Morgunblaðið - 30.05.1958, Blaðsíða 20
VEÐRIÐ
NA gola, léttskýjað.
119. tbl. — Föstudagur 30. maí 1958
Verðbólgufrumvarpið lögfest í gær
Samþykkt í efri deild með
10 atkv. gegn 7. Allar
breytingar Sjálfsfœðis-
manna felldar
EFNAHAGSMALAFRUMVARP ríkisstjórnarinnar var samþykkt
stm lög á fundi efri deildar Alþingis siðdegis í gær með 10 atkv.
gegn 7. Með frumvarpinu greiddu atkvæði allir þingmenn stjórnar-
flokkanna í deildinni nema Eggert Þorsteinsson. Hann greiddi at-
kvæði gegn frumvarpinu, svo og allir þingmenn Sjálfstæðisflokks
ins. Engar breytingartillögur náðu fram að ganga í efri deild.
Umræður í gær
2. og 3. umræða í efri deild um
efnahagsmálafrumvarpið fór
fram í gær. Fjárhagsnefnd deild-
arinnar hafði klofnað í þrennt.
Karl Kristjánsson skýrði nefnd-
arálit þeirra Björns Jónssonar,
en þeir vildu láta samþykkja
frumvarpið. Eggert Þorsteinssor
skilaði séráliti og mælti gegn
frumvarpinu. Sigurður Bjarnason
hafði framsögu f. h. þeirra Gunn-
ars Thoroddsens og andmælti
frumvarpinu. — Frá nefndaráliti
Sjálfstæðismanna er sagt á öðr
um stað í blaðinu í dag.
Auk þessara manna tóku til
máls í gær: Lúðvík Jósefsson,
Friðjón Þórðarson, Jóhann Þ.
Jósefsson og Guðmundur í. Guð-
mundsson.
Breytingartillögur
Ýmsar breytingartillögur komu
fram.
Gunnar Thoroddsen og Sigurð-
ur Bjarnason iögðu til:
— að heimilt skyldi að endur-
Frumsýningu
ágællega lekið
OPERETTAN „Kysstu mig Kata“
var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu í
gærkvöldi. — Áhorfendur tóku
óperettunni ágætlega og voru
hljómsveitarstjóri og leikstjóri
ásamt leikendum kallaðir fram
margsinnis að sýningunni lok-
inni.
Góð lambahöld
AKRANESI, 29. maí. — Enn
fjölgar fjárhópnum og fríkka
lömbin hjá Grími Magnússyni á
Grímsholti. Nú eru bornar hjá
honum 59 ær og komin 105 lömb.
Engin vanhöld eru á lömbunum.
— Oddur.
Vertíðarafli Ólafs-
víkurbáta um 6700 i.
ÓLAFSFIRÐI, 29. maí. — Á vetr
arvertíðinni sem lokið er fyrir
nokkru komu hér alls á land 6694
tonn af óslægðum fiski og er það
töluvert meira magn en á
vetrarvertíðinni 1957.
Þessir bátar voru með hæstan
afla: Jökull, skipstjóri Tryggvi
Jónsson, 882 tonn í 93 róðrum;
Bjarni Ólafsson, skipstjóri Jón-
steinn Halldórsson 817 tonn í 98
róðrum; Glaður, skipstjóri Krist-
mundur Halldórsson 781 tonn í
96 róðrum; Þorsteinn 714 tonn.
Var þessi bátur með hæstan afla
miðað við róðrafjölda. Hann fór
75 róðra, og hafði að meðaltali
9,5 tonna afla i róðri. Skipstjóri
á bátnum er Jón Magnússon.
Héðan munu trúlega fara 4 til 5
bátar á síldveiðar nyrðra en aðrir
munu fara á reknet í Faxa-
ílóa. — Bj.
greiða innflutningsgjald af hrá-
efnum til iðnaðar, er ríkisstjórn-
int telur það nauðsynlegt vegna
afkomu einstakra iðngreina
— að efnivara og þjónusta iðn-
aðarins skyldi undanþegin 6%
útflutningssjóðsgjaldi
— að gjald af innlendum toll-
vörutegundum skyldi innheimt
með 100% (ekki 150%) álagi.
Gunnar og Sigurður lögðu
ásamt Jóhanni Þ. Jósefssyni til.
að yfirfærslur vegna náms- og
sjúkrakostnaðar skyldu undan-
þegnar yfirfærslugjaldi.
Jóhann Þ. Jósefsson lagði til:
— að áhafnir skipa og flugvéla
skyldu greiða 30% yfirfærslu-
gjald (ekki 55%)
— að uppbætur skyldu greidd-
ar vegna fullverkunar fisks eftir
14. maí
— að vátryggingariðgjöld fiski-
báta skyldu greidd úr útflutnings
sjóði allt þetta ár.
Friðjón Þórðarson og Sigurður
Ó. Ólafsson lögðu til, að vinnu-
laun erlendra ríkisborgara, sem
ráðnir hafa verið til landbúnaðar
starfa hér á landi, skyldu undan-
þegin yfirfærslugjaldi til 1. nóv.
næstkomandi.
Atkvæðagreiðslur
Allar þessar breytingartillögur
Sjálfstæðismanna voru felldar.
Eftir 3. umræðu var frumvarpið
í heild samþykkt með 10 atkv.
gegn 7, sem fyrr segir. Eggert G.
Þorsteinsson gerði sérstaka grein
fyrir atkvæði sínu. Mælti hann
á þá leið, að frumvarpið skorti
nauðsynlegan stuðning verka-
lýðssamtakanna og þess vegna
væri hann því andvígur.
Ólafur Thors.
Mikið kal í lúnum
í Árneshreppi
GJÖGRI, Árneshreppi, 29. maí.
Sumarið byrjaði hér með norðan-
byl, og annað veifið hefir snjóað
alveg niður í fjöru. Frost hefir
verið svo að segja á hverri nóttu,
en undanfarna viku hefir veður
verið gott. Mikið kal er í túnum.
Sauðburður gengur vel, og eru
lömbin stór og vel frísk. Grá-
sleppuveiði hefir verið góð, þegar
gefið hefir á sjó. — Regína.
Olafur Thors rceðir
stjórnmálaviðhorfið
á aðalfundi Þorsteins Ingólfssonar
oð Klébergi í kvold
AÐALFUNDUR Sjálfstæðis-
félagsins „Þorsteins Ingólfs-
sonar“ í Kjósarsýslu verður
haldinn að Klébergi í kvöld.
Fundurinn hefst kl. 9.
Þar fara fram venjuleg
aðalfundarstörf, en auk þess
mun Ólafur Thors, formaður
Sjálfstæðisflokksins, og þing
maður Gullbringu- og Kjósar-
sýslu, flytja ræðu. — Talar
hann um þá atburði, sem orð-
ið hafa á sviði stjórnmálanna
síðustu daga og vikur.
Hin miklu pólitísku átök,
sem átt hafa sér stað að und-
anförnu, hafa verið aðalum
ræðuefni fólksins í landinu
og því sneru forystumenn
Sjálfstæðisflokksins í Kjósar-
sýslu sér til Ólafs Thors og
báðu hann að rekja gang
Fjölbreytt hátíðahöld
á Sjómannadaginn
málanna á aðalfundi félags-
ins í kvöld. — Munu margir
hafa hug á að hlýða á ræðu
Ólafs.
390 lonn á 12 dögum
HAFNARFIRÐI. — Eins og skýrt
hefir verið frá, hafa togararnir
aflað mjög vel síðustu vikurnar,
og þeir jafnan komið inn með
fullfermi eftir um 12—14 daga
útiveru. Landað hefir verið úr
þremur togurum núna í vikunni,
og var Bjarni r’ddari, skipstjóri
Júlíus Sigurðsson, aflahæstur.
Var hann 12 daga á veiðum og
fékk samtals 390 tonn af ísfiski,
sem er eitt mesta aflamagn tog-
ara hér í Hafnarfirði í ekki iengri
veiðiferð. 60 tonnum var skipað á
land fyrir vestan, en hingað kom
hann með 330 tonn. Bjarni ridd-
ari fór aftur á veiðar í gær.
G. E.
Kunnur V- íslend-
ingur í heimsókn
VESTUR-ÍSLENDINGURINN
Zophonías Þorkelsson og frú Sig-
rún kona hans komu hingað til
lands sl. þriðjudag.
Þau dveljast hér um óákveðinr.
tíma og munu ferðast nokkuð um
landið í sumar. Þau hjón eiga
marga vini hér á landi. Hér í
Reykjavík eru þau til heimilia
að Vesturbrún 38 hjá Guðsteini
Sigurgeirssyni, bróður frú Sig-
rúnar.
Hátíðahöld í Hafnar-
firði á morgun og
sunnudag
HAFNARFIRÐI — Nú er verið
að leggja síðustu hönd á allan
undirbúning fyrir hin miklu há-
tíðahöld, sem verða hér á morg-
un og sunnudag í tilefni af 50 ára
afmæli Hafnarfjarðar sem kaup-
staðar. Verður bærinn í hátíða-
skrúða þessa tvo daga, og fara þá
fram fjölbreytt hátíðahöld, sem
hefjast á laugardag með vígslu
hins nýja Bæjar- og héraðsbóka-
safns. Þar verður einnig sögusýn-
ing í tilefni afmælisins. Háð verð
ur keppni í Sundhöll Hafnar-
fjarðar við sundfólk frá Neskaup-
stað — og knattspyrnuleikur við
Reykjavík. — Barnaskemmtanir
verða í báðum bíóunum. — Um
kvöldið býður bæjarstjórnin gest-
NÆSTKOMANDI sunnudag, 1.
júní, er Sjómannadagurinn há-
tíðlegur haldinn um land allt.
í tilefni dagsins kvaddi Sjó-
mannadagsráð fréttamenn á sinn
fund í gær og skýrði frá helztu
atriðum væntanlegra hátíða-
halda. Verða þau með líku sniði
og undanfarin ár, hefjast með
hátíðamessu í Dvalarheimili
aldraðra sjómanna kl. 10 árdegis.
Kl. 13,30 ganga sjómenn fylktu
liði um bæinn með lúðrasveit í
broddi fylkingar, en kl. 14 hefst
útisamkoma við Austurvöll.
Verða flutt ávörp og ræður af
svölum Alþingishússins. Kl. 15,30
verður kappróður og sundkeppni
í Reykjavíkurhöfn, en um kvöld-
ið verða skemmtanir í Sjálf-
stæðishúsinu, Ingólfscafé, Silfur-
tunglinu og Breiðfirðingabúð.
Frá kl. 14 á Sjómannadaginn
hafa sjómannakonur kaffisölu í
Sjálfstæðishúsinu til ágóða fyrir
Dvalarheimili aldraðra sjómanna.
Að þessu sinni hafa konurnar
hugsað sér að verja ágóðanum
af kaffisölunni til kaupa á prjóna
vélum, saumavélum og öðrum
nauðsynlegum vinnutækjum í
vinnustofu kvenna í heimilinu.
Vegna þess hve mörg skip
eru stödd á hafi úti á Sjómanna-
daginn eru aðstandendur og vel-
unnarar sjómanna hvattir til að
taka þátt í skrúðgöngunni.
Lislmunauppboð
kl. 5 í dag
SIGURÐUR Benediktsson heldur
listmunauppboð í Sjálfstæðishús-
inu kl. 5 í dag. Seldar verða 45
myndir, þar af 5 eftir Ásgrím
Jónsson og 6 eftir Kjarval. Auk
þess verða seldar myndir eftir:
K. Pfeiffer, Ben. Guðmundsson
Jón Helgason, Einar Jónsson, Jó-
hannes Geir, Jens Eyjólfsson,
Kristján Davíðsson, Solveigu
Eggerz, Finn Jónsson, Eyjólf
Eyfells, E. Walters, Svein Þórar-
insson, Karen A. Þórarinsson,
Magnús A. Árnason, Gunnlaug
Blöndal, Guðmund Einarsson.
Engilberts, Eggert Guðmundsson,
Scheving, Jón Þorleifsson, Mugg
og Þórarin B. Þorláksson.
Munirnir eru til sýnis í dag
kl. 10—4.
Ný lög
Á FUNDI neðri deidar í gær
voru tvö frumv. samþykkt sem
lög: 1) Frumv. um mannfræði- og
æltfræðirannsóknir (um skyldu
presta til að skrá æviatriði þeirra
sem andast í söfnuðum þeirra.
2) Frumv. um réltindi vélstjóra.
Breytingartilögur, sem Ásgeir
Sigurðsson flutti við síðara
frumv., náðu ekki fram að ganga.
AKRANESI, 29. maí. — Síldar-
bátarnir, en sex eru byrjaðir,
voru í dag með 10—90 tunnu afla.
Hingað kom í dag erl. fisktöku-
skip og á morgun er Reykjafoss
væntanlegur til að lesta fiskimjöl.
um til afmælisveizlu f Alþýðu •
húsinu, og verða meðal boðsgesta
fulltrúar frá vinabæjum Hafnar-
fjarðar í Danmörku, Noregi og
Finnlandi.
Á sunnudag kl. 10 f. h. verða
guðsþjónustur í báðum kirkjun-
um. Þann dag verður samvinna
um hátíðahöldin af hálfu hátíðar-
nefndar Hafnarfjarðar og sjó-
mannadagsráðs Hafnarfjarðar, en
þá er eins og kunnúgt er sjó-
mannadagurinn. XI. 1,30 verður
safnast saman við Ráðhúsið og
gengið þaðan í skrúðgöngu með
Lúðrasveit Hafnarfjarðar í farar-
broddi, stjórnandi Albert Klahn,
um nokkrar götur og síðan stað-
næmst við hátíðasvæðið, sem er
við Strandgötu. Þar setur Krist-
inn Gunnarsson hátíðina og
Stefán Gunnlaugsson bæjarstjóri
flytur ræðu; lúðrasveitin leikur;
karlakórinn Þrestir syngur undir
stjórn Páls Kr. Pálssonar; full-
trúi Sjómannadagsins, Sigurjón
Einarsson, forstjóri, flytur ræðu,
og þrír aldraðir sjómenn verða
heiðraðir. Þá fer fram fimleika-
sýning, handknattleikur, róðra-
keppni og reiptog. Kl. 6,30 verð-
ur settur hátíðafundur í bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar og er öllum
heimill aðgangur. Kl. 8,15 hefjast
svo' útihátíðahöld að nýju og verð
ur margt til skemmtunar og dans
stiginn. —. Þá skal þess getið, að
frá kl. 3—6 á sunnudag verða
ókeypis kaffiveitingar í þremur
samkomuhúsum í bænum. — G.E.
Munið að gera skil
Op/ð til kl. 6, simi 1-71-04.
Sækjum heim
Happdrætti Sjálfstæðisflokksins