Morgunblaðið - 23.04.1958, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 23.04.1958, Qupperneq 12
12 MORCVISBLAÐIÐ Miðvik'udagur 23. apríl 1958 VILJUM KAUFA Dodge Weapon bifreið Upplýsingar á skriístofu vorri. H.f. Hamar MY SEMDIMG Ljósir filfhattar Haftabúð Reykjavíkur OPTIMA Ferðaritvélar Skffifstofuvélar Garðar Gíslason H.f. Reykjavík Anna Sigmundsdóttir Kveðjuorð F. 5. ág. 1882. — D. 9. febr. 1958. ANNA var fædd að Lambanesi í Saurbæ 5. ág. 1882, dóttir hjón- anna Guðnýjar Guðmundsdóttur og Sigmundar Guðmundssonar, Sem þar voru í húsmennsku. Hún óist upp með foreldrum sínum á ýmsum bæjum þar vestra. Ung að árum missir hún föður sinn. Hann var í kaupstaðarferð og varð úti. Það fór því svo hér sem svo víða hefur farið, bæði fyrr og síðar, að fjölskyldan tvístrað- ist við lát heimilisföðurins. Börmn voru mörg, flest ung en Anna sem var yngst þeirra, var með móður sinni meðan báð- ar lifðu. Anna taldi það lán fyr- ir sig að hafa fengið að njóta móður sinnar alla tíð og hitt ekki síður þegar gamla konan gerðist hrum og sjúk að geta veitt henni hjálp og aðstoð þar til yfir lauk. Einn af þeim mönnum sem "Önnu var hugstæðastur fyrr og síðar var bróðir hennar Þormóður, er lézt fyrir nokkrum árum að Kópavogshæli, eftir áratuga veikindi, fyrst að Laugarnesi síð- ar að Kópavogi. Virtist sem Önnu hrakaði mjög við missi þessa bróður, enda höfðu þau verið mjög samrýnd alla tíð, og tekið þátt hvort í annars kjörum á einlægan og fölskvalausan hátt. Anna giftist aldrei en eignaðist 2 börn, Bjarna og Sigfríði og hjá Bjarna andaðist hún, að heimili hans Þykkvabæ í Landbroti. Bjarni ólst upp með móður sinni en Sigfríður var tekin í fóstur og hafði hún því minna af moður sinni að segja. Það er óhætt að segja að Bjarni var augastemn móður sinnar, enda skildu þau ekki fyrr en hanr. g'ítist og Xór að búa fyrir nokrum árum, en þá fór hún til hans yfir sumartím- ann meðan heilsan leyfði. En síð- asta árið sem hún var hér gat hún ekki farið sökum heilsu- brests. Ári síðar fluttist hún al- farin til hans, og hafði verið þar heimilisföst um rúmt ár er hún lézt. Anna var fróðleiksfús, las tals- vert af bókum meðan sjónin leyfði. Minnið var gott, einkan- lega frá fyrri tímum og var mesta furða hve vel hún sagði frá mönnum og málefnum. Þótt forlögin spynnu henni garnið ær- ið hnökrótt á stundum, var hún alla jafna glöð og létt í máli. Líf hennar var ekki rismikið, en hún var trú sínu hlutverki, og meira verður ekki af neinum krafizt. Hún var trúkona á sína vísu, og þótt hún yndi vel hjá syni sínum og sonarsonunum ungu var hún reiðubúin hinum miklu vistaskiptum og hugði gott til endurfunda við vinina sem farnir voru á undan. Anna var jarðsett í heimagraf- reit að Þykkvabæ. — V. M. Einar Gíslason heiðurs- félagi Málarameisfara- félagsins AÐALFUNDUR Málarameistara- félags Reykjavíkur var haldinn 29. marz s. 1. Formaður félags- ins, Jón E. Ágústsson, flutti starfsskýrslu félagsins fyrir s.L ár. —■ Félagið átti 30 ára afmæli 26. febrúar sl. Var afmælisins minnzt með hófi í Sjálfstæðis- húsinu 28. s. m. Félaginu barst fjöldi gjafa og heillaóska í tilefni afmælisins. Einn af stofnendum félagsins og formaður þess í 21 ár, Einar Gíslason, var kjörinn heiðursfé- lagi. Félagið mun á næstunni opna skrifstofu í húsi Múrarafélagsins við Freyjugötu. Er það ætlun félagsins að allir sem þess óska leiti til skrifstofunnar, með hvers konar upplýsingar er varða starf- semi félagsins í faglegum eða fé- lagslegum málum. Félagsmenn eru nú 97 að tölu. Stjórnina skipa nú þessir menn: Form. Jón E. Ágústsson, vara- form. Sæmundur Sigurðsson, rit- ari Kjartan Gíslason, gjaldkeri Ólafur Jónsson, aðstoðargjaldkeri Haukur Hallgrimsson. — Rit- stjóri Málarans: Jökull Pétursson. — Verðskrárnefnd: Ólafur Jóns- son, Halldór Magnússon, Kjartan Gíslason. S I B S S 1 B S Þinghoð 11. þing Sambands ísl. berklasjóklinga verður háð að Reykjalundi dagana 4., 5. og 6. júlí n.k. Stjórnarfundur Norðurlandabandalagsins (D.N. T.C.) verður einnig haldinn að Reykjalundi um sama leyti og mun standa yfir 2. og 3. júlí. Samkvæmt lögum sambandsins ber deildunum að skila stjóminni starfsskýrslum og meðlimaskrám fyrir maí-byrjun ár hvert. Ennfremur er vakin athygli á því ákvæði laga, að tillögur um lagabreytingar verða að berast sam- bandsstjórn einum mánuði fyrir þingsetningu. Nauðsynlegt er að deildimar tilkynni tölu þeirra fulltrúa, sem til þings munu koma, fyrir miðjan júní n.k. Stjórn Sambands ísl. berklasjúklinga. S I B S S I B S VandaSar íbúðir til sölu Höfum til sölu íbúðir á hæðum, sem eru 117 ferm., 4 herbergi, eldhús, bað og hall. í kjallara fylgir auk þess 1 íbúðarherbergi, sérstök geymsla, eignarhluti í þvotta- húsi, þurrkherbergi, barnavagnageymslu og frysti- geymslu. íbúðimar eru nú tilbúnar undir tréverk og máln- ingu. Þær verða seldar í því ástandi með múrhúðun og málningu utanhúss og sameign fullgerðri. Hægt er að fá þær lengra komnar eða fullgerðar. Eru til sýnis á venjulegum vinnutíma. Lán á 2. veðrétti kr. 50 þúsund fylgir. Fyrsti veðréttur laus fyrir kaupanda. Bílskúrs- réttindi geta fylgt. Fasteigna & Verðbréfasalan (Lárus Jóhannesson, hrl.) Suðurgötu 4, símar 13294 og 14314. Upplýsingar eftir kl. 20 í símum 34619, 16649 og 15801. Sigríður Bjarnadóttir - Minningarorð VINKONA mín, frú Sigríður Bjarnadóttir, lézt I Reykavík 27. janúar sl. 71 árs að aldri. Enda þótt nú sé alllangt liðið frá dán- ardegi frú Sigríðar, langar mig til að minnast þessarar merku konu með nokkrum orðum. Það er ekki ætlun mín mað þessum fátæklegu kveðjuorðum, að rekja æviferil frú Sigríðar, enda er slíkt ekki á mínu færi. Sigríður Bjarnadóttir var fædd að Breiðavík við Patreks- fjörð 14. nóv. 1886, dóttir hjón- anna Bjarna Gunnlaugssonar, bónda þar, og konu hans Þor- gerðar Sigmundsdóttur. Móður sína missti Sigríður, er hún var aðeins missiris gömul. ÓJst Sig- ríður síðan upp með föður sín- um og stjúpmóður, frú Sigríði Ásbjarnardóttur, til 16 ára ald- urs, er hún yfirgaf bernskustöðv- arnar og fluttist til Hafnarfjarð- ar. Þar gekk Sigríður í Flens- borgarskóla, en það þótti mikill frami í þann tíma og hlotnaðist aðeins fáum útvöldum. Þann 9. des. 1909 giftist Sig- ríður Tómasi Jörgenssyni, hin- um ágætasta manni, og varð hjónaband þeirra bæði langt og farsælt, en mann sinn missti Sig- ríður 1953. Þau hjón reistu bú að Borðeyri við Hrútafjörð og buggu þar um tuttugu ára skeið. Þar ráku þau gisti- og veitinga- hús með miklum myndarbrag. — Margur greiðinn og gistingin var þar í té látin án þess að greiðsla kæmi fyrir, enda munu gamlir Hrútfirðingar og aðrir þeir, sem leið áttu um Borðeyri á þeim tíma minnast þessara merku hjóna með hlýhug og þakklæti. Árið 1930 fluttust þau hjónin hingað til Reykjavíkur. Fór hér sem fyrr að heimili þeirra var orðlagt fyrir rausn og myndar- brag. Þau hjónin eignuðust þrjú mannvænleg börn, en þau eru: Dýrfinna, gift Jóni Sigurðssyni, skipstjóra, Sigurbjarni, kvæntur Sigríði G. Guðmundsdóttur og Hans, kvæntur Kirsten Péturs- dóttur. Síðustu æviár sín dvaldist Sig- ríður á hinu tilkomumikla heim- ili dóttur sinnar og tengdasonar, frú Dýrfinnu og Jóns skipstjóra. Kynni okkar Sigríðar hófust fyrir níu árum. Svo fór með mig sem alla, er kynntust þessari heið- urskonu, að mér þótti vænt um hana og því vænna, sem kynni okkar urðu meiri. Hún hafði þann mikla og dýrmæta eigin- leika að láta öllum liða vel I návist sinni. Heim að sækja var 'Sigríður ræðin og skemmtileg og fá voru þau umræðuefni, að Sig- ríður ekki kynni á þeim glögg skil. Hún nafði og mikinn áhuga á félagsmálum og vai vix'kur með limur í Sjálfstæðiskvennafél. ,Hvöt‘ um árabil. Einnig var hún einn af stofnendum Húsmæðra- fél. Rvíkur. Á skáldskap hafði Sigríður einkar mikinn áhuga og þekkingu og sögu þjóðar sinnar gerþekkti hún. Hinn glæsilegi persónuleiki þessarar góðu konu gleymist engum, er henni kynnt- ust. Að lokum, kæra vinkona, vil ég færa þér minar hugheilustu þakkar fyrir trausta vináttu og alla hlýjuna, sem þú alltaf áttir svo mikið af og veittir mér og öðrum í svo ríkum mæli. Guð blessi minningu þína. Vinur. Lister Blackstone bátavél 120 hestafla með öllu tilheyrandi, svo sem gír, skrúfubúnaði og fleiru er til sölu. Vélin er notuð og óstandsett. Nánari upplýsingar hjá oss. LAIMD88IVIIÐJAIM DUGLEG Skrits^dustúlku helzt með verzlunarskóla- eða hliðstæða menntun óskast sem fyrst. Eiginhandarumsókn, er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf sendist afgr. Mbl. merkt: „Miðbær — 7954“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.