Morgunblaðið - 23.04.1958, Side 20
V EÐRIÐ
SV-átt með allhvössum snjó-
og hagléljum.
Leikmaður
og prófessor. — Sjá bls. 11.
Kartöflaskortur gerir
nú vart við sig hér
Keyptar verða pólskar kartöflur
Róðri er lokið. Löndun stendur sem hæst og hraustir skipverjar á mb. ísiendingi, héðan úr
Reykjavík, kasta stórþorski á bílinn. Skipstjóri og eigandi þessa báts er Jóhannes Guðjónsson.
Veírarvertíð hefur gengið vel hér í Reykjavík, svo sem kunnugt er. Myndin var tekin í fyrradag.
Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
lírið fannsf er netin voru
dregin eftir 2 sólarhringa
ÁSTANDIÐ í „kartöflumálum“
höfuðstaðarins og víðar í bæj-
um er alvarlegt þessa dagana.
Enn sem komið er hefur Græn-
metisverzlun landbúnaðarins þó
tekizt að bægja frá algjörum
skorti á þessari helztu neyzlu-
vöru almennings. Undanfarnar
tvær vikur hefur á vantað 100—
200 poka til að fullnægt yrði
markaðsþörfinni. Nú mun bilið
enn hafa breikkað og kartöflur
næsta torfengin vara þessa daga.
Slíkt ástand sem þetta er ekki
algjörlega ný bóla þegar kemur
fram undir vor. Um þetta leyti
árs hafa oft komið á markaðinn
annaðhvort hollenzkar eða
danskar kartöflur. í vor verða
ekki keyptar neinar kartöflur frá
Danmörku og aðeins sáralítið
magn frá Hollandi. Veldur því
hinn mikli gjaldeyrisskortur. Um
næstu helgi er væntanlegt lítils
háttar magn af kartöflum með
skipi frá HoJiandi og þar með
er kartöfluviðskiptunum þar lok-
ið.
Jón á Einarsstöð-
um látinn
HÚSAVÍK, 20. apríl. — Jón Har-
aldsson, Einarsstöðum, varð bráð
kvaddur í gær, er hann var að
halda ræðu í Einarsstaðakirkju
við útför Lilju Jónsdóttur frá
Glaumbæ. Jón á Einarsstöðum
var búfræðingur frá Hólum og
kunnur merkisbóndi. Hann hefir
búið miklu rausnárbúi á Einars-
stöðum um 50 ár. Jón var tæp-
lega sjötugur, er hann lézt. Með
Jóni á Einarstöðum er hniginn
í valinn einn mikilhæfasti bóntíi
í Suður-Þingeyjarsýslu.
—Fréttaritari.
A FUNDI neðri deildar Alþingis
í gær urðu allmiklar umræður
um frumv. um útflutning hrossa.
Ásgeir Bjarnason skýrði 3 nýjar
breytingatillögur frá landbúnað-
arnefnd deildarinnar. Lagði hún
tu, að ekki skyldi heimilt að
flytja út hross, sem eldri eru en
10 vetra, — og að útflutningur á
fyrstu verðlauna kynbótahross-
um sé óheimill nema með sér-
stöku leyfi — og að veita megi
leyfi til útflutnings eldishrossa
utan hins tilgreinda útflutnings-
tímabils, þótt þau séu ekki tam-
in. —
Bjami Benediktsson kvaddi sér
hljóðs og las bréf, sem Dýra-
verndunarfélagið hafði ritað
landbúnaðarnefnd. Þar er mót-
mælt fyrirhugaðri lengingu út-
flutningstímabilsins, þar sem út-
flutningur á haustin geti valdið
því að skepnurnar kveljist og
jafnvel drepist í flutningunum.
Einnig er mótmælt því ákvæði
hins upphaflega frumvarps, að
leyft verði að selja úr landi
hross, sem eru allt að 13 vetra.
Eins og fyrr segir, hafði nefnd-
in lagt til, að þessu atriði yrði
breytt.
Þá kom fram í bréfi Dýraverni
unarfélagsins, að í vetur hefðu
hross verið send þrívegis til
Þýzkalands, eftir að útflutnings-
tímabilið var liðið. Telur félagið
þetta hafa verið ólöglegt. Einmg
bendir það á, að hross hafi drep-
izt í flutningunum og að aldrei
Stjórnarvöldin lögðu fyrir
Grænmetisverzlunina að kaupa
nú allar neyzlukartöflur sínar
austur í Póllandi, samkv, vöru-
skiptasamningi. Hér á landi mun
lítil vitneskja vera um gæði
kartöfluframleiðslunnar þar
eystra. Afbrigði það sem keypt
verður er þýzkt og eru kartöflurn
ar taldar sæmilega góðar. Alls
verða keypt 1000 tonn af pólsk-
um kartöflum í ár. Mun það geta
nægt maímánuð allan og mestan
hluta júní, ef hinar pólsku kar-
töflur reynast þá vel.
Pólverjar áttu að vera búnir
að afhenda fyrsta farminn í Kaup
mannahöfn 20. þ.m. En einhverra
orsaka vegna hefur það dregizt
hjá þeim. Er ekki vitað nú með
vissu hvenær von er á þessum
fyrsta farmi að austan.
Sem fyrr segir er von á ýítils
háttar magni af hollenzkum
kartöflum í lok þessarar viku, en
einnig þá er von á slatta af ís-
lenzkum karftöflum. Munu það
trúlega verða seinustu íslenzku
kartöflurnar sem Grænmetis-
verzlunin fær á þessum vetri. Er
hér um að ræða kartöflur norð-
an af Svalbarðsströnd, sem ekki
hefur verið hægt að senda á
markaðinn fyrr en nú vegna
ófærðar.
Þegar þessar kartöflur hafa
verið sendar á markaðinn ásamt
þeim hollenzku, en þær munu
hverfa eins og dögg fyrir sól, fer
verulega að kreppa að með út-
vegun á kartöflum. Getur þá trú-
lega liðið vikutími sem allt að
því algjör kartöfluskortur verð-
ur, eða þar til hinar pólsku koma
til landsins.
Það er vissulega ástæða til
þess fyrir húsmæðurnar að spara
kartöflurnar, þegar vitað er að
ástandið er jafnalvarlegt og hér
hefur.verið gerð grein fyrir.
hafi verið lögð fram vottorð frá
dýralæknum í Hamborg um
skepnurnar, þótt það hafi verið
áskilið í stjórnarráðsleyfinu og
því heitið af útflytjendum.
Bjarni kvaðst vilja spyrja,
hvort rétt væri, að veitt hefðu
verið leyfi til hrossaútflutnings
þvert ofan í gildandi lagabókstaf.
Hvaða heimild var til að veita
leyfin, ef hana er ekki að finna í
lögunum? spurði ræðumaður, og
hví var ekki aflað lagaheimild-
ar? Hann kvaðst ekki á þessu
stigi taka afstöðu til, hvort út-
flutningurinn hefði verið nauð-
synlegur, en óska eftir skýring-
um frá landbúnaðarráðherra eða
nefnd.
Ásgeir Bjarnason kvað land-
búnaðarnefnd ekki hafa viljað
fallast á tilmæli Dýraverndunar-
félagsins um útflutningstímabilið,
þar sem hæst verð fengist fyrir
hross á erlendum markaði fram-
an af vetri og aftur snemma
vors. Þá kvað hann útbúnað í
skipunum nú betri en áður og
Dýraverndunarfélagið fá aðstöðu
til að koma sjónarmiðum sínum
að við samningu reglugerðar um
málið. — Loks sagði Ásgeir, að
landbúnaðarnefnd hefði ekki
kynnt sér sérstaklega hrossaút-
flutninginn í vetur.
Að ósk Bjarna Benediktsson-
ar var málinu frestað. Kvaðst
hann óska þess, að landbúnaðar-
ráðherra kæmi á fund í deildinni
og svaraði fyrirspurnum sínum.
ÞAÐ getur margt skrítið skeð á
sjó. Frásögn sú sem hér fer á eft-
ir, er um það að sjómaður einn
sem týnt hafði úri sínu í róðri,
fékk það aftur er netin voru dreg
in.
Maður sá sem hér um ræðir
heitir Jóhannes Ögmundsson
stýrimaður á vélbátnum Vögg
frá Njarðvíkum. Fyrir nokkrum
dögum var báturinn í róðri og
skipverjar höfðu lagt netin 25
mílur út af Skaga á 120 faðma
dýpi. Er skipsmenn fengu sér
morgunsopann um kl. 10 að lok-
inni lögninni saknaði Jóhannes
armbandsúrs sins, 1000 kr. úrs,
sem hann hafði keypt norður á
Siglufirði. Úrsins var leitað en
fannst ekki.
Ný umferðarlög
FRUMVARPIÐ til umferðarlaga
var samþykkt sem lög frá Al-
þingi á fundi neðri deildar í gær.
Var frumv. afgreitt eins og efri
dclld hafði gengið frá þvi á
fimmtudaginn. Hin nýju lög taka
gildi 1. júlí n.k., en ákvæðin um
skyldutryggingu bifreiða eiga þó
að taka gildi 1. maí. Lögin koma
i stað núgildandi umferðar og
bifreiðalaga, en báðir þeir laga-
bálkar eru frá árinu 1941.
Fyrslu logararnir
koma a! Jónsmiðum
í GÆRKVÖLDI komu hingað til
Reykjavíkur togararnir Egill
Skallagrírnsson . og Hallveig
Fróðadóttir. Voru þetta fyrstu
togararnir ásamt Gylfa frá Pat-
reksfirði, sem sóttu vestur á
Jónsmið við Grænland. Voru
Egill og Hallveig með því sem
næst fullfermi eftir skamma úti-
vist. Var aflinn aðallega stór-
þorskur. Fleiri íslenzkir togarar
munu vera komnir á Jónsmið. —
Um það bil tveim sólarhring-
um síðar dró báturinn síðustu
netatrossuna sem lögð hafði ver-
ið þá um morguninn. Jóhannes
stýrimaður var við rúlluna og
var drætti nær lokið er úrið valt
úr netinu!
Jóhannes greip úrið, leðurólin
var slitin. Hann dró úrið upp,
og það hefur gengið síðan alveg
rétt. Úrsmiður hér í Reykjavík,
sem leit á það, sagði að
ekki hefði deigur dropi komizt í
það. Það væri jafngott og áður.
Þar með keypti Jóhannes, sem
hélt að úrið myndi ekki hafa þol
að að liggja svo lengi í sjónum,
á það nýja ól.
HAFNARFIRÐI — A bæjar-
stjórnarfundi, sem haldinn var í
gær, gerðust þau tíðindi, að Ai-
þýðuflokksmenn og kommúnist-
ar beittu meirihlutaaðstöðu sinni
til þess að hindra að málefni
Bæjarútgerðarinnar væri tekið á
dagskrá, en fyrir nokkru hafði
bæjarráð, samkvæmt ósk Páls
V. Daníelssonar (Sjálfstæðism.),
samþykkt að svo skyldi
verða. Var það kommúnistinn
Geir Gunnarsson, sem nú gegnir
störfum bæjarstjóra, sem bar
fram dagskrártillögu þess efnis,
að málið yrði tekið út af dagskrá.
Og það, sem mikla athygli vakti,
var, að hann fékk bæjarfulltrúa
Alþýðuflokksins í lið með sér,
þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar
þeirra í bæjarráði um að ræða
það í gær. Og þar með var Páli
V. Daníelssyni, sem átti að hafa
framsögu fyrir minnihlutanum,
meinað að flytja mál hans varð-
andi málefni Bæjarútgerðarinn-
ar. —
Það er kunnara en frá þurfi
að segja, að rekstur og afkoma
Nániskeið um at-
vinnu- og verka-
lýðsmái
NÆSTI fundur á námskeiðinm um
atvinnu- og verkaiýðsmál verður
haldinn i Valhöll n.k. föstudag
kl. 8,30. Sigurbjörn Þorbjörnsson,
skrifstofustjóri flytur fyrirlestur
um skattamál. Nauðsynlegt er að
þátttakendur mæti stundvíslega.
útgerðarinnar hefir verið í hinu
mesta óléstri, sem marka má til
dæmis af því, að ekki hefir verið
haldinn fundur í útgerðarráði
síðan fyrir bæjarstjórnarkosning-
ar — og ekki hafa reikningar
enn verið lagðir fram fyrir árin
1956 og 1957. Það mátti því ætla
að tími væri til kominn að ræða
málefni Bæjarútgerðarinnar í
bæjarstjórn. En það mátti ekki.
Hins vegar upplýsti Geir Gunn-
arsson að fundur yrði haldinn
í útgerðarráði n. k. föstudag. —
Betra seint en aldrei. — En það
er þó ekki alveg víst að af þess-
um fundi verði, því að oft áður
hafa verið boðaðir þar fundir, en
slík loforð ævinlega svikin.
Um ástæðuna fyrir því að bæj-
arfulltrúar Alþýðuflokksins og
kommúnista vilja ekki ræða mál-
efni Bæjarútgerðarinnar á bæj-
arstjórnarfundi, er ekki kunnugt,
en aftur á móti verður að ætla,
að þar sé rétti staðurinn til að
ræða þau mál, a. m. k. þegar
málum útgerðarinnar er komið
eins og fyrr hefir verið greint
frá. — G. E.
Var hrossaúfiilulnsng-
nrinn í vefiur ólöglegur?
Neita oð iæða móleini Bæjarót-
geiðar Haínarfj. ó bæjarstjinndi