Morgunblaðið - 27.04.1958, Page 22

Morgunblaðið - 27.04.1958, Page 22
22 MORCVISBLAÐIÐ Sunnudagur 27. apríl 1958 Bœndurnir, útvarpið og veðurfregnirnar MARGT af því sem út er varpað á vegum Ríkisútvarpsins er vel þegið af mörgum, en ekkert er eins vel og jafnvel þegið af mörg- um eins og veðurfregnir og veð- urspár, þær vilja allir heyra, á landi og sjó. Hins vegar má það vera öllum ljóst er það vilja athuga, að val þeirra staða (veð- urathuganastöðva) sem daglega eru nefndir þegar veðri er lýst, er fyrst og fremst miðað við nauðsyn sjómanna og þarfir, það er bæði fiskimanna og farmanna. Happdrættisskuldabréf Flug- íélagsins til fermingargjafa og annarra tækifærisgjafa. Þau kosta aðeins 100 krónur 1 • og endurgreiðast 30. des. 1963 • með 5% vöxtum og vaxta- % • vóxtum. • Auk þess hefur eigandi happ- drættisskuldabréfsins vinnings* Er það maklegt, og skal eigi last- að þótt svo hafi verið til þessa. En er ekki kominn tími til að breyta þessu, — breyta því án þess að neitt sé frá þeim tekið er sjóinn sigla? Er ekki líka mak- legt að bændur og raunar allur landslýður njóti veðurlýsing- anna jafnar og betur en nú er og verið hefur til þessa? Þegar skýrt er frá veðri á hin- um ýmsu stöðum, eru nokkrir staðir á ströndinni, flestir á andnesjum, eða annars staðar við opið haf, örfáir við fjarðarbotna (svo sem Sauðárkrókur og Akur- eyri). Frávik frá þessu eru að- eins tveir staðir inn til lands, Grímsstaðir og Þingvellir. Hvor- ugur þessara staða er í fjöl- byggðri sveit, til þess liggja aðr- ar ástæður að veðurfregnir frá þeim eru lesnar í útvarpi. Til Þingvalla eiga margir leið að sumrinu, og Grímsstaðir eru á fjölfarinni erfiðri leið landshluta á milli. Hér vantar mikið á að vel sé, hlutur bændanna er enginn í lestri veðurfregna. En það er ekki nóg að svo sé. Nú er svo komið að hlutur ferðamanna og borgarbúa fellur alveg í kerfi með hlut bændanna. Ef vel væri ætti að bæta við lestri veður- fregna frá þessum stöðum: 1. Einum stað í uppsveitum Borgarfjarðar. 2. Einum stað í Dalasýslu, t. d. Ásgarði eða einhverjum stað þar í nánd (Búðardal, Hvammi?). 3. Einum stað við ísafjarðar- djúp innanvert. 4. Einum stað til sveita í Húna- þingi. 5. Einum stað í Skagafirði, framan til. 6. Einum stað í S-Þingeyjar- sýslu, t. d. Breiðamýri eða Foss- hóli. (Reykjahlíð kemur einnig mjög til greina og jafnvel þarf- ara að fá upplýsingar um veður þar heldur en á Grímsstöðum). 7. Frá Egilsstöðum á Völlum. 8. Frá einum stað á Suðurlands- undirlendinu og hentaði bezt að það væri frá Þjórsártúni — á sýslumörkum (eða Hellu). Ekki er nú til lítils mælzt, munu einhverjir segja. — Já, fyrr væri bót, það skal játað, og í bili vil ég ekki stinga upp á að bæta við nema tveimur af þessum nefndu stöðum, en uppá- stungu, sem kalla mætti kröfw, um að farið sé að lesa veður- fregnir frá þeim tveimur stöðum, til viðbótar því sem nú er, skal ég nú rökstyðja. Staðirnir eru auðvitað Egilsstaðir á Völlum og staðar á miðbiki Suðurlandsund- irlendisins. Nú eru lesnar veðurfregnir frá Fagradal í Vopnafirði, Dalatanga og Djúpavogi. Allir eru þessir staðir svo úti við haf og fjarri meginsveitum, að fregnir þaðan tjá engum neitt um veður í sveit- unum í efra, það er á Fljóts- dalshéraði. Nú eru Egilsstaðir orðin óumdeilanlega samgöngu- miðstöð austanlands, um flug- völlinn þar liggja allar leiðir. Þegar þess er gætt og hvílíkt hérað hér er um að ræða, er augljóst að það er alveg ótrúlegt sinnuleysi og vanræksla að eigi skuli i veðurfregnum heyrast orð um veður á Héraði. Úr þessu verður að bæta. Egilsstaðir eru hinn sjálfsagði staður. Ef ekki eru veðurathuganir þar á vegum Veðurstofunnar, er sjálfsagður hlutur að efna þar til veður- athugana. Þá er það Suðurlandsundir- lendið. Þar á í hlut „stærsti sól- skinsbletturina á íslandi" — eins og Guðm. heitinn Björnsson orð- aði það. Aldrei heyrist í veð&r- fregnum orð um veðrið á þessum slóðum. Veðurfregnir eru lesnar frá Loftsölum í Mýrdal, frá Stór- höfða í Vestmannaeyjum, Reykja nesvita og Þingvöllum. Þó að fregnir um veður á Þingvöllum séu á sumum tímum árs góðra gjalda verðar, segja þær harla lítið um veðrið á Suðurlands- undirlendinu. Hér þarf um að bæta, velja veðurhentugan stað á undirlendinu og lesa fregnir það- an. Bezt tel ég henta að fá veð- urfregnir frá Þjörsártúni, það er á mörkum sýslnanna Árnessýslu og Rangárvallasýslu. Fregnir frá Hellp geta gert svipað gagn ef það hentaði betur. Fregnir frá Hæli í Hreppum væru ekki eins jafngiidar, en því nefni ég það, að þar er veðurathuganastöð. Þótt koma þyrfti upp nýrri at- hugunarstöð í Þjórsártúni er það smáatriði miðað við til hvers er að vinna og hverja skyldu hér [DAGSBRl/NI Verkamannafélagið Dagsbrún: Félagsíundur verður í Iðnó mánud. 28. þ.m. kl. 8.30 síðdegis. Dagskrá: 1. Félagsmál. 2. Tekin ákvörðun um uppsögn samninga. Félagsmenn, fjölmennið og sýnið skírteini við við innganginn. STJÓRNIN. tcn næstu sex ár. eínir 'ul sanmomii í Sjálxstæðishúsinu fimmtudag- inn 1. maí kl. 8,30 íyrir féiagsmenn og gesti þeirra. Sýnd verður revían: „Timglið, tunglið, taktu mig“. Aðgóngumiðar verða seidir i skrifstofu Sjálfstæðis- flokksins á mánudag og þriðjudag írá ki. 8—10 s.d. baða dagana. Neindin. Tignir gestir ÝMSA kynlega kvisti er oft að finna í þeim farþegahópum Loft- leiða, er eiga viðdvöl hér í Reykjavík á leiðinni austur eða vestur yfir Atlantshafið. Sl. fimmtudag komu t.d. hingað belgisk mæðgin, en þau eru af komendur fursta nokkurs, sem réði fyrir litlu ríki í Mið-Evrópu í byrjun 19. aldar, en þess vegna eiga þau enn tignar nafnbætur og eru tengd belgísku konungs- ættinni og fjölskyldu stórhertoga ynjunnar í Luxemborg. Evrard d* Arenberg prinsessa er hjúkrunar kona að menntun, en sonur henn ar, Stefán d’ Arenberg prins hef- ir verið starfandi læknir í Kongo og unnið m.a. í sjúkrahúsi Al- berts Schweitzers í Lambarene. Meðan þau mæðginin dvöldust hér í Reykjavík fóru þau í öku- ferð um bæinn en héldu svo för sinni áfram til Bandaríkjanna, en þaðan fara þau til Mið-Ameríku er að rækja við fjölbyggðasta búnaðarhérað landsins. Eitt sinn hreyfði ég þessu máli á fundi á Selfossi, en ekki vannst mönnum þá metnaður til þess að taka undir þetta og fylgja því fram. Vill nú ekki Búnaðarþing taka á þessu máli og fá hlut bænd- anna í sveitunum réttan að því er kemur til veðurfregnanna? Þetta er ekki vansalaust eins og það er, og ég er viss um að í þessu máli fylgir þorri borgar- búa í höfuðstaðnum bændum að máli, fjöldi Reykvíkinga vill fá fregnir um veður á Fljótsdals- héraði, en ekki aðeins af Dala- tanga og um veður á Suðurlands- undirlendinu en ekki aðeins aust- ur í Mýrdal. Vafalaust mun Veðurstofan víkjast vel við þessu máli, ef slíkur aðili sem Búnaðarþing er leitar eftir. Eflaust kostar eitt- hvað að bæta við veðurfregnum þó eigi sé nema frá tveimur stöðum, en varla getur hlutað- eigandi ráðuneyti gert annað en að taka vinsamlega á því máli. Læt ég svo lokið þessum hug- leiðingum, í von um árangur. Á Jaðri 6. marz 1958. Árnl G. Eylands. Fjáraukalög 1955 Á FUNDI sameinaðs Alþingis á miðvikudaginn var ráett um frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 1955. Karl Kristjánsson hafði framsögu fyrir hönd fjár- veitinganefndar, sem lagði til, að frumv. yrði hækkað um tæplega 3,5 millj. kr. Jón Pálmason kvaddi sér hljóðs og kvaðst álíta, að frumv. væri enn of lágt. Vant- aði í það um 10 millj. kr. vegna framkvæmda landssímans þetta ár og um 10 millj., sem væru mis munur á 20. gr. á ríkisreikningi og fjárlögum ársins. Urðu nokk- ur orðaskipti milli þeirra Karls um, hvort rétt væri að taka þessa iiði á fjárlögin. Breytingartillaga fjárv. nefndar var samþykkt og frumv. visað svo breyttu til 3. umr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.