Morgunblaðið - 27.04.1958, Side 24
VEÐRIÐ
Norðan kaldi léttskýjaS
Reykjavíkurbrét
er á bls. 13.
95. tbl. — Sunnudagur 27. apríl 1958
Hinn blandaði kór á æfingu í VR-húsinu á sumardaginn fyrsta.
Fóstbræður holdu sumsöng
Stór blandaður kór flytur
verk 16. og 17. aldar tónskóld
KARLAKÓRINN Fóstbræður
sem elztur er kóranna hér í bæn-
um og á sér merkilega sögu, ætl-
ar nú að efna til samsöngs með
alveg nýju sniði. Á söngskemmt-
un fyrir styrktarfélaga kórsins
dagana 28. og 29. apríl og 2. maí,
flytur kórinn m. a. vérkefni fyrir
blandaðan kór, en um langt skeið
hafa 18 söngkonur æft með kórn-
um undir þennan mikla samsöng.
Að baki samsöngs kórsins nú
liggur mikið starf, margar og
tímafrekar söngæfingar, og hafa
margir kórfélaganna orðið að
mæta á tvöföldum söngæfing-
um. — Söngmenn Fóstbræðra
hafa nú seih fýrr sýnt sínum
gamla kór mikla hollustu og fórn-
að honum miklu af frístundum
sínum. í vetur bættust nýir söng-
kraftar við í kórinn og þar eru
þó nókkrir söngmenn, hverra
feður voru lengur eða skemur i
Fóstbræðrum, sem upphaflega
hét Karlakór KFUM. Geta má
þess hér, að t. d. einn af stofn-
endum kórsins, Hallur Þorleifs-
son, syngur þar enn og með hon-
um tveir synir hans: Kristinn
óperusöngvari og Asgeir skrif-
stofustjóri.
Fóstbræður hafa á undanförn-
um árum tekið upp nýbreytni í
vali viðfangsefna, svo sem með
flutningi þátta úr óperum og að-
stoðað við flutning Sinfóníu-
hljómsveitarinnar á II Trovatore
undir stjórn hins brezka hljóm-
sveitarstjóra W. Braithwaité.
Á samsöng kórsins nú verður
söngskránni skipt þannig að fyrst
syngja Fóstbræður lög eftir
Schubert og syngur Gunnar
Kristinsson einsöng með kórnum.
Þá syngur blandaði kórinn lög
eftir Donati, Lotti, Lasso og In-
Hamborgar-
svanirnir koma
í dag
í DAG bætist enn við hóp land-
nemanna á Reykjavíkurtjörn, og
nú eru það útlendingar, sem um>
er að ræða. Von er á tveim hnúð-
svönum frá Hamborg. Eru það
svanir þeir, sem sendir eru
Reykjavíkurbæ að gjöf frá Ham-
borg.
Svanirnir koma í tveim köss-
um með einum Faxanna frá Ham
borg kl. 4.30 í dag. Frá flugvell-
mum verður þeim ekið rakleitt
niður að Búnaðarfélagshúsi og
þar verður þeim sleppt út á
Tjörnina.
gegneri o. f 1., og eru þau án und-
irleiks.
Að því loknu flytur karlakór-
inn lög eftir Mendelsohn, Sibelius
o. fl., en að endingu verður flutt
lokaatriði 1. þáttar óperunnar
Aida eftir Verdi, og kemur þar
frayn allur kórinn ásamt einsöngv
urunum Árni Jónssyni og Kristni
Hallssyni. Við hljóðfærið er Karl
Billich.
Er blaðamenn ræddu fyrír
nokkrum dögum við forráðamenn
Fóstbræðra og söngstjórann,
Ragnar Bjömsson, sagði Gunnar
Guðmundsson, formaður Fóst-
bræðra: Við stöndum í mikilli
þakkarskuld við söngkonurnar,
sem með okkur syngja hin vanda-
sömu verk, en hér er um að ræða
18 úrvals söngkonur. Fóstbræður
hafa ánægju af því að glíma við
Verk IViagnúsar
Asgeirssonar
kynnt í dag
KYNNING á verkum Magnúsar
Ásgeirssonar verður haldin í há-
tíðasal Háskólans í dag kl. 4 síð-
degis. Séra Sigurður Einarsson í
Holti flytur erindi um skáldið og
lesið verður úr verkum þess. Eft
irtaldir lesa: Gerður Hjörleifs-
dóttir leikkona, Kristinn Krist-
mundsson stud. mag., Baldvin
Halldórsson leikari og Ævar R.
Kvaran leikarí. Guðmunda Elías
dóttir söngkona syngur nokkur
lög við ljóð og ljóðaþýðingar
Magnúsar.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Yerkfræðinemi prédikar
við guðsþjónusfu í Kap-
ellu Háskólans
í VETUR hefur Félag guðfræði-
nema gengizt fyrir guðsþjónust-
um í kapellu háskólans og má
segja, að þetta sé einn liður í
kennslu guðfræðideildarinnar,
verkleg kennsla.
í dag verður síðastá guðsþjón-
ustan á þessum vetri. Hefst hún
kl. 2 eftir hádegi. Að þessu sinni
þjónar prófessor Magnús Már
Lárusson fyrir altarinu, en Þor-
valdur Búason, verkfræðinemi,
predikar. Hingað til hafa guð-
fræðinemar predikað við þessar
guðsþjónustur og er þttta því í
fyrsta skipti sem leikmaður ann-
ast predikunina.
Öllum er heimill aðgangur að
guðsþjónustunni meðan húsrúm
leyfir
(Myndir: Studio)
sem fjölbreyttust viðfangsefni,
sagði Gunnar. Hann taldi ekki of-
mælt, að söngstjóri kórsins, Ragn
ar Björnsson, hefði hér ráðizt í
merkilegan tónlistarflutning. Ef
vel tekst, getur svo farið að sam-
söngurinn verði endurtekinn á
almennri söngskemmtun. Það er
þó óráðið með öllu, en eitthvað
af miðum mun verða til sölu á
samsönginn 2. maí.
Evrópuráðið
TÍUNDA ÞING Evrópuráðsins
hefst í Strasbourg á morgun. Full
trúar íslands á þinginu verða
þau Jóhann Þ. Jósefsson, Frið-
jón Skarphéðinsson og Rannveig
Þorsteinsdóttir, og eru þau öll
farin utan. — Á morgun verður
forseti þingsins kosinn, en á
þriðjudaginn verða fluttar ýms-
ar skýrslur, og þá hefjast einnig
umræður um sameiginlega mark-
aðinn, fríverzlunarsvæðið og
starfsemi Efnahagssamvinnustofn
unarinnar. Ýmis fleiri mál eru á
dagskrá, m. a. almennar stjórn-
málaumræður, umræður um lönd
sem skammt eru á veg komin í
efnahagsmálur*, og um vísinda-
rannsóknir. Fundum þingsins
Skáfafélögin í Rvík
skipuleggja tvö skátamót
SKÁTARNIR eru farnir að hugsa
til hreyfings. Skátahreyfingin
hér á landi er nú öflugri en hún
nokkru sinni hefur áður verið.
Eftir því sem Reykjavík hefur
stækkað, hefur þörfin fyrir hinn
holla félagsskap orðið æ brýnni,
enda má heita að æska bæjarins
hafi flykkzt í skátafélögin undan-
farin ár.
Þegar hafa verið ákveðin tvö
skátamót, sem búizt er við að
muni verða mjög fjölsótt. Hið
fyrra þeirra, sem nefnist „Fjalla-
rekkamót SFR“, verður haldið í
Hallmundarhrauni við Húsafell í
Borgarfirði 13.—16. júní. Fjalla-
rekkar eru skátar á aldrinum
14—16 ára og er þátttakan í þessu
Góð vertíð í Eyjum
FRETTARITARI Mbl. í Vest-
mannaeyjum, Björn Guðmunds-
son, sagði í símtali við blaðið í
gær, að horfur væru á að vetrar-
vertíð í þessari mestu útgerðar-
stöð landsins myndi verða mjög
sæmileg, ef ekki kemur einhver
óvæntur afturkippur. Undan-
farna daga hefur verið ágætur
afli hjá Vestmannaeyjaflota og
hafa borizt á land 1100—1200 lest
ir á dag.
Mikil vinna hefur verið við hag
nýtingu hins mikla fiskmagns.
Verður sú vinna miklum mun
rheiri þegar þess er gætt, að nokk
uð af vertíðarfólkinu er þegar
farið að halda heim frá Vest-
mannaeyjum.
Keflavíkurkirkja
FERMIN G ARGUÐSÞ J ÓNUSTA
verður í Keflavíkurkirkju kl. 1,30
e. h. í dag. — Nöfn fermingar-
barna eru birt í 3. og 4. tbl.
Faxa.
Merkileg kvikmynd um
fuglalífið hér á landi
Myndin verður sýnd á vegum F.f. á morgun
SÍÐASTLIÐINN föstudag var fréttamönnum boðið að skoða nýja,
íslenzka kvikmynd, s»m Magnús Jóhannsson, útvarpsvirki, hefur
gert og nefnist „Fuglarnir okkar", auk annarrar kvikmyndar er
fjallar um lífið í Reykjavik í dag. Annað kvöld, mánudagskvöld, er
fyrirhugað að sýna þessar myndir á fundi Ferðafélags Islands í
Cjálfstæðishúsinu, en þar verður auk þess til skemmtunar mynda-
getraun að venju og síðan dansað til kl. 1.
Lífið í Reykjavík
Kvikmyndin um Reykjavik er
mjög vel gerð og sýnir í skýrUm
dráttum ýmsar þær miklu fram-
kvæmdir, sem eru á döfinni
í höfuðborg okkar. Texta og efni
hafa ásamt Magnúsi valið þeir
Lárus Sigurbjörnsson og Páll
Líndal. Myndin er gerð fyrir
Reykjavíkurbæ. Sýningin tek-
ur 15 mínútur. Hersteinn Pálsson
flytur texta með myndinni.
Mikið þolinmæðiverk
„Fuglarnir okkar“ er kvik-
mynd, sem tekin hefur verið á
síðastliðnum 5—6 árum og hefur
það verið mjög rnikið þolinmæði-
verk að liggja yfir töku hennar.
Hún gefur glögga hugmynd um
líf ýmissa íuglategunda hér á
landi allt frá því að þeir taka að
byggja sér hreiður og þar til
foreldrarnir halda af stað með
unga sína út í lífið. Af íuglum,
sem koma við sögu, má sérstak-
lega nefna kríuna, æðarfuglinn,
súluna, heiðagæsina, álftina,
þrösturinn o. fl. Sýning tekur 28
mínútur og er Pétur Pétursson
þulur, en Magnús hefur sjálfur
samið textann.
móti miðuð við að þar verði f
tjöldum 60—70 skátar og munu
þeir verða af öllu Suðvesturlandi.
Þá hefur stjórn Skátafélags
Reykjavíkur ákveðið að efna til
félagsmóts í Þjórsárdal og hefst
það í ágústbyrjun. Það mun
standa yfir í vikutíma. Tímmn
verður notaður til gönguferða
um Þjórsárdalinn, en á milli verð
ur farið í leiki með það fyrir
augum að þjálfa skátana í hinum
ýmsu skátaíþróttum og þá sér-
staklega almennum skátaprófum.
1 þessu móti taka þátt 20 skát-
ar frá Bretlandi, frá Maidstone.
Þá eru væntanlegir 15 Banda-
ríkjaskátar og 10 skátar frá Vest-
ur-Þýzkalandi.
Verður þetta sennilega helzta
skátamótið á sumrinu og mun
það verða fjölsótt, en það er
fyrir skát^ á aldrinum 11—-15
ára. Þátttöku í mótinu í Þjórs-
árdal þarf að tilkynna í Skáta-
heimilið dagana 28., 29. og 30.
apríl klukkan 8—9.
Þ j óðliátíðanief nd
skipuð
BÆJARRÁÐ hefur nýlega skip-
að eftirtalda menn í hátíðarnefnd
17. júní: Eirík Ásgeirsson, for-
stjóra, sem er formaður nefndar-
innar, Ólaf Jónsson fulltrúa lög-
reglustjóra, Böðvar Pétursson,
verzlunarmann og Jóhann Möll-
ei, bankamann.
Af hálfu íþróttabandalags
Reykjavíkur hafa verið skipaðir
þessir menn: Erlendur Ó. Péturi
son, forstjóri, Jens Gubjörnsson,
fulltrúi, Bragi Kristjánsson, skrif
stofustjóri og Ragnar Þorsteins-
son, gjaldkeri.
Aðalfundur
Foreldrafélags
Laugariiesskóla
FORELDRAFÉLAG Laugarnes-
skóla heldur aðalfund og jafn-
framt skemmtifund n. k. þriðju-
dag, 29. apríl kl. 8,30 í Laugarnes-
skóla.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa munu börn úr 8 ára bekk
B leika nokkur lög á blokkflautu
undir stjórn kennara síns,
Magnúsar Einarssonar, Hafliði
Jónsson, garðyrkjuráðunautur,
skýrir frá ræktun, tilhögun og
framkvæmdum á skólalóðinni og
sýnd verður litkvikmynd um Ás-
grím Jónsson, listmálara. Þulur
verður Kristján Eldjárn, en
Ósvaldur Knudsen tók myndina.
Allir foreldrar og kennarar úr
skólahverfinu eru velkomnir á
fundinn.
Úr kvikmyndinni um fuglalífr