Morgunblaðið - 23.04.1958, Page 9

Morgunblaðið - 23.04.1958, Page 9
Miðvikudagur 23. apríl 1958 UORCVNBLAÐIh 9 Leikfréttir frá Lundúnum I COMEDY Theatre í Panton Street (rétt hjá Haymarket), er verið að sýna „Cat on a Hot Tin Roof“, eftir ameriska höfundinn Tennessee Williams. Hann er ef til vill meðal þekktustu amer- ískra leikritahöfunda og vel kunn ur íslendingum fyrir leikrit sín, bæði sýnd í Þjóðleikhúsinu og Iðnó. Þar á meðal má nefna: „Summer and Smoke“ (Sumri hallar), „The Glass Menagerie“ (Glerdýrin), og „A Streetcar Named Desire“. í Bretlandi er hann mjög dáður sem rithöfund- ur og flestar kvikmyndir hans merktar með „X“, bannaðar börn um innan sextán ára, sem auð- vitað gerir biðraðirnar lengri fyr- ir utan bíóin! Lögreglan í Dubl- in stöðvaði frumsýningu á leik- ritinu „The Rose Tattoo", þar sem þeim þótti það nokkuð ber- ort fyrir áhorfendur, en írland virðist vera strangara á því sviði en England. Á meðal kvikmynda hans tel ég „Baby Doll“ vera bezta. Hún var sýnd hér í fyrra við geysilega aðsókn. Leikstjórn (Elia Kazan), leikur og kvik- myndun var með þeim ágætum, að ég tel að enginn leikari eða leikunnandi ætti að láta þá kvik- mynd fara fram hjá sér, verði hún á vegi þeirra. Tennessee Williams er einhver ríkasti leikritahöfundur í heim- inum, og er erfitt að vita hvernig hann eyðir peningum sínum, þar sem hann hatar þægindi og vel- megim. Hann er þess fullviss að hann muni deyja um fimmtugt. 1 Florida Key West býr hann í hálfföllnu húsi, með stórum súl- um, líkt og fornt leiksvið. í New York hefur hann látið útbúa her- bergi fyrir sig, sem lítur út eins og herbergi, sem hann hafði leigt í Rómaborg og hafði vakið hon- um andagift. Franska skáldkonan Francoise Sagan, sem er mjög umtöluð um þessar mundir, er ein af beztu vinum hans. Það er sagt að lífsskoðun Tennessee Williams sé: — Hlakk- aðu ekki til þess dags, þegar þú hættir að finna til, því þá veiztu að þú ert dauður. Leikritið „Köttur á heitu blikk- þaki“, fjallar um auðugan amer- ískan plantekrueiganda og fjöl- skyldu hans. Þau búa í stóru, tómlegu húsi. „Big Daddy“, heim- ilisfaðirinn, hefur verið sjúkur og er hræddur um að hann hafi ólæknandi krabba. Þetta er af- mælisdagurinn hans og honum hefur verið sagt að sjúkdómur- inn sé ekki þess eðlis, og hann sé úr allri hættu. Hann ræður sér ekki fyrir kæti, því þessi stóri „útlifaði" maður er hræddur við dauðann. „Big Mama“, sem er lítil og feit, verður ógnarglöð og hleypur um þetta stóra, tóm- lega hús á sínum stuttu feitu fót- um til þess að segja uppáhalds- syninum þeirra, Brick, sem byr hjá þeim með konu sinni, Maggie, frá gleðitíðindunum. Maggie (the Cat), hefur þegar tilkynnt manni sínum að læknarnir hafi fullyrt að „Big Daddy“ eigi skammt ólif- að, sé með ólæknandi krabba, en bróðir hans og mágkona, sem eiga fjölda barna, séu að sveima eftir arfinum, og ætli að tilkynna „Big Mama“ sannleikann um kvöldið. Hún fyrirlítur mág sinn og mág- konu, sem eru leiðinleg og notar hvert tækifæri að núa henni um nasir, að Brick og hún geti ekki átt börn saman. Hún elskar Brick, en hjónaband þeirra hang- ir á bláþræði. Brick er orðinn drykkfelldur, eftir dauða bezta vinar síns, sem hann getur ekki gleymt. Hann hefur einnig neitað að sofa hjá Maggie. Hún ákærir hann um kynvillu, og hann verður fok- reiður. Þeirri spurningu er í raun og veru aldrei fullsvarað. Áhorf- endum er látið eftir að geta þar í eyðurnar. Mér skilst að vinur hans hafi borið slíkar tilfinning- ar til Brick, án hans vitundar, þar til þeir lentu í orðasennu í löngu símtali rétt fyrir dauða hans. „Big Daddy“ þykir vænzt um Brick og þegar hann deyr, sem hann heldur að sé fjarri, vill hann að Brick erfi plantekruna. Brick kærir sig ekki um auðæfi. Það eina sem hann kærir sig um er flaskan, sem getur gefið hon- um frið. „Big Daddy“ verður reiður yfir ístöðuleysi hans og ásakar hann um að drekka vegna óeðlilegra ástríðna hans. Brick slengir framan í hann í reiði sinni að hfnn cé í raun og veru Kim Stanley sem Maggie. að dauða kominn. „Big Daddy“, sem er bæði stór og feitur, skreppur saman af hræðslu og reiði yfir blekkingum fjölskyld- unnar. Eldri sonur hans og kona hans vilja ná í auðæfin vegna barna sinna, en Maggie, sem vill aldrei láta undan, tilkynnir að hún sé ófrísk, eigi von á erfingja. Það er auðvitað lygi, en „Big Daddy“ rymur af gleði, og Maggie grátbiður Brick að sofa hjá sér, láta lygi hennar verða að sannleika. Hún dröslar honum að rúminu þegar tjaldið fellur. Ég hefi lesið þetta leikrit tvisvar sinnum og hrifizt af því, sem einu bezta leikriti Tennés- see Williams, en það urðu mér mikil vonbrigði að sjá það leik- ið í Comedy Theatre. Ég hafði búizt við svo miklu. Kim Stan- ley, sem leikur Maggie, er vel þekkt Broadway-leikkona og leikur sitt hlutverk með mikilli prýði. Eins Leo McKern, sem leikur „Big Daddy“. Brick, lejk- inn af Paul Massie, hafði engin áhrif á mig. Aðrir leikendur, sem fóru sæmilega með hlutverk sín, voru: Bee Duffell (Big Mama), Daphne Anderson (Mae) og Roger Win- ton (Reverend Tooker). Alan Til- vern lék Cooper, 'bróður Brick’s, sérstaklega vel. Launce Maras- chal lék Doctor Bauch illa. Leikstjórn fer Peter Hall með, og hefur honum ekki tekizt eins vel og fyrrum. Leikurinn er of hægur, sem er ef til vill orsök þess að hann hittir ekki í mark. Peter Hall er ungur og upprenn- andi leikstjóri, giftur Leslie Caron. „The Iceman Cometh" eftir Eugene O’Neill, er eit eftirtekt- arverðasta og bezt leikið leikrit í London um þessar mundir. Það er verið að sýna það í Winter Garden Theatre í Drury Lane. Leikendur eru um tuttugu að tölu og fara allir frábærlega vei með hlutverk sín, sem án efa má þakka nákvæmri og góðri leikstjórn Peters Wood. Meðal leikaranna má nefna: Jack Mac Gowran, Patrick Magee, Lee Montague, Toby Robertson, Ro- bert Adams o. fl. sem of langt yrði upp að telja. Sérhver þeirra fer svo vel með hlutverk sitt, að ómögulegt er að gera upp a milli þeirra. Leikurinn tekur fjórar klukkustundir og heldur athygli áhorfandans óskertri frá byrjun til enda. Um hvað fjallar leikurinn? Ég myndi segja fals lífsins. Eugene O’Neill skrifar ekkert léttmeti. Leikurinn gerist á barstofu, þar sem úttaugaðir drykkjumenn eyða tíma sínum, og eiga ekki afturkvæmt nema í dagdraumum sínum. Einn dag kemur félagi þeirra, Hickey, sem alltaf var lífið og sálin í félagsskapnum, heim, — „bláedrú“. Hann hefur unnið þess eið að smakka ekki áfengi framar og frelsa hina frá dagdraumunum og áfengisbölinu. Hann breytir þeim öllum nema einum, og sendir þá út í heim- inn „þurra“ og veiklynda. Að kvöldi koma þeir allir til baka og sökkva sér niður í dagdraum- ana og áfengið rétt eins og áður. Hickey hefur sagt þeim að kon- an hans sé dáin og félagar hans hafa veður af að þar sé ekki allt með felldu. í lokin segir hann þeim ævisögu sína, hvern- ig hann skaut konu sína vegna ástar þeirra. Hann vefur konu sína í dýrðarljóma ástar, fyrir- gefningar og blíðu, en út úr honum hrekkur óafvitandi ein einasta setning, Ijót — sem hann sagði eftir að hafa framið verkn- aðinn. Setningin gefur til kynna að þetta fyrirmyndarhjónaband hans var stærsti dagdraumur Hickey’s. Hann er handtekinn. Félagar hans reyna að sannfæra sjálfa sig um, að hann hafi verið vitskertur og þeir sökkva sér aft- ur niður í dagdrauma sína og drykkju — og tjaldið fellur. — Eugene O’Neilí lætur ekki að sér hæða. Ég gæti glöð setið í aðrar fjórar klukkustundir og horft á leik hans eins og hann er túlkaður i Winter Garden Theatre. Frá Rússlandi kemur Ukraini- an State Cossack Company með þjóðdansa til Princess Theatre, Shaftesbury Avenue. Það er sannarlega líf og fjör í þessum Kósökkum. Þeir dansa frámuna- lega vel og þróttlega. Hljómlistin er að mestu eftir I. Ivaschenko og er dásamleg. Einna eftirtekt- arverðustu dansarnir voru: Brúðudans (Puppets) og herdans með nokkurs konar íþróttum fra átjándu öld. Þeir bera með sér hressandi blæ og áhorfendur tlr „The Iceman Cometh“: Lee Montague, Patrick Magee, Robert Adams og Michael Balfour í hlutverkum. ærðust af fögnuði. Það verður ekki sagt um Englendinga sem áhorfendur, að þeir láti ekki ó- þvingað í ljós álit sitt um leik- sýningar. Séu þeir ánægðir hrópa þeir og kalla og stappa, séu þeir óánægðir „púa“ þeir a leikritið og það á sér varla viðreisnarvon eftir það. Leikarar geta ímyndað sér hversu notalegt það er að vera „púaður“ á frum- sýningu. London, 7. apríl 1958 Krf. Breiðfirðingafélagið heldur skemanti&amkomu í Breiðfirðingabúð að kvöldi síðasta vetrardags og hefst kl. 9 e.h. Skemmtiatriði: Ávarp: sr. Árelíus Níelsson. Leikþáttur: Aurora og Emelía. Þjóðdansasýning. Dans. Allur ágóði rennur til Björgunarskútusjóðs Breiða- fjarðar. Stjórnin. Til sölu Vandað 70 ferm. Einbýlishús í Kleppsholti. Stór girt lóð fylgir húsinu. 6 herbergja íbúð í Hálogalandshverfi. íbúðin er til- búin undir treverk og málningu. 4 herbergja íbúð við Kleppsveg. Eignarlóð í Vesturbænum. INDRIÐI PÁLSSON, hdl., sími 33196. FramtíðarstaBa Verkstjóri getur fengið stöðu hjá verksmiðju hér í bænum. — Umsókn sendist Morgunblaðinu fyrir 1. maí merkt: „Fframtíðarstaða — 7956“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.