Alþýðublaðið - 01.07.1920, Page 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ
3
^fggjreiöæla
blaðsins er í Aiþýðuhúsinu við
Ingóifsstræti og Hverfisgötu.
Síml 988.
Auglýsingum sé skilað þangað
eða í Gutenberg í síðasta iagi kl.
10, þann dag, sem þær eiga að
koma i biaðið.
Bolsivismi.
Colonel Malone:
The Russian Republic.
(Alien & Unwin.)
V. T. Goode:
Bolshevism.
(Aiien & Unwin.)
Bolsivismagrílan er óðum að
úreídast og missa áhrif sín. Það
eru varla nema einföidustu og
ístöðulausustu börnin, sem nú hræð-
ast þegar Berlingur og „barnablöð-
in* hérna í Reykjávfk ógna með
henni. Lögrétta hefir hvað eftir
annað flutt ágætar fræðjgreinar
um málið, eins og yfir höfuð um
erlenda pólitík og viðburði. Alment
er mönnum farið að skiljast það
tvent í Bolsivíkamálinu, að hér er
um að ræða alvarlega og stórfelda
endurbótaviðleitni, sem nídd hefir
versð og rægð með blindaðri of-
stæki og stjórnlausri illgirni og
öfgum. í öðru Jagi það, að hvernig
svo sem hreyfingin er, lofsverð
eða ekki, þá er hún orðin svo
vfðtæk og svo öflug, að það er
barnaskapur einn og fjarstæða að
hugsa sér að hún vérði kæfð nið-
ur, hvaða tröllasögur sem sagðar
eru um bolsivíka. Nú er það hverj-
um einasta hugsaudi manni ljóst,
að hreyfing þessi muni stórkost-
lega marka sögu framtfðarinnar,
þó að það stórhneykskðí einn af
smælingjunum (ritstjóra annars
„barnablaðsins" í höfuðstað fs-
lenzka stórveldisins), þegar það
var gefið í skyn í blaði einu hér
í fyrra, að bolsivisminn mundi ekki
ósennilega reynast merkasta afleið-
ing heimsstyrjaldarinnar. Nú er
það ljóst öllum þorra þeirra manna,
er nokkuð .fylgjast með í alþjóða-
pólitík, að sú muni raunin á verða.
Hérna á íslandi hafa menn al-
ment mjög lítil lcynni af starfi og
stefnu bolsivíka, enda ekki við
öðru að búast, þar sem svo til-
tölulega lítið hefir verið um málið
ritað af skynsamlegu viti á íslenzku,
og sjaldan bent á fræðandi bækur
um það á útlendum málum. Það
er því1 ekki úr vegi að vekja at-
hygli manna á ofangreindum bók-
um, eftir tvo merka Englendinga,
sem nú eru orðnir heimskunnir
fyrir afskifti sín af málinu. Höf-
undarnir eru báðir „hærri stétta*
menn, og fyrir það taka ef til vill
sumir meira mark á orðum þeirra
en ef þeir væru af sauðsvörtum
almuganum. Báðir skýra þeir frá
eigin athugunum sínum og reynzlu
á Rússlandi, og ætti því að mega
Ieggja meiri trúnað á skýrslui
þeirra en nafnlausar og óstaðfestar
óhróðurssögur, er ábyrgðarlausir
blaðasnápar þefa uppi og prédika
síðan á strætum og gatnamótum.
Sn. J.
Um daginn 09 vegii.
Jón Berg8veinsson yfirsfldar-
matsmaður á Akureyri kom hing
að á Sterling. Mun hann verða
hér á fundi með öðrum sfldar-
matsmönnum og stjórninni, til
þess að taka þátt í endurskoðun
síldarútgerðarinnar.
Húsagerð. 14 menn hafa enn
sótt um leyfi til byggingarnefndar
um smíði nýrra húsa eða endur-
bætur og aukning á gömlum hús-
um. Koma þannig á hverjum bæj-
arstjórnarfundi nýjar beiðnir um
húsasmíð.
Páll ísólfsson heldur hljóm-
ieika í Dómkirkjunni á morgun.
Lögin verða eftir Bach og Reger.
Þar verður eflaust húsfyliir, því
borgarbúum gefst síst of oft tæki-
færi á að hlfða á sanna listamenn.
Landsspítalasjóðnum hefir ný-
lega áskotnast 1000 kr. minning-
argjöf, Er það gjöf Þóru Sæmunds-
dóttur Melsted til minningar um
síðari mann hennar, Vigfús Guð-
mundsson Melsted, er lézt 1914.
Sbemtiferð Templara. Geysi-
mikil aðsókn, af Templurum, var
í gær að aðgöngnmiðasöiunni.
Ferðin verður farin. Nokkrir að-
göngumiðar verða seldir á morg-
un í G -T.-húsinu kl. 7.
Bæjarstjórnarfnndnr er í kvöid
kl. 5.
Aðalhátíðahöldin dönska fara
að sögn ekki fram fyr en 7. þessa
mánaðar, veldur því andóf Þjóð-
verja á samþykki nýju landamær-
anna dönsku.
Síldarútgerðin. Eftir nýustu
norðanblöðum að dæma verður
hún miklu meiri en búast mátti
við Sumir Norðmennirnir, er sfld-
arstöðvar eiga á Siglufirði, gera
j^fnvel meira út í sumar en nokk-
urn tíma áður.
Skonnortan »Star« kom í gær
með timburfarm til Nic. Bjarnason.
Ari kom frá Englandi í gær.
Nýr togari, „Þorsteinn Ingólfs-
son", eign h. f. Haukur, kom £
gær frá Englandi. Skipstjóri er
Einar Einarsson frá Flekkudai.
Yeðrið í dag.
Vestm.eyjar ... N, hiti 10,1.
Reykjavík .... VNV, hiti 8,0.
ísafjörður .... logn, hiti 8,0.
Akureyri .... logn, hiti 7,0.
Grímsstaðir . . . NNV, hiti 4,5.
Seyðisfjörður . . NA, hiti 4,6.
Þórsh., Færeyjar S, hiti 9.5.
Stóru stafirnir merkja áttina.
Loftvog lægst milli Færeyja og
íslands og hægt stígandi. Köld
norðlæg átt. Stormur á SeyðisfirðL
Nordisk Films Co.
Ýmsum hér mun kunnugt danska
kvikmyndafélagið Nordisk Films
Co., síðan það lét taka Sögu
Borgarættarinnar á kvikmyndir hér
í sumar. Það er nú gengið f sam-
band við stórt alheimsfélag, er
upprunalega er amerískt og heitir
Famous Players Co„ en rahn síð-
an saman við þýzka félagið „Ufa“
og færðu þau síðan út kvíarnar
til Svíþjóðar og keyptu „Skandi-
navisk l"ilmcentral“ og náðu síð-
ast þessum tökum á Nordisk
Fiims Co.