Morgunblaðið - 28.08.1958, Side 2

Morgunblaðið - 28.08.1958, Side 2
2 MORGVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 28. ágúst 1958 Fara yfir nýju línuna við suðuroddann, vestur- og norðvesfur ströndina — segir Daily Telegraph BREZKA blaðið Daily Telegraph segir s.l. þriðjudag m.a. frá því, að um 100 stórir, hraðskreiðir togarar með um 2 þús. fiskimönn nm um borð muni aðfaranótt mánudagsins vera reiðubúnir til að sigla yfir nýju 12 mílna lín- una, er reglugerðin um nýju fisk- veiðilögsöguna gengur í gildi á miðnætti. Segir blaðið ennfremur frá því, að ekkert hafi enn verið látið uppi um, hvar togararnir eigi að hitta brezku herskipin, sem eiga að vernda þá. En líklegt þykir, að það verði við suðuroddann, vestur- og norðvestur ströndina, þar sem ýsu- og kolaveiðar eru í þann veginn að hefjast. Togara- skipstjórar hafa fengið strangar fyrirskipanir frá togaraeigendum um að fara aðeins yfi 12 mílna línuna í herskipavernd. Togara- eigendur óttast, að annars verði gerðar tilraunir til að taka togar- ana, og það geti leitt til átaka. ★ ★ ★ Talið er, að fiskveiðiflotinn muni stunda veiðar innan nýju línunnar í þrjá daga, jafnvel þó að engan fisk sé að hafa. Bendir blaðið á, að þetta sé til þess eins gert að sýna fram á rétt Breta til veiða á þessum svaeðum. Eftir þessa þrjá daga verður togurun- um leyft að fara út fyrir 12 mílna línuna til að halda áfram venju- legum fiskveiðum. Fundarstaðir fiskveiðiskipanna og herskipanna hafa verið valdir af miklli ná- kvæmni. Búizt er við, að lítið verði um afla, meðan togararnir eru að I sýna fram á rétt sinn til að veiða innan 12 milna fiskveiðilögsögu. Óttazt er, að togaraskipstjórarnir muni þreytast á því að sigla um án þess að afla nokkuð, þar sem pyngja þeirra mun gjalda þess, segir blaðið að lokum. Óeirðir í grennd við Beirut BEIRUT, 27. ágúst — NTB-Reut- er — Til nokkurra óeirða kom í dag í grennd við Beirut, og féllu fjórir menn í átökum milli þeirra, sem styðja stjórn Solhs og stjórnarandstæðinga. Nefnd þingmanna, sem hlynntir eru stjórninni, lagði í dag til, að her- inn yrði látinn afvopna alla slíká hópa manna, er stofnuðu til óeirða. Lét nefndin jafnframt í ljós traust sitt á hinum nýkjörna forseta, Chehab hershöfðingja, en lýsti yfir því, að hún myndi ekki vinna með stjórn, er uppreisnar- leiðtogar ættu sæti í. Áður hefur stjórnarandstaðan krafizt þess, að Chehab hershöfðingi taki í stjórn sína nokkra leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Brezk herskip leggja af stað á íslandsmið í dag HULL, 27. ágúst. — Reuter. — En lögðu nokkrir brezkir togar- ar af stað frá Hull og öðrum hafnarborgum í Norður-Eng- landi, og munu þeir ætla að bjóða byrginn því áformi íslendinga að banna veiðar innan 12 mílna land helgi n.k. mánudag. Sendir verða meira en 100 togarar á mið þessa litla norræna lýðveldis, sem hefir ákveðið að víkka fiskveiðilög- sögu sína úr 4 í 12 mílur til að reyna að bjarga þannig aðaltekju stofni sinum. Fimm brezk her- skip úr Konunglega brezka flot- anum verða togurunum til vernd- ar. Herskipin sigla á miðin á morgun. Togararnir munu hitta her- skipin við strendur tslands, og Ákveðnir möguleikar á bráðabirgðalausn í París Kvöldberlingur — segir Kaupmannahöfn, 27. ágúst. Einkaskeyti til Mbl. KVÖLDBERLINGUR segir, að sendilierra íslendinga hjá Atlants hafsbandalaginu taki nú þátt í viðræðunum í París til að skýra afstöðu íslenzku ríkisstjórnarinn- ar til væntanlegra tillagna um málamiðlun. í gær komust um- ræðurnar á það stig, að hægt var að gera ríkisstjórnum þeim, sem málið varðar grein fyrir ákveðn- um möguleikum á bráðabirgða lausn, segir blaðið. Danska ríkisstjórnin fékk í gær kvöldi greinargerð um þetta frá sendiherra sínum hjá Atlants- hafsbandalaginu, og var því ut- anrikismálanefnd þingsins köliuð saman til skyndifundar. Ástandið var í dag rætt á ráðuneytisfundi. Danska stjórnin mun telja nokkra ástæðu til bjartsýni. Þó að íslendingar nái árangri, mun það ekki hafa í för með sér, að fiskveiðilögsaga Færeyja verði þegar víkkuð, heldur blaðið áfram. Danska stjómin mun reyna að útvega Færeyingum sams konar fiskveiðilögsögu og íslendingar fá, en þessu er fyrst hægt að koma í framkvæmd að afstöðnum samningum við Breta um endurskoðun- núgildandi samninga um landhelgi. Ef ís- lendingar ná bráðabirgðalausn í málinu, mun danska stjórnin þeg ar hefja samninga við Breta. ★ ★ ★ Dimmalætting skrifar, að mik- ilvægara sé, að fiskveiðilögsaga Færeyja verði víkkuð jafnmikið og fiskveiðilögsaga íslands frem- ur en að víkkun færeysku fiskveiðilögsögunnar eigi sér stað samtímis víkkuninni við Islands- strendur. í náinni framtíð verður líklega lögð fram — að meira eða minna leyti af frjáisum vilja — viðurkenning . á víkkun fisk- veiðilögsögu við Færeyjar. Ef slík viðurkenning lægi ekki fyrir í síðasta lagi mánuði eftir, að fiskveiðilögsaga íslands hefir raunverulega verið víkkuð, rikir neyðarástand við Færeyjar, og mundi það réttlæia stjórnina í að gera skjótar varúðurráðstafanir til að friða til bráðabirgða fisk- stofninn við Færeyjar. Blaðið bætir því v»ð, að hættan á því, að sambandið milli Dan- merkur og Færeyja rofni, geti orðið raunveruleu ef menn séu ekki á verði gt0.i viðleitni á- byrgðarlausra afla til að koma samöandsslitum til leiðar. ★ í fréttatilkynningu af aflokn- um fundi utanríkisnefndar í kvöld sggir ekkert um viðræð- urnar í París. Þar segir aðeins, að Krag, sem nú gegnir störfum utanríkisráðherra, hafi gert grein fyrir viðræðunum í París. Á fundinum var einkum fjallað um vandamálin í sambandi við Færeyjar. Talið er, að fulltrúar Islands í París hafi kvartað und- an því, að of mikið hafi borizt út um það, sem gerzt hefur á við- ræðufundum. Látlaus skothríð á eyjar þjóðernissinna við Kína Flugfloti Bandaríkjamanna á Filipps- eyjum viðbúinn TAIPEH, 27. ágúst — NTB-AFP — Kommúnistar héldu í dag uppi skothríð á eyjar á valdi þjóðern- issinna á Formósusundi. Er þetta fimmti dagurinn í röð, sem skot- hríð er haldið uppi á eyjarnar. Herstjórnin í Taipeh telur innrás kommúnista á Taneyjarnar yfir- vofandi. í dag var skotið yfir 6 fallbyssukúlum á þennan litla eyjaklasa, sem liggur næst meg- inlandinu af þeim eyjum, sem þjóðernissinnar hafa á valdi sínu. Fiugfloti Bandarikjamanna á Filippseyjum hefur fengið skipan ir um að vera viðbúinn, ef til stórtíðinda dregur á Formósu- sundi, og deildir úr Bandaríkja- flota á Kyrrahafi eru á leið til Taipeh. í ráði munu vera flota- æfingar fyrir sunnan Formósu. ★ í fréttum frá Tókíó segir, að ráðgazt hafi verið við japönsk yfirvöld um ástandið. I Manila kallaði yfirmaður bandarískra landgönguliða á Filippseyjum, Edgar Cruise, nánustu ráðgjafa sína á sinn fund, og talið er, að þeir hafi rætt um möguleika á því að flytja bandarískar her- sveitir frá Filippseyjum til For- mósu. Elzti ráðgjafi Chiang Kai- sheks, Tao Shi-sheng, sagði í Tai- peh í dag, að skothríð kommún- ista á eyjarnar í Formósusundi, kynnu að verða upphaf að styrjöld í Austur-Asíu. Leiðtogar hers þjóðernissinna á Quemoy og Matsu halda því þó fram, að líklega takist að hrinda sérhverri tilraun til að ganga á land á eyj- unum. verður togurunum síðar fylgt nýju 12 mílna línuna. Þó að skipstjórarnir hafi fengið _,ar fyrirskipanir um að iiaiua sig hæfilega nálægt her- skipunum, kunna sumir togara- skipstjórarnir að sigla skipuni sínum til veiða á eftirlætismið- um sínum og eiga þannig á hættu, að hinn litli „floti“ íslendinga 8 strandgæzluskútur — taki þá fasta. ★ ★ ★ Walter Crawley, ritarl brezku fiskimannasamtakanna, sagði í dag, að enginn togaraskipstjór- anna hefði neitað að sigla á ís- Iandsmið. „Þeim finnst, að þeir verði að fara yfir línuna til þess að staðfesta rétt sinn til að veiða á úthöfunum. Vandræði myndu hljótast af þvi, ef íslendingar reyndu að stöðva þá“, sagði Craw ley. Brezkur fiskiðnaður hefir feng ið ríkulega uppskeru á íslands- miðum, og forráðamenn hans hafa ekki í hyggju að sjá af þess- mn arðbæra atvinnuvegi, segir í skeytinu. De Ganlie í Alsír ALGEIRSBORG, 27. ágúst — Reuter — De Gaulle forsætisráð- herra fór í dag flugleiðis frá Alsir til Dakar. Er þetta síðasti viðkomustaðurinn á ferð hans um nýlendur Frakka í Afríku. Með ferð þessari hyggst de Gaulle afla stjórnskipunarlögum sínum fylgis. Miklar öryggisráð- stafanir voru gerðar við komu de Gaulles til að koma í veg fyrir ofbeldisaðgerðir af hálfu skæru- liða í Alsír. íslenzki sendiherrann í Noregi vœntir engra alvar legra atburða við ísland ÓSLÓ, 27. ágúst. — Reuter. — Sendiherra íslands í Noregi, Har- aldur Guðmundsson, sagði í dag, að hann byggist ekki við neinum alvarlegum atburðum á íslands- miðum, er nýja 12 mílna fisk- veiðilögsagan gengur í gildi á 1 miðnætti n.k. sunnudag. ★ ★ ★ Guðmundsson sagði á blaða- j mannafundi, að íslendingar hefðu heldur kosið að færa fisk- veiðilögsöguna úr 4 í 12 mílur samkvæmt alþjóða samningi. „En allar tilraunir okkar í þá átt á undanförnum 10 árum hafa reynzt árangurslausar. Við gátum ekki beðið lengur, þar sem líf okkar veltur á fiskveiðunum“, sagði hann. Sendiherrann neitaði að svara spurningum um, hvaða gagnráð- stafanir íslenzka stjórnin hefði í hyggju að gera gegn áformum brezkra togara um að veiða inn- an nýju 12 mílna línunnar — eða hvort hún myndi gera nokkrar ráðstafanir. Sagði hann frétta- mönnum, að í íslenzku landhelg- isgæzlunni væru fjögur skip' og ein flugvél. ★ ★ ★ Guðmundsson sagði, að fiski- miðin innan nýju línunnar væru miklu mikilvægari fyrir íslend- inga en fyrir nokkra aðra fisk- veiðiþjóð. Sagði hann, að tekjur Breta af fiskveiðum næmu aðeins 1% af allri framleiðslu Breta, en aftur á móti væru fiskur og fisk- afurðir 97% af útflutningi íslend inga. Sagði hann, að Bretar og Vestur-Þjóðverjar ættu að kaupa meiri fisk af íslendingum — í samræmi við áformin um frí- verzlunarsvæði Evrópu. Dandaríkjamenn standa við skuldbindingar sínar við þjóðernissinna — sagði Eisenhower á blaðamannafundi WASHINGTON, 27. ágúst — NTB-Reuter — Eisenhower Bandaríkjaforseti sagði í dag, að Bandaríkjamenn muni standa við skuldbindingar sinar við kín- verska þjóðernissinna. Vildi for- setinn ekkert láta uppi um, hvað Bandaríkjamenn munu gera, ef kínverskir kommúnistar gera innrás á Quemoy og Matsueyjar. Forsetinn var spurður að því, hvort hann liti skothríðina á For mósusundi alvarlegum augum og hvort hann teldi hættu á því, að bandaríski herinn mynái dragast inn í átökin þar eystra. Svaraði Leiðtogi frelsishreyfingar Serkja hótar áframhald- andi skemmdarverkum PARÍS, 27. ágúst. — NTB — Reu- ter. — í dag voru gerðar öflugar öryggisráðstafanir um gjörvallt Frakkland til að vernda öll helztu iðjuver og verksmiðjur gegn skemmdarverkum Serkja. Öflugt lið hermanna og lögreglu- manna heldur nú vörð um raf- orkuver, járnbrautarstöðvar, vatnsveitur, olíugeyma, allar helztu hafnir landsins og flest listasöfn í landinu. Innanríkisráð herrann lýsti yfir því, að lög- reglumenn, sem verið hefðu í sumarleyfi, hefðu þegar verið kallaðir til starfa. Einn höfuðleiðtogi frelsishreyf- ingarinnar í Alsír, Fehrat Abbas, lýsti yfir því í Kaíró í dag í við- tali við Parísarblaðið Combat, að venjulegum borgurum í Frakk- landi yrði hlíft, en skemmdar- verkum yrði haldið áfram í því ugnamiði að veikja Frakkland liernaðariega og efnahagslega. ★ ★ ★ Skemmdarverkum var haldið áfram aðfaranótt miðvikudags- ins, og einn hermaður og þrír lögreglumenn særðust alvarlega. Þrátíu Serkir hafa verið hand- teknir, og segjast þeir hafa tekið við skipunum frá felsishreyfing- unni í Alsír. Paris-Presse segir, að skemmdarverk þessi hafi ver- i, í undirbúningi undanfarna 12 mánuði, og fyrir þremur vikum hafi verið ákveðið að hefja skemmdarverkin, er leiðtogar frelsishreyfingarinnar komu sam an til fundar í Genf. forsetinn því, að slíkt ástand væri enn að vissu leyti fjarlægt. Sagði forsetinn, að vitanlega myndu Bandaríkjamenn styðja þjóðernissinna, enda ættu þeir sæti í öryggisráðinu. Fjölnienni horfoi á kastsýningnna í gærkvöldi RÚMLEGA 200 manns var í gær- kvöldi í bezta veðri upp hjá Ár- bæjarstíflu, til að sjá ungan Bandaríkjamann, Tarantino að nafni, sýna köst með veiðistöng- um af ýmsum stærðum, einnar handa og beggja handa. Voru menn sammála um að Tarantino væri mjög leikinn, en einn af forráðamönnum Kastklúbbs stangaveiðimanna, skýrði áhorf- endum frá því að Tarantino, sem er heimsmeistari í köstum sýndi nú eingöngu með venjulegum stöngum, en ekki þeim gerðum og ekki þeim útbúnaði, er notað- ur væri á kastmótum. Meðal áhorfenda var Hermann Jónasson, forsætisráðherra og margir kunnustu og reyndustu laxveiðimenn bayarins. Einnig horfðu á allmargar konur. Eftir að Tarantino var hættur að kasta sýndi forseti Alþjóðlega kastsambandsins, Myron Gregory nokkur köst. í kvöld klukkan 6 munu þeir félagar endurtaka kastsýningu sína við Árbæjarstífluna, en klukkan 9 flytur svo Mr. Gre- gory erindi fyrir stangaveiði- menn í Tjarnarkaffi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.