Morgunblaðið - 30.05.1958, Síða 19

Morgunblaðið - 30.05.1958, Síða 19
Föstudagur 30. maí 1958 MOF GVNBL AÐtÐ 19 Aldarafmœlis Finns Jónssonar minnzf 1 GÆRKVÖLDI var rainnzt hundrað ára afmælis dr. Finns Jonssonar prófessors í Hátíðasal Háskólans. Hófst athöfnin á á- varpi dr. Þorkels Jóhannessonar háskólarektors, en síðan tók til máls dr. Halldór Halldórsson, prófessor og- ffutti ýtarlegan fyr- irlestur um ævi Finns Jónssonar og margþætt störf hans í þágu íslenzkra fræða. Fyrirlesarinn gat þess að Finn ur hefði kosið að ryðja margar brautir sæmilega í stað þess að leggja eina braut frábærlega. Hefði hann verið einn mesti elju- maður sem um getur. Prófessorinn kvað Háskóla ís- lands eiga Finni Jónssyni mikla skuld að gjalda fyrir þá virðingu sem hann sýndi skólanum með því að ánafna honum bókasafn sitt 3. apríl 1909, tveimur árum áður en hann var formlega stofnaður. Var bókasafnið, um 7500 bindi, flutt til Islands 1934 skömmu eft- ir dauða Finns og var fyrst til húsa í herbergiskytru í Alþingis- húsinu. Dr. Halldór gat síðan nánustu ættmenna og rakti ævi Finns. Hann var sonur Jóns Borgfirð- ings sem var þekktur fræðaþul- ur og bókasafnari, en lögreglu- þjónn i Reykjavík á árunum 1865 til 1888. Hann lézt árið 1912 frá sex börnum. Meðal þeirra var Klemens landsritari og siðar ráð- herra. Á Hafnarárum sínum naut Finnur Garðsstyiks, en hafði ekk- ert fé umfram hann. Varð hann því að flýta námi sínu og lifa mjög sparlega. Bjó hann fyrst'a veturinn með Gesti Pálssyni. Nám ið sem Finnur stundaði tók að jafnaði 7—8 ár, en hann sá sér ekki fært að eyða meira en 4% án í það, og lauk hann prófi með annarri einkunn, eins og hann hafði búizt við. Hóf hann þá þeg- ar að viða að sér efni í doktorsrit- gerð sem hann samdi samhliða þreytandi kennslustörfum. Varði hann ritgerðina 6. nóv. 1884, eða sex árum eftir að hann hóf há- skólanám, og hafði því aflað sér doktorsnafnbótar á skemmri tíma en venjulegir stúdentar náðu sér í embættispróf. Finnur ætlaði sér að verða próf. við Hafnarháskóia. Konráð Gísla- son var þá orðinn háaldraður mað ur, fæddur 1808, og lét brátt af störfum. Áður hafði Finnur feng- ið starf sem einkadósent, en hreppti þó ekki stöðuna þegar til kom. I stað þess var stofnað nýtt dósentsembætti sem honum var veitt 1887, Hann varð prófessor ekstraordinær árið 1898, prófessor ordinær.1911 og lét af störfum fyrir aldurs sakir árið 1928. Hann lézt í Höfn 31. marz 1934, og tal- aði m.a. Ásgeir Ásgeirsson, þá- verandi forsætisráðherra yfir moldum hans. Af Islendingum sem tóku próf í norrænum fræðum hjá Finni Jónssyni má nefna þá Sigurð Guð mundsson, skólameistara, Sigurð Nordal, Jakob Jóh. Smára, Bjöm ICarel, Jón Helgason og Einar Öl. Sveinsson. Dr. Halldór ræddi síðan um rit Finns Jónssonar sem voru fjöl- þætt og geysimikil að vöxtum. Voru mörg þeirra hrein þrekvirki og ruddu brautina vísindum síðari tíma. Vöktu störf Finns og útgáf- ur miklar deilur á Norðurlöndum og víðar, en því hefur aldrei ver- ið haggað, að Finnur Jónsson var mikill brautryðjandi, enda þótt margar kenningar hans og skoð- anir hafi orðið að lúta í lægra haldi fyrir rannsóknum síðari tíma. Fyrirlesarinn benti á, að helztu kenningar hans um algert sann- sögulegt gildi íslendingasagna og algera einangrun íslenzkra bók- mennta á miðöldum hafi verið hraktar að mestu. Finnur gat aldrei sætt sig við að á sögurnar væri litið sem listaverk. Finnur kveðst í sjálfsævisögu sinni vera gersneyddur ímyndunarafli, og er það nátengt algeru trúleysi hans. Þetta var í senn styrkur hans og veikleiki. Danskur mað- ur, Ame Möller, sagði um hann látinn, að hann hefði verið mikill maður innan takmarkana sinna, en takmarkanir hans hefðu líka verið miklar. Finnur var sæmdur fjölda heið ursmerkja og nafnbóta og sýnd margs konar virðing, en var sjálf ur mjög hégómalaus maður. Fyrirlesturinn var fremur illa sóttur. — Frá bæjarstjórn Frh. af bls. 2. nær öll gengið til útlána til bæj- ar- og sveitarfélaga, annarra en Reykjavíkur. — Lagði Þorvaldur áherzlu á það óréttlæti, sem fæl- ist í þessu og benti á hvernig ríkis valdið hefði sett Reykjavík skör lægra en önnur bæjarfélög í þess- um efnum. Nú bætist það við, að kjör þau sem mönnum eru boðin í verka- mannabústöðunum eru lakari en þau sem byggingarfélag bæjarins hefur boðið mönnum í Gnoðar- vogshúsunum í Gnoðarvogshús- unum hefur útborgun verið 60— 90 þús. kr. fyrir 2 og 3 herbergja íbúðir en í verkamannabústöðun- um 115 þús. kr., miðað við þær íbúðir sem síðast voru afhentar. — Þorvaldur ræddi síðan bygg- ingarframkvæmdir Reykjavíkur- bæjar, og framlög hans til bygg- ingarsjóðs bæjarins, samkvæmt tillögum Sjálfstæðismanna í frumvarpinu að fjárhagsáætlun fyrir 1958. Benti ræðumaður á hinar miklu framkvæmdir Reykjavíkurbæjar í þessum efn- um og hins vegar á það, hve mjög ríkið hefði dregizt aftur úr um framlög til útrýmingar heilsu- spillandi húsnæði. Sjáfstæðismenn hafa markað stefnu sina Geir Hallgrímsson tók fram að áberandi væri hve margar breyt- ingartillögur minnihlutaflokk- anna væru órökstuddar og óraun hæfar. T.d gerðu þeir ráð fyrir lækkun á framlagi vegna bifreiða kostnaðar, þótt allur reksturs- kostnaður bifreiða stórhækki og eins gera þeir ráð fyrir að skera niður kostnað á skrifstofum vegna pappírs, ritfanga og prent- unar þó kostnaður við slíkt fari hækkandi. G. H. tók fram, að þegar Sjálfstæðismenn hefðu samið tillögur sínar út af hækk- unum vegna bjargráðanna, hefðu þeir áætlað þær svo var- lega sem unnt væri. Benti hann á, að bæjarfulltrúi kommúnista Guðm. Vigfússon, teldi að út- gjaldahækkunin vegna bjargráð- anna ætti að vera meiri. Vék G H. að því að bæjarfulltrúi Fram- sóknarmanna teldi, að útgjalda- aukning yrði ekki nema 2,1 millj. vegna bjargráðanna, en það gæti verið hverjum bæjarbúa aug- Ijóst, að hækkunin hlyti að vera miklu meiri á heildarútgjöldum, sem nema á annað hundrað millj. kr. Benti G. H. ennfremur á að fulltrúar minnihlutaflokkanna viðurkenndu, að útgjöld ýmissa stofnana, svo sem strætisvagna og hitaveitu hlytu að hækka mjög verulega og lægi þá í aug- um uppi að hið sama gilti um I rekstur bæjarfélagsins sjálfs í I heild. Að lokum lýsti Geir Hallgríms- son afstöðu Sjálfstæðisflokksins til ályktunartillagna minnihluta flokkanna í heild og einstökum atriðum Kvað hann Sjálfstæðis- menn hafa markað stefnu sína í bæjarmálum skýrt og greinilega fyrir kosningar og mundu starfa að málum bæjarins á grundvelli þess. ítrekaði Geir Hallgrímsson að þrátt fyrir hinar gífurlegu á- lögur stjórnarvaldanna mundu Sjálfstæðismenn hafa útsvarsstig ann þann sama og áður, þannig að útsvar á sömu tekjur yrði ekki hærra en verið hefði. Á eftir G. H. töluðu þeir Guð- mundur J. Guðmundsson (K) og Alfreð Gíslason (K) og héldu mjög stuttar ræður. Var umræðum þar með lokið. Gaf forseti stutt hlé kl. rúmlega 7, til matar og mötuðust bæjar- fulltrúar í sal þeim, sem ætlaður er til veitinga og er á 6. hæð Skúlatúnsbyggingarinnar. Að því loknu fór fram atkvæðagreiðsla um framkomnar tillögur og álykt anir og voru tillögur Sjáifstæðis- manna, eins og þeim hefur verið lýst hér á undan, samþykktar. — Nefndarálit Framhald af bls. 11. félagið Hreyfill. — 6. Vörubíl- stjórafélagið Þróttur. — 7. Tré- smiðafélag Reyltjavíkur. — 8. Verzlunarmannafélag Reykjavík- ur. — 9. Landssamband íslenzkra verzlunarmanna. — 10. Hið ís- lenzka prentarafélag. — 11. Félag islenzkra prentmyndasmiða. — 12. Sveinafélag skipasmiða. — 13. Landssamband vörubifreiða- stjóra. — 14. Bifreiðastjórafélag- ið Neisti, Hafnarfirði. — 15. Bif- reiðastjórafélagið Fylkir, Kefla- vík. — 16. Samband matreiðslu- og framreiðslumanna. Frá mörgum öðrum hagsmuna- samtökum og samtökum framleið enda hafa Alþingi einnig borizt mótmæli. Má meðal þeirra nefna Landssamband ísl. útvegsmanna, sem lýsir því yfir í bréfi til Al- þingis, að stöðvun fiskiskipa- flotans liggi við borð, ef frum- varp þetta verði samþykkt óbreitt í aðalatriðum; ekkert samkomu- lag við samtökin hafi verið gert af hálfu ríkisstjórnarinnar, áður en málið var flutt. Enda þótt 3. minni hl. fjárhagsnefndar telji, að breyta þyrfti þessu frumvarpi í þýðingarmiklum atriðum, flytj- um við engar breytingartillögur varðandi meginefni og stefnu frv., enda hefur enginn tími gef- izt til þess að undirbúa. flutn- ing þeirra. Fyrir nokkrum breyt- ingartillögum, er við flytjum, verður gerð nánari grein í fram- sögu. Minni hlutinn telur sig af fram angreindum ástæðum ekki geta mælt með samþykkt frv. þessa. KAHNAR JÓNSSON hæstarctturlóginaður. Laugaveg, 8. — Sími 17752. Lögfræðistörf. — Eignaunisýsla. V inna Hreingerningar Vanir menn. Fljót og góð vinna. Sími 23039. — ALLI. Vegna farðarfarar verða verzlanir vorar lokaðar kl. 12—3 e.h. í dag. MARKAÐURINN, Hafnarstræti 5 MARKAÐURINN, Hafnarstræti M MARKAÐURINN, Laugaveg 89 Ragnar Þóðrarson & Co. h.f. Þakka auðsýnda vináttu á sjötugsafmæli mínu þann 27. þ.m. Thor Jensen Brand. Hjartanlega þakka ég börnum mínum aettingjum og vin um, sem heimsóttu mig og færðu mér gjafir á 70 ára af- mæli mínu 27. maí, og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. Ólafur Sigurðsson, Meiri-Turtgu. Hjartans þakkir mínar til allra vina minna og frænd- fólks hér og á Akranesi, sem minntust mín á áttræðis- afmæli mínu 22. þ.m. á marvíslegan hátt. Sérstakar þakkir vil ég færa frú Gróu Eyjólfsdóttur, frænku minni, sem tók á móti vinum mínum þennan dag á heimili sínu, og veitti af mikilli rausn, móður hennar frú Steinunni Sigugeirsdóttur færi ég sömuleiðis hjartans þökk fyrir alla hennar aðstoð við mig. Guð blessi ykkur öll. Jónína Þórðardóttir, Lokastíg 17, Reykjavík. Hjartanlega þakka ég öllum ættingjum og vinum er sýndu mér vináttu með heimsóknum og gjöfum á fimm- tugsafmæli mínu 25. þ.m. | Marís Arason. ** I Móðir okkar og fósturmóðir JÖHANNA Gl DHliN JÓHANNSDÖTTIR Vesturbraut 22, Hafnarfirði, andaðist í sjúkrahúsinu Sól- vangi, Hafnarfirði, 29. maí. Bergþór Albertsson, Albert Þorsteinsson, Guðrún Albertsdóttir, Steindóra Albertsdóttir. Fóstursystir mín GUDLAUG GlSLADÓTTIR frá Hofstönd andaðist á hvítasunnudag. JcU'ðað verður frá Fossvogskirkju mánudaginn 2. júní kl. 1,30. Halldóra Sigfúsdóttir. Eiginmaöur minn, faðir okkar, sonur og bróðir RAGNAR PÉTUR BJARNASON verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 31. maí. Athöfnin hefst með húskveðju á heimili hins látna, Austurvegi 65, Selfossi kl. 16.30. Þeir sem vildu heiðra minningu hins látna eru beðnir að láta líknarstofnanir njóta þess. Bílferð verður frá Bifreiðastöð íslands kl. 15. Katrín Elsa Jónsdóttir og böm. Þórhildur Hannesdóttir og börn. Maðurinn minn og faðir okkar INGIMUNDUR GUÐJÓNSSON verður jarðsunginn frá Útskálakirkju laugardaginn 31. maí. Athöfnin hefst með bæn að heimili hans Garðsstöð- um kl. 2 e.h. Jónína Guðmnndsdóttir og börn. Jarðarför HALLGRlMS sonar okkar, sem andaðist 22. maí, fer fram fer Sauðár- krókskirkju, laugardaginn 31. maí kl. 2 e.h. Rósa Þorsteinsdóttir, Tómas Hallgrímsson. Sauðárkróki. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinsemd við frá- fall og jarðarför föður okkar • KRISTINS G. GUÐBJARTSSONAR Kristjana L. Kristinsdóttir, Gissur J. Kristinsson. Hjartanlegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu samúð sína og hjálpsemi við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu KRISTÍNAR SNORRADÓTTUR frá Hæðarenda. Dætur, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.