Morgunblaðið - 05.03.1958, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 05.03.1958, Blaðsíða 8
8 MORGZJNBLAÐIÐ Miðvik'udagur 5. marz 1958 tXtg.: H.í. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: öigfus Jónsson. ÖR HEÍMÍ ) — Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benedíktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Óla, sími 33045 Auglýsingar: Arni Garðar K.ristmsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22480. AsKnftargjald kr. 30.00 á mánuði innaniands. í lausasölu kr. 1.50 eintakið. Á ÍSLAND AÐ VERA LOKAÐ LAND ? M ALLAN hinn vestræna heim, þar sem lýðræðis- skipulag ríkir meðal þjóð- anna, er talið sjálfsagt og eðlilegt að fullkomið frelsi ríki um frétla öflun og fréttaflutning. Fréttafrelsið og þekkingin á eðli hlutanna og því sem er að gerast er í raun og veru einn af mikilsverðustu hyrningarsteinum lýðræðisins. Á því byggjast að verulegu leyti möguleikar fólks- ins til þess að dæma um menn og málefni, velja og hafna á sviði stjórnmála og menningarmála. AHir frjálslyndir menn og góðir lýðræðissinnar hljóta þess vegna að standa vörð um fréttafrelsið. Kveinstafir vinstri stjórnairinnar Svo einkennilega hefur brugð- ið við, síðan hin svokallaöa vinstri stjórn var mynduð hér á landi, að hún og málgögn henn- ar hafa haft uppi sífellda kvein- stafi yfir því, að íslenzkir frétta- menn erlendra fréttastofnana hér á landi hafa eins og jafnan áður sent fréttastofnunum sínum fregn ir af því, sem hér hefur venð að gerast, bæði á sviði stjórnmála. efnahagsmála og á ýmsum öðr- um sviðum þjóðlífsins. Er óhætt að fullyrða, að þessar fregnir sem sendar eru af starfandi blaða- mönnum í öllum hinna pólitísKu flokka, séu í aðalatriðum sannar og réttar. En stjórnarblöðin, sérstaklega Tíminn, hafa ekki náð upp í nef- ið á sér vegna reiði yfir því, að slíkar fréttir skuli hafa verið send ar frá íslandi. Hafa fréttasend- ingarnar verið brennimerktar sem „rógur“ og „ófrægingarstríð" um ísland og hagsmuni þess. Hver er ástæða þessa ótta vinstri stjórnarinnar og þá sér- staklega Tímamanna við fréttir af því sem gerist hér á landi, um þessar mundir? Ástæðan er engin önnur en sú, aS undir niðri skammast Framsóknarmenn sín fyrir samneytið við kommúnista. Þeir vita að sú ráðabreytni Hermanns Jónassonar að fá kommúnistum ráðherraem- bætti í einu af aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins, sem stofnað var til íess að berjast gegn hinum alþjóðlega komm únisma og tryggja heimsfrið- inn, hefur vakið undrun um aif an hin vestræna heim. Sú staðreynd verður heldur ekki sniðgengin, að þátttaka kommúnista í ríkisstjórn á Is- landi hefur veikt traust og álit íslenzku þjóðarinnar meðal lýð- ræðisþjóða, og þannig valdið Is- landi miklu tjóni. Þetta er ástæða þess að Framsóknarmenn og sam starfsmenn þeirra í vinstri stjórn- inni vilja helzt að ísland sé lok- að land, eins og þrælakistur kommúnista fyrir austan járn- tjald. Tímamenn treysta á heimskuna. Tímamenn hafa alltaf treyst á heimskuna og talið hana sinn traustasta bandamann. Það hefur m. a. sézt greinilega á skrif- um þeirra um fréttaöflun og fréttaflutning undanfarið. — Þar hefur því meðal an.iars verið haldið fram, að upplýs- ingar um íslenzk efnahagsmál á erlendum vettvangi frá fréttarit- urum erlendra fréttastofnana hér á landi væri rógur um þjóðina og stórhættulegar hagsmunum her:n ar. Tíminn heldur að ísl. fólk viti það ekki, að sjálf ríkisstjórn- in og ýmsar stofnanir ríkisirs senda hvers konar upplýsingar um íslenzk efnahagsmál tiJ margra erlendra stofnana viðs vegar um lönd og að erlend sendi ráð á íslandi hafa fullan aðgang að öllum þeim upplýsingum, sem þau kynnu að óska um íslenzk efnahagsmál. Á sama hátt hafa íslendingar greiðan aðgang að hvers konar upplýsingum um það, sem er að gerast í efnahagsmálum nágranna þjóða þeirra. Fréttaöflun og blaðe útgáfa er einmitt fólgin í því, að gefa þjóðunum sem fullkomnasc- ar uppiýsingar um það sem ec að gerast í kringum þær. Á meðan ísland aðhyllist lýð- ræðisskipulagið en hafnar svart- nætti og ofbeldi kommúnismans. verður það ekki .lokað land ems og Tímamenn og félagar þeirra i vinstri stjórninni krefjast. Innilokunarstefna vinstri stjórnarinnar sýnir hve rík á- hrif kommúnista eru á stjórn- arfar þjóðarinnar í dag. And- staðan gegn því stjórnarfari vex með hverjum degi sem líður. „MILLIFLOKKUR- INN" OG VERKA- LÝÐSFÉLÖGIN R AMSÓKN ARFLOKKUR- ^ INN segist vera „milli- flokkur" íslenzkra stjórn- mála. En hver er sönnun þess að hann sé það? Hann hefur nú tekið upp nána samvinnu við kommúnista inn- an verkalýðshreyfingarinnar og leggur nú fram alla krafta sina til þess að tryggja völd þeir>'a innan Alþýðusambands íslands. En jafnframt hefur Framsóko- arflokkurinn svikið Alþýðuflokk- inn, sem hann gekk í bandaiag við vorið 1956 til þess að vinna bug á kommúnismanum á Íslandí. Það er vissulega kaldhæðni ör- laganna að hinn íslenzki „milíi- flolckur“ skuli nú haga sér þann- ig að auðsætt er, að hann stefr- ir beinlínis að því að ganga milli bols og höfuðs á flokki jafnaðat- manna, þeim stjórnmálaflokki. sem Framsóknarmenn hafa sífellt þótzt bera fyrir brjósti og talið nauðsýnlegt að efla. Annars sýnir hin nána sam- vinna Framsóknarmanna og kommúnista í verkalýðsfélög- unum greinilegar en nokkuð annað hina einstæðu henti- stefnu Tímaliðsins. FYRTR kosningar heitir Framsóknar- flokkurinn því að standa við hlið Alþýðuflokksins gegnum þykkt og þunnt til þess að út- rýma kommúnismanum á Is- landi. EFTIR kosningarnar hefur Framsóknarflokkurinn forustu um það að taka komm únista í ríkisstjórn og gerir síðan bandaiag við þá innan verkalýðssamtakanna gegn Ai þýðuflokknum! Á sá flokkur sem þannig hagar sér nokkurn snefil af æru efth? Sennilegt, að ,fegrunarbýli' í Arizona beri á góma í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum í ár Hver er Norma Mortenson? — Tv'ifari Montgomerys á ekkert skirnarvottorð BLAÐAFULLTRÚI Eisenhow- ers, James Hagei'ty, varð ösku- vondur á blaðamannafundi í sl. viku. Orsökin var sú, að blaða- menn gagnrýndu þá ráðstöfun að láta flugvél forsetans fara mörg þúsund km krók til að koma Mamie Eisenhower og tveim öðr- um konum til „fegrunarbýlis" í Arizona. Var forsetinn þá á leið heim úr tíu daga fríi. inni fyrir. Fegrunaraðgerðirnar fela í sér allt, sem hugazt getur og hugurinn girnist, hvers konar snyrtingu, andlitsnudd, sérstakt mataræði til að léttast o. s. frv. Gestirnir geta valið milli 600 mismunandi fegrunaraðferða. — Fylgja verður mjög ströngum reglum. Aldrei er farið að hátta seinna en kl. 10, og gestirnir fá morgunmatinn í rúmið kl. 8. — Tvær sundlaugar eru á býlinu. Hagerty sleit blaða- manuafundinum Sími í beinu sambandi Maria Vlady — öðru nafni Poliakoff Baydaroff. Er einn blaðamannanna spurði hvort vinkönurnar hefðu greitt fargjald, varð Hagerty svo reið- ur, að hann sleit blaðamannafund inum. Málið er lítilvægt í sjálfu sér, en ber vott um vaxandi per- sónulega gagm-ýni, sem Eisen- hower sætir nú, en hefði verið ó- hugsanleg fyrir hálfu ári. En „fegrunarbýlið" í Arizona getur Mamie Eisenhower og Clare Booth Luce. orðið mikið mál í kosningabar- áttunni í ár, en kosningar fara fram í nóvember nk. í Banda- ríkjunum. ★ „Fegrunarbýlið" er eigin Elíza- betar Arden, snyrtidrottningar- innar, og forsetafrúin ætlar að dveljast þar í tvær vikur, ásamt systur sinni, frú Gordon Moore, og vinkonu sinni, frú Ellis Slater. Ekki er þó ástæðan sú, að því er Hagerty segir, að „forsetafrú- in þurfi að verða fallegri, heldur þarfnast hún hvíldar og útivist- ar“. Og það getur hún fengið á „fegrunarbýlinu" fyrir sem svar- ar 10 þús. ísl. kr. á viku. Fegrunarsérfræðingarn* ingUlcói-i en gestirnir. Á býlinu eru 50 fegrunarsér- fræðingar reiðubúnir til að þjóna gestunum, sem eru aldrei fleiri en 25, svo að hver gestur hefur tvo sérfræðinga til umráða. — Meðal fastra gesta eru Clare Booth Luce, fyrrverandi sendi- herra Bandaríkjanna í Rómaborg, Perle Mesta, sem er frægust fyrir samkvæmi sín i Washington, og leikkonan Ethel B^rrymore. Býlið er umkringt hárri gadda vírsgirðingu, og vopnaðir varð- menn gæta þess, svo að ekkert geti raskað fegrunaraðgerðunum við Washington Mamie Eisenhower býr þarna í litlum sumarbústað, sem kona fiðluleikarans Jascha Heifetz hef ir lánað henni. Nýlega var sumar bústaðurinn endurbættur, og lagð ur þar inn sími, sem er í beinu sambandi við Washington. ★ Kannast’nokkur við ungfrú Normu Mortenson? Sennilega ekki, og samt er hún heimsfræg — en reyndar undir nafninu Marilyn Monroe. Audrey Hepburn heitir réttu nafni Edda van Heemstra. Ef kvikmyndafélög í Holly- wood tækju allt í einu að aug- lýsa hin réttu nöfn kvikmynda- leikaranna, yrðu kvikmyndaunn- endurnir alveg ruglaðir í ríminu. Þá myndi Cary Grant allt í einu verða Archibald Alexander Leach og Kirk Douglas heita nafni, sem væri mjög erfitt í fram burði — Yssur Danjelovich Dun- skitsky. Söngvarinn Mario Lanza heitir réttu nafni Alfredo Ama- deo Coglicozza, Rita Hayworíh heitir Marguerithe Cansino, Jenni fer Jones var skírð Phyllis Eisley og engum mundi detta í hug að Audrey Hepburn héti raunveru- lega Edda von Heemstra. Allir leikkonan Maria Vlady hafi lagt á hiiluna sitt slavneska naxn Poliakoff-Baydaroff. k Á styrjaldarárunum átti Mont- gomery sinn tvífara, leikarann Clifton James, sem hafði þann siarfa á hendi að biekkja þýzku upplýsingaþjónustuna. Tókst hon um þetta mjög vel í Norður- Afríku 1944, en þangað ferðaðist hann, og varð það til þess, að Þjóðverjar héldu að innrásin yrði hafin þar. Á meðan var Montgom ery í Lundúnum og undirbjó af kappi innrásina í Normandí. „Ég var tvífari Montys“ Clifton James kom til Englands frá Ástralíu 1898, þá ársgamalL Montgomery og Clifton James. Fyrir nokkrum árum skrifaði hann bók, „Ég var tvífari Mont- ys“. Kvikmyndafélag nokkurt er nú að gera kvikmynd eftir þess- ari sögu. í kvikmyndinni á James að leika bæði sjálfan sig og Mont gomery. Fyrir skömmu þurfti James að fá vegabréf til að komast til Gi- braltar og Norður-Afríku, þar sem taka á hluta af kvikmynd- inni. Þá kom í Ijós, að James átti ekkert skírnarvotorð, svo að segja má, að Clifton James sé ekki til! Skírnarvottorðið mun hafa týnzt, þegar foreldrar hans, sem látnir eru fyrir löngu, fluttu til Englands. Á styrjaldarárunum, er hann ferðaðist um sem Montgomery, var ekkert hugsað um vegabréf, og enginn uppgötvaði, að skírn- arvottorðið vantaði. Nú hefur brezka utanríkisráðuneytið látið hann hafa vegabréf til bráða- birgða, og í því stendur, að hann sé ríkisfangslaus. Perle Mesta og Ethel Barrymore. Norma Mortenson — öðru nafni Marilyn Monroe. þekkja Walt Disney, en aðeins fá ir vita, að hann heitir Walter Elí- as. Fyrir mörgum áratugum hóf Maria Magdalena von Losch kvik myndaferil sinn sem Marlene Dietrich. Alida Valli bar einnig þýzkt nafni og hét Maria Alten- burger. Sophia Loren heitir raun verulega Siphia Scicolone. Það er eðlilegt, að franska kvikmynda- LONDON, 3. marz — Murphy, fulltrúi Bandaríkjastjórnar, sem hefur gengizt fyrir sáttaumleit- unum milli Frakka og Túnis- manna — er nú kominn til Lund- úna frá viðræðum í Túnis og París. Mun hann ræða við brezka sáttasemjarann. f viðtali við blaðamenn sagði hann, að honum hefði tekizt að samræma sjónar- mið Frakka og Túnismanna lítið eitt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.