Morgunblaðið - 06.03.1958, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 06.03.1958, Qupperneq 1
 45 árgangur. 55. tbl. — Fimmtudagur 6. marz 1958. Prentsmiðja Morgunbl .ðsins Bandaríkjamenn styðja Breta í landhelgismálinu Samþykktir sem sjóveldin sœffa sig ekki við eru til- gangslausar segja Bretar Genf, 5. marz. Einkaskeyti til Mbi. frá fréttaritara þess a Gcnfar-ráffstcfnunni. BAlfDARÍKIN hafa lýst því yfir, að þau vilji aðeins þriggja mílna landhelgi. Aðalfulltrúi þeirra, Arthur H. Dean, sagði á fundi hér með blaðamönnum: „Við gerum okkur í fyrsta lagi vonir um staðfestingu á reglum um frelsi úthafanna, því takmark okkar er framar öllu eins mikið frelsi og unnt er að veita, þ. e. a. s. að skip fái að sigla óáreitt og veiða í friði í samræmi við reglur, sáttmála og friðunarað- gerðir. Bandaríkin líta svo á, að hagsmunir allra þjóða og allra landa verði bezt tryggðir með því að halda fast við þriggja mílna landhelgina. Við ætlum að standa fast á þessu sögulega grundvallaratriði“. „í öðru lagi höfum við lifandi óhuga á þeim vandamálum í sambandi við friðun og hagnýt- ingu á auðlindum sjávarins, sem liggja fyrir þessari ráðstefnu. Fiskur er einhver bezta og ódýr- asta fæðutegund veraldar. Við lítum svo á, að ekkert, sem gert er á ráðstefnunni, megi draga úr framleiðslu þessarar fæðutegund- ar eða auka kostnaðinn við hana“. „Með nánu samstarfi getum við verið öruggir um að vandamálin í sambandi við friðun fiskimiða má leysa, bæði með sáttmálurr. margra ríkja og eins með sér- stökum samningum tveggja eða fleiri ríkja. Okkur finnst að sama regla ætti að gilda um fiskveiðar og um siglingar yfirleitt, þ. e a. s. sem allri minnst bönn en nauðsynlegt tillit til friðunar ákveðinna svæða. Algert frelsi á úthöfunum er mjög mikilvægt engu síður en heimild herskipa til að sigla með löndum eða flug véla til að fljúga yfir lönd. Það væri rangt að víkka landhelgina í því skyni að vernda fiskimiðin eða uppeldisstöðvarnar, því það mundi hafa í för með sér pa hættu, að flutningskostnaður á vörum með skipum hækkaði. Siglingar yfirleitt og öryggi á höfum úti mundi verða miklum vandkvæðum bundið“. Bretar og Bandaríkjamenn hafa þannig tekið ákveðna af- stöðu. En í dag og í gær hata Perú, Brazilía og Saudi-Arabía mælt með verulegri víkkun lana- helginnar eða allt að 12 mílum og borið fram landgrunnskröfur. Augljóst er að mikið ber á milli, en talið er, að ríkin sem vilja 3 mílur, séu í minnihluta. Bretar liarðir í horn að taka Bretar halda fast við þriggja mílna regluna, segja að stækkun sé óþörf þar sem koma 'mégi á nægilegri vernd íiskimiða með alþjóðasamningum þrátt fyri' reynslu íslendinga. Aðalfulltrúi Breta, Sir Reginald-Manningham Buller ríkissaksóknari sagði í ræðu í landhelgisnefndinni í morgun: „Að skilningi okkar verður þriggja mílna reglan einasta mögulega leiðin. Hvað sem að henni mó finna, er hún ekki að- eins sú sögulega regla, sem fyig; hefur verið af fjöldamörgum ríkj- um í langan tíma, heldur er hún líka eina reglan sem fengið hefur mjög almennt samþykki, og ver- ið framfylgt". Nokkru seinna sagði hann: „En enginn sem lítur á staðreyndirr - ar hlutlausum augum getur raun- verulega efazt um, að hafi önni r regla en þriggja mílna reglan hlotið fylgi ýmissa aðila á ýms- um tímum, þá var um að ræða frávik frá ríkjandi reglum, oe á sama hátt þegar einstök ríki gefa yfirlýsingar um víkkun land- helginnar þá eru þær einfaldlega þetta sama. Þær eru einungis útf ærsla ákveðinna takmarka sem er frávik frá ríkjandi regi- um, og þær hafa í sjálfu sér ekkert gildi gagnvart öðru ríki, sem ákveður að virða þær ekki“. Um einkarétt til fiskimiða Varðandi kröfur íslendinga og annarra fiskiveiðiþjóða um einka rétt til fiskveiða á ákveðnum svæðum sagði hann: „Ég held að vandamálið sé verndun fiskimið- anna. Því betri sem fiskimiðin eru þeim mun minni eru mögu leikarnir ó deilum um fiskveiða- réttindi, því þá hugsa allir um að veiða sem mest. Einkaréttur til fiskveiða eða víkkun landhe1g innar eru ekki líkleg til að stuðla að verndun fiskimiðanna. Ef fisk Framh. á bls. 19. Milovan Djilas, hinn gamli vinur og baráttufélagi Títós, sem var varaforseti .Túgóslavíu, en situr nú í fangelsi fyrir árásir sínar á „hina nýju stétt“. Hann fékk 7 <3>ára fangeisi fyrir samnefnda bók.g^ Eisenhower styður Dulles ★ WASHINGTON, 5. marz — Eisenhower Bandaríkjaforseti sagði á fundi sínum við blaða- menn í dag, að Rússar væru fúsir að gangast inn á að ráðstefna æðstu manna ýmissa ríkja yrði haldin í Bandaríkunum ef Banda- ríkjamenn æsktu þess. Eisen- hower lýsti yfir fullum stuðningi við ummæli Dullesar utanríkis- ráðherra á þriðjudaginn, þegar hann vísaði á bug skilyrðum þeim sem Rússar settu fyrir ráðstefn- unni. Eisenhower kvað Banda- ríkin hins vegar aldrei mundu loka dyrunum fyrir raunhæfum tillögum um lausn á alþjóða- vandamálum. Tító rœðst á nýju stéttina Fréttir i stuttu máli ★ DAMASKUS, 5. marz — Nass er einræðisherra sagði í ræðu í Damaskus í dag, að Abdel Hamid Serraj, yfirmanni upplýsinga deildar sýrlenzka hersins hefði verið boðin upphæð sem nemur um 100 milljinum íslenzkra kr. til að koma í veg fyrir sam- einingu Egyptalands og Sýrlands. Nasser gaf í skyn að Saudi-Ara- bía stæði bak við samsærið, en peningaávísanirnar voru þaðan og stílaðar á banka í Damaskus. Serraj tók við fjárhæðinni og verður hún notuð í þágu hins nýja sambandslýiðveldis, sagði Nasser. ★ París, 5. marz. — í kvöld veitti franska stjórnin Gaillard forsætisráðherra heimild til að biðja um traustsyfirlýsingu í þinginu í sambandi við tvö um- deild mál: endurskoðun stjórnar- skrárinnar og málamiðlun um út gjöld til landvarna. í síðara til- fellinu verður rætt um 76.5 milljarða franka aukningu á kostnaðinum við stríðið í Alsír. Sakar flokksbroddana um brask, óhóf og misbeitingu valds BELGRAD, 5. marz — Fram- kvæmdaráð júgóslavneska komm únistaflokksins undir forsæti Títós marskálks hefur ráðizt harkalega á yfirstétt landsins, „skriffinnana" og verksmiðju- stjórana. Fyrir helgina birti aðalmálgagn flokltsins, „Komm- unist“, ályktun framkvæmda- ráðsins og miðstjórnarinnar, þar sem yfirstéttin er sökuð um að Iifa lúxuslífi á kostnað verka- manna og þar sem boðaðar eru róttækar aðgerðir til aff skerpa flokksagann. Ýmsir kaflar í ályktun flokks- ins minna á bók hins júgóslavn- eska kommúnistaforingja, Milov- ans Djilasar, sem nú situr í fangelsi fyrir skrif sín. Ályktun- in felur í sér árás á marga þá hluti sem Djilas gagnrýndi harð- ast, en hún ræðst líka gegn þeim sem „gera árásir á grundvallar- árangur hinnar sósíalísku þró- unar“. Skaðleg afstaða í yfiriýsingu flokksleiðtog- anna segir, að flokkurinn muni ekki lengur þola „neikvæða og skaðlega afstöðu", sem sé út- breidd meðal embættismanna flokksins. Flokkurinn fordæmir „alvarlega óreglu" í launagreiðsl- um, tíðar utanlandsreisur verk- smiðjustjóra og notkun banda- rískra og annarra erlendra lúxus- bíla í einkaþágu. Ennfremur eru sumir embættismenn flokksins sakaðir um lýðskrum og henti- stefnu. „Skjólstæðinga-kerfi“ afhjúpað „Kommunist" skýrir frá því að flokksstjórnin hafi afhjúpað eins konar „skjólstæðinga-kerfi“ þar sem iðnaðarleiðtogar og embættis menn veita stöður, íbúðir, eftir- laun og önnur hlunnindi eftir eigin geðþótta. Sumir af framá- mönnum iðnaðarins eru sagðir Framh. á bls. 18. Úrslit dönsku kosninganna: Vinstri flokkarnir og stjórnin missa fylgi KAUPMANNAHÖFN, 5. marz. — í dönsku bæjar- stjórnarkosningunum í gær urðu úrslit þau, að sósíaldemó Annar bandarískur gervimáni á lofti? CAPE CANAVERAL, 5. marz. — Annar gervimáni Banda- ríkjanna fór út í geiminn í kvöld. — Var honum skotið frá tilraunastöð hersins í Florida með Júpíter- eldflaug. Ekki var vitað með vissu í kvöld, hvort gervimán- inn væri kominn á sína réttu braut kringum jörðina. Eldflaugin var í fjórum pört- um eða „tröppum". í byrjun fór hún sér hægt en smájók hrað- ann, og eftir 30 sekúndur hvarf hún í skýjum um 5000 fet frá jörðinni. Dynurinn í vélum flaug arinnar heyrðist eftir að hún hvarf. Utvarpsmerki frá tækjun- um í eldflauginni gáfu til kynna, að allt hefði gengið að óskum með för mánans út í geiminn. á lofti 33 daga Gervimáninn, sem er byggður inn í odd eldflaugarinnar, vegur um 15 kíló, þ. e. a. s. hann er nokkru þyngri en fyrri gervi- máni Bandaríkjamanna sem send ur var út í geiminn fyrir 33 dög- um. Sá hlaut nafnið „Alfa“, en þessi er kallaður „Beta“, þ. e. eftir fyrstu stöfunum í gríska stafrófinu. „Beta“ hefur innanborðs ýmis tæki, meðal þeirra lítið segul- bands-upptökutæki, sem vísinda- menn vonast til að nemi og sendi til jarðarinnar ýmsar vísindaleg- ar upplýsingar. „Alfa“, sem hefur viðurnefnið „Explorer" (könnuður) hefur eins og áður segir þegar verið á lofti 33 daga og farið með um það bil 28.000 kílómetra hraða á kluklcustund. Hann fer krigum jörðina í sporbaug og fjarlægð hans frá henni er breytileg, allt frá 290 kílómetrum upp í 2.800 kílómetra. í honum eru tvö út- varpssenditæki sem eru í sam- bandi við önnur tæki, er mæla hita og geimgeislun. Áætlað var að fyrsta „trappa" síðari eldflaugarinnar félli til jarðar, þegar hún væri komin í 65—80 kílómetra hæð. Eftir rúma 300 kílómetra átti hún að breyta um stefnu og fljúga lá- rétt, og eftir því sem hinar „tröppurnar“ féllu af henni átti hraðinn að aukast upp í rúma 28.000 kílómetra á klukkustund, en sá hraða er nauðsynlegur til að koma gervimánanum á rétta braut. Tæki sem nefnt er „Geiger- Miiller-teljarinn“ mælir geim- geislunina og síffan eru þessar upplýsingar sendar til jarðar af tveim litlum útvarpssenditækj- um. Öflugra tækið sendir á tíðn- inni 108 megacycles með 60 milliwatta styrkleika. Búizt er við að tækið endist tvær til þrjár vikur. Hitt tækið sendir á tíðninni 108,03 Mc/s með 10 kíló- watta styrkleika. Seint í kvöld um fjórum tím- um eftir að gervimánanum hafði verið skotið á loft, var enn ekki vitað hvort hann væri kominn á braut sína umhverfis jörðina. Hafði þá ekkert heyrzt til hans lengi. kratar fengu alls 663 fulltrúa kosna og misstu 30 frá síðasta kjörtímabili, róttæki flokkur- inn fékk 50 fulltrúa og missti 9, íhaldsmenn fengu 275 og unnu 13 nýja fulltrúa, vinstri flokkurinn fékk 208 og vann 38 ný sæti, réttarsambandið fékk 10 og bætti 6 við sig, ný- myndaður sósíalistaflokkur fékk 2 fulltrúa, kommúnistar fengu 15 og misstu 1, sameig- inlegir listar borgara fengu 138 og misstu 3, þýzki flokk- urinn fékk 17 og missti 4, aðr- ir listar fengu 16 og bættu við sig 4. Fulltrúatalan er heldur hærri í ár en í kosningunum 1954. — Sósíaldemókratar héldu meiri- hluta sínum í Kaupmannahöfn, en misstu 3 fulltrúa. Flokkurinn missti bæjarstjóra í 10 kaup- stöðum, en fékk nýja bæjarstjóra í 5 kaupstöðum. Hansen forsætis- ráðherra lét svo ummælt, að breytingarnar væru ekki svo miklar, að þær hefðu áhrif á stjórnmálaástandið. „Berlingur“ segir hins vegar í dag, að í raun- inni hafi ríkisstjórnin tapað kosningunum. Aksel Möller for- ingi íhaldsmanna sagði, að úrslit kosninganna væru alvarleg að- vörun til ríkisstjórnarinnar. Frh á bis. 19.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.