Morgunblaðið - 25.06.1958, Side 11

Morgunblaðið - 25.06.1958, Side 11
lÆirWi'Viirtawnr 25. íúní 1958 MORCVISRT 4Ð1Ð !! 75 ára i dag: Ólöf á Neðra-Hálsi ÓLÖF er íædd að Kiðafelli 25. júní 1883 dóttir hjónanna Guð- rúnar Gísladóttur og Gests Jóns- sonar. Árið 1901 giftist hún And- rési Ólafssyni, organleikara frá Bæ í Kjós, síðar hreppstjóra á Neðra-Hálsi. Hann andaðist árið 1931. Þau hjón eignuðust 14 börn, og eru 12 þeirra á lífi sex stúlk- ur og sex piltar. Öll eru börnin gift, sex búsett í Reykjavík, 5 í Kjósinni og 1 á Norðurlandi. Þessum mannvænlega hópi þarf ekki að lýsa fyrir þeim, sem þetta fólk þekkir, en þeir eru orðnir æði margir, sem kynnzt hafa Neðra-Háls heimilinu. Ólöf hefur skilað miklu og góðu dagsverki, og skilað því mað sæmd. Eins og Félagslíf Ferðafélag íslands. 13 daga ferð um Norður- og Aust- urland, — 2. júlí næstkomandi hefst lengsta sumarleyfisferð Ferðaféiags Islands um Norður- og Austurland. Verður farið alla leið austur á Norðfjörð, auk þess um Fljótsdals- hérað og Borgarfjörð eystra. Á norðurleiðinni verða þessir staðir skoðaðir meðal annars: Vatnsdalur, miðbik Skagafjarð- ar, Akureyri, Vaglaskógur, Goða- foss og Mývatnssveit, en þar verð ur dvalist daglangt. Á Austurlrndi verður gist á Egilsstöðum g í Hallorm'sstaðar- skógi. Á Vesturleið verður komið að Dettifossi og haldið þaðan ofan í Axarfjörð og gist í Ásbyrgi, Grettisbæli, skoðað og fleiri staðir, en ekið kvöldið eftir um Reykja- heiði, Húsavík og að Laxárfoss- um, að Laugarskóla. Næsta dag verður ekið inn í Eyjafjörð, og dvalið síðari hluta dags og næstu nótt á Akureyri. Á bakaleið um Skagafjörð, verður úthéraðið skoð að sögustaðir þess og fleira, en gist á Hólum í Hjaltadal. Á suðurleið munu ýmsir staðir í Borgarfirði verða heimsóttir, m. a. Laxfoss, Hieðavatn og Reyk- holt, en síðan ekið til Reykjavíkur um Uxahryggi og Þingvöll. Þessi leið, er geysi f jölbreytt og fögur. Farið verður hægt yfir, og lögð áherzla á að fei'ðin verði í senn kynnis- og skemmtiferð. Tjöld verða með í fex-ðinni, en þeim útveguð gisting á gististöð- um, er þess óska. Eins geta far- þegar haft með sér mat eftir því sem hver vill, en keypt einstakar máltíðir. Nánari upplýsingar um ferðina fást í skrifstofu félagsins Tún- götu 5, sími 19533. Ferðaskrifstofa Páls Arasonar sími 17641. 8 daga ferð um Norður- og Austur- land hefst 28. júní. 14 daga hringferð um ísland hefst 28. júní._________ íslundsmói 2. fl. A. —— á Háskóla- vellinum, miðvikudaginn 25. júní kl. 20.00. K.R.—-Þróttur. Dómari: Hannes Sigurðsson. Kl. 21.15 l.A.—I.B.K. Dómari: Magnús Pét ursson. — Mótanefndin. löngum vill verða á langri ævi, hefur Ólöf fengið að kynnast bæði því blíða og stríða um æv- ina, bæði í sambandi við ást- vinamissi, og einnig nokkurn heilsubrest hin síðari árin. Allt þetta hefur hún borið með mik- illi prýði. Þó hygg ég, að hún mun telja fleiri sólskinsbletti í sinu lífi en þá, sem við köllum dökku hliðina á lífinu. Annars var ekki ætlun mín að fjölyrða um æviferil Ólafar. Og vel má vera, að ég fái bágt fyrir að hafa fest þessar línur á blað. En á það mun nú samt hætt að þessu sinni. Ekki kæmi mér á óvart, þó að Ólöfu bærust marg- ar hlýjar kveðjur í dag. Eina slíka kveðju vildi ég senda hér, góða vinkona, — og þakka liðna tíð. St. G. LÁN Get útvegað allt að 200 þús. kr. lán til 15 ára á 1. eða 2. veðrétti í góðri íbúðarhæð eða fasteign með líkum skil- málum og markaðsverð ríkistryggðra bréfa er nú. Þeir, sem hafa áhuga á þessu leggi nöfn og símanúmer inn á afgr. Mbl. merkt: „Fasteignalán — 6288“ fyrir föstudagskvöld. VIÐ AFGREIÐUIU FISKIBÁTA af öllum stærðum á samkeppnisfæru Verði. — Af- greiðum emnig nýbyggingar eftir íslenzkum teikn- ingum. JÖRG. ULV0EN A/S Torvalm. 1 — Pósth. 1140 — Bergen, Norge. TIL SOLI) lítið slitinn 5 manna DODGE WEAPON. Uppl. í síma 19729 og 15054. Endurskoðun Get bætt við mig bókfærslu og endurskoðun fyrir nokkur fyrirtæki. Sími 14024, eftir kl. 17. ÁRNI BJÖRNSSON, löggiitur endurskoðandi. Síldarstúlkur óskast til Raufarhafnar. Frítt far og kauptrygging. Upplýsingar í síina 16762 eftir kl. 7 í kvöld og næstu kvöld. Enskar kápur Enskar dragtir Sumartízkan 1958 MmABIIItlNN Laugaveg 89 — Hafnarstræti 5 Silfurtunglið Cömlu dansarnir í kvöld kl. 9. Stjónandi Helgi Eysteinsson. ÖKEYPIS AÐGANtiUR. ATH. AUSTURBAR opnar kl. 6 á morgnanna. Heitur matur, Kaffi og fleira. SILFURTUNtiLIÐ Sími 19611. Utvegum skemmtikrafta. Sími 19611, 19965 og 11378. Þúrscafe MIÐVIKUDAGUR DAM8LEIKUR AÐ ÞÓRSCAFÉ í kvöld kl. 9 K.K.-SEXTETTINN LEIKCR Söngvari: Ragnar Bjarnason. Sími 2-33-33 16710 fflmi 67 0 fg K. J. kvintettinn. K**! Dansleikur ^ Margret í kvöld klukkan 9 Gunnar Aðgöngumiðasala frá kl. 8. ' Söngvarar Margrét Ólafsdóttir og Gunnar Ingólfsson. at Vetrargarðurinn. Andvari — Hrönn — Gefn — Hálogaland — Framtíðin Ungtemplarar! Farið verður í Húsafellsskóg, helgina 28. og 29. júní. Þátttaka tilkynnist í Reykjavík í Góðtempl- arahúsið í dag kl. 6,30—8,30. í Haínarfirði til Svanhvítar Magnúsd., Sunnuv. 11. — Hálft fargjaldið ca. kr. 60.00 greiðist við þátttökutilkynningu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.