Morgunblaðið - 05.03.1958, Qupperneq 16
VEÐRID
J'íorðan stinningskaldi — víðast
léttskýjað
54. tbl. — MiSvikudagur 5. marz 1958.
Búnaðarmenntun
Sjá bls. 9.
OEEC hefiir oft rætt um
efnahagsvandamál Islands
- einkum greiðsluhallann
Segir M. René Sergent forstjóri
stofminariimar
— ÞÓTT ÍSLAND sé minnsta landið í Efnahagssamvinnustofnun
inni, OEEC, er nú oftar rætt um það og efnahagsvandamál þess en
flest önnur lönd í þessum samtökum.
Þannig mælti M. René Sergent, forstjóri OEEC, við komuna til
Reykjavíkur í gærkvöldi. E» eins og áður var tilkynnt er nú komin
til Reykjavíkur sendinefnd frá OEEC, sem ætlar að kynna sév
efnahags- og atvinnulíf landsins og einkum að kynna sér mögu-
Jeikana á að auka sölu á hraðfrystum fiski til OEEC-landanna. Þá
ber þess að geta, að M. René Sergent mun í kvöld kl. 6 flytja fyrir-
ltstur í Háskólanum, sem fj-allar um fríverzlunarsvæðið.
Með honum í nefndinni eru Mr. John G. McCarthy, fulltrúi
Bandaríkjanna hjá OEEC, og Mr. John Fay, yfirmaður hagfræði-
deildar stofnunarinnar.
Sendinefnd OEEC stígur niður úr Hrímfaxa á Reykjavíkur-
flugvelli. í henni eru þrír menn og sjást þeir fremstir þeirra,
sem ganga út úr flugvélinni. M. René Edmond Sergent, Mr.
John McCarthy og nokkru fyrir aftan þá Mr. John Fay.
(Ljósmynd: F. í.)
s-
I fyrsta skipti dæmdur
og hlaut 2. mán. fangelsi
Fréttamanni Mbl. gafst tæki-
færi til að hitta nefndarmenn,
sem snöggvast að máli á flug-
vellinum í gær. Kvað M. René
Sergent, ferðina frá London til
fslands hafa gengið ágætlega.
Aðeins hefði verið nokkur bið á
Lundúnaflugvelli. — En þessi
bið gaf okkur tækifæri til að
líta í þykka búnka af skjölum í
skjalatöskum okkar og kynna
okkur þannig þetta norðlæga
land, sem við höfum ekki heim-
sótt áður, sagði M. Sergent og
bætti því við að Mr. McCarthy
hefði heldur ekki komið áður
til íslands.
— Og hver eru þessi efnahags-
vandamál íslands, sem oftast
hefur borið á góma í OEEC?
— Það er hinn óhagstæði
greiðslujöfnuður og hvernig
hægt sé að ráða bót á honum
t. d. með auknum útflutningi.
Frakkland átti á sínum tíma í
þessum sömu erfiðleikum, en nú
er það ísland, sem er verst statt
af þátltökuríkjunum.
■— Hvenær er ætlunin, að vænt
anlegar þátttökuþjóðir í Frí-
verzlunarsvæðinu segi af eða á
um þátttöku í því?
— Það hefur verið talað um
frest til næstu áramóta, en senni-
lega er það ekki svo nákvæmt,
heldur verða veittir lengri frest-
ir, enda er þetta flókið mál, sem
hinar einstöku þjóðir vilja íhuga
vel.
— Ég ætla ekki að spyrja yður,
hvort það hafi mikla þýðingu
fyrir ísland að gerast aðili að
fríverzlunarsvæðinu, það er okk-
ar að segja um það. En er það
ósk annarra þátttökuríkja að Is-
land verði með í samstarfinu og
hvers vegna?
— Meðan ísland er kyrrt á
sínu landgrunni miili Evrópu og
Ameríku þá er það mikilvægt
fyrir okkur alla að það sé með.
íslendingar eru vestur-evrópsk
þjóð, af líkum up’pruna og líkri
menningu og hinar þjóðirnar.
Því þarf enginn að ímynda sér,
að ísland verði sett útundan í
evrópsku samstarfi.
— Hvernig fer með viðskipti
okkar íslendinga við Rússland
og önnur Austur-Evrópulönd, ef
við gerumst aðilar að Fríverzl-
unarsvæðinu? Verður ekki skor-
ið á þá viðskiptaþræði?
— Þó eitthvað ríki gangi í
Fríverzlunarsvæðið, er ekki þar
með verið að takmarka á neinn
hátt viðskipti þess út fyrir svæð-
ið. Ríki þau sem eru aðilar að
verzlunarsáttmálanum GATT
munu t. d. eftir sem áður skipta
við Austur-Evrópu. Formlega er
þvi ekkert því til fyrirstöðu, að
íslendingar haldi áfram við-
skiptum austur á bóginn. Spurn-
ingin er aðeins, hvort það verð-
ur lengur hagkvæmt fyrir þá og
út í þá sálma get ég ekki farið.
René Sergent er einn hinna
kunnustu hagfræðinga í heimi.
Mun mönnum gefast tækifæri til
að heyra erindi hans um Frí- l
verzlunarhugmyndina í Háskól-
anum I kvöld ki. 6.
Afli að glæðad hjá
Hatnartjarðarbátum
HAFNARFIRÐI — Um síðustu
mánaðarmót höfðu bátarnir feng-
ið 1120 lestir í 309 róðrum eða
um 3,6 lestir að meðaltali í róðri.
En á sama tíma í fyrra var heild-
araflinn 1309 lestir.
Bátarnir eru nú allir hættir
með línu og komnir á þorskanet.
Er afli nú eitthvað að aukast,
og hafa bátarnir fengið dágóðan
afla þegar gefið hefir á sjó. Tog-
ararnir hafa aflað með betra móti
nú undanfarið. Er afli þeirra ým
ist unninn í frystihúsunum eða
hengdur upp. — G. E.
SÍÐASTL. sunnudag fékk togar-
inn Harðbakur tundurdufi í vörp
una er hann var staddur að veið-
um djúpt út af Gjögrum. Urðu
slcipverjar duflsins ekki varir
fyrr en það var komið inn á dekk.
Veður var sæmilegt. Þá þegar
var skipinu snúið til hafnar og
átti það að fara beint til Sauðár-
króks en þangað átti maður að
koma frá landhelgisgæzlunni tii
þess að gera duflið óvirkt. En
ekki var flogið til Sauðárkróks
þann dag og hélt Harðbakur því
til Akureyrar og kom maður
þangað á mánudaginn og gerði
duflið óvii-kt þar. Skipið losaði
síðan 31 tonn af fiski á Akureyri
Vel ganga
i ef aveiðarnar
FRÁ ÍSAFJARÐARDJÚPI, 4.
marz 1958. — 1 gær var fann-
koma nokkur við Djúp. Refaskytt
urnai" úr Reykhólasveit, sem
komu þangað til refaveiða hafa
fengið 12 tófur, flestar í Reykjar-
fjarðarhreppi, og lítur vei út með
áframhaldandi veiði. Bátar úr
veiðistöðvum í útdjúpinu fiska
vel enda hafa verið góðar gæftir.
Útbeit fyrir sauðfé og hross
sæmilega góð og gott veður jafn-
an undanfarið. — P. P.
í HÆSTARÉTTI er genginn
dómur í máli sem ákæruvaldið
höfðaði gegn 24 ara Vestmanna-
eyingi fyrir líkamsárás. Þessi
maður hefur 12 sinnum komizt í
kast við lögregluna vegna ölv-
unar og hvers konar óspekta og
jafnan sloppið i»ieð sáttargjörð og
smáv. skaðabótagreiðslur. Hann
hlaut nú í fyrsta skipti dóm. 1
undirrétti í Vestmannaeyjum var
hann dæmdur í tveggja ára fang-
elsi algjörlega óskilorðsbundið og
þann þunga dóm staðfesti Hæsti-
réttur yfir manni þessum.
Forsaga máls þessa er á þá
leið að aprílkvöld eitt 1955 hand-
tók lögreglan í Vestmannaeyjum
mann að nafni Bergstein Theodór
Þórarinsson, Eystri Gjábakka
þar í bænum. Fyrir utan Hótel
H. B. hafði hann ráðizt á tvo
menn. Sá fyrri, sem fyrir árás
hans varð fékk mikið högg á
kjálkann, algjörlega að tiiefnis-
lausu. — Var Bergsteinn
Theódór að þjarma að öðrum
en það var 1J4 sólarhrings afli,
hélt það síðan á veiðai'.
Þetta er fjórða duflið sem Ak-
ureyrartogararnir fá á einu ári.
Skipstjóri á Harðbak er Vilhelm
Þorsteinsson og er þetta annað
duflið, sem hann fær um horð í
skip sitt, en hann hefir verið
skipstjóri siðan í júní 1956.
3 umferðum lokið
HAFNARFIRÐI — Þriðja um-
ferð á skákmótinu var tefld á
sunnudag og fóru leikar svo, að
Jón Kristjánsson gerði jafntefli
við Ólaf Sigurðsson, sömuleiðis
Skúli Thorarensen og Guðm. S.
Guðmundsson. — Stígur Herluf-
sen vann Sigurgeir Gíslason, en
skák þeirra Eggerts Gilfers og
Hauks Sveinssonar var frestað
sökum veikinda hins síðarnefnda. ;
— Staðan eftir þrjár umferðir 1
er sem hér segir:
1. Stígur Herlufsen 214 vinn-
ing, Guðm. S. Guðmundsson hef-
ur lVz og biðskák, Ólaíur Sig-
urðsson, Jón Kristjánsson og
Skúli Thorarensen 1 v. og biðsk.
6. er Ilaukur Sveinsson með V2
v. og 2 biðskákir, Sigurgeir Gísla-
son V2 v. og 1 biðskák, Eggert
Gilfer engan vinning og eina bið-
skák. — 4. umf. verður tefld í
kvöld. —G. E.
manni er lögreglan kom á vett-
vang. Um þessa árás hefur hinn
ákærði ekkert getað borið..
Kvaðst ekkert muna hvað hann
hafi aðhafzt þennan dag eftir kl.
5 sakir ölvunar.
I sakadómi var gerð sátt. Und-
irgekkst Bergsteinn Theodór að
greiða manninum sem hann barði
fyrirvaralaust, 1000 kr. í skaða-
hætur fyrir áverka er hann hlaut
við það. En við rannsðkn síðar
kom í ljós að Bergsteinn Theodór
hafði kjálkahrotið mann þennan.
Skarst þá ákæruvaldið í málið,
rifti sátt þeirri er gerð hafði
verið og höfðaði mál gegn Berg-
steini Theodóri. Um leið var og
tekið inn í kæru þessa önnur
líkamsárás er Bergsteinn Theo-
dór liafði gerzt sekur un. í júlí-
mánuði 1956. Var það árás á
mann nokkurn utan við hús eitt
þar í hænum. Vitnum ber saman
um að Bergsteinn Theodór hafi
siegið mann þennan tvö högg £
andlitið fyrirvaralaust, eða
fyrirvaralítið með þeim af-
leiðingum að hahn hafi fail-
ið í rot. Hinn ákærði var
þá drukkinn, svo og sá sem fyrir
árásinni varð. Vitni sem getið er
í dómskjölum telja sig ekki hafa
séð að hinn ákærði yrði fyrir
neinu höggi. Aftur á móti teiur
Bergsteinn Theodór fyrrgreind-
an mann hafa slegið sig að fyrra
bragði.
Tveir þessara þriggja manna,
sem þarna urðu fyrir barðinu á
Bergsteini Theodóri gerðu skaða
hótakröfu á hendur honum, ails
11000 krónur. I undirrétti var
þeim vísað frá þar eð þær voru
ekki nægilega rökstuddar. En í
undirrétti var Bergsteinn Theo-
dór Þórarinsson dæmdur í 2ja
mánaða fangelsi. Honum var gert
að greiða málskostnað allan, alls
3400 krónur.
Sem fyrr greinir staðfesti
Hæstiréttur þessar niðurstöður
undirréttardómsins.
STYKKISHÓLMI, 4. marz. — 1
gær voru allir Stykkishóimshátar
á sjó. Fengu þeir yfirleit versta
veður. M.b. Arnfinnur fór frá 14
línum ódregnum, en m.b. Smári
fór frá 16 línum. Þegar hann var
á leið til lands, kom á hann brot-
sjór, og tók út allt lauslegt, sem
á þilfarinu var. Fór iínurennan
í sjóinn og þær línur, sem dregn-
ar höfðu verið að 7 undanskild-
Rannsókn
lieldur áfram
í GÆR var fram haldið rann-
sókn morðmálsins.
Verið var að vinna úr skýrsl-
um þeim, sem rannsóknarlög-
reglumenn höfðu tekið af fólki
suður í Grindavík á mánudaginn,
en þar hafði ýmislegt komið
fram, sem rannsóknarlögreglan
taldi sig í gær þó ekki reiðúbúna
til þess að skýra frá að sinni.
„Júpíler hlær" á
Akureyri
LEIKFÉLAG Akureyrar sýnir í
kvöld leikinn Júpiter hlær (Ást
og afbrýði) eftir A. J. Cronin.
Leikstjóri er Raghildur Stein-
grímsdóttir.
Leikur þessi var fluttur í út-
varp fyrir nokkru og vakti mikia
athygli. Hér er um að ræða leik
alvarlegs eðlis, en leikfélagið hef
ur sýnt tvo leiki fyrr á þessu
leikári og vohi þeir háðir af létt
afa taginu.
Afli Bolungarvíkur-
báfa í fehrúar
BOLUNGARVÍK, 3. marz — í
febrúar voru farnir 18—19 róðr-
ar af bátunum hér og var afli
allsæmilegur. Þorlákur var hæst-
ur með 125 lestir í 19 róðrum,
Einar Hálfdáns var með 121 lest í
18 róðrum og Hugrún með 101
lest í 18 róðrum. Minni bátarnir
öfluðu frá 11—22 lestir í 10 róðr-
um. Aflahæstur var Húni með
22 lestir. —Fréttaritari.
Nýr formaður af-
reksmerkjaneindar
LÖGBIRTINGUR skýrir frá því,
að dr. juris Björn Þórðarson, hafi
látið af störfum, sem formaður
afreksnierkjanefndar, en nefnd
sú veitir Afreksmerki hins ís-
lenzka lýðveldis. Hefur Hákon
Guðmundsson hæstaréttarritari
tekið sæti dr. Björns, sem
hefur verið veikur og er í sjúkra
húsi. Aðrir í nefndinni eru
Steingrímur Steinþórsson, for-
maður orðunefndar og forseti
Slysavarnafélagsins, Guðbjartur
Ólafsson.
Spilakvöld á
Akureyri
SJÁLFSTÆ.-----jiLÖGIN á Ak-
ureyri halda spilakvöld að Hótel
KEA annað kvöld, fimmtudag,
kl. 9 síðdegis. —
um. Arnfinnur fór aftur á móti
upp í Rif og beið þar í nótt. Hélt
hann síðan á miðin í morgun til
að leita að línunum. Skv. síðustu
fréttum hefur haun fundið lóðir
sínar og lóðir Smára. Tveir aðrir
bátar töpuðu 6 bjóðum hvor í
veðrinu, en 1 bátanna komst heilu
og höldnu til iands með allar sín-
ar línur. Fékk hann 8 tonn í róðr-
inum. — Árni.
Harðbakur fær dufl í vörpuna
Sfykkishólmshátnr í hrakningum