Morgunblaðið - 06.03.1958, Síða 10
10
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtúdagur G. marz 195£
trtg.: H.í. Arvakur, Reykjavík,
Framkvæindastjón: bigfus Jónsson.
Aðalntstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmunasson.
Lesbók: Arni Öla, simi 33045
Auglysmgar: Arni Garðar Knstmsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
UTAN UR HEIMI
Nýjasti „framfíðarhíilinn" er hjólalaus
og getur „ekið" yfir lúð og lög
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjala kr. 30.00 á mánuði innaniands.
1 lausasölu kr. 1.50 eintakið.
HRAKNINGAR EYSTEINS
r
AÞEIM árum, þegar Ey-
steinn Jónsson naut
stuðnings og handleiðsiu
Sjálfstæðismanna í fjármála-
stjórn ríkisins, tókst að halda
ríkisbúskapnum hallalausum. —
Framsóknarmenn hældust af
þessu tilefni mjög yfir snilligáfu
Eysteins, en Sjálfstæðismenn
bentu á, að hollusta þeirra í sam
starfi réði úrslitum.
Nú hefur reynslan skorið hér
úr, svo að ekki verður um dei’.t.
Jafnskjótt og Sjálfstæðismenn
fóru úr ríkisstjórn og slepptu
höndum af Eysteini réði hann
ekki við neitt. Er jafnvel svo að
sjá sem sú seigla, er honum áður
var gefin, sé nú úr sögunni. Dóm-
ur Hermanns Jónassonar um
skaplyndi Eysteins hefur enn
sannazt: Eysteinn bognar ekki.
hann brotnar.
Óstjórnin keyrir nú svo úr hófi,
að hvarvetna verður undrunar
vart. Ráðleysið gengur langt
fram af flokksbræðrum Eysteins
og samstarfsmönnum, jafr.vel
þeim, er sízt hafa verið kenr.dir
við ábyrgðartilfinningu í störí-
um.
★
Áður en Lúðvík Jósefsson
hvarf af landi brott á landhelgis-
ráðstefnuna suður í Sviss, skrif-
aði hann tvær greinar um efna-
hagsmálin í Þjóðviljann. Þar seg-
ir sjávarútvegsmálaráðherra, að
auk ca 25 millj. kr. í útflutn-
ingssjóð virðist það „óhjákvæmi-
legt að afla ríkissjóði aukinna
tekna, sem nema 65 milljónurr.
króna“.
Þessu til frekari skýringar seg-
ir Lúðvík:
„Þessi þörf til hækkaðra tekna
stafar ekki nema að litlu leyti
af auknum ríkisútgjöldum vegna
hækkandi verðlags, eða vegr.a
aukinnar niðurgreiðslu. Aukin
tekjuþörf ríkisins stafar fyrst og
fremst af hækkandi útgjöldum
almennt vegna lagasetninga und-,
anfarandi ára og vegna þess, að
Alþingi hefur ákveðið að verja
sihækkandi fjárhæðum til ýir,-
issa framkvæmda í landinu. Sarp-
komulag hefur hins vegar ekki
tekizt um lækkun á útgjöldum
ríkisins, eða niðurskurð svo
neinu nemi“.
Auðvitað fer því fjarri, að
Lúðvík Jósefsson segi hér allan
sannleikann. Á rangfærslur 1 .ns
hefur áður verið bent hér í blað-
inu. En ekki verður um villzt
hvert hann beinir skeyti sínu.
Það er fjármálaráðherrann, sem
hann sakar um tekjuhalla ríkis
sjóðs. Lúðvík kennir úrræða-
leysi Eysteins, m. a. skorti han.s
á sparnaðarvilja, hvernig komið
er. Óumdeilanlegt er og, að þott
Lúðvík geri minna úr tekjuhail-
anum en rétt er og reki ranglega
orsakir hans, þá ber fjármála-
ráðherrann, Eysteinn Jónsson,
fyrst og fremst ábyrgð á því,
að ekkert skuli gert til bóta.
★
Svo er og að sjá sem Fram-
sóknarmenn hafi ekkert að at-
huga við þessa túlkun Lúðvíks
Jósefssonar. Tíminn hefur eng-
um athugasemdum hreyft við
hana, og miðstjórn Framsóknar-
flokksins lýsti því á aðalfundi
sínum, að hún telji „fyllstu nauð ■
syn bera til að haldið verði á-
fram því samstarfi, er hófst með
myndun núverandi ríkisstjórn-
ar“, þ. e. við Lúðvík Jósefsson
og félaga hans.
Miðstjórn Framsóknar tekur
og undir gagnrýnina á fjármála-
stjórn Eysteins Jónssonar. í
ályktun hennar segir:
„Verð á neyzluvörum hefur
orðið að greiða niður með ríkis-
fé í stærri stíl en áður-------
en hins vegar hefur ekki komið
tilsvarandi tekjuöflun til ríkisins
á móti. Verulegur greiðsluhalli á
ríkisbúskapnum hefur orðið síð-
astliðið ár og allmikið skortir á
að tekjur útflutningssjóðs hafi
hrokkið til uppbótanna."
Síðar segir:
„Miðstjórnin leggur áherzlu á
að slíkt niðurgreiðslu- og upp-
bótarkerfi, sem hér hefur verið
búið við, er því aðeins fram-
kvæmanlegt, að samkomulag getr
tekizt um að afla þess fjár, sem
til þess þarf.“
Síðan eru raktir gallar þessa
fjárhagskerfis, og lýkur þeirri
upptalningu svo:
„Miðstjórnin telur því nauð-
synlegt að leitað verði annarra
úrræða í þessum efnum“.
★
' Þó að nú sé komið fram í marz-
mánuð og viðurkenndur sé haili
bæði á ríkisbúskap og útflutnings
sjóði, jafnvel á síðasta ári, hvað
þá á þessu, þá er þarna viður-
kennt, að enn sé ekki búið að
afla þess fjár, sem þarf, enda
áður berum orðum sagt:
„Að óbreyttu eru því framund-
an óleyst stórfelld ný fjáröflun-
arvandamál".
Tekjuöflunarleiðirnar eða önn-
ur úrræði í þeirra stað eru þó
að dómi miðstjórnar Framsókn-
ar ekki auðfundnari en svo. að
tekið er fram, að „nauðsynlegt"
sé að „leita" þeirra! Eftir lVa
árs stjórnarvist eða rúmlega það.
er þó „leit_in“ að nýju „úrræðu.n-
um“ rétt að byrja, ef hún er p.';
hafin. Til leiðbeiningar er þess
þó áður getið, að ekki sé „hægt
að búast við“ jafnmiklu erlendu
lánsfé „á næstunni" eins og feng-
izt hafi undanfarið á valdatima
stjórnarinnar. En á þessum tíma
hafa erlendar skuldir verið aukn-
ar um 386 milljónir, auk þess sem
aðstaðan út á við versnaði á
síðasta ári um 230 milljónir fyrir
utan hina föstu skuldaaukningu.
Bragð er að pá barnið finnur.
Víst er illa komið, þegar mið-
stjórn Framsóknarflokksins gefur
slika lýsingu á fjármálastjórn
Eysteins Jónssonar eins og fram
kemur í samþykkt hennar. Og
skyldi Framsóknarnersingin ekki
hafa orðið hávær um rógskeyti,
ef Sjálfstæðismenn hefðu a þenn-
an veg sagt frá því, hvernig koin-
ið er, og lyst hinu algera úrræöa-
leysi stjóinarherranna?
En hrellingum Eysteins Jóns-
sonar var ekki þar meo lokið.
Tveimur dógum eftir lok mið-
stjornarxunaarins oauo biaosijorn
armaour 'nmans, Vilhjálmur Por.
isysteini ásamt ýmsum öðrum
fyrirmonnum að borða. þar venti
hann Eysteini ekki mattrið
heldur lét réttunum fylgja ýms-
ar leiðbeiningar, að vísu viliandi
á köflum en þó með nokkrum
sannleikskornum, eíns og þess-
um: „Það er nauðsynlegt að aft-
ur verði upp tekinn hallalaus rík-
isrekstur--------
Það stendur á sama, hvar Ey-
steinn kemur. Alls staðar lætur
sami söngurinn í eyrum hans.
HUGVITSMAÐUR einn í bíla-
borginni Detroit í Bandaríkjun-
um kvaddi ekki alls fyrir löngu
100 aðra hugvitsmenn til fundar
við sig til þess að sýna þeim
nýjasta smíðisgrip sinn — „fram-
tíðarbilinn“. Framtíðarbílarnir
eru orðnir margir, því að á
hverju ári eru fjölmargir smíðað
ir, enda þótt. fæstir þeirra komi
nokkru sinni á markaðinn. Fó;k
er yfirleitt mjög áhugasamt um
bíla — og ekki minnkar áhuginn,
þegar um „framtíðarbíla“ er að
ræða.
ÁKVEÐIN HÆÐARTAKMÖRK
Og þessi bíll, sem að framan
getur, er enginn venjulegur
„framtíðarbill", því að hann er
hjólalaus — fyrsti hjólalausi bill-
inn, segir smíðameistarinn Reyn-
olds og við drögum það ekki í efa.
því að hingað til hafa bílar venð
taldir geta komizt af með alit
fremur en hjólin.
En hugvitsmaðurinn Reynolds
er ekki af baki dottinn — bíllinn
hans er eins konar fljúgandi disk
ur, sem undir venjulegum kring
umstæðum á að aka í eins metra
hæð. Hins vegar á að verða hægt
að aka í öllum „aksturshæðum“
— en til þess að aðgreina bílana
frá flugvélunum yrði að setja
„framtíðarbílrium" ákveðin hæð-
artakmörk.
HÁLFGERÐUR
ÞRÝSTILOFTSBÍLL
Reynolds hefur smíðað líkan
af bílnum — í fullri stærð. Hann
er einnig búinn að fuligera allar
teikningar — og bíllinn er sem
sé fullbúinn frá meistarans hönd-
um. Sennilega kemst þó ekki
frekari skriður á málið íyrst um
sinn, því að margs konar erfið-
leikar verða við notkun
þessa nýja farartækis — fyrst
og fremst hvað umferðarmálum
viðkemur. (
í höfuðatriðum er „framtíðar-
bíllinn" þannig úr garði gerður,
að hann er knúinn svoneíndum
„túrbinuhreýfli", sem vinnur á
sama háttog þrýstiloftshreyfillinn
— og blæs loftinu beint niður
úr bílnum. Á þann hátt lyftist
hann frá jörðu — og með loft-
straumnum er hægt að stjórna
ferð bílsins að öllu leyti — jafn-
vel hemla.
ekki hægt að
DRAGA HANN í GANG
Þessum bíl verður hægt að
„aka“ yfir fjöll og firnindi yfir
láð og lög. Hugvitsmaðurinn tók
það meira segja fram, að hægt
væri að „aka“ bílnum yfir Atlants
hafið svo fremi að hann geti bor
ið eldsneyti til fararinnar, en
óheppilegt yrði að verða elds-
neytislaus úti yfir miðju hafinu.
Þá er það annað, sem finna mætti
að þessu framtíðar-farartæki, að
ekki verður hægt að draga það
í gang, þegar rnikið liggur við.
SÁ FJÓRHJÓLAÐI
ER EKKI ÚR SÖGUNNI
Þá sagði Reynolds, að ekki væri
óhugsandi, að takast mætti að
gera bílinn sjálfstýrðan — og láta
hann „aka“ eftir radio-geislum.
Jafnframt yrði á þann hátt hægt
að takmarka hraðann og tryggja,
að ekki yrði „ekið“ hraðar en
lög leyföu. Sagði hann, að næsta
skrefið yrði að finna upp slíkt
stjórntæki — og síðar yrði ratsjá
komið fyrir í bílnum. Þá yrði
hægt að stemma stigu fyrir siysa
hæltunni i umferðinni. En ekiti
sagði Reynolds að „bíllinn" hans
mundi ryðja þeim gamla fjor-
hjólaða úr vegi. Hann taldi lík-
legast, að hjólabílar yrðu enn um
sinn taldir hentugir til aksturs í
borgum, húsmæðurnar mundu
kósa að skreppa í verzlanir á
þeim fjórhjóluðu, en ef þær ætl-
uðu að bregða sér milli borga,
eða jafnvel lengra — þá yrði sá
hjólalausi talinn hentugri og iett
ari í vöfum.
Þessir tveir bandarísku flugmenn, Walker (t. v.) og Kincheloe, eru um þessar mundir að gera
margs konar tilraunir með raketlu-flugvélinni X-15, sem er á miðri myndinni. Búizt er við því
að prófunum þessum verði lokið að ári — og þá mun Walker fá það hlutverk að fljúga flugvél-
inni út úr gufuhvolfi jarðar.