gegn 28.
ÍR vann leik þennan aðallega
með flýti sínum, þó brá fyrir oft
á tíðum skemmtilega útfærðu
spili. Lárus og Helgi Jóhannssoa
sýndu oft skemmtileg tilþrif, og
er knattmeðferð þessara manna
til fyrirmyndar, kemur þetta
bezt í Ijós í návígi — hvernig
þeir losa af sér mótstöðumann-
inn með bolsveigju. Helgi Jóns-
son er mjög snöggur leikmaður,
og honum tókst oft á tíðum að
„stela“ knettinum frá andstæð-
ingunum og leika síðan upp og
skora.
KR-ingana skortir tilfinnan-
lega festu, einkum þegar líða fer
á leikinn. Gunnar Jónsson er
mjög efnilegur ungur leikmaS-
ur, sem mikils má vænta af í
framtíðinni.
Honum hættir þó til að halda
knettinum of lengi. Grettir Pál»-
son lék nú með liðinu, hann lék
ekki gegn stúdentum um daginn
en virðist ekki í æfingu. KR lék
svæðisvörn og virðist þessi vöm
henta liðinu vel. Jákvæðar væri
þó að hafa Birgi sem bakvörð
og Gunnar sem framvörð. Gunn-
ar gæti jafnt sem áður komið
fram með knöttinn og byggt upp
sóknina.
ÍS : KFRb-lið 81:24
Seinni leikurinn var á milli
íþróttafélags stúdenta og b-liðs
Körfuknattleiksfélags Reykja-
víkur. Leikurinn var með af-
Framh. á bis. 19.