Morgunblaðið - 19.08.1958, Page 8
e
MORCUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 19. ágúst 1958
Otg.: H.f. Arvakur, Heykjavík
Framkværndastióri: Sigfús Jónsson.
Aðairitstjórar: Valtýr Steíánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Ola, simi 3.3045
Auglýsingar: Arní Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðaistræti 6.
Auglýsingar og aigreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22480.
Askriftargjald kr 35.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 2.00 eintakið.
V-STJÓRNIN ÝMIST ÞEGIR EÐA
SEGIR AÐEINS HÁLFA SÖGUNA
HTAN IIR HEIMI
Sousfelle vinnur að einhœfingu opin-
berrar franskrar upplýsingaþjónustu
Frönsk blöð og erlendir fréttaritarar
i Frakklandi telja frelsi sinu ógnað
LENGI mun í minnum höfð
sú fréttaþjónusta mál-
gagns forsætisráðherra,
að meta meira að segja íslenzk-
um almenningi frá því, að dreng-
ur í Englandi, þó að sonur drottn-
ingarinnar sé, hafi tapað bolta í
leik, heldur en að sjávarútvegs-
málaráðherra íslands hafi farið
í opinbera heimsókn til Moskvu.
Þögn stjórnarblaðanna og ríkis-
útvarpsins um þetta ferðalag
Lúðvíks meðan á því stóð, er
vissulega löguð til þess að auka
á þann kvíða, sem Alþýðublaðið
fyrir skemmstu sagði, að almenn-
ingi væri í huga vegna landhelg-
ismálsins.
I skjóli þagnarinnar hafa margs
konar kviksögur komizt á kreik.
Ýmsir fullyrða, að Lúðvík hafi
farið á vegum allrar ríkisstjórn-
arinnar í leynilegum erindum
hennar í sambandi við landhelg-
ismálið. Morgunblaðið leggur
ekki trúnað á þá sögu. Engar
líkur eru til, að öll ríkisstjórnin
hafi það traust á Lúðvík Jósefs-
syni, að hún hafi samþykkt að
senda hann einan úr landi til að
semja um neitt í sambandi við
landhelgismálið. Þögn stjórnar-
liða hér um ferðalag Lúðvíks get
ur og ekki komið af því, að þeim
detti í hug, að unnt sé að halda
ferðinni leyndri fyrir gagnaðilr
um okkar í landhelgismálinu. Al-
þjóðlegar" fréttastofnanir sögðu
strax frá komu Lúðvíks til
Moskvu, svo að erlendis hefir
ferðalagi hans síður en svo verið
haldið leyndu.
★
Hitt er miklu sennilegra, að
hvert sem erindi Lúðvíks var,
hvort það hefur verið í sambandi
við landhelgismálið eða eitthvað
annað, þá sé ríkisstjórnin sjálf
ósammála um það eða ekki til
hlítar um það kunnugt. Af þeim
orsökum hafi forsætisráðherra
knúið fram þögn stjórnarblað-
anna til að forðast, að enn eitt
deiluefnið bættist við í allra aug-
sýn. Að vísu er sú aðferð sízt
hyggileg eða líkleg til að draga
úr bollaleggingum innanlands og
utan um ferðalag Lúðvíks.
En þeir, sem þessum aðförum
stjórna, eru ekki vanir að segja
allan sannleikann. Þeir telja, að
þögn um mikilvægar staðreynd-
ir, hálfsögð saga og jafnvel hrein
ósannindi séu sjálfsögð vinnu-
brögð í stjórnmálabaráttunni.
Með þessu svíkja þeir í senn al-
menning og sjálfa sig, svo sem
glögglega kom fram í ræðu Her-
manns Jónassonar við hátíða-
höldin austur við Efra-Sog sl.
laugardag.
Það -var að vísu virðingarvert,
að forsætisráðherrann talaði við
þetta tækifæri svo sem hann
tryði ekki þeim ósannindum, sem
Tíminn hefir i meira en eitt ár
þrástagazt á, að Sjálfstæðismenn
hafi reynt að koma í veg fyrir
virkjun Efra-Sogsins með því að
spilla fyrir lántöku til verksins.
En Hermann brá fyrir sig öðru
gamalreyndu Tíma-ráði. Hann
sagði einungis hálfa söguna af
því, sem hann þóttist vera að
fræða menn um í ræðu sinni. Svo
sem þegar hann sagði, að virkj-
unina hefði ekki mátt hefja
seinna en varð, og er hann reyndi
að afsaka vöxt ríkisskuldanna
með því hversu gífurlegar fjár-
hæðir þyrfti að taka að láni til
þessa mannvirkis.
★
Auðvitað er það rétt, að fram-
kvæmd virkjunar Efra-Sogs
mátti ekki dj-agast. En þegar
stjórnarliðar hælast nú um yfir
því, að V-stjórnin hafi útvegað
lán til Sogsvirkjunarinnar, sem
stjórn Ólafs Thors hafi ekki tek-
izt, þá blanda þeir mjög málum.
Sjálf fékk V-stjórin ekki lán
í þessu skyni fyrr en hún hafði
fallið frá yfirlýsingum sínum um
að reka hið erlenda varnarlið á
brott. Þjóðviljinn fór á sínum
tíma ekki dult ineð sambandið
þar á milli. Stjórn Ólafs Thors
átti hins vegar kost á því, að fá
lán til Sogsvirkjunarinnar vorið
1956 í Bandaríkjunum með þeim
skilyrðum, að rétt þótti að doka
við fram yfir kosningar til að
sjá hvað verða vildi. Samtímis
bárust tilboð um lán frá Vestur-
Þýzkalandi, tilboð, sem núver-
andi ríkisstjórn af einhverjum
ástæðum virðist ekki hafa sinnt,
þó að hún ella hafi verið ólöt
við lántökurnar.
Söguburður stjórnarliða nú á
að sanna, að Bandaríkjamenn
hafí verið ófáanlegir til að lána
ríkisstjórn Sjálfstæðismanna og
Framsóknarmanna peninga til
þarflegra framkvæmda, en óð-
fúsir til að veita slíkt lán eftir
að kommúnistar voru komnir í
stjórn í stað Sjálfstæðismanna.
Slíkur boðskapur um starfshætti
Bandaríkjastjórnar mundi áreið-
anlega víða þykja tíðindum sæta,
ekki sízt í Bandaríkjunum sjálf-
um.
★
Um vöxt ríkisskuldanna er
ekki nema von að forsætisráð-
herrann geri sér tíðrætt. Þær
hafa í stjórnartíð hans vaxið
svo, að fullrar umræðu er vert.
En því miður fær það ekki stað-
izt, að vöxturinn hafi aðallega
orðið vegna Sogsvirkjunarinnar.
Enginn Islendingur hefur á móti
þvi, að fé sé tekið að láni í slíku
skyni. En það er ekki nema brot
skuldaaukningarinnar, sem hægt
er að skýra á þann veg.
Eitt af því, sem stjórnin nú
varast að láta almenning vita, er,
hversu skuldaaukníngin er mikil.
Stjórnin hefur t. ... e. 1 feng
izt til þess að skýra frá nvernig
rússnesku lántökunni líði. Eftir
jíðustu skýrslum verður að ætla,
að skuldaaukningin á tveimur
valdaárum V-stjórnarinnar sé
a. m. k. 500 milljónir króna mið-
að við gengið áður en bjargráðin
komu til. Þessi skuldaaukning
verður ekki nema að litli leyti
skýrð rceð óvenjulegum fram-
kvæmdum.
Það er halli þjóðarbúsins, sem
kemur fram í hinni geigvænlegu
skulda-aukningu. Þann halla átti
að reyna að stöðva með bjarg-
ráðunum í vor. Flestir eru nú
orðnir vonlausir um, að það muni
takast. Sú yfirlýsing Hermanns
Jónassonar að enn sé ekki komið
að því, að ríkisskuldir íslands
séu orðnar of miklar, bendir ein-
dregið til þess, að hann muni á-
fram reyna að halda skútu sinni
fljótandi með nýjum og nýjum
lántökum.
JACQUES SOUSTELLE hefir
ekki legið á liði sínu, síðan de
Gaulle gerði hann að upplýsinga-
málaráðhel-ra — embættisveiting
þessi hefir að nokkru verið við-
urkenning til handa frönsku upp-
reisnarmönnunum í Alsír en jafn-
framt öryggisráðstöfun, þar sem
de Gaulle hefir talið það heilla-
vænlegra að hafa Soustelle und-
ir handarjaðri sínum. Og Sou-
stelle hefir notað tækifærið til að
gera miklar breytingar á allri
stjórn franska útvarpsins og sjón-
varpsins. Ekki verður betur séð
en að hann ætli sér að hreinsa
rækilega til á þessum vettvangi.
—o—
Tylft manna í æðstu stöðum
við útvarpið og sjónvarpið hefir
nú látið af embætti, og Soustelle
hefir skipað fylgismenn sína í
staðinn. Blaðanefnd þingsins, sem
enn starfar að nafninu til, sam-
tök blaðaéftgefenda og upplýsinga
skrifstofur hafa bent á, hvert
stefnir, en eigi að síður hefir
verið haldið áfram einhæfingu
opinberrar franskrar upplýsinga-
þjónustu, og er einhæfingin nú
kommúnista
MOSKVU 15. ágúst. — Russ-
nesku blöðin ræddu fyrst í dag
um tillögur þær, er Eisenhower
forseti lagði fram í Allsherjar-
þinginu Arabaríkjunum til bjarg
ar. Sögðu blöðin, að hér væri um
að ræða tilraun til þess að hliðra
sér hjá að ræða meginatriðið:
Brottflutning brezka og banda-
ríska hersins úr Jórdaníu og Lí
banon. Jafnframt væri ætlun
Eisenhowers að reyna með þessu
að styrkja aðstöðu olíuhringanna
í Arabalöndunum. Rússnesku
blöðin sögðu einnig, að það sem
Vesturveldin ættu við með
„óbeinni árás“ í Arabaríkjunum
væri árás fólksins á hagsmuni
auðvaldsins.
hinn 16. september n.k.
komin á það stig, að bæði frönsk
blöð og erlendir fréttaritarar, sem
vinna í Frakklandi, telja frelsi
sínu ógnað.
Soustelle skipar fylgismenn sína
í æðstu stöður við franska
útvarpið og sjónvarpið.
Margir eru þeirrar skoðunar, að
útvarpinu, sjónvarpinu og hinni
opinberu fréttastofu AFP sé
smám saman verið að breyta í
áróðursmálgögn ríkisins, sem
stjórnin og Soustelle hafi í hendi
sér.
Frönsku blöðin eru orðin á-
berandi atkvæðalítil, og sífellt
erfiðara er að koma sjónarmið-
um stjórnarandstöðunnar á fram-
færi.
Er blaða- og upplýsinganefnd
þingsins samþykkti fyrir nokkru
mótmæli gegn þessum ráðstöfun-
um, voru mótmælin ekki birt í
útvarpinu. En eftir að mótmælin
höfðu verið birt í erlendum blöð-
um, sá Soustelle sig neyddan til
að gefa skýringu, en með henni
gerði hann raunverulega illt
verra. Hann varði ráðstafanir sín
ar á þeim forsemdum, að upplýs-
ingaþjónustan hefði um langt
skeið orðið fyrir áhrifum bæði
af hálfu kommúnista og fasista.
—o—
Þeir menn, sem hafa verið látn-
ir víkja úr stöðum við útvarpið
og sjónvarpið, fylgja mjög ólík-
um pólitískum flokkum að mál-
um. Ekki bætir það úr skák fyrir
Soustelle, að hann hefir oft og
einatt ásakað fyrri ríkisstjórnir
um að misnota útvarpið á ólýð-
ræðislegan hátt. Og það hljómaði
kynlega í eyrum manna, er Sou-
stelle lýsti nýlega yfir því, að
„lítil klíka“ mætti ekki stjórna
útvarpinu og sjónvarpinu, þar
sem vitað er, að allir þeir menn
sem Soustelle hefir skipað í stöð-
ur við þessar stofnanir, eru úr
flokki nánustu fylgismanna. Sou-
stelles innan litla gaulliska þjóð-
veldisflokksins, sem í síðustu
kosningum fékk aðeins 4,42% af
atkvæðamagninu.
Fróðlegt verður að sjá, hvaða
afstöðu de Gaulle tekur til þess-
arar ráðsmennsku Soustelles. Ó-
trúlegt er, að de Gaulle muni láta
þetta afskiptalaust, ef hann ætl-
ar áfram að vera trúr hugsjón-
um sínum og markmiðum .
Laxveiði í meðal-
lagi í Borgarfirði
AKRANESI, 14. ágúst. — í dag
náði ég tali af Kristjáni Fjeld-
sted, bónda í Ferjukoti, og spurði
hann um laxveiðina í Borgarfirði.
Sagði Kristján að netjaveiði í
Hvítá hefði verið í meðallagi, að
vísu misjöfn á bæjum eins og
gengur. Nú myndu menn bráð-
lega fara að taka upp, því netja-
veiðitíminn rennur út 20. þ.m.
Stangaveiði, sagði hann hafa ver-
ið heldur tregari víðast hvar upp
á síðkastið vegna þurrkanna og
kuldans. Þó er mikill lax, sagði
Kristján, en hann tekur ekki.
Stangaveiði í Norðurá kvað hann
hafa verið eins og í góðu meðal-
sumri. Þó nokkur stangaveiði
hefði verið við árósa bergvatns-
ánna, sem falla í Hvítá. Kæmi
það af því, að laxinn hefði dokað
þarna við, meira en oft áður, á
göngu sinni í bergvatnsárnar,
vegna þess hve þær voru grunn-
ai. Ekki kvaðst Kristján hafa
haft fregnir af laxveiði í Þvera.
Aftur á móti sagði hann, að veiði
í Grímsá hefði glæðzt eftir því
sem leið á, en rýr hefði laxveiði
verið í Reykjadalsá í sumar.
Kæmi þar til, að hveravatnsins
gætti því meira í ánni sem vatns
magn hennar væri minna. — O.
Brottflutningi
lokið
BEIRUT, 15. ágúst. — í dag var
tilkynnt í bækistöðvum Banda-
ríkjamanna, að lokið væri brott-
flutningi 1,800 sjóliða úr Líban-
on. Eru þá 13,000 Bandaríkja.
hermenn í landinu. Hermennirn
ir fluttu hieð sér allmikil her-
gögn, sem skipað var út í land-
göngupramma, en síðan flutt út
í stærri flutningskip. Ekki sagði
í tilkynningunni, hvert liðsaflinn
hefði verið fluttur, en talið er
víst, að fyrst um sinn verði hann
á skipum 6. fiotans fyrir botni
Mið j arðai'haf sins.
Kemur niður á kom
andi kynslóðum
LONDON, 15. ágúst. — í skýrslu,
sem læknisfræðilega rannsóknar
nefndin brezka birti í dag segir,
að vísindamenn séu nú almennt
sammála um, að geislavirk efni
valdi breytingum á sáðfrumum
og eggfrumum manna — og
þessar breytingar eigi eftir að
koma fram á síðari kynslóðum.
Það getur verið gott að hafa mjúkan ost og ber, t. d. hindber,
i tartaletíum, sem hægt er að kaupa tilbúnar hjá bakaranum.
Mjúki osturinn er hrærður út með mjólk, sítrónusafa og sykri.
Bezt er að kæla ostinn vel í ísskáp, en hita tartaletturnar í
ofni. Þær verða þó að kólna aftur áður en osturinn er látinn
i þær, og síðan er berjum raðað í hring í hverja tartalettu.