Morgunblaðið - 30.04.1958, Side 19

Morgunblaðið - 30.04.1958, Side 19
Miðvikudagur 30. apríl 1958 MOFGVISBLAÐIÐ 19 Texosbúar hölðu ehki hugmynd um, hvort við teildum skúk eðu lúdó segir Bent Larsen nýkominn heim KAUPMANNAHÖFN — Bent Larsen er nýkominn heim úr hálfs árs skákför til Wageningen í Hollandi, Dallas í Texas, Mexico, Los Angeles, New York, Buenos Aires, Sao Paulo, Rio de Janeiro og (nú síðast) í Haag og Amster- dam. Má segja, að þetta hafi ver- ið hin mesta frægðarför, eins og skýrt hefur verið frá í fréttum. Ekstrabladed hefur átt stutt — í þrótti r Framhald af bls. 18. hér í Reykjavík, þar á meðal úr- slitaleikurinn hinn 28. ágúst. í byrjun júní kemur hingað enska knattspyrnuliðið Bury á vegum K. R. og leikur hér 5 leiki. Um miðjan júlí leikur úrvalslið írá Sjálandi hér 4 leiki á vegum Fram. Afmælisleikur Víkings í tilefni 50 ára afmælis félagsins verður 29. maí. Um mánaðamótin júní júlí verða hér 2 dönsk unglingalið, Roskilde Boldklub 1906 á vegum Fram og Bagsværd Idræts Foren- ing á vegum K. R. Leika bæði lið nokkra leiki gegn jafnöldrum sín um hér. í 1. flokki verða 3 mót, og verður fyrsti leikurinn 3. maí. Mótin í yngri flokkunum hefjast 27. maí. Þar fjölgar mótum og leikum vegna breytingar, sem síðasta ársþing K. S. í. gerði á aldursflokkunum. Bætist við nýr flokkur, 5. flokkur. í 2., 3., 4. og 5. flokki verða alls 24 knatt- spyrnumót og leikir alls 177, en voru 144 síðastliðið sumar. f meistaraflokki verða 44 móta leikir, í 1. flokki 15, og 177 í yngri flokkunum, eða alls 236 leikir í mótum 1958. Ótaldir eru þá leikir í heimsóknum erlendra liða og ýmsir aukaleikir, svo sem afmælisleikir og pressuieíkir, sennilega 16 leikir alls. Eru a'lar líkur til, að hér í Reykjavík verði í knattspyrnu háðir 280 kappleikir í sumar. Samkvæmt skýrslu knatt- spyrnuráðsins fyrir síðastliðið sumar voru hér háðir 231 knatt- spyrnuleikir í öllum flokkum. Þá hafa 38 dómarar heitið Stuðningi sínum, Utanferðir 3. flokkur Þróttar fer til Sjá- lands í júlí, 2. flokkur K. R. til Þýzkalands í ágúst, og meistara- flokkur Fram til Sjálands í júlí og meistaraflokkur Vals til Rúss- lands í júlí. Þá er fyrirhugaður landsleikur við Eire, 11. ágúst, en pressu- leikir verða væntanlega háðir fyrst og síðast í ágústmánuði. Landsleikir fara fram á vegum K. S. f. og pressuleiki annast K. S. í. og K. R. R. sameiginlega. Oll landsmót fara fram undir stjórn K. S. í., en ráðið annast þau þeirra sem fram fara hér í bæ, fyrir sambandið. Til þess að halda svo marga leiki á svo stuttum tíma, verður að nota alla velli í bænum og hef ir ráðið leitast við að dreifa leik- unum svo sem kostur er. Eitt af því, sem háð hefir eðlilegum framgangi mótanna, er hve erfitt það hefur verið undanfarin ár að fá dómara til að dæma í þeim, Dómurum finnst að vonum til lít- ils barist. Sjaldan fá þeir viður- kenningu fyrir velunnin störf, en ef verr tekst til, verða þeir skot- spænir áhorfenda, sem oft á tíð- um láta í ljósi vanþóknun sína á störfum dómara með dylgjum Og skammaryrðum, já jafnvel með hótunum um líkamsmeiðsl, en þessi tjáning vanþóknunar hjá áhorfendum á oftar rót sína að rekja til þekkingarskorts þeirra sjálfra á leikreglum en til mistaka dómaranna. samtal við Bent. Blaðamaðurinn spurði m. a., hvað honum hefði þótt markverðast í ferðinni: Hann kvaðst ekki geta svarað því: „Þetta hefur verið eitt sam- fellt ævintýri", svaraði hinn ungi skákmeistari. Þá spyr blaðamað- urinn, hvað hafi verið mest spenn andi og Bent svarar, að það hafi verið, þegar vél flugvélarinnar bilaði yfir frumskógum Brasilíu, svo að einn hreyfillinn stöðvað- ist. Svo minntist hann á skákmótið í Dallas og gat þess, hve skák- áhugi þar er lítill. Bærinn hefur yfir 700 þús. íbúa — „en það kom ekki lifandi sála að horfa á skákkeppnina. Og olíumilljón- erarnir, sem höfðu lagt pening- ana á borðið (verðlaunin voru 200 þús. d. kr. eða sem því svar- ar), höfðu ekki hugmynd um, hvort við tefldum skák eða lúdó“. Þetta skákmót átti rætur sínar að rekja til þess, að borgarstjór- inn í Ðallas fékk þá flugu í höfuðið, að nauðsynlegt væri að setja nafn borgarinnar í samband við „einhverja menningu“ — og svo völdu þeir skákina. Loks segir Bent, að hann ætli ekki að keppa í skák fyrr en á mótinu í Portoroz í Júgóslavíu í ágúst næstkomandi. Fjölbreytt skemmt un Ferðafélagsins SÍÐASTLIÐIÐ mánudagskvöld voru tvær íslenzkar kvikmyndir frumsýndar _ á skemmtikvöldi Ferðafélags íslands. Báðar þess- ar myndir hafði Magnús Jóhanns son, útvarpsvirki tekið. Heita þær „Reykjavík 1957“ og „Fugl- arnir okkar“. Tók sýning fyrri myndarinnar, Reykjavíkurmynd- arinnar, um 15 mínútur en hinnar seinni tæpan hálftíma. Báðar eru myndirnar ákaflega fallegar og vel teknar, enda hef- ur Magnús lengi unnið að þeim. Reykjavíkurmyndin sýnir vöxt og viðgang borgarinnar, en fugla- myndin fjallar um líf íslenzkra fugla, allt frá því þeir koma úr eggi og þar til þeir hverfa til fjarlægra landa. Magnús hefur sjálfur samið texta við fuglamyndina en við Reykjavíkurmyndina hafa þeir Lárus Sigurbjörnsson og Páll Líndal samið texta. Vöktu báðar myndirnar mikla hrifningu áhorf enda. Skemmtifundur Ferðafélagsins á mánudagskvöidið var fjöl- mennur. Auk kvikmyndasýning- anna fór fram getrauna-mynda- sýning. Var brugðið upp 8 mynd- um af íslenzku landslagi. Þá var dansað. Hvaimeyriiigar skipa út fiski á Akrasiesi AKRANESI, 29. apríl — Norska skipið Thermo kom í morgun til að lesta röska 40 þús. kassa af frosnum fiski frá Fiskiver hf. — Meginið af fiskinum fer til Frakk lands. Frá Hvanneyrarskólanum komu 22 nemendur til þess að vinna m. a. að útskipun á fiskin- um. Þeir komu hingað um há- degi í dag, en í morgun höfðu þeir lokið síðustu prófum sínum í skólanum. Hvanneyringar fara aftur heim seint í kvöld. — Oddur. Búnaðarskólunum sagt upp f dag verður búnaðarskólunum að Hólum og á Hvanneyri sagt upp. Þá ljúka mörg efnileg bændaefni próf- um sínum og halda beint til I starfa. Við fram 'naldsdeildina á j Hvanneyri ljúka einnig ailmargir nemendur loka- prófi og munu peir síðar verða ráðunautar og leiðbeinendur í sveitum lands- íns. Af þessu til- efni gefur Morg- unblaðið tvenn heiðursverðlaun. Á Hvanneyri verður Morgun- blaðsskeifan af- hent þeim nem- anda er beztum árangri hefir náð við tamn- ingu hesta í vet- ur, en þar eru tamningarnar eins konar auka1 námsgrein. Á Hólum verða aft- ; ur á móti veitt verðlaun þeim nemanda er skarar fram úr v ð smíðar, en um allmörg ár hefir smíðakennsla verið stunduð þar í skólanum sem aukagrein og hafa nemendur náð mjög athyglis verðum árangri. Myndin, sem hér fylgir með er af grip þeim, sem [ gefinn verður að Hólum. Er það pappírshnífur smíðaður af Kjart- ani Ásmundssyni, gullsmið. - Öþurrkalánin Frh. af bls. 3 af því „apparati", sem hleypt hefur verið af stokkunum vegna þessarar ráðstöfunar á lánunum, hvað er þá unnið við þetta allt saman? Hefði þá ekki verið hyggi legra að hafa þann háttinn á, sem félagssamtök bændanna lögðu til í öndverðu? Því var haldið fram af meiri hluta fjárveitinganefndar í um- ræðum um þetta mál í nefndinni, að tillagan um eftirgjöf lána þess- ara væri „vanhugsuð“, hún sam- rýmdist ekki þeirri ráðstöfun, að Bjargráðasjóði hefði verið afhent þessi lán. Þessi ályktun meiri hluta nefndarinnar er ekki á rök- um reist. Hún er byggð á mis- skilningi á eðli þessa máls. Bjarg- ráðasjóður er ríkisstofnun, sem heyrir undir valdsvið Alþingis, er setur henni lög. Þótt Alþingi hafi veitt ríkisstjórninni heimild til þess að afhenda stjórn Bjarg- ráðasjóðs þessi lán með skilyrð- um um ívilnanir og eftirgjafir, þá útilokar sú ákvörðun engan veginn að því sé nú beint til ríkisstjórnarinnar, að hún óski eftir því við stjórn Bjargráða- sjóðs, að lán þessi verði skilyrðis- j laust eftir gefin. Ef svo færi, að ! stjórn Bjargráðasjóðs fengist ekki I til þess að framkvæma vilja- j yfirlýsingu eins og í tillögunni felst, sem naumast þarf þó að j gera ráð fyrir, getur ríkisstjórnin ! fengið með lögum nauðsynlega heimild til þess, að þetta skuli gert. Með skírskotun til framanrit- aðs leggur minni hl. n. til að tillagan verði samþykkt“. Undir álitið skrifa: Pétur Otte- sen, Magnús Jónsson og Jón Kjartansson. (Kaflafyrirsagnir og letur- breytingar frá Mbl.). Vormót Suður- nesja i lmatt- spyrnu KFK — ÍKF 2:1 Vormót Reykjaness í knatt- spyrnu hófst í Keflavík sl. laugar dag með leik milli KFK og ÍFK. Enda þótt leikurinn færi fram í sólskini og sumarblíðu var ekki hægt að sjá að liðin sem kepptu væru komin í sumaræfingu. Leik urinn var illa leikinn af beggja hálfu, en þó brá fyrir örlitlum samleik hjá KFK öðru hvoru enda má sigur þeirra 2:1 (1:1) teljast verðskuldaður. Engin sérstök tilþrif sáust til einstakra leikmanna að undan- skildum Vilhelm Ólafssyni, hin- um unga markmanni ÍKF, sem sýndi afburðagóðan leik og var eflaust bezti maður á vellinum. Töldu áhorfendur að jafngóður leikur í marki hefði ekki sézt á Suðurnesjum um árabil. Dómari var Hafsteinn Guð- mundsson. UMFK — Reynir 3:2 Þessi leikur fór fram á sunnu- daginn í leiðinlegu veðri, roki og rigningu. Mui veðrið að vísu hafa haft nokkur áhrif á leikinn, en um hann má segja hið sama og um leikinn á laugardaginn, að leikmennirnir voru í lítilli æfingu. Tveir piltar f liði UMFK vöktu athygli, en það voru Guðmundur Kr. Þórðarson úr 3. fl. og Hólm- bert Friðjónsson úr 2. fl. Það get- ur orðið skemmtilegt að fylgjast með þeim í sumar. Dómari var Sigurður Stein- dórsson. Mótið heldur áfram um næstu helgi. Á laugardag keppa ÍKF og UMFK kl. 5, en KFK og Reynir kl. 2 á sunnudag. — BÞ. Innilegar þakkir fyrir auðsýndan heiður og höfðing- skap með gjöfum, heimsóknum og heillaskeytum á átt- ræðisafmæli mínu. Guðni Jónsson, Heklu, Höfn, Hornafirði. Hjartanlegt þakklæti færi ég öllum sem heimsóttu mig sendu mér gjafir og heillaskeyti á 60 ára afmæli mínu þann 20/4. Guð blessi ykkur öll. Frímann Ingvarsson. Ástkær eiginmaður minn og faðir okk£tr, ÞJÓÐÓLFUR GUÐMUNDSSON andaðist í sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn 26. þ.m. Lovísa Vigfúsdóttir, Gunnar Þjóðólfsson, Ragnar Þjóðóifsson og systkyni hins látna. Jarðarför sigrCnar helgu jónsdóttur Sigluvík í Landeyjum, er andaðist 23. apríl, verður laugar- daginn 3. maí og hefst með bænastund kl. 1 e.h. í Sigluvík. Jarðsett verður í Akurey. Ágúst Jónsson. Innilegar þakkir færum vér öllum þeim sem auðsýndu okkur vináttu við andlát og jarðarför ÓLAFAR EINARSDÓTTUR frá Geirakoti, sem andaðist 16. apríl. Guð blessi ykkur öll. Ólafur Gíslason og börnin. Öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför KRISTJÁNS PÉTURS VIGFÚSSONAR þökkum við af hrærðu hjarta og biðjum þeim öllum blessunar guðs. Patreksfirði 25. apríl 1958. Móðir og systir hins látna, Etilríður Guðmundsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför móðursystur minnar, THORU FRIÐRIKSSON Sérstaklega þakka ég öllum á Amtmannsstíg 5 fyrir vinsemd og alúð um margra ára skeið. Fyrir hönd aðstandenda. Leópoldína Eiríkss. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður minnar SIGRfÐAR JAKOBSDÓTTUR Guðmundur Hólm. Öllum þeim, sem auðsýnt hafa samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför ELlNAR GUÐMUNDSDÓTTUR vottum við einlægar þakkir. Ármann Hansson, Áuðunn Bragi Sveinsson, Þóra Kristín Sveinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.