Morgunblaðið - 23.04.1958, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.04.1958, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 23. apríl 1958 MORCUNBLAÐIÐ 11 LeikmaÖur og prófessor Samtal við Bjarna M. Gíslason um aðdrótfanir Westergaard Nielsen próf. ÞEXM Dönum fer auðsjáanlega fækkandi, sem eru á móti af- hendingu handritanna, en hins vegar beita þeir nú alls konar meðulum til að sverta málstað hinna. Upp á síðkastið hefur mest borið á árásum á Bjarna M. Gíslason rithöfund af hálfu Wiggo Starckes ráðherra og Chr. Westergárd-Nielsens prófessors. Forsaga málsins er þessi: Árið 1947 sendu lýðskólamenn áskor- un til þáverandi stjórnar Dana um að skila handritunum, en 1951 kom út vísindalegt nefndar- álit sem veikti mjög afstöðu lýð- skólamanna. En þá hljóp Bjarni M. Gíslason undir bagga með þeim og ritaði gegn nefndarálit- inu. Síðan hefur lýðskóla- mönnum vaxið gengi, og sl. haust gáfu þeir út bókina „Island Dan- mark og hándskriftsagen" og 1 kjölfar hennar sendu þeir á ný áskorun til stjórnarinnar um að skila handritunum. í fyrstunni reyndu andstæðingar þeirra við danska háskólann að hrista þá af sér með yfirborðskenndum lærdómshroka, en lýðskólamenn gerðu þeim ljóst, að ekkert gæti hnekkt áhrifum Bjarna nema gagnrök, sem væru jafn sannfærandi og rökin í bók hans um handritin, og þeir hafa öðru hverju boðizt til að prenta slík gagnrök í tímaritinu „Dansk Udsyn“. Prófessor Westergárd-Nielsen, sem er nýbakaður sérfræðingur í íslenzkum fræðum, hefur ein- hvern veginn fundizt, að hon- um bæri skylda til að hrekja rök Bjarna, og 8. jan. sl. birtist löng neðanmálsgrein eftir hann um bókina í Jyllands-Posten. — Kemur hann m.a. fram með aðdróttanir um það, að óhugsan- legt sé að leikmaður hafi skrifað slíka bók og álítur hana skrifaða af dr. Sigurði Nordal, segist jafnvel hafa vitað þetta, en orðið að láta það liggja í þagn- argildi, meðan dr. Sigurður Nor- dal var sendiherra í Kaupmanna- höfn. Að líkindum hefur hug- myndin með þessum aðdróttun- um verið að veikja traust lýð— skólamanna á þekkingu Bjarna, því seinna kom það í ljós, að Westergárd-Nielsen var ekki alls kostar öruggur um þekkingar- leysi hans. Hinn 26. febr. sl. gat „Árhus amtstidende" þess, að prófessor Westergárd-Nielsen ætti að tala um handritamálið í stúdentafélagi við háskólann í Ár ósum, og að Bjarna væri boðið á fundinn sem gagnmælanda. En prófessorinn talaði í sífellu um öll möguleg handrit í austri og vestri í næstum hálfa þriðju klukkustund, og þegar ræðu hans lauk, tilkynnti formaður stúdentafélagsins, að eftir hálftíma yrði skólanum lokað og á því tímabili þurftu fundar- menn að Ijúka við tedrykkju, en búið var að leggja á borð í borðsal skólans. Undir þessum kringumstæðum varð Bjarna ekki auðið að hefja neinar kapp- ræður, og lét sér því nægja að segja nokkur vingjarnleg orð til lýðskólamanna. Tiðindamaður Mbl. hefur hitt Bjarna að máli og spurt hvernig honum hefði fundizt fyrirlestur Westergárd-Nielsens prófessors. — Mér fannst hann að mörgu leyti góður, skilmerkilegt fram- lag um afdrif gamalla handrita. Að vísu var því ekki að leyna, að allur þessi eltingarleikur við alls konar handrit víðs vegar í heiminum hafði það sem mark- mið, að vefja kjarna málsins inn í orðavafstur, svo að enginn sæi neina ástæðu til þess að íslenzku handritunum yrði skilað. En mér gafst ekki tækifæri til að gera grein fyrir þessu. Ég var gestur á staðnum, og Westergárd- Nielsen réði öllu um það, hve miklum tíma gestinum var út- hlutað. — Heldurðu, að prófessor West ergárd-Nielsen hafi nokkur nei- kvæð áhrif á skilun handrit- anna? Hann hefði að líkindum getað haft það, en sú vísindalega að- ferð sem hann hvarvetna beitir í skrifum um handritamálið hefur veikt málstað hans og traust manna á honum sem óhlutdræg- um vísindamanni. Ég skal nefna eitt dæmi. Eins og kunnugt er talar hann mikið um handahófs- legan rugling í bók minni um Jyllands-Posten 8. jan. sl. En dæmin sem hann styðst við eru Vídalíns komust á ringulreið, geti annálarnir ekki um nein hallæri á íslandi. En ef satt skal frá segja geta annálarnir, árbæk- urnar og alþingisbækurnar næst- um því ekki um annað. Fyrst árið 1858 varð eitthvert smáhlé, og þá fjölgaði íbúum landsins um 7300 manns áður en Skaftár- eldarnir umturnuðu öllu á ný. Auk þess er það næsta ósmekk- leg vísindamennska að slá því föstu, að annálar hermi ekkert frá neyðarástandi á Islandi eftir stórubólu allt fram til 1747, þar eð fjöldi árbóka og annála frá þessu timabili liggur óprentaður í Landsbókasafninu í Reykjavík. — Hefur þú kynnt þér hand- ritin í Landsbókasafninu? — Ekki eins vel og skyldi, en ég hef um margra ára bil lesið það mikið í sögu íslands, að ég gleypi ekki allt ósoðið, sem bor- ið er fram í sambandi við hahd- ritamálið. Prófessor Westergárd- Nielsen ræður því auðvitað sjálf- ur, hverjum hann tileinkar rit sín um þetta efni, en eins og dr. Sigurður Nordal kemst að orði í Alþýðublaðinu 26. febrúar, verður þó ekki öðrum kennt um handritabók mína en mér sjálf- um. En þó enginn hafi skrifað hálfa linu í henni fyrir mig, er mér ljúft að viðurkenna, að ég hef lært margt af verkum ís- lenzkra vísindamanna um sögu handritanna. Og ég verð að segja, að mér hefur oft hlýnað um hjartaræturnar, þegar ég bar verk þeirra saman við verk er- lendra vísindamanna um íslenzka sagnfræði. Þeir bera það hvar- vetna með sér, að það er hægt á þeim að byggja. Vísinda- mennska þeirra er hvergi áróðurs kennd og kemst því ekki í al- gera mótsögn við sjálfa sig, eins og oft vill verða í skrifum W estergárd-Nielsens. — Hyggstu halda áfram að vinna að íslenzkri sagnfræði ef handritunum verður skilað í náinni framtið? — Nei, ég hef alltaf borið sköpunarþrá skáldsins í brjósti, og það liggja í fórum mínum all- mörg hálfköruð verk, skáldsög- ur og kvæði. En ég gat ekki horft upp á það, hvernig farið var með málstað íslands í sam- bandi við handritamálið og þess- vegna gerðist ég nokkurs konar sjálfboðaliði þeirra Dana, sem vildu skila okkur handritunum. Þeir þurftu á manni að ha’da, sem gat lesið bæði málin, og síðan hefur um margra ára bil hvað tekið við af öðru, ritdeilur og fyrirlestrar, og ekki gefizt neitt tóm til skáldskapar. Það hefur aukið traust mitt á dönsku þjóðina að finna það, hve margir álitu sig fyrst og fremst gæta réttar hennar, að ekki yrði farið út yfir hin réttu takmörk í deilunni um handritin. Þetta er aðalástæðan til þess að dönsku lýðskólamennirnir hafa ekki gengið þegjandi undir alla vísindamennsku sérfræðinganna. Og ef handritunum verður ein- hvern tíma skilað, ættu allir ís- lendingar að muna það, að það var danskur almenningur sem þar rétti okkur hönd og réði úr- slitunum í baráttunni við stein- runna vísindamenn. Valdimar Kristinsson: Bjarni M. Gíslason ekki annað en tómar rökleysur. Hann skrifar meðal annars: „Á síðu 108 lætur höfundurinn Jón Þorkelsson (1822—1904) í Safni til sögu íslands hrekja skoðanir Rudólfs Keysers 1853. En þar eð Safn hóf göngu sína 1856 verður maður með tvær hendur tómar að leita villuna uppi. Og maður leitar árangurslaust i Safni“. — Þetta er orðrétt þýðing á ummæl um Westergárd-Nielsens. En nú vita allir, sem eitthvað hafa kynnt sér íslenzk fræði, að Safn til sögu Islands hóf göngu sina í heftum 1852, og Jón Sigurðsson, Konráð Gíslason og Gísli Bryn- júlfsson gera grein fyrir þessu i formála í fyrsta bindi ritsins 1856. Auk þess stendur grein Jóns Þorkelssonar um Fagur- skinnu og Ólafs sögu helga end- urprentuð í bindinu frá 1856. á síðu 137—184. Það er víst ekki óalgengt að maður hlaupi yfir eina eða tvær síður við lest- ur bóka, en það þarf meira en handahófslega ónókvæmni til að hlaupa yfir 48 siður. En þetta hlýtur prófessor Westergárd- Nielsen að hafa gert, úr því hann upplýsir danska lesendur um það, að hin áðurnefnda ritgerð finnist hvergi í Safni til sögu ís- lands. — Heldurðu að þetta rang- hermi stafi af vanþekkingu eða sé sagt af ráðnum hug? — Auðvitað leynist engum, að þess háttar rökvillur eru bornar fram af róðnum hug. Það er í nútimanum talsvert af oftrún- aði og jafnvel hjátrú á vísinda- menn, og Westergárd-Nielsen hefur skákað talsvert í skjóli þessarar hjátrúar, af því að hann veit að landar hans þekkja afar lítið til þeirra sögulegu atriða sem deilt er um. Þetta kom meðal annars fram í ritdeilu hans við Martin Larsen í Socialdemokrat- en 1953. Þegar Martin Larsen gerði grein fyrir, hvernig neyð- arástand íslands á 17. og 18. öld hafi valdið tapi á handritum, svar ar Westerárd-Nielsen, að á tíma- bilinu 1707—1747, er handrit Páls SkipuIag flugvallarins Flugstöðvarbygging og flugskýli í umræðunum um Reykjavík- urflugvöll á fundi Flugmála- félagsins, fyrir nokkru, virtist sú skoðun ríkjandi, að erfitt væri að segja nákvæmlega fyrir um framtíð flugvallarins, vegna óviss unnar um hvað hin geysiöra tækniþróun í flugvélasmíði myndi leiða af sér, jafnvel eftir ekki lengri tima en 15—20 ár. Fáir munu vera svo ánægðir með núverandi Reykjavikurflug- völl og staðsetningu hans, að þeir vilji fullyrða, að flugvöllur höfuðborgarinnar skuli alltaf vera þar sem hann er nú. Aftur á móti munu fæstir þeirra, sem starfa að flugmálum, vilja fallast á, að flugvöllurinn skuli víkja í fyrirsjáanlegri fram- tíð. Má telja lílclegt, að sumir forráðamenn flugmála hafi tekið þessa afstöðu, þar sem þeir ótt- ast, að minnsta tilslökun af þeirra háifu muni leiða til þess, að þá verði ekkert úr nauðsyn- legum byggingarframkvæmdum fyrir flugþjónustuna, um ófyrir- sjáanlegan tíma. Það er ekki erfitt að skilja, að þeir menn, sem hafa valið sér flugmálin að lífsstarfi, og þekkja öðrum betur þýðingu þeirra fyrir þjóðarbúskapinn, líti það alvarlegum augum, að bráða- birgðabyggingar þær, sem nær öll íslenzka flugþjónustan verður að búa við, grotna æ meira nið- ur og verða augljóslega ónothæf- ar áður en langt um líður. En þrátt fyrir þetta bólar ekkert á nýbyggingum í þeirra stað. Mjög "mikilvægt er, að reynt verði að finna lausn á þessu máli. Lausn, sem þeir geta sætt sig við, sem eru sannfærðir um að flug- völlurinn verði að víkja í fram- tíðinni, sem og þeir er ekki eru eins vissir í sinni sök eða jafnvel halda fram hinu gagnstæða. Ýmsir eru þeirrar skoðunar, að nauðsynlegt sé vegna framtíðar- skipulags borgarinnar, að ákveða fljótlega að flugvöllurinn skuli lagður niður, þótt það verði ekki gert fyrr en eftir mörg ár. En þá væn hægt að skipuleggja flugvallarsvæðið í stórum drátt- um og haga byggingu annarra bæjarhverfa í samræmi við það. Hvað sem ákveðið verður í þessu efni, þá hefur það verið rætt að undanförnu, að leggja veg í framhaldi af Sóleyjargötu, yfir Aldamótagarðana og síðan vestan og sunnan við Öskjuhlíð, en þetta myndi auðvelda sam- göngur við Hafnarfjörð. Þessi nýi vegur myndi liggja yfir eina af flugbrautunum, þá sem liggur í áttina að Miklatorgi. En hún myndi þó lögð niður, enda er hún lítið notuð. Mun flugmála- stjórnin hafa tekið þessari hug- mynd heldur vinsamlega, og benda má á, að ef úr fram- kvæmdum yrði, myndu samgöng- ur verða greiðari milli Miðbæj- arins og flugturnsins. En þessi skipan mála getur einmitt falið í sér lausn á bygg- ingarvandamáli flugþjónustunn- ar. Hinn nýi vegur, framhald hans „Hlíðarfótur“ (sunnan Öskjuhlíðar) og „Flugvallar- braut“ (framhald Snorrabraut- ar) yrðu væntanlega fastar línur í skipulagi flugvallarsvæðisins, hver svo sem framtíð þess verð- ur. Nálægt þessum vegum ætti að mega byggja einhverjar stór- byggingar, sem gætu staðið um alla framtíð í fullri sátt við ó- borna skipulagsfrömuði. Þarna mætti því byggja flugstöðvar- byggingu fyrir skrifstofur flug- félaganna og aðra þætti flugmál- anna, flugturn og einnig farþega- afgreiðslu og veitingasal. í næsta nágrenni ætti einnig að mega byggja stórt flugskýli. Ef flugvöllurinn yrði lagður niður myndi „flugstöðvarbygg- ingin“ í fullu gildi, t.d. sem al- mennt skrifstofu- og verzlunar- hús. Og flugskýli mætti án efa breyta í íþrótta- og sýningarhöll, eða jafnvel hringleikahús! Með þessari tilhögun sýnist gengið til móts við óskir allra aðila. Þeir, sem að flugmálunum starfa geta fengið góðar bygg- ingar, er fjárhagsgeta leyfir. Aðr- ir geta svo gert samþykktir um að flugvöllurinn skuli lagður nið- ur eftir t. d. 15—20 ár og hagað skipulagi bæjarins eftir því. Reynslan mun síðan skera úr hvað verður. * En í þessu sambandi ber að geta þess, að lenging á flugbraut- unum verður ekki rökstudd á sama hátt og hér hefur verið leitazt við að gera í sambandi við byggingu á flugskýli og flug- stöðvarbyggingu. Og hvers konar breyting og lagfæring flugbraut- anna, utan nauðsynlegasta við- halds, hlýtur að vera mikill þyrnir í auga allra þeirra, sem telja að flugvöllurinn verði að víkja, fyrr eða síðar. Verðmæti landsins, sem flug- völlurinn stendur á Mun nú vikið að öðrum atrið- um í sambandi við flugvöllinn, sem ætla má að hafi mikil áhrif á framtíð hans. Nokkuð hefur verið rætt um það að undanförnu, eins og áður er sagt, að ætla þurfi rúmgott svæði undir nýtt viðskiptahverfi í Reykjavík, þar sem hin eldri hafa mjög litla útþenslumögu- leika. Af ýmsum ástæðum, þykir varla annar staður koma til greina í þessu sambandi en hluti af flugvallarsvæðinu. Mun það til dæmis liggja enn betur við en nú, eftir því sem þungamiðja bæjarins færist sunnar. Og tengsl in við „Miðbæinn“ yrðu góð, sem er mjög mikilvægt. Allt flugvallarsvæðið er um 300 ha. að stærð, og er það ekki svo lítið þegar haft er í huga, að Reykjavík innan Hringbrautar er um 200 ha. Auk þess takmarkar flugvöllurinn stærð bygginga langt fyrir utan hið eiginlega athafnasvæði sitt. Má sem dæmi nefna, að ekki hefur mátt byggja útsýnisturn eða veitingahús ofan á hitaveithgeymana á öskjuhlið vegna flugvallarins, og fyrirhug- uð Hallgrímskirkja og ráðhús (við Tjörnina), myndu fullbyggð gera notkun flugvallarins erfið- ari en áður. Nú mun rætt um framtíð flug- vallarins, með tilliti til verðmætis landsins, sem hann stendur á. Þótt ýmsir kunni að segja, að landrými sé nægjanlegt á Jslandi, þá vita að minnsta kosti allir, sem hafa kynnt sér lóðarverð i Reykjavík og nágrenni, að ekki er sama hvar landið er. Sagt er að lóðir við Skerja- fjörð, í nágrenni flugvallarina, sem ætlaðar eru undir einbýli*- hús, séu seldar á allt að 100 kr. pr. ferm. Lóðir í eftirsóttum íbúðarhverfum eru vart seldar undir 300 kr. pr. ferm. og eftir- sóttar lóðir fyrir verzlunarhú* fyrir allt að 10 sinnum meira, eða 3000 kr. pr. ferm. Því hefur verið haldið fram d sumum, að landið sem flugvöll- urinn stendur á, sé að miklu leyti óhæft sem byggingalóðir, en það mun álit sérfræðinga, að meginhluti þess sé byggingahæf- ur. — Ef gert er því ráð fyrir, að byggja ætti á 200 af hinum 300 ha. flugvallarsvæðisins (hitt yrði opin svæði og götur), og selja ætti lóðirnar, þá er ekki gott að segja hvaða verði ætti að reikna með. Þótt aðeins væri miðáð við 100 kr. pr. ferm., myndi hver ha., sem er 10.000 ferm., kosta eina millj. kr. og 200 ha. því 200 millj. En engum kemur til hugar, að lóðir undir einbýlishús séu jafn mikils virði og lóðir undir verzl- unarhús og marghæða ibúðarhús. Því mætti vel reikna með 500— 1000 kr. pr. ferm. og yrðu þá 200 ha., 1000—2000 millj. króna virði. Ef menn telja þetta of háa tölu, þá þarf ekki annað en að Framh á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.