Morgunblaðið - 07.08.1958, Page 14

Morgunblaðið - 07.08.1958, Page 14
14 MORGUNBLAÐ1Ð Fimmtudagur 7. ágúst 1058 — Helgi Tómasson Framh. af bls. 9 Helga og Kristínu Bjarnadóttur, sem nú var orðin konan hans, á heimilj þeirra í Kaupmannahöfn, og naut þar alúðlegrar gestrisni þeirra, en Helgi var þá orðinn starfandi læknir þar. Kynni okkar voru endurnýjuð allmiklu seinna, er við hjónin einnig fluttum heim til íslands, og undanfarin 12 ár, eða því sem næst, höfum við Helgi starfað saman í stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur. Mun ég ávallt minn ast þess samstarfs með ánægju og þakklæti. Einnig hefir dr. Helgi verið álíka lengi varamaður í stjórn Skógræktarfélags íslands og tek- ið virkan þátt í stjórnarstörfum þess félags. En með þéirri stórfelldu skóg- rækt, sem hann undanfarna tvo áratugi hefir, ásamt fjölskyldu sinni, lagt stund á á jörð sinni, Hagavík í Grafningi, hefur hann reist sér minnisvarða, sem verða mun stærri og veglegri eftir því sem árin líða. Stórt skarð hefur verið höggv- ið í fylkingu íslenzkra skóg- ræktarmanna við fráfall dr. Helga Tómassonar, en minningin um hans ötula starf og óbilandi trú og kjark hlýtur að verða þeim, sem eftir lifa og kynntust störfum hans á þessum vettvangi, hvatning til starfa í þágu íslenzkr ar skógræktar. Sennilegt er, að dr Helga hafi fundizt hann eiga eitt og anpað ógert ennþá. Hann mátti heita enn á bezta aldri, aðeins rúm- lega sextugur, sístarfandi, hug- myndaríkur, léttur í spori, sem ungur væri. En sl. haust veiktist hann skyndilega, og eftir þaðvarð hann að fara mjög /gætilega með sig, en trúlegt er, að ekkj hafi honum verið að skapi að hafa það sem meginlífsreglu. Oft kom mér til hugar, að um fjör og eldlegan áhuga mum dr. Helga Tómassyni hafa svipað töluvert til langafa síns, Tómasar Sæmundssonar. Að lokum vil ég votta frú Ragnheiði ekkju dr. Helga, litla drengnum þeirra og börnum dr. Helga af fyrra hjónabandi inni- lega hluttekningu við missi ást- kærs maka og föður. Guðmundur Marteinsson. ★ SKÓGRÆKTARMENN um land allt harma hið sviplega fráfall dr. Helga Tómassonar. Hann sat í varastjórn Skógræktarfélags ís- lands frá árinu 1942 og í stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur frá stofnun þess árið 1946. Enn- fremur stundaði hann skógrækt á jörð sinni, Hagavík í Grafn- ingi, af meiri elju en nokkur annar einstaklinguar hefur gert á landi hér. Dr. Helgi var því í senn bæði ágætur félagsmaður og athafnasamur skógræktarmað- ur. Stjórnarfundi og félagsfundi hafa fáir rækt betur en dr. Helgi. JÞað hefur lengi verið siður að varastjórnendur kæmu á stjórn- arfundi Skógræktarfélags íslands, og var dr. Helgi því tíður gestur í húsakynnum skógræktarinnar. Á fundunum bar margt á góma og reyndist okkur dr. Helgi bæði tillögugóður og skjótur til ákvarð ana. Bjartsýnn var hann á skóg- ræktina og stundum svo, að okk- ur þótti nóg um. Stöku sinnum kom það fyrir að menn voru ekki sammála og voru þá brýnur all snarpar. En það var ávallt á þann veg að menn höfðu gagn og gam- an af í lokin, ekki sízt fyrir það hve dr.- Helgi var hreinn og beinn í öllu og fór ekki dult með skoð- un sína. Helga Tómassyni auðnaðist sú ánægja að sjá hundruð þúsunda trjáplantna af ýmsum stofnum vaxa upp á landi sínu og komast yfir erfiðasta hjallann. Þrátt fyrir ýmis áföll, sem trjágróður hans varð fyrir, er hann í örum og góðum vexti. Handaverka hans mun lengi gæta í íslenzkri skóga- sögu. Skógræktarfélagar hans munu lengi minnast hans með þakklæti og hlýjum hug. Ekkju hans, frú Ragnheiði Brynjólfsdóttur, börn- um hans og öðrum ástvinum send um við innilegustu samúðar- kveðjur. Hákon Bjarnason. Katrín Jónsdóttir kennari — minningarorð F. 2. nóv. ’07. — D. 29. júlí ’58. „HÚN Katrín okkar er dáin!“ Fregnin var svo sár og kom svo óvænt, að mig sundlaði við, þótt dauðinn sé alltaf sá gestur, sem hver og einn á vísastan. Katrín var fædd 2. nóv. 1907 að Hraunkoti í Landbroti, dóttir hjónanna Jóns Jónssonar frá Seglbúðum og Ólafíu Gunnars- dóttur frá Flögu í Skaftártungu. —• Föður sinn missti Katrín, er hún var á fyrsta ári, en ólst upp hjá móður sinni og stjúpföður, í ástúðlegum hópi eldri og yngri systkina. Góðar gáfur og nám- fýsi, ásamt athafnaþrá og fórnar- lund, munu hafa vísað henni veg til kennaranáms og kennslu- starfs. Brautskráðist hún úr Kennaraskóla Islands vorið 1929, kenndi hin næstu ár í átthögum sínum, en fór utan 1934 til fram- haldsnáms. Sótti hún þá nám- skeið bæði í Svíþjóð og Dan- mörku. — Haustið 1935 gerðist hún kennari við Austurbæjar- skólánn í Reykjavík og kenndi þar óslitið upp frá því. Fyrir ári síðan fékk hún orlof samkvæmt lögum, til námsdval- ar érlendis, og hlökkuðum við sannarlega til að heimta hana heim með endurnýjaðan anda og hönd, eftir þessa löngu útivist. Því að alltaf þótti okkur mikið vanta í hópinn er Katrín var fjarstödd. En það kom ekki oft fyrir, því að bæði var að hún var heilsuhraust, enda skyldu- rækin í störfum svo af bar. — Hafði hún óvenju fjölskrúðugar gáfur, hagleikskona jafnt í hugs- un og verki, listfeng og smekk- vís. Og allt hennar dagfar — öll hennar umgengni við nemendur og samstarfsmenn — bar þennan sama, hreina göfugleikablæ, sem aldrei brást, og ég hygg að þeim öllum verði hugstæður. — Ef til vill var yfirlætisleysi hennar um of, svó að kalla mátti hlé- drægni. Því er hætt við, að hún hafi ekki haldið svo til haga verkum sínum, sem æskilegt Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem glöddu mig með heimsóknum, gjoium og skeytum á 65 ára afmæli mínu. Þorgerður Sigurðardóttir. 30 lítra Hrærivél til sölu Ný uppgerð, hentug fyrir veitingahús, brauðgerð eða sælgætisgerð. Upplýsingar í síma 23948 milli 4—7 í dag. hefði verið, og færri en skyldi gert sér grein fyrir hæfileikum hennar. En Katrín var ekki aðeins mikil í starfi sínu, heldur og í frændsemi sinni, vináttu, samúð í sorg og gleði, þátttöku í skemmtistundum og vinafund- um. — Hvarvetna stafaði frá henni þetta óbrigðula öryggi, sem henni var svo létt um að veita og vinum hennar svo Ijúft að njóta. Og að vísu er gott, hverjum sem þannig er gerður, að þurfa aldrei að reyna van- mætti elli né afturfarar. Fáa vissi ég kunna að njóta óbyggðafegurðar og öræfadýrð- ar af jafnheilli sál og einlægum huga — og fáar konur þekkt, sem á háskastundum kunnu að takast á við höfuðskepnurnar með slíkri festu og rósemi sem hún. — Félagssystur hennar í íþróttafélagi kvenna og aðrir, sem gist hafa fjallaskála þeirra, munu seint gleyma hennar fals- lausu húsmóðurhlýju, sem átti jafnan sinn þátt í að gera dvöl- ina þar tiltölulega óháða vindi og veðrum. Dýpstar rætur og heilastar mun Katrín þó hafa átt á æsku- stöðvum sínum, meðal systkina og frændliðs. Þar hygg ég hún hafi löngum verið hjálparhella og heilladís. — Þeirra sorg verð- ur ekki lýst og þeim sendi ég mínar ynnilegustu samúðar- kveðjur. En þótt heimkoma hennar til átthaganna nú, sé með öðrum og daprari hætti en vonir stóðu til, má það vera harmabót, að þessi góða systir og frænka, kemur samt heim úr sigurför. Hvarvetna uxu henni bióm í sporum og alla stund gerði hún sér far um að verða samtíð sinni að láni og liði. Guð blessi minningu hennar. Jarþrúður Einarsdóttir. Þegar kvikmyndin „Stríð og friður“, sem gerð er eftir sogu Tolstoy, var frumsýnd í Kaupmannahöfn, var ýmislegt gert til þess að vekja athygli á myndinni. M. a. var boðið þangað 18 ára enskri stúlku, Jessie Steadman að nafni. Hún hefur vakið athygii fyrir það eitt að líkjast mjög kvikmyndadísinni Audrey Hepburn í útliti. Hér sést Jessie í fylgd með tveimur „hermönn- um NapoIens“. Prestaíundir á Sauðárkróki og að Ilólum LAUGARDAGINN 9. ágúst og sunnudaginn 10. ágúst verður haldinn aðalfundur tveggja prestafélaga á Sauðárkróki og að Hólum. Minnzt verður 40 ára af- mælis Prestafélags íslands og 60 ára afmælis Prestafélags Hóla- stiftis hins forná. Vöruhappdrœtti S.Í.B.S. 1000.000,00 kr. 14303 14426 14560 14988 15097 25363 15627 16108 16176 16380 16385 16496 16932 17032 17253 17270 50.000,00 kr. ' 17442 18013 18097 18256 18355 934 18539 18610 18994 19043 19068 19099 19154 19369 19379 19428 10.000,00 kr. 19602 19746 19892 19895 20420 4707 12416 18562 28410 38212 20875 20902 20983 21015 21020 41207 45623 59864 60772 21147 21448 21629 21652 21702 21769 21846 21860 22293 22628 5.000,00 kr. 22668 22902 23114 23215 23905 2977 2986 9972 23030 27374 23925 24080 24127 24335 24723 z/483 35242 35916 37455 52719 24771 24779 24816 25197 25355 56437 61257 61649 64527 25483 25485 25677 25985 26196 26279 26422 26436 26560 26739 1.000,00 kr. 26813 26830 26962 27026 27095 2305 7933 8538 16650 24040 27312 27384 27926 28355 28766 24394 24510 25782 26519 26701 29182 29218 29221 29258 29333 32804 33535 34112 35358 36462 29793 29902 29907 29959 30054 37946 38568 41880 43796 44473 30175 30228 30352 30500 30617 44592 45524 47605 47956 48763 30618 30636 30785 30802 30828 49998 50255 51125 51752 53345 31004 31148 31296 31501 31934 54122 58083 63182 64380 64538 32041 32090 32263 32470 32521 32741 33182 33528 33647 33815 500,00 kr. 34623 34975 35003 35010 35074 114 215 256 498 692 35216 35538 35941 35954 36364 745 958 1057 1202 1292 36734 36752 36854 37093 37126 1546 1678 2465 2495 2808 37424 37626 37706 38096 38197 2854 3093 3435 3473 3838 38272 38311 38863 38866 33872 4053 4061 4066 4269 4247 39191 39395 39506 39588 39654 4280 4476 4625 4913 5400 39843 39867 39930 40098 40141 5610 5770 5834 5848 5994 40178 40430 40978 41076 41610 6329 6338 6907 7144 7180 41616 42044 42085 42228 42304 7353 7441 7606 7661 7867 42499 42961 42975 43070 43377 7895 7958 8147 8183 8205 43719 44137 44144 44261 44396 8417 8645 8693 8850 9163 44463 44760 45155 45181 45487 9416 9644 9710 9916 9933 45521 45546 45616 45730 45898 10507 10577 10957 11060 11281 45929 45994 46074 46097 46163 11367 11369 11574 11781 11958 46171 46408 46515 46734 46806 12439 12686 12698 13083 13228 46903 46929 46967 47023 47359 13400 13926 14189 14217 14229 47398 47788 47808 47872 47877 Dagskrá verður í aðalatriðum þannig: Á laugardaginn kl. 10 hefjast aðalfundarstörf Presta- félags Hólastiftis, kl. 1—3 verða aðalfundarstörf Prestafélags Is- lands og kl. 4 hefjast fyrirlestrar. Próf. Sigurbjörn Einarsson talar um Biblíuna, vísindin og henns- myndina, og fíl. kand. Jón Hnef- ill Aðalsteinsson um siðtræði Kants. Um kvöldið verður guðs- þjónusta í Sauðárkrókskirkju. Sr. Gísli Kolbeins predikar. Á sunnudaginn verður morgun bæn í Hóladómkirkju rpeð leið- sögn sr. Sigurðar Pálssonar og kl. 2 messa í Hóladómkirkju, sr. Ingimar Ingimarsson predikar og sr. Sigurður Stefánsson prófastur minnist 60 ára afmælis Presta- félags Hólastiftis. Kl. 5 verður almenn samkoma í Hóladóm- kirkju. Þar halda þeir ræður, sr. Sigurður Einarsson, sr. Jón M. Guðjónsson, sr. Kristján Róberts- son, sr. Þórir Stephensen og Þor- leifur Kristmundsson. Um kvöid- ið verður samsæti að Hóium fyrir presta og gesti þeirra. Fundarmenn munu gista bæði á Sauðárkróki og Hólum Pró- fasturinn á Sauðárkróki, séra Helgi Konráðsson, hefur góðfús- lega lofað að veita þátttakendum aðstoð við útvegun gistingar eftir föngum, og er æskilegt að þeir tilkynni sem fyrst ef þeir þurfa á slíkri aðstoð að halda. 47961 48217 48410 48569 48682 48786 48793 48812 48921 48978 49065 490209 49473 49657 49864 50337 50511 50728 51032 51159 49892 49957 49981 50053 50184 51406 51432 51638 51654 52164 52353 52420 52450 52603 52613 52694 52798 53194 53544 53668 53881 54252 54440 54738 54771 55119 55141 55166 55388 55550 55763 55883 55929 55987 56136 56584 56601 56705 56914 56934 56981 57099 57224 57227 57319 57565 57985 58128 58189 58482 58694 58785 58791 58971 59061 59197 59399 59564 59570 59616 59922 60256 60300 60325 60609 60616 60734 60853 60958 61177 61885 61920 62134 62390 62640 62826 62981 63134 63136 63338 63499 63598 64017 64547 64694 (Birt án ábyx’gðar).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.