Morgunblaðið - 23.03.1958, Page 8

Morgunblaðið - 23.03.1958, Page 8
e MORGVIS BL AÐIÐ Sunnudagur 23. marz 1958 Lestrarfélag Mývetninga 100 ára ÞRIÐJUDAGURINN 23. marz 1858, rann upp bjartur og fagur. Spegilís var á öllu Mývatni. Margraddaður svanasöngur barst út í himingeim- inn frá svanahópunum, sem héldu sig á auðum vogum og víkum með- fram austurströnd Mývatns, og við Laxá. Þegar leið að hádegi var mikil mannaferð um ísinn á Mývatni. Ungir og gamlir voru þar á ferð í smærri og stærri hópum, flestir á skautum og bar hratt yfir. Allir stefndu að Mikley í Mývatni, stærstu eyju vatnsins. Þar hafði verið boðuð skemmti- samkoma, þó þar væri ekkert sam- komuhús og ennþá væri frost og vetur. Allir treystu því að góða veðrið entist allan daginn, og föt manna voru hlý og skjólgóð. Þó öll aðstaða til fundarhalda þarna, Ibúð til leigu 3ja til 4ra herb. íbúð til leigu yfir mánuðina maí, júní, júlí. Ibúðin er á 1. hæð á fögrum stað við miðbæinn og gætu öll húsgögn fylgt. Lysthafendur leggi nöfn og uppl. um fjöl- skyldustærð o. fl. á afgr. Mbl. fyrir föstudag merkt: „Tjörn- in — 8952“. væri mjög frumstæð, varð þó þessi samkoma eins sú merkasta sem haldin hefur verið í Mývatnssveit. Það sem gerði það að verkum að þessi samkoma varð merkari en aðrar samkomur hér, var, að einn ungur fundarm. Jakob Hálfdánar- son á Grímsstöðum, (sem síðar varð landskunnur fyrir afskipti sín af stofnun Kaupfélags Þingeyinga og fyrsti framkvæmdastjóri þess) bar fram tillögu um að Mývetning- ar mynduðu félag til að koma upp bókasafni í Mývatnssveit til afnota fyrir sveitarbúa. Þessi tillaga var mikið rædd og gerður að henni góður rómur. Var svo ákveðið þarna á fundinum að stofna Lestrar íélagið og gáfu sig þegar fram all- margir menn sem vildu gerast fé- lagar, og lofuðú jafnframt að leggja fram nokkuð af bókum til að mynda með bókasafnið. Einn fund- armaður Erlendur Sturluson, orti kvæði í tilefni af félagsstofnuninni, og flutti það á fundinum. Þann 8. maí sama ár var svo haldinn framhaldsfundur, um bóka safnsmálið, á Grænavatni. Þar lagði Jakob Hálfdánarson fram uppkast að lögum fyrir félagið. Var lagafrumvarpið nokkuð rætt og stungið upp á smávegis breytingum á því. Var kosin þriggja manna nefnd til að endurskoða frumvarpið og gera á því þær breytingar sem þörf þótti á. í nefndina voru kosn- ir Jakob Hálfdánarson á Grímsstöð- Innrömmun min er flutt frá Húsgagnaverzl. Gunnars Mekkinós- sonar, Laugaveg 66 í Húsgagnaverzl. Guðmundar H. Halldórssonar, Laugav. 2 Innrömmun á saumuðum myndum, málverkum og ljósmyndum. Glæsilegt úrval af erlendum rammalistum. um, sr. Þorsteinn Jónsson 1 Reykja- hlíð og Pétur Jónsson bóndi á sama bæ. Seint 1 desember, sama ár, lagði svo nefndin fram frumvarpið enn að nýju og var það samþykkt og staðfest af öllum fundarmönnum. Kosin var stjórn félagsins: Jón Sig- urðsson hreppsstjóri á Gautlöndum, formaður, sr. Þorlákur Jónsson á Skútustöðum, bókavörður og séra Þorsteinn Jónsson á Sveinsströnd gjaldkeri. Alls voru stofnendur félagsins 30. Árgjald hvers félagsmanns var ákveðið 48 skildingar, en gjald ævifélaga 10 ríkisdalir. Til að flýta fyrir því að dálítið bókasafn myndaðist, lögðu félags- menn fram á fyrsta ári, nokkuð af bókum sem samtals voru virtar á 47 ríkisdali og 48 skildinga. Var bókaframlagið mjög misjafnt frá félagsmönnum, sem eðlilegt var. Réði þar um bæði vilji og geta. Bókaeign manna var lítil. Sumir lögðu fram aleigu sina af bókum. Mest bókaframlag frá einum manni var frá Jóni Hinrikssyni skáldi, sem síðar bjó á Helluvaði í Mývatns sveit. Hann lagði til bækur sem virtar voru á 14 ríkisdali og 64 sk. Stefán Helgason bóndi á Geirastöð- um lagði til bækur fyrir 10 ríkis- dali, og Pétur Jónsson bóndi í Reykjahlíð bækur fyrir 8 ríkisdali og 88 sk., og ári síðar bætti hann við bókum fyrir 7 ríkisdali. — Þá 1859 voru lagðar fram af íélags- mönnum bækur fyrir 16 ríkisdali og 48 skildinga. Þegar félagið var stofnað var það fyrst nefnt Skútustaðahrepps lestr- arfélag. Síðar var því breytt í Lestrarfélag Mývetninga. Frá því að félagið var stofnað, hefur það notað sömu gerðabók, eða I 100 ár. Ennþá eru eftir nokkrar blaðsíður í bókinni. í þessari bók er skrásett allt sem félagið hefur starfað í 100 ár, Þar eru allir reikningar félags- ins, félagsmannatal frá stofnun og skrá yfir allar bækur sem keyptar hafa verið í bókasafnið. McCall’s 4446 McCall’s 4444 Parísar nýjungar fyrir vor/ð teiknaðar af GIVENCY ásamt mikiu úrvali af öðrum McCall-snlðum, fremstu teiknara og nýjum ítölskum og og þýzkum efnum í eftirmiðdags- og kvöldkjóla. Tískulitir og munstur. Úrval af hnöppum, meðal annars ekta THATI skelplata og allt fyrir heimasaum. — McCall’s 4443 \ Skólavörðustíg 12 Bókasafnið hefur frá fyrstu tíð verið geymt á þingstað hreppsins, Skútustöðum. Um síðustu aldamót var þar byggt samkomuhús úr timbri. Var bókasafnið geymt þar um langan tíma. Voru menn þó mjög hikandi við að geyma það þar vegna eldhættu. Var því ráðizt í það árið 1924 að byggja bókhlöðu úr steinsteypu. Það var lítið hús í „kastalastíl" með tvöföldum veggj um. Var þess gætt að láta það standa svo fjarri öðrum húsum að þaðan stafaði engin eldhætta. Safnið er nú 3.409 bindi, þar af 542 bindi af útlendum bókum, sem eru aðallega á norðurlandamálun- um. Eru það úrvals skáldrit, ferða- bækur frægra landkönnuða, og fjöl breytt safn af fræðibókum. Er þar merkilega mikið af bókum um nátt- úrufræði. Reynt hefur verið að kaupa aðeins góðar bækur I safnið. Sneitt hefur verið hjá „reyfurum" og skyldum bókmenntum, enda hafa menn verið heppnir með þá sem valið hafa bækurnar, en það eru einkum formenn félagsins. Sig- urður Jónsson skáld á Arnarvatni, hefur lengst allra stjórnað Lestrar- félaginu, eða í 35 ár. Næst lengst hefur fyrsti formaður félagsins stjórnað, Jón Sigurðsson á Gaut- löndum, 28 ár. Töluvert er af gömlum og fágæt- um bókum í safninu. Ég nefni hér aðeins örfáar: 1. Grágás og Járnsíða 1847. 2. Minnisverð tíðindi 1796 til 1802. 3. Gestur Vestfirðingur 1847, prent. I Kaupmannahöfn; Gestur Vestfirðingur 1850, prent. í Reykja- vík; Gestur Vestfirðingur 1855, prent. í Kaupmannahöfn. 4. Iðunn 1860, prent. á Akureyri. 5. Húnvetningur 1857, prent. á Akureyri. 6. Fjölnir 1835 til 1844. o. m. fl. Oftast hefur félagið haft lítil fjár ráð og hefur það mjög háð starf- semi þess þó ýtrustu sparsemi hafi verið gætt. i Árið 1860 voru tekjur félagsinsj 24 ríkisd. 80 sk. Félagsm. 26. Árið 1890 voru tekjur félagsins kr. 110,00. Félagsm. 34. Árið 1920 voru tekjur félagsins kr. 200,00. Félagsm. 46. Árið 1950 voru tekjur félagsins kr. 5.546,00. Félagsm. 192. Á tímabili voru árgjöld þeirra félagsmanna, sem aðeins lásu is- lenzkar bækur, örlítið lægri en þeirra sem einnig lásu útlendu bæk urnar. Það kom þó fljótt í ljós að þeir sem aðeins lásu íslenzkar bæk- ur, voru svo fáir að ekki þótti taka því að hafa tvenns konar árgjald. Lestrarfélag Mývetninga hefur á liðnum tíma haft ómetanleg áhrif í sveitinni. Bókasafnið varð sú menningarlind, sem svalaði að nokkru leyti fróðleiksþorsta yngri og eldri Mývetninga, sem ekki höfðu tök á því að stunda skólanám. Það var metnaðarmál flestra ungl- inga að læra svo dönsku eða norsku að þeir gætu notað sér bækurnar, sem Lestrarfélagið átti á þeim mál- um. Ég efast ekki um, að bækur Lestrarfélagsins hafi vakið útþrá í hugum margra Mývetninga. Eink- um voru ferðabækurnar vel fallnar til þess og þær voru vinsælt lestrar- efni. Veturinn 1920, fékk einn Mý- vetnskur bóndi sér vetrarmann, sem sá um bú hans þann vetur. Bóndinn, Valdimar Halldórsson á Kálfaströnd, fór til Danmerkur, og síðan suður um álfuna, suður til Napoli á Ítalíu, síðan norður um Frakkland og England, heim í sveit ina sína til að stunda bú sitt á nýjan leik. Síðan hafa fleiri Mývetningar lagt land undir fót, eins og Valdi- mar, og ég hygg að á þessum ferð- um hafi þeir aflað sér andlegra verðmæta sem muni endast þeim til æviloka. Vel má vera að lestur bókanna í bókasafni Lestrarfélags- ins, hafi vakið áhuga þessara ferða- langa á því að kýnna sér hvað væri „hinum megin við fjallið" og auka þekkingu sina og viðsýni með því að kanna ný lönd og nýjar leiðir. Ég vona að Lestrarfélag Mývetn- inga, eigi eftir ekki síður hér eftir en hingað til, að glæða og örva fróleiksþorsta almennings, bæði eldri og þó einkum þeirra yngri um langan aldur. Nú er búið að bæta svo aðstöðu héraðsbókasafn anna um land allt, að þau ættu að geta unnið stórvirki á sviði alþýðU' fræðslunnar, ef rétt og vel er á haldið. Grímsstöðum 11. marz 1958. Jóhannes Sigfinnsson. K V Æ » I flutt á stofnfundi Lestrarfélags Mý- vetninga í Mikley í Mývatni 23. marz 1858. Vöknum af dvala daufra hugmynda og árisulir örkum til fundar, fögnum hver öðrum fjörgum huga fúsir til nýtra fyrirtækja félagsneistann fýsum og glæðum eldlega drift sem endur kveiki hjölum um það sem hag vorn batar og lýtur að farsæld landa vorra hrekjum í útlegð hindurvitni en hófleg samtök og hyggindi virðum. Óþarfa fýsn og eyðslusemi framvegis skulum fyrirlíta sjálfsafneitun í svoddan efnum gjarnan mun oss að góðu verða. Stöndum vel af oss straum hleypi- dóma fylgjum tímanunn frjálslundaðir, nytsaman fróðleik námfúsir metum öflum oss dýrmætrar upplýsingar. Eflum dugnað og dyggð fúsir brúk- um daga og stundir drottni til æru hann mun ávaxta viðleitnina hans að vilja ef hegðan vöndum. Erlendur Sturlusou. — Kvennasiða Framh. af bls. 8. Ananasostur Hér á að nota 4 litla sviss- neska osta, 1 matsk. rjóma, 1 matsk. ananassafa, 4 sneið- ar niðursoðinn ananas. Osturinn er hrærður vel upp með rjómanum og safanum. —- Sneiðarnar eru skornar í litla bita og síðan hrært út í. Er þetta látið í litlar upphitaðar tartá- lettur. O—o—O Og svo að lokum er hér upp- skrift að Hirðköku, sem var ábætirinn á einum fermingar- matseðlinum (hún er reiknuð fyr ir 12); 10 eggjahvítur, 500 gr. sykur, 100 gr. flórsykur, 500 gr. dökkt súkkulaði, Vi 1. rjómi, 100 gr. möndlur, 500 gr. þeytt- ur rjómi, 20 græn cocktailber. Fyrst er búið til marengsdeig úr hvítunum, þær þeyttar og sykurinn látinn út í. Flórsykrin- um er stráð á 4 stk. af smjör- pappír. Sprautið síðan botna á tvö blöðin en „rimlaloki“ á hin tvö. Þetta er allt bakað við mjög vægan hita og iátið kólna alveg áður en tekið er af bréfinu. — Súkkulaðið er nú brætt í rjóm- anum og afhýddar, gróft hakk- aðar möndlurnar látnar út í. —e <- ^ áp**T~-s, :iÉP»ÍIllplp«IIpPIÍÍll . ' -* ♦ i ' w -.. * , 't'V Þessu er síðan blandað saman við þeyttá rjómann og látið á botnana og „rimlalokinu“ komið fyrir ofan á. Það er síðan skreytt með berjunum. A. Bj. Myndlislaskólinn í Reýkjavík AÐALFUNDUR Myndlistaskól- ans í Reykjavík var haldinn ný- lega. Formaður félagsins var kosinn Sæmundur Sigurðsson, Og með honum í stjórn þeir Ragnar Kjartansson, Einar Halldórsson, Kristján Sigurðsson og Þorkell Gíslason. Skólinn hefur nú feng- ið húsnæði í sýningarsal Ás- mundar Sveinssonar á Freyju- götu 41 og hófst kennsla þar í janúar. Skólinn tapaði öllum áhöldum sínum í brunanum á Laugavegi 166 á síðasta sumri, en hefur nú fengið önnur ný og vandaðri. Vísir skólans að bóka- safni brann einnig, en nú hafa honum borizt myndarlegar bóka- gjafir og prentmynda, svo sem frá Helgafelli, Norðra, Bókaverzl. Snæbjarnar, KRON og Braga. — Vill félagið þakka slíka velvild i í garð skólans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.