Morgunblaðið - 23.04.1958, Page 18

Morgunblaðið - 23.04.1958, Page 18
18 MORCVlVTtLAÐ 1Ð wmm Miðvikudagur 23. apríl 1958 íslendingur þjálfar Sportsklubb* >6 ÖHÆTT er að teija það til tíð-|nám og stundar jafnframt inda, að íslenzkur knattspyrnu- þjálfun knattspyrnumanna. — maður dvelst nú erlendis við I Þetta er Karl Guðmunds- Happdrættisskuldabréf Flug- iélagsins til fermingargjafa og annarra tækifærisgjafa. Þau kosta aðeins 100 krónur og endurgreiðast 30. des. 1363 með 5% vóxtum og vaxta- vóxtum. Auk þess hefur eigandi happ- drættisskuldabréfsins vinnings- von næstu sex ár. A/a/if/s Lilleström son, landskunnur knattspyrnu- maður og fyrrum landsliðsþjálf- ari. Skömmu eflir áramót hélt Karl til Noregs ásamt fjölskyldu sinni til þess að leggja stund á nám við „Statens Gymnastikk- skole“ í Osló. Jafnframt mun Karl annast þjálfun „Lilleström Sportsklubb", sem er með fremstu knattspyrnufélögum Noregs. Þetta er ekki í fyrsta skipti, sem Karl Guðmundsson leggur land undir fót til þess að kynn- ast knattspyrnu og íþróttalífi a meginlandinu. Aður hefur hann notið kennslu enskra þjálfara og verið um hríð með Arsenal og Chelsea — og stundað nám í íþróttaháskólanum í Köln þar sem hann naut tilsagnar Her- berger, þjálfara þýzka landsliðs- ins. Karl hefur leikið knattspyrnu frá 9 ára aldri, leikið fjölda landsleika og um margra ára skeið annazt þjálfun hjá ýmsum félögum — og verið landsþjálfari þrjú ár. Hann er mikill áhuga- maður um íþróttir og að aðal- atvinnu hefur hann haft íþróttakennslu við Gagnfræða- skóla Austurbæjar. „Statens Gymnastikkskole ‘ í Osló er tveggja vetra skóli og starfar að nokkru leyti í sam- bandi við Oslóarháskóla. Nemur Karl seinni hluta námsefnisins, sem að mestu fjallar um þjálfun og lífeðlisfræði. Karl er búsettur í Lilleström, skammt frá Osló, og annast þar þjálfun „Lilleström Sportsklubb“ þetta keppmsnmabil, sem fyrr segir. Hófust æfingar um miðjan janúarmánuð, fyrst inni, en ný- lega eru útiæfingar hafnar. Mörg Oslóarbiaðanna hafa get- ið „íslenzka þjálfarans“ og birt viðtöl við forystumenn „Lille- Karl Guðmundsson með norskum knattspyrnumönnum. Frá vinstri: Svein Bergersen v. frv., Karl, Ivar Christiansen m. frv., Rolf Wahi h. frv. Allir eru Norðmennirnir í „Lilleström Sportsklubb“, hafa leikið i A og B landsliðum Noregs /C£/A A/OA //? ström Sportsklubb", sem segjast^ mjög ánægðir með að hafa feng- ið Karl til þess að þjálfa. í viðtali við „Arbeiderbladet“ segir Knut Brynn, formaður úr- tökunefndar knattspyrnufélags- ins, m. a. að Karl Guðmundsson hafi ekki valdið vonbrigðum. — Æfingar hans væru erfiðar og hann legði mikla vinnu í þjálf- unina — og „strákarnir" kynnu vel að meta það. Samvinnuand- inn væri til fyrirmyndar og allt gengi að óskum. Sagði Brynn, að Karl hefði komið þeim Norð- mönnunpm mjög á óvart við komuna, þegar það kom í ljós, að hann talaði ágæta norsku — Tltó Framh. af bls. 1. Hann gagnrýndi Vesturveldin fyr ir að misskilja viðleitni Rússa á þann veg að hún bæri merki um veika aðstöðu innan frá. Kvað Tító NATO sífellt berjast fyrir heimsyfirráðum — og áróður Vesturveldanna miða að því að brjóta undir sig kommúnista- ríkin. NATO var í upphafi stofn- að vegna „ósveigjanleika og ó- þarflega ógnandi utanríkisstefnu Stalíns“, sagði hann — „en þessi rök eru ekki lengur í gildi“. Eina og þekkti alla leikmennina með 1 úrræðið til þess að draga úr við- nafni, enda þótt hann hefði aldrei séð þá með eigin augum áður. Hefði Karl búið sig einstaklega vel undir starfið og stundaði það af alúð. Qddvar Dahle, formaður „Lille ström Sportsklubb" segir m. a. í viðtali við „Sportsmanden", að sem kunnugt væri hefðu þeir ráðið íslenzkan þjálfara. Hér væri um tilraun að ræða, sem bundnar væru miklar vonir við. Hingað til höfum gert okkur góð- ar vonir, við erum ánægðir með Karl, segir Dahle, en árangurinn verður hins vegar ekki Ijós fyrr en kemur fram á sumarið og aðalkappleikirnir hefjast. islandsmeistarar Armanns i meistaraflokki kvenna, f'-'-manni HSÍ og form. HKRR íslandsmeistarar KR í meistaraflokki karla, ásamt Árna Árna- syni form. HSÍ lengst til vinstri og Óskari Einarssyni form. HKRR lengst til hægri. í fremri röð eru Heinz Steinmann, Reynir Ólafsson, Gísli Þorkelsson, Guðjón Ólafsson, Þórir Þorsteinsson. — Standandi eru t. v. Bergur Adoiphsson, Karl Jóhannsson. Stefán Stephensen, Þorbjörn Friðriksson, Pétur Stefánsson og Sig. Óskarsson. — A myndina vantar Hörð Felixson, fyrirliða, sem var vcikur er úrslitaleikurinn fór fram og mynd þessi var tekin. Þjálfari KR-inga er Frímann Gunnlaugsson. sjánum væn það, að stórveldin vörpuðu gömlum skoðunum á al- þjóðlegum samskiptum fyrir borð. Ekki kvaðst Tító bjartsýnn á að fundur ríkisleiðtoga mundi leysa mörg stórmál, en ef sam- komulag næðist, þó ekki væri nema um eitt atriði, afvopnun, þá væri merkum áfanga náð. Þá varði Tító af einbeitni sam- komulag Júgóslava við Banda- ríkjamenn um hernaðar- og efna- hagsaðstoð. Kvað hann ýmsa menn í A-Evrópu halda þv| á loft að slíkt væri vítavert — í kommúnistaríkjum væri því og haldið fram að Júgóslavar hefðu horfið af braut sosíalismans. Þetta væri alrangt. Sagði hann að það væri óskynsamlegt og óeðlilegt af Júgóslövum að hafna hinni hagkvæmu aðstoð Bandaríkjamanna. Júgóslavía vildi halda góðu sambandi við öll ríki. ------★------ Tító var mjög vel fagnað, þeg- ar hann steig í ræðustólinn — og oft varð hann að gera hlé á máli sínu vegna fagnaðarlátanna. Þegar hann gekk í salinn söng þingheimur „Internationale" — og á eftir var hrópað „Tító er okkar". Sendiherrar allmargra kommúnistaríkja voru viðstaddir meðal áhorfenda — og fremstur í flokki var Zamchevsky, rúss- neski sendiherrann. Með honum voru og erlendir sendimenn Pól- lands, N-Vietnam, Ungverja- lands, Ytri-Mongoliu, Bulgariu, Rúmeniu og A-Þýzkalands — en fulltrúar indonesiska kommún- istaflokksins, sem komu til Júgó- slavíu sem „vináttu-sendinefnd“ til þess að sitja þingið samkvæmt boði, er öllum kommúnistaflokk- um barst, breyttu nafni sendinefndarinnar í „áheyrend- ur“, þegar þeir heyrðu, að rúss- neskir kommúnistar og einnig leppríkjamenn ætluðu ekki að senda „vináttusendinefndir". Þegar Tító ræddi um alheims- kommúnismann og þann misskiln ing „sumra", að engir gætu til- einkað sér þá stefnu aðrir en þeir, sem seldu sig undir vald „herbúðanna" kváðu geysimikil fagnaðarlæti við í þingsalnum — og þingmenn hrópuðu í einum kór „Tító — hetja“. Lófatakið dundi lengi----og til þess að sitja ekki auðum höndum hjá fagnandi þingheimi hreyfði rúss- neski sendiherrann hendurnar við og við eins og hann væri einnig að klappa — en lófar hans snert- ust aldrei, segir að lokum í fréttaskeyti Reuters.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.