Morgunblaðið - 30.04.1958, Side 6

Morgunblaðið - 30.04.1958, Side 6
MORcrvnr 4ðið Miðvikudagur 30. apríl 1958 TÍTÓISMINN OG LEPPRIKIN Þ\Ð er augljóst að Rússar hafa hugsað sér að nota taekifærið, þegar þeim virðast vesturþjóðirnar vera sundraðar í mörgum mikils- verðum málum, til þess að kreppa alvarlega að Tító Júgó- •slavíuforseta. Þetta kom _ glögg- lega fram, þegar Rússar og hin önnur járntjaldslönd sniðgengu fund kommúnistaflokks Júgó- slavíu, sem haldinn var á dög unum. Þetta vakti hina mestu athygli og kom raunar flestum á óvænt, því svo hafði virzt á undanförnum mánuðum, sem Tító og Rússar hefðu nálgazt all- mikið. Þegar þær umleitamr stóðu sem hæst sýndu Júgóslav- ar ýmis merki um hlýðni og holl- ustu í garð Rússa og kom það meðal annars fram í því þegar þeir viðurkenndu leppstjórn Rússa í Austur-Þýzkalandi, sem kostaði það, að Vestur-Þjóðverj- ar slitu sambandi við Júgóslava. Margir gerðu þá ráð fyrir því að Tító væri að sigla hraðbyri inn í nýtt tilhugalíf með Rússum og ætti nú að grafa hina gömlu stríðsexi. Það kom hins vegar í ljós nú í sambandi við fundinn, sem áður var um getið, að þessu er ekki svo varið. ★ Þegar fundinum var slitið, héit Tító ræðu, sem sagt er að tekið hafi verið með miklu lófataki af hinum 1800 fulltrúum á fundinum. Tító sagði, að það væri ekki vel til fallið af Rússum að vera að „grafa fortíðina upp með því að TÍTÓ beita ósönnum og ósanngjörnum ávítum og gagnrýni, sem miðaði til niður- rifs hins júgóslavneska komm- únisma“. Tító minnti á, þegar Júgóslavíá var rekin úr Komin- form 1948 og sagði: „Það væri örlagaríkur sorgarleikur, ef sambúðin á milli Júgóslavíu og Rússlands leiddi til svipaðs klofnings eins og þess, sem varð svo dýrkeyptur fyrir hina al- þjóðlegu verkalýðshreyfingu". Tító kvartaði mjÖg undan því, hversu blöð í austurríkjurn Rússa og Rússlandi sjálfu hefðu leikið Júgóslava grátt og afflutt málstað þeirra. Sagði Tító i því sambandi, að hann léti þessa gagn rýni sem vind um eyru þjóta og Júgóslavar mundu halda fast við að skapa sér sjálfir sína eigin framtíð og sína eigin sósíalisku stefnu". Þess hefur nú orðið vart bæði gagnvart Ungverjalandi og Pól- landi, að Rússar hafa nú miklu nánari gætur á því, sem gerist í þeim löndum, heldur en áður en byltingartilraunirnar urðu þar. Rússneskir ráðamenn eru þar sífellt á ferðinni og seinast var sjálfur forseti Rússlands, Voroshilov, þar á ferðalagi. Lét hann sér um munn fara, að „all- ir Pólverjar elska félaga Krús- jev“. Þess er skemmst að minn- ast að Krúsjeff var á ferð í Ung- verjalandi og ber að skoða þessi ferðalög sem eins konar eftirlits- ferðir af hálfu Rússa með stjórn- unum í leppríkjunum. Rússar eru sér þess meðvitandi, að títóisminn hefur mikil áhrif í þessum lönd- um, þar hugsa margir sem svo, að úr því Júgóslavar hafi getað fetað sínar eigin götur, þá eigi líka fleiri að geta það. Rússar vilja fyrir hvern mun koma í veg fyrir frekari klofning inn- an kommúnistaríkjanna og þess vegna er eftirlitið hert svo mjög með leppríkjunum, sem raun ber vitni. Hagur Fríkirkjusafnað- arins stendur með blóma FIMMTUGASTI og áttundi aðal- fundur Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík var haldinn sunnudag inn 23. marz 1958 í Fríkirkjunni. Fundarstjóri var kjörinn Óskar B. Erlendsson, lyfjafræðingur, en fundarritari Ólafur B. Pálsson. í fundarbyrjun minntist prestur safnaðarins, sr. Þorsteinn Björns son, þeirra safnaðarfélaga er lát- izt höfðu á árinu. Úr stjórn áttu að ganga Kristján Siggeirsson, kaupm., frú Pálína Þorfinnsdótt- ir og frú Ingibjörg Steingrims- dóttir. Voru þau öll endurkjörin. Stjórnina skipa nú: Kristján Sig- geirsson, formaður, Valdemar Þórðarson, kaupmaður, varafor- maður, Magnús J. Brynjólfsson, Loftui Bjainuson sextugui LOFTUR BJARNASON fram- kvæmdastjóri, Hafnarfirði, er sextugur í dag. Loftur hefur um 30 ára skeið verið meðal athafnasömustu og kunnustu framkvæmdamanna í útvegsmálum hér á landi. Hann hefur verið framkvæmda stjóri og meðeigandi í útgerðar- félögum sem gert hafa út línu- veiðara og togara og haft með höndum fiskverkun í stórum stíl. Hann hefir verið formaður í stjórn Hvals h.f. frá stofnun fé- lagsins árið 1947 og framkvæmda stjóri þess síðan árið 1950. Hval- ur h.f. hefur nú um margra ára skeið framleitt meiri útflutnings- verðmæti en nokkuð annað fyr- irtæki hér á landi í einkaeign. Mikil gifta hefur jafnan fylgt þeim fyrirtækjum, sem Loftur hefur veitt forstöðu. Hefir þeim vegnað svo vel, samanborið við hliðstæð fyrirtæki annarra, að það hefur stundum verið haft á orði, af sumum þeim, sem aðeins höfðu spurnir af fyrirtækjum hans, að vart væri einleikið með shrifar úr ^ daglega lífinu ] Hver á að borga fæðið? KONA nokkur hefir snúið sér til Velvakanda og borið und- ir hann erfitt vandamál. Saga hennar er í stuttu máli þessi: Esja rakst á marbakka á Vatneyri við Patreksfjörð fyrir nokkru. Stýri skipsins laskaðist og varð það til þess, að snúa varð því við til Reykjavíkur. Annað skip tók farþegana og flutti á áfangastað, en þó urðu þeir ,að bíða um borð í Esju á Patreksfirði eina tvo daga, að því er Velvakanda skildist. Koiian sagði, að farþegarnir hefðu sjálf- ir orðið að greiða fæði sitt á meðan — og spurningin, sem hún vildi fá svar við, var þessi: Átti útgerðin ekki að láta fólkið, sem beið þarna um borð í skipinu fá ókeypis fæði? Velvakandi hefur rætt við nokkra menn um þetta mál. — Skipaútgerðin mun selja farmiða eins og þá, sem hér skipta máli, án þess að gjald fyrir fæði sé innifalið, og greiða menn fyrir það um borð. Oft kemur það fyr- ir, að skipin tefjast éitthvað vegna illviðra eða tafa við upp- skipun og hefur fólk greitt fyrir fæði sitt, þótt ferðin hafi lengzt af þeim sökum. Hér er hins vegar um annað atriði að ræða, þar sem töfin stafar af því, að skip hefur orðið fyrir skemmdum. Skipaútgerðin mun ekki hafa talið sér skylt að greiða fyrir fæði farþeganna, þótt þannig standi á, og hin almenna vá- trygging mun ekki taka til fæðis- kostnaðar farþega, nema hann sé innifalinn í fargjaldinu. — Vel- vkkandi er að sjálfsögðu enginn hæstiréttur, og hér kann að vera um vafaatriði að tefla, en þó E' telur hann sig hafa góðar heim- ildir fyrir því, að útgerðin eigi að borga fæðið, þegar svona stend ur á, enda mun hún geta keypt sérstaka tryggingu gegn hugsan- legum skakkaföllum af þessu tagi. Hvað sannara reynist. KKI ætlar að takast björgu- lega til um Skálholtsmálið, nú heldur en endranær. Þing- menn standa nú upp og tala hver á fætur öðrum, en ekki greiðist úr nema síður sé. En engum virð- ist vera kunnugt um það, að inn í greinargerð * fyrir þessu SkáU holtsfrumvarpi, sem þingið er nú í standandi vandræðum með, hef ur komizt alvarleg sagnfræðiieg villa og verið látin óátalin á tveim þingum í röð. Eins og all r vita, þá hefur í umræðum urn Skálholtsmál mjög verið skírskot að til sagnfræði og sögutryggðar, og væri því óskandi, að menn hefðu í þeim efnum „það sem sannara reynist". í þessari greinargerð, sem er ætlað að vera sögulegur rök- stuðningur við þá tillögu, að setja upp biskupsstól í Skálholti, segir, að „nú hafi Skálholt á áþreifan- legan hátt tengt saman fortíð og nútíð. Sennilega gleymir því enginn, sem viðstaddur var, þeg- ar kista Páls biskups Jónssor.ar var opnuð. Þá gerði úrhelli, rétt eins og daginn, sem útför hans var gerð“. Svo mörg eru þau orð. En hvar er heimildin fyrir þessu? Ekki þekki ég þá heimild, og svo mikið er víst, að það er ekki Pálssaga, sem þetta segir. Páis- saga segir allt annað. Hún segir, að það hafi verið rigningasamt sumarið áður en Páll biskup and- aðist, og nokkru seinna segir hún að „margur kvíðbjóður hafi orðið fyrir fráfalli þessa dýrliga höfð- ingja“ — þ.e. Páls biskups — og „himinn og skýin grétu", og á það vitanlega við hið mikla rigninga- sumar. Á veðrið sjálfan útfar- ardaginn er ekki minnzt og það er hætt við, að þessi fullyrðing um veðrið þann dag, í greingerð alþingismanna, sé úr lausu lofti gripin og stafi af því, að sagan hafi ekki verið of vel lesin. Það er jafnvel ekki örgrannt um, að hér sé verið að gefa í skyn, að úrhellið, sem gerði, þegar kist- an var tekin upp, hafi verið jar tegn eða kraftaverk, í þeim skiln ingi, sem sagt er frá slíkum ‘yr- irbærum í hinum fornu biskupa- sögum. En hvaða skoðun, sem menn hafa á þeim frásögnum og öðrum sambærilegum, þá munu allir geta fallizt á, að „ti!búin“ kraftaverk séu verri en engin og enginn stuðningur í þeim við eitt eða neitt. Það er hætt við að hinir mjög umtöluðu biskips- stólar í Skálholti, Hólum, Gríms- ey(?) og hver veit hvar, séu heldur óvænleg fyrirtæki, ef þeir þurfa sliks rökstuðnings við. Þorsteinn Guðjónsson, stud. mag.“ heppni Lofts Bjarnasonar. Hinir, sem kynnst hafa Lofti, hæfni hans og starfsháttum, hafa ekki undrast að fyrirtækjum í umsjá hans vegnaði vel. Loftur er fæddur á Bíldudal við Arnarfjörð, sonur merkis- hjónanna Bjarna Loftssonar, kaupmanns og Gíslínu Þórðar- dóttur. Þar ólst Loftur upp á þeim árum sem Pétur Thorsteins- son rak hina umfangsmiklu út- gerð og fyrirtæki á Bíldudal. Loftur gerðist sjómaður á unga aldri. Var hann fyrst tvær ver- tíðir á skútum og síðar háseti á togurum. Árið 1916 lauk hann hinu meira stýrimannsprófi með hárri einkunn, aðeins 18 ára gamall. Svo sagði Páll Halldórs- son skólastjóri Stýrimannaskól- ans, að Loftur Bjarnason væri yngsti nemandi, sem hann hefði útskrifað með meira prófi úr skólanum á þeim 37 árum, sem hann fór með skólastjórn. Árið 1918 réðist Loftur háseti á e/s Willemoes, sem Eimskipa- félag íslands annaðist útgerð á og starfaði hjá félaginu í 8 ár þar til hann hætti sjómennsku árið 1926 og var hann þá 1. stýri- maður á e/s Lagarfossi. Hóf Loftur nú þátttöku í út- gerð og fiskverkun og gerðist framkvæmdastjóri útgerðarfyrir- tækja, fyrst Júní h.f. og síðar Júpíters h.f., Venusar h.f. og fleiri. Árið 1950 gerðist hann framkvæmdastjóri Hvals h.f., eins og fyrr segir. Loftur er mjög áhugasamur um félagsmál. Hann átti um skeið sæti í bæjarstjórn Hafnarfjarð- ar, einnig í stjórn Síldarverk- smiðja ríkisins og formaður lands málafélagsins Fram í Hafnarfirði var hann um tíma og einnig rit- stjóri Hamars. Hann hefur verið í stjórn Landssambands íslenzkra útvegsmanna frá 1944 og varafor- maður síðan 1947 og á sæti í stjórn Félags íslenzkra botn- vörpuskipaeigenda. Þegar vanda ber að höndum í félagsmálum útvegsmanna þykir ætíð sjálfsagt að leita ráða Lofts Bjarnasonar, enda er hann með afbrigðum úrræða- og tillögugóð- ur, ódeigur og fylginn sér, þegar því er að skipta og manna fórn- fúsastur. Loftur er fróður um margt, mjög minnugur, kemur vel fyrir sig orði, hnittinn í svörum, kát- ur og gamansamur, enda hinn mesti aufúsugestur, hvar sem hann kemur. Sjálfur er hann og hin ágæta kona hans Sólveig Sveinbjarnar- dóttir, annáluð fyrir gestrisni, sem mjög margir hafa notið fyrr og siðar á hinu glæsilega heim- ili þeirra Álfaskeiði 38 í Hafnar firði. Margir munu verða til þess að senda Lofti Bjarnasyni og fjöl- skyldu hans hugheilar hamingju óskir á sextugsafmæli hans og þakka honum fyrir ágæt störf og margar ánægjulegar samveru stundir á liðnum árum. Sveinn Benediktsson. framkv.stj. ritari, frú Ingibjörg Steingrímsdóttir, frú Pálína Þor- finri'sdóttir, Þorsteinn J. Sigurðs- son, kaupmaður, Kjartan Ólafs- son, varðstjóri, Óskar B. Erlends son, lyfjafræðingur og Vilhjálm- ur Árnason skipstjóri. Talsverð aukning hafði orðið í söfnuðinum á árinu og stendur hagur hans í miklum blóma. Verið er að skrásetja sögu Kvenfélags Fríkirkjusafnaðarins en það er elzta safnaðar-kven- félag landsins, og hefur unnið söfnuðinum ómetanleg störf. Hafði kvenfélagið á árinu látið stækka og endurbæta hitakerfi kirkjunnar og borgað allan kostn aðinn, er nam rúmum kr. 17 þús. Fóstbræðrafélag safnaðarins afhenti söfnuðinum að gjöf raf- hringingar-samstæðu, sem kemur í stað kirkjuklukkna. Kostuðu þau uppkomin rúmar 21 þús. kr. Þakkaði formaður þessar gjafir með nokkrum orðum, og óskaði þessum tveimur safnaðarfélög- um farsældar og blessunar um ókomna tíð. Áheit og gjafir námu tæpum kr. 3 þús. á árinu. Magnús Guð- björnsson, póstafgreiðslumaður, færði söfnuðinum að gjöf for- kunnarfagra Biblíu til minningar um foreldra sína, Kristínu Þórð- ardóttur og Guðbjörn Björnsson. Safnaðarlíf er hið ákjósanleg- asta. Kvöldvökur voru haldnar í kirkjunni, erindi flutt og farin skemmtiferð á vegum safnaðar- ins sl. sumar, er var mjög fjöl- menn. Nokkrar umræður urðu um unglinga og æskulýðsstarfsemi innan safnaðarins, þörfina á því að styrkja hana og efla á allan hátt. Að síðustu voru presti safn- aðarins, sr. Þorsteini Björnssyni, þökkuð unnin störf og sömuleið- is organista Sigurði ísólfssyni og söngkór kirkjunnar. Ennfremur kirkjuverði, frú Ágústu Sigur- björnsdóttur. Finnar selja minka og Norðmenn minkaskinn í VETUR seldu Finnar 130 lif- andi minka til Bandaríkjanna. Þeir voru sendir flugleiðis vestur og verðið var frá 150 dollurúm upp í 235 dollara stykkið. Mink- ar þessir nefnast Finlandia-tapas. Til Rússlands seldu þeir nýlega 800 minka og til Þýzkalands 255 kynbótaminka. Árleg framleiðsla Finna af minkaskinnum er nú talin nema 900 milljónum finnskra marka að verðmæti, en það samsvarar nær 46 milljónum króna.* Á aðalfundi loðdýraræktarfé- lagsins í Rogalandi nú nýlega, var upplýst að hér í fylkinu séu nú um 14.000 minkar í eldi, og að ársframleiðslan af minkaskinn um sé um 40—50 þús. skinn, að verðmæti 4,5—5 millj. króna (norskar). Villiminkurinn gerir ærinn skaða í Rogalandi og svo er víðar í Noregi, en engum dettur sú fá- sinna í hug að búa við skaðann eingöngu, en neita sér um at- vinnu og tekjur af minkaeldinu. Það er komið sem komið er, villi- minkurinn er orðinn landlæg plága, en henni verður ekki af- létt með því að drepa alla minka, Sem í búrum eru aldir. Sízt skal lá þeim, sem óska öll- um minkum norður og niður, og óska þess að sá fjandi hefði aldrei til landsins komið, en nú er kom- ið sem komið er, sjálfsagt að gera allt sem hægt er til að halda villi minknum í skefjum, en þá verða fróðustu ráðamenn líka að gera sér og öðrum ljóst, hvort þess er nokkur von að útrýma villimink- unum. Ef þess er von, er bann við minkaeldi réttlætanlegt, en ef þess er engin von er slíkt bann óréttmætt. Það er að búa við skaðann og fleygja frá sér arðin- um. Hvað segir veiðistjórinn nýi um þessa hluti? Á. G. E.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.