Morgunblaðið - 23.04.1958, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.04.1958, Blaðsíða 16
18 MORGVTSBL 4 ÐIÐ Miðvikudagur 23. april 1958 —I. ..................................................... 11rI...................................'......-..........' ■ .V''':'- ■ ’ . " En Carmela hristir höfuðið og kolsvörtu lokkarnir hennar falla niður á herðarnar. — Þér komizt ekki framhjá! snökti hún. Ippolito yppir fýluleg-a öxlum. Síðan gefur hann aðstoðarmönn- um sínum merki. Tvímenningarn- ir, loftskeytamaðurinn og saka- málafulltrúinn, hafa ekkert á móti því að leggja hendur á stúlkuna — úr því að þeir hafa hlotið lög- lega heimild til þess. En þeir hafa ekki gert sér fyllilega grein fyrir skapofsa Carmelu. Það er tekizt á ofsalega í stutta stund, en síðan kastar Carmela sér í næsta stól móð og másandi. Hún er laus úr þessum viðurstyggilegu klóm. Kjóllinn hefur fletzt frá henni, en hún lætur sem hún veiti þvi enga athygli. — Sleppið honum, hr. lögreglu fulltrúi, ég sver það, að hann mun aldrei framar hafast neitt ólöglegt að, segir hún lágum rómi og einblínir auðmjúk og biðjandi á Ippolito. Domenico kinkar ákafur kolli. — Ég lofa yður hátíðlega, að loftskeytatækin mín verða ekki notuð framar, hr. lögreglufulltrúi, sver Dommenico og horfir til him- ins. — Að vísu hafa þessi tæki verið mér mikil gleði og afþrey- ing í einmanalegu lífi mínu. En úr því ið þau hafa vakið grun- semdir yðar, mun ég með mikilli ánægju algerlega hætta að nota þau framvegis. ... Hann horfir innilega á Ippolito. Ippolito getur ekki haft augun af Carmelu. Hún heldur höndunum útréttum — og næstum biðjandi. Fallegu augun hennar eru hlý’.eg og vot. Ég er bölvaður bjáni, hugsar Ippolito. Þetta getur orðið mér að falli í stöðu minni. En stúlkan. . — Hm! umlar í Ippolito. Síð- an byrstir hann sig. — En eitt get ég fullvissað yður um: Ég kæri yður fyrir að hafa undir höndum óskráð loftskeytatæki. Og þér get- ið nagað yður í handarbökin, því að það mun kosta yður 15.000 lírur! Domenico drúpir höfði með uppgerðar-auðmýkt. — Auðvitað, hr. lögreglufull- trúi. Ég þakka yður af heilum huga. Og Carmela þrífur hina ströngu hönd réttvísinnar og þrýstir blóð heitum vörum sínum á hana: — Þakka yður hjartanlega, hvíslar hún. Snertingin við stúlkuna fer eins og rafstraumur um allan líkama Ippolito. Hann dregrur að sér höndina dapur í bragði: — Við eigum eftir að hittast aftur, dúfan mín! muldrar hann niður í bringu sér. m/f ■+■ / , , | kl. 8*4? raiðevrópotíml - í belgisTtB kongo - vlð titnie koparnámurnar Lalande verkfræðingur þurrkar •vitann af andlitinu með röku handklæði, sem Etienne, svarti þjónninn hans, réttir honum. — Hann virðist nú svo máttfarinn, að Etienne býst við því að hann hnígi niður á hverri stundu. Svert inginn heldur hljóðnemanum, full ■ur umhyggju, við munn Lalande, til þess að hann geti sjálfur kvatt •kipstjórann norður í íshafi: _ Verið þér sælir, TKX .... hlutverki okkar er lokið. Ég vona að þér komið brátt auga á flug- vélina, sem færir ykkur björg- ina.... — Verið þér sælir, TRZ, svar- ar Larsen skipstjóri hásri röddu. — Fyrir hönd allrar skipshafn- arinnar þakka ég yður hjartan- lega. .... Án yðar hefðum við verið hjálparvana og dauðans mat ’ur..... — Við gerðum aðeins það, sem allir hefðu gert í okkar aðstöðu, ’Larsen skipstjóri, svarar La- 'lande veikri en virðulegri röddu. Etienne beygir 'sig niður að hljóðnemanum og er hraðmæltur: ’— Ég ætla að láta skíra nýfæddu 'dóttur mina eftir skipi yðar. Hún 'mun heita Marie Sörensen 'Loiseau...... — Við óskum yður og Maríu litlu Sörensen alls hins bezta í framtíðinni.... — Góða ferð heim, segir La- lande- Síðan rýfur hann rafmagns strauminn til loftskeytatækjanna. Etienne horfir undrandi á La- lande og fylgist með því, hvernig hann rýfur tengsli rafhlöðunnar við loftskeytatækin og bisar síðan við að bera rafhlöðuna út. Loks- ins skilur Etienne, hvað Lalande ætlast fyrir og hann kemur hon- um til hjálpar. Nokkrum mínútum síðar er raf- hlaðan komin á réttan stað í ryk- uga jeppabílnum. Lalande slær hendinni út — í áttina að bíln- um: — Góða ferð til Zobra, svarti gaurinn þinn, segir Lalande og brosir þreytulega. — Skilaðu , kveðju minni til konunnar þinn- ! ar og segðu henni, að mér sé heið | ur að því að halda Mariu litlu i Sörensen undir skírn. foringjans. Þegar Bellamy nálg- ast dyrnar að „hinu allra helg- asta“ finnur hann óvenjulega lykt, sem í rauninni á ekki heima í herbúðum. — Yndisleg lykt, ilm- vatnslykt — af konu. Við dyrnar stendur Margaret Ran some, hin Ijóshærða dóttir „þess gamla“. Bellamy staldrar við og horfir furðu lostinn á hana. Bláu augun hennar geisla af einhverju, — einhverju, sem aðeins ást- fangnar ungar stúlkur búa yfir. — Áfsakið, ungfrú Ransome, „sá gamli. ...“ — ég á við: Ran- some yfirforingi, faðir yðar, bíð- ur mín. — Já, ég veit það, segir sú indæla með veikri og dreymandi röddu. — Hjartans Charley, það er í sannleika dásamlegt — það, sem þér hafið gei't! Og áður en hann veit af hvílir hún í faðmi hans. Og Charles F. Bellamy kærir sig kollóttan, enda þótt dyrnar opnist. — Hann veit, að þetta er upphafið að einhverju stórbrotnu, nýstárlegu og spenn- andi í lífi hans. Langtum meira æsandi en poker. Feimin, siðsöm stúlka hefur fengið kjark til þess að segja lausnarorðið — vegna afreka hans. Honum hefur aldrei komið til hugar, að Margaret Ran- some hefði þessa afstöðu gagn- vart honum, Hann hefur alltaf litið hana sem fjarlægt furðu- verk, utan skotmáls: Dóttur „þess gamla“. ins yfir lestaropið til þess að auð- kenna það frekar. Larsen situr inni í klefa sínum og reynir með miklum ákafa og fumi að ná beinu loftskeytasam- bandi við þotuflugmanninn, en það heppnast ekki. Hann skrúfar bylgjustillinguna fram og aftur. Þotan flýgur í tvo hringi yfir bátnum, síðan lækkar hún flugið enn, niður í nokkurra m. hæð, og flýgur í beinni stefnu á „Marie Sörensen“. Flugmaðurinn dregur eins mikið úr hraða þotunnar og kostur er, án þess að missa hæð- ina. Skipshöfnin á „Marie Sören- sen“ bíður í ofvæni eftir því að sjá bögglinum varpað út úr þot- unni. Allir halda niðri í sér and- anum. Skyndilega sjá sjómennirnir lít inn, dökkan hnoðra falla aftur úr þotunni. Fallhlífin þenur sig eins og blóm, í tíeru loftinu. Fallhlífin svífur hægt niður með dýrmæta farminn, strýkst við borðstokkinn og hafnar í sjónum. Sjómennirnir standa sem lamað ir. Enginn þeirra hefur veitt því athygli, að Larsen skipstjóri hef- ur búið sig undir þetta og náð í krókstjakann. Á svipstundu hleypur Larsen að borðstokknum og krækir í fallhlífina með stjak- anum. En hann hefur ekki þolað þessa miklu taugaáreynslu og eftirvænt ingu. Þrek hans virðist vera á þrotum. Hann riðar — og hann hefur nær misst tökin á krókstjak anum. Horges, bátsmaðurinn, stendur við hlið skipstjórans. - Rólegur, skipstjóri. Láttu mig um þetta. Eftir örskamma stund liggur gljáandi málmhylkið á þilfari „Marie Sörensen“. — Þeim er borgið! — Berið sjúklingana til klefa míns, einn og einn í einu!' skipar Larsen skipstjóri. Hann hefur nú jafnað sig og hefur áður undirbú- Þotan flaug lágt yfir Marie Sörensen. Lalande skjögrar eins og svefn drukkinn maður inn í hálfrokkið húsið. Hann hlær hljóðlega. — Herra! Eruð þér vissir um að þér þarfnizt mín ekki? hrópar Etienne áhyggjufullur. — Alls ekki. Hypjaðu þig nú af stað .... til Zobra! Flýttu þér! Etienne er hamingjusamur. — Hann ræsir hreyfilinn og ekur jeppabílnum á fullri ferð niður að ójöfnum skógarveginum — og brosir út undir eyru.... kl. 9,00 mlðevrópnfciml - í kalserslautern Charles Bellamy, orrustuflug- maður í bandaríska flughernum, smeygir sér úr flugmannsbúningn um og kastar honum á stól. Hann á að mæta hjá „þeim gamla“, Ransome, yfirforingja sínum. — Fimm mínútum eftir að hann lendir. Þannig hljóðaði skipunin. Hann lenti fyrir þremur mín- útum. Hann er þungbúinn, með sam- anherptar varir. Hann gengur eft ir langa ganginum, að skrifstofu Nú veit hann, að hún er af holdi og blóði, að þau eru ástfang in, hamingjusöm. Skyndilega áttar hann sig og lítur á úrið. '— Sex mínútur fram yfir tím- ann. Nú fæ ég að kenna á því hjá „þeim gamla. . . .“ Margai'et hristir höfuðið bros- andi. — Hann er ekki nærri því eins illur viðureignar, ef maður kem- ur aftan að honum — f jölskyldu- megin, ástin! kl. 9>37 alðevvópntími - ú norónr-lanaflnu - oa borð i togbátnu* “itarle aörensc.n" — Þax-na kemur hún! hrópar skipsdrengurinn Edmund æstur. Edmund hefur fyrstur heyrt til þotunnar. Hann liggur á þilíar- inu, umvafinn ullarteppum, en sólin baðar andlit hans. Eftir and artak kemur ein af orrífstuþot- um norska flughersins þjótandi — og steypir sér niður yfir togbát- inn. Larsen skipstjóri hefur gefið skipun um að breiða fána íkips- ið allt, soðið sprautuna og sótt- hreinsað. Sá fyrsti, sem þeir bei'a til hans, er Olaf, sonur hans. — Olaf hefði getað beðið, segir Larsen hásum rómi. Hvarmar hans eru votir. Síðan er einn af Öðrum spraut- aður með serum. Fyrst þeir sjúku, síðan þeir, sem sýkin hefur enn ekki komið á kné. Enginn hefur gefið þotunni frekari gaum. Hún er horfin fyr- ir löngu. Flugmaðurinn hefur fylgzt áhyggjufullur með eldsneyt ismælinum. Ilann hefur talið væn- legast að halda til Reykjavíkur tíl þess að fá eldsneyti til heim- ferðarinnar. Hann vill ©kki tefla á tvísýnu. — Það er bezt að reyna að koma vélinni í gang, segir Lar- sen. Einn hásetanna færir honum brennandi heitt kakó í bolla. Eng inn minnist nú á matsveininn. Nú vex-ða þeir að komast af án hans. Þegar líður á daginn berst loft- skeyti þess efnis, að orrustuþotan hafi komizt heilu og höldnu til flugstöðvarinnar. Flugmaðuxúnn sendir sjómönnunum pei'sónulega kveðju. Orðsendingunni er tekið með mikilli gleði á litla togbátnum. kl. li.,00 miíe-wóputlraí. » í pestear-stofnunlnnX í parfö — Afsakið, læknir...... Dr. Guy Mercier stendur í ganginum fyrir framan vinnuher- bergi sitt. Hann er í þungum þönkum. — Já, hvað var það, Bi'ioche? segir hann utan við sig. Birgða- gæzlumaður Pasteui'-stofnunar- innar hefur gengið undir þessu gælunafni, „brioche“ — vínar- brauðið, síðan Maxcier kynntist honum — og enginn veit hvers vegna. Ef til vill er það, hugsar Mercier, vegna þess að hann virð- ist deigur og rakur. — Það er vandamál viðvíkj- andi framkvæmdareglunum, dr. Mercier. Þér hafið sent allmörg serumhylki frá stofnuninni í nótt. Hver á að borga þau? Mei'eier starir, furðulostinn, á stutta, digra manninn, sem stend ur þarna og hallar undir flatt —■ og staiir á hann vatnsbláum aug- um. Mercier rekur upp skellihlátur. — Það hef ég ekki hugmynd um, Brioche. Látið draga það fi-á laununum mínum, ef það er svo mikilvægt. — Kæi'ar þakkir, læknir. Mercier heldur áfram inn í her- bergi sitt, hann hlær enn. Hann opnar útvarpið. Fréttatíminn er kominn. Ef til vill missir hann af honum. Eftir andartak hljómar rödd þulsins í hátalaranum: — Larsen skipstjóri á togbátn- um „Mai'ie Sörensen", sem verið hefur í nauðum staddur og hlotið björgun vegna sameiginlegs átaks márgra manna í ýmsum löndum, hefur farið þess á leit, að eftirfarandi orðsending frá hon- um og hinni hólpnu skipshöfn hans verði lesin upp í öllum út- varpsstöðvum Evrópu: — „Við sendum hinum ötulu bjargvættum okkar í Afríku, á Italíu, í Frakk- jandi og Þýzkalandi, innilegustu kveðjur okkar og þakkir fyrir drýgðar dáðir jafnframt sem við óskum þess að óeigingirni þeirra og hjálpfýsi verði einstaklingum sem þjóðum tákn velvilja og fórn- fýsi....“ Dr. Mercier brosir og yppir öxlum. Þetta var í rauninni óveru legt, hugsar hann. Mannleg við- brögð. Hann slekkur á útvarpinu með þakklátum huga. Framundan er vinnudagur — í þjónustu mann kærleikans. Vissa, sem yljar um hjartaræturnar og endurnýjar starfsþrekið — jafnvel eftir óvænta næturvöku. SÖGULOK. SPlltvarpiö Miðvikudagur 23. apríl. Fastir liðir eins og venjulega. 12,50—14,00 „Við vinnuna“: Tón- leikar af plötum. 18,30 Tal og tón ar: Þáttur fyi'ir unga hlustendur (Ingólfur Guðbrandsson náms- stjóri). 18,55 Framburðarkennsla í ensku. 19,10 Þingfréttir. 19,30 Tónleikar: Óperulög (plötur). — 20,20 Lestur foimrita: Harðar s ,ga og Hólmverja; IV. (Guðni Jonsson prófessor). 20,45 Úr stúd entalífinu; samfelld dagskrá há- skólasfcúdenta. 22,10 „Víxlar með afföllum“, framhaldsleikrit Agn- ars Þórðarsonar; 7. þáttur endur tekinn. — Leikstjól'i: Benedikt Árnason. 22,50 Dans- og dægurlög (plötur). 23,45 Dagskrárlok. t jölritarar og efni til xjölritunar. Einkaumboð Finnbogi Kjnrlans.son Austurstrteu 12. — Sími 15544.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.