Morgunblaðið - 28.08.1958, Síða 3
Fimmtudagur 28. ágúst 1958
MORCUISBLAÐIÐ
3
Utanríkisráðherra fylgir
stuðningsblaðs síns
,,að þegja sem fastast"
Leitar stjórnin sameiginlegrar
stefnu á jbe/'m grundvelli?
SVO ER að sjá sem utanríkis-
ráðherra hafi tekið til eftir-
breytni Þá ráðleggingu Þjóð-
viljans „að þegja sem fastast“,
þar sem hann ella gerði sig
beran að „skammsýni og fá-
vísi“.
Alþýðublaðið lætur sér í gær
ekki nægja að taka þessari hrein-
skilnu róðleggÍHgu samstarfs-
blaðsins með undirgefinslegri
þögn, heldur birtir forystugrein,
sem virðist vera skrifuð til að
afsanna að „mikil óeining sé inn-
an ríkisstjórnarinnar um land-
helgismálið“.
í því sambandi segir Alþýðu-
blaðið til mótmæla Morgunblað-
inu:
„Undanfarna daga hefur blaðið
vitnað ákaft í fregn, sem birtist
í Alþýðublaðinu fyrir helgina um
leynifund í París út af landhelg-
ismálinu. Telur Morgunblaðið, að
hér sé um að ræða fund, sem
utanríkisráðherra eigi hlut að,
fyrst fréttin um hann birtist 1
Alþýðublaðinu, en önnur stjórnar
blöð neiti að vita af slíkum fundi.
Um þetta nægir að segja það
eitt, að það er vitað mál, að ráða-
menn í Atlantshafsbandalaginu
hafa mikin áhuga á landhelgis-
málinu íslenzka. Engan þarf að
undra það. Það er líka vitað mál,
að fundir hafa verið haldnir um
þetta mál, bæði opinberir og
leynilegir eins og gengur, og geta
íslendingar hvorki bannað né for
dæmt slíka fundi. Þótt fastafull-
trúi fslands hjá Atlantshafsbanda
laginu fylgist með málum er það
engin goðgá, þar sem ísland er
aðildarríki í bandalaginu. En eins
og áður hefur verið tekið fram
hér í blaðinu, er langur vegur
frá áheyrn og málstúlkun til
samninga.
Það eru því harla veikar for-
sendur fyrir þeirri staðhæfingu,
að utanríkisráðherra standi í ein-
hverjum samningum ytra, þótt
Alþýðublaðið flytji erlenda frétt
um fund innan Atlantshafsbanda
lagsins".
Hér virðist Alþýðublaðið sem
sagt vera að sýna fram á, að rang
hermi sé, að íslenzki „utanríkis-
ráðherrann“ eigi hlut að fund-
unum í París. Það séu bara „ráða-
menn í Atlantshafsbandalaginu“,
sem hafi „mikinn áhuga á land-
helgismálinu íslenzka“, sem þar
séu að verki. Skilst manni, að
utanríkisráðherra íslands komi
þar hvergi nærri. „Þótt fastafull-
trúi íslands hjá Atlantshafsbanda
laginu fylgist með málum er það
engin goðgá, þar sem ísland er
aðildarríki í bandalaginu", segir
Alþýðublaðið. Ekki lýsa þessi
Lönduðu 735 lest-
um af karfa á
rúmri viku
PATREKSFIRÐI, 27. ágúst. —
Frá 18. til 25. þ.m., eða á rúmri
viku lönduðu Patreksfjarðartog-
ararnir Ólafur Jóhannesson og
Gylfi 735 lestum af karfa til
vinnslu í frystihúsi staðarins.
B.v. Ólafur Jóhannesson land-
aði þann 18. þ.m. 350 lestum eftir
13 daga útivist og b.v. Gylfi þann
25. ágúst 385 tonnum eftir 14
daga útivist. Er aflinn yfirleitt
góður til vinnslu, en ekki sér-
lega feitur.
Báðir togararnir fóru út aftur
strax að aflokinni löndun og
héldu á nýju karfamiðin. Hér á
Patreksfirði er alltaf jafnmikil
fólksekla við vinnslu aflans því
margir trillubátar stunda enn
handfæraveiðar af fullum krafti.
Afli hjá þeim er oft sæmilegur.
í dag kemur Drangajökull hing-
að og lestar 4000 ks af frystum
fiski. Ennfremur er von á mót-
tökuskipi. — Hér er veður með
eindæmum gott. — Karl.
Samkeppni um
íslenzk danslög
SKT gengst fyrir danslagakeppni
í næsta mánuði og var auglýst
um það fyrr í sumar. Handritum
á að skila fyrir 15. sept. n.k.
SKT hefir oft áður gengizt fyr-
ir keppni sem þessari og hafa
mörg vinsælustu íslenzku dans-
lögin einmitt komið þar fyrst
fram. Ákveðnar reglur hafa
verið gefnar út um keppnina og
hafa þeir, sem hlutskarpastir
verða, möguleika á mjög góðum
verðlaunum.
Islana úr Atlantshafs-
bandalaginu
Ummæli Helga Briem svo skilin í Bonn
ÞÝZKA blaðið Frankfurter All-
gemeine birtir sl. mánudag frá-
sögn um landhelgismálið. Þar er
m.a. skýrt frá blaðamannafund-
inum, sem haldinn var á laugar-
dag á vegum íslenzka sendiráðs-
ins í Bonn. Blaðið segir m.a.:
Islenzki sendiherrann í Bonn,
Helgi Briem, skýrði afstöðu lands
síns fyrir fréttamönnum á laug-
ardaginn. Hann staðfesti annars
vegar, að það væri áform íslenzku
ríkisstjórnarinnar að fara úr
Atlantshafsbandalaginu, ef Eng-
lendingar myndu beita valdi gegn
íslenzkum gæzluskipum. „Ef
bandamenn okkar skjóta á okk-
ur, eru þeir ekki lengur banda-
menn okkar“, sagði Briem. Það
var hins vegar skoðun hans, að
hótanir Breta ættu fremur rót
sína að rekja til togaraeigenda í
Grimsby og Hull en til enskra
embættismanna. Hann vonar, að
sjónarmið íslendinga verði við-
urkennt. Hann sakaði sambands-
stjórnina (þýzku) um „nokkuð
einkennilega afstöðu“, þar sem
hún heldur ákveðið fram 3 mílna
línu.
Morgunblaðið sagði síðast-
liðinn þriðjudag frá dönskum
fréttum um þennan blaða-
mannafund í Bonn. Jafnframt
var skýrt frá því, að utan-
ríkisráðuneytið í Keykjavík
sagði á mánudag, að þangað
hefðu engar fréttir borizt um
fundinn. Af frásögninni hér
að ofan sést, hvernig uinmæl-
in á fundinum eru skilin í
Þýzkalandi. Virðist það ein-
kennileg tilviljun, ef tveir
sendiherrar gefa sams konar
yfirlýsingar í algeru trássi við
íslenzka utanríkisráðuneytið.
leiðbeiningu
ummæli miklum skörungsskap
utanríkisróðherrans. Hann og
málgagn hans um það.
Hitt er alrangt, að Morgun-
blaðið hafi sagt, að „önnur
stjórnarblöð“ en Alþýðublaðið
„neiti að vita af slíkum fundi“.
Morgunblaðið hefur einmitt hvað
eftir annað tekið upp það, sem
Tíminn skýrði frá, að verið væri
innan Atlantshafsbandalagsins að
vinna að „málamiðlunarlausn"
deilunnar. Sjálfur hefur og Tím-
inn aldrei gengið frá vísbending-
um sínum um það, að semja
mætti um málið á þeim grund-
velli sem málgagn forsætisráð-
herra orðaði svo:
„Allt annað, ef að hinir er-
lendu aðilar bæðu fsland um slíkt
leyfi“ — sams konar og Rússar
veittu Bretum.
Svo virðist því sem töluvert
skorti á um það, að Alþýðublað-
ið fylgist nógu vel með málinu
jafnt innanlands sem utan.
Brezkir
Síamstvíburar
LUNDÚNUM, 27. ágúst — Reuter
— í maímánuði sl. fæddust hjón-
um nokkrum, sem eiga heima í
úthverfi Lundúnaborgar, þríbur-
ar. Tvö barnanna voru samföst
á höfðinu. Foreldrarnir óskuðu
eftir því, að þessu yrði haldið
leyndu fyrst í stað. Síamstvíbur-
arnir, Pétur og Tímóteus, -eru nú
í sjúkrahúsi, og enn hafa sérfræð
ingar ekki tekið ákvörðun um,
hvort reynt verður að skilja þá
í sundur með uppskurði. Þriðji
sonurinn Jeremías er á .allan hátt
eðlilegt barn við beztu heilsu.
Var hann fyrstu sex vikurnar á
sjúkrahúsi, en er nú í umsjá for-
eldra sinna. Þríburarnir voru
teknir með keisaraskurði. Lækn-
ar munu telja ráðlegast, að reynt
verði að skilja Síamstviburana
í sundur, þegar þeir eru um það
bil árs gamlir.
Hvergi að hopa frá settu
marki í landhelgismálinu
r r'
Samþykkt Utvegsmannafélags Akraness
AKRANESI, 27. ágúst — I dag
kl. 2 gerðu Útvegsmannafélag
Akraness og Skipstjóra- og stýri-
mannafélagið Hafþór ó Akranesi
eftirfarandi samþykkt:
1 tilefni af því að óðum líður
að þeirri stund að úr því fáist
skorið hvort tilraun verði gerð
til þess að hindra þá framkvæmd
Tiines ræðir
EandhelgismáliÖ
í GÆR var skýrt frá því í Mbl.,
að Times í London hefði í fyrra-
dag birt forystugrein um land-
helgismálið. Hún nefnist: tsland
gengur of langt. Greinin hefur
nú borizt hingað til lands í heild.
Times segir m. a., að brezka
stjórnin hafi reynt að forðast
árekstra, síðan Island lýsti ein-
hliða yfir stækkun landhelginn-
ar. En ísland hafi sýnt þrá-
kelkni.
Ástæðurnar séu að nokkru
efnahagslegar, að nokkru póli-
tískar. Vegna þess, hve afkoma
íslendinga sé háð fiskveiðum, sé
eðlilegt, að íslendingar vilji búa
að miðunum, en þó hafi engin
rök verið fram færð fyrir rétti
íslands, sem unnt sé að fallast á.
Ekki hafi tekizt að gera nýjar
samþykktir á Genfarfundinum
og það þýði, að gamlar sam-
þykktir (conventions) séu í gildi,
en ekki að réttarreglur á hafinu
hætti að vera til. Enn sé ósann-
að, að sá ótti, sem oft hafi verið
látinn í ljós um ofveiði, hafi við
rök að styðjast. A. m. k. sé leiðin
til að koma í veg fyrir ofveiði
sú, að komast að samkomulagi
í alþjóðastofnun, sem lætur sig
málið varða, en ekki að gefa
einu ríki ótakmarkaðan rétt til
veiða, en neita öðrum um hann.
—• Þyngra á metunum í þessu
máli sé, að núverandi ríkisstjórn
á íslandi vilja hætta á að gera
pólitíska kröfu, þegar tækifæri
virðist gott. Síðan segir blaðið,
að Rússland kaupi nú meiri fisk
en 1952, löndunarbann geti því
haft minni áhrif en þá og að
ríkisstjórnin sé háð stuðningi
kommúnista.
En það myndi leiða til skað-
vænlegrar og ónauðsynlegrar
deilu, ef ekki verður samið, seg-
ir blaðið síðar. Genfarráðstefnan
hafi stungið upp á ýmsum leið-
um og þær séu væntanlega grund
völlur viðræðnanna í París. Báð-
ir aðilar verði að skilja, að tími
ákveðinna skýrgreininga sé ekki
upp runninn. Nóg sé af fiski,
fiskimönnum og neytendum.
Hvergi sé minni ástæða til að
þjóðir taki sér einkarétt.
íslendinga, sem er lífsvarðandi
fyrir þá nú og í framtíðinni, að
færa út fiskveiðitakmörkin við
strendur landsins, úr 4 sjómíl-
um í 12 sjómílur, viljum vér,
með tilliti til þeirra ógnana og
hótana, sem fréttir herma að
uppi séu meðal nokkurra fisk-
veiðiþjóða, einkum Breta, um að-
gerðir hér að lútandi, skora á rík-
isstjórnina að hopa hvergi frá
settu markí um útfærslu fisk-
veiðitakmarkanna. Við lítum svo
á, að réttur vor til slíkra óhjá-
kvæmilegra sjálfsbjargarákvarð-
ana sé skýlaus, enda í fullu sam-
ræmi við ákvarðanir ýmissa
annarra þjóða, sem óátaldar eru,
bæði að því er snertir fiskiveið-
ar og hagnýtingu náttúruauð-
æfa, er fólgin kunna að vera und-
ir hafsbotni. Viljum vér láta í
ljós þá skoðun vora, að ef það
komi á daginn, að einhver þjóð
gerði alvöru úr því að fremja
slíkt óhæfuverk að hindra í ein-
hverju framkvæmd vora á hinni
nýju fiskveiðireglugerð, þá beri
ríkisstjórninni, ef vér ekki af
eigin rammleik höfum mátt til
að hnekkja slíku ofbeldi, að snúa
sér tafarlaust til forráðamanna
bandaríska varnarliðsins hér á
landi og krefjast þess af þeim,
að þeir veiti oss til þess í tæka
tíð fulltingi, er nægir til að verja
rétt vorn og hrinda slíkri árás á
sjálfsbjargarviðleitni þjóðar vorr
ar.
Vér lítum svo á, að á því geti
ekki vafi leikið, að forráðamenn
varnarliðsins hér telji það beina
skyldu sína, að sinna fljótt og
greiðlega slíkum tilmælum,
enda slægi það miklum skugga
á þær öryggisvonir er vér höfum
talið okkur trú um að tengdar
væru við það að hafa lánað land
vort til varnaraðgerða og varnar-
liðsdvalar um árabil, ef oss
brygðist nauðsynleg aðstoð og
vernd á slíkri örlagastund. —
Myndi slíkt fyrirbæri að sjálf-
sögðu ærið tilefni til nýrrar at-
bugunar á afstöðu vorri til
Atlantshafsbandalagsins.
Leiðiétting
MEINLEG prentvilla varð í
„Staksteinum“ í gær, svo nokk-
ur kafli, undir fyrirsögninni
„Einkar ánægjulegt að dvelja í
Lettlandi“, varð lítt skiljanlegur.
Réttur er umræddur kafli
þannig:
„Lettland er háþróað iðnaðar-
land. Það er sameiginlegur dóm
ur þeirra mörgu erlendu sendi-
nefnda, sem heimsóttu lýðveldið
á síðastliðnu vori. Og í þessu
efni hafa þær vissulega rétt fyrir
sér“.
STAKSTEINAR
Einstök ríkisstjórn
Almenningur á fslandi gerir sér
það áreiðanlega Ijóst, að sú rík-
isstjórn, sem nú situr hér er ein-
stök í sinni röð. Hún er klofin og
sundruð í hverju einasta hinna
stærri mála, sem koma til kasta
hennar. Hún er klofin í afstöð-
unni til utanríkis- og öryggis-
mála. Kommúnistar krefjast þess
stöðugt að hið erlenda varnar-
lið verði rekið úr landi, en taka
þó ábyrgð á dvöl þess með áfram-
haldandi setu í stjórn. Vinstri
stjórnin er klofin í afstöðunni til
efnahagsmálanna. — Formaður
Kommúnistaflokksins og tveir
þingmenn Alþýðuflokksins lýstu
yfir andstöðu sinni við bjargráð-
in á sl. vori og greiddu atkvæði
gegn þeim. Og nú blasir það við
alþjóð, að ríkisstjórnin er klofin
í landhelgismálinu. Málgögn sjáv
arútvegsmálaráðherrans og utan-
ríkismálaráðherrans hafa í allt
sumar haldið uppi hatrömmum
deilum um þetta stærsta utan-
ríkismál þjóðarinnar. Síðast í
fyrradag birti „Þjóðviljinn“ froffu
fellandi svívirffingagrein um af-
skipti utanríkismálaráðherrans af
málinu.
Hver getur treyst slíkri ríkis-
stjórn? Enginn vitiborinn og á-
byrgur maður, sem ann velferð
þjóðar sinnar.
Vinstri stjórnin er í dag sundr-
aff flak, sem hangir saman á einni
saman valdagræffgi leiðtoga henn
ar. Hún er ekki fær um að leysa
nokkurt hinna stærri hagsmuna
mála þjóffarinnar.
Einræðisbrölt félags-
málaráðherra
Alþýðublaðið skýrði sl. sunnu-
dag frá einræðisbrölti félagsmála
ráðherra kommúnista með hús-
næðismálastjórn. Á sl. vori flutti
ráðherrann breytingartillögu á
Alþingi til þess að tryggja sér
full umráð yfir mannaráðningum
og fleiru er ^ut að stjórn stofn-
unarinnar. Tillaga þessi fékk ekki
einu sinni byr meðal stjórnarliðs-
ins og náði því ekki samþykki.
En nú hefur ráðherrann gefið
út reglugerð, og tekið sér þaff
vald, sem hann áður taldi sig
skorta í lögiunum um húsnæðis-
málastjórn. Er tilgangur hans
greinilega sá, að fá alræðisvald
um allar mannaráðningar við
stofnunina og skapa sér bætta
möguleika til þess að misnota
starfsemi hennar pólitískt.
AíÞýðublaðið ræðst harfflega
á Hannibal fyrir þessa ósvífni.
Sætir það raunar engri furffu.
Það er auðvitað hin mesta ó-
svinna að ráðherraan skuli setja
reglugerð eftir breytingartillögu,
sem ekki náði fraœ að ganga á
Alþingi!! En þannig er allt á
eina bókina lært hjá ráffherrum
kommúnista.
Fátt um fína drætti
Tímamenn reyna í gær að telja
upp afrek vinstri stjórnarinnar.
Virðist þar fátt um fína drætti
þegar það er talið aðalafrek
stjórnarinnar aff hún hafi „'keypt
til landsins 12 258 tonna togbáta".
Tíminn talar eins og þessi skip
séu þegar komin til landsins og
útgerð þeirra hafin. En svo er auð
vitað ekki. Ekkert þeirra er kom-
ið hingað heim. Sjávarútvegs-
málaráðherra hefur nýlega sagt
að þeir fyrstu þeirra kæmu e.t.r.
til landsins einhverntíma í haust.
Um smíði á hinum 15 stóru tog-
urum, sem stjórnin lofaði að
kaupa til landsins er ekki einu
sinni farið að semja og enginn
eyrir befur fengizt að láni til
þeiii. .