Morgunblaðið - 28.08.1958, Page 9
Fimmtudagur 28. ágúst 1958
MORCVMiLAÐlÐ
9
Op/ð b;'éj til Þjóðviljans
frá eistneskum flótta-
manni
f HVERJU er lífshamingjan fó!g- Þið talið mikið um framleiðslu
in? Hvar finnum við gleðina? ] aukninguna í kommúnistaríkjun-
_ . - - um. Þið talið hins vegar minna
Þessum spurnmgum verður að . ° , . „
| um kaup og kjor par eystra svo
sjálfsögðu hver að svara fyrir sig, að hægt sé að bera saman við
en hvar er hamingjuna að finna, það, sem hér er. Framleiðsla
ef ekki í landi þar sem allir hafa j kommúnista vex um þetta og
nóg að bíta og brenna? Þar. semjþetta mörg prósent, nýjar fimm
allir hafa nóg að borða, geta ver- ára áætlanir eru gerðar. En hvað
ið vel klæddir, lifað í friði — | hefur almenningur í löndum
óáreittir á eigin heimili og eru j kommúnismans borið úr býtum?
frjálsir að því að stunda þau
störf, sem þeim falla bezt og hæfa
þeim bezt?
Mitt svar er, að í þvi landi, sem
veitir sonum sínum og dætrum
allt þetta, er gott að lifa. Þar er
gleðina að finna, þar er grund-
að
viss um að hvergi er betra
vera í Evrópu.
En samt eru hér menn, sem
ekki virðast hafa fundið ham-
ingju lífsins og eiga enga gleði.
Ég veit, að þetta stafar ekki af
því, að þessir menn líði skort.
Og þeir njóta fremstu rétlinda,
sem frjálst land getur veitt þegn-
um sínum, en þeir nota frelsið til
þess að vinna gegn frelsinu.
Þið segið okkur, að austur í
Rússlandi, í löndum kommún-
ismans, sé miklu betra að lifa.
Þar hafi draumar mannkyns
rætzt — og þar sé hina sönnu
lífshamingju að finna. Og mér
skilst á greinum þeim, sem Karl
Guðjónsson alþingismaður skrif-
aði um Lettlandsför þingmann-
anna, að einmitt þar hafi hann
fundið gleðina, sem þessir gleði-
snauðu fslendingar þrá. Ég veit,
að þessa sérkennilegu gleði hefur
hann fundið í veizlusölum þeirra
manna í Lettlandi, sem standa
jafnfætis Kadar í Ungverjalandi
hvað metorð og afrek snertir. En
hann segist líka hafa gott eitt
um aðbúnað lettnesks alþýðu-
fólks að segja.
Þið kommúnistar segizt vinna
að heill verkalýðsins — og við
getum því nánar athugað hvað
þið teljið hamingjusamt verka-
fólk.
Samkv. þeim upplýsingum, sem
Pétur Pétursson alþingismaður,
ferðafélagi Karls úr Lettlands-
förinni, gaf í greinum sínum í
Alþýðublaðinu verður verkamað
ur í kommúnistaríkjunum, með
meðaltekjur, að vinna allt að því
tvo mánuði fyrir sæmilegum föt-
um — og hálfan mánuð fyrir
skóm. Ef mánaðarkaupið er mið-
að við 3.000 kr., þá kostar 1 kg
af þorskflökum 30 kr., segir Pét-
ur.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem ég hef aflað mér, bæði hjá
mönnum, sem farið hafa til Rúss-
lands á síðustu tímum og í er-
lendum blöðum, sem fjalla mikið
um málefni Eystrasaltsríkjanna,
eru venjuleg verkamannalaun
austur þar 350—400 rúblur á mán
uði. Laun skrifstofumanns eru
650 rúblur og landbúnaðarverka-
manns 400—500 rúblur. Sem
dæmi um verðlagið kostar mjólk-
urlítrinn 1,20 rúblur, eggið 1
rúblu, lambakjöt 17—22 rúblur
kg, karlmannaskyrta 65—70 rúbl
ur, vetrarfrakki 700 rúblur. nær_
föt 45—50 rúblur og legubekkur
(divan) af einföldustu get'ð
900—1100 rúblur. Þetta eru smá-
dæmi, en nægilega mörg til þess
að fá samanburð við verðlag og
kaup á íslandi.
En hvers vegna birti Karl ekki
samanburð á kaupi og verðlagi
á Islandi og í kommúnistaríkjun-
um, eins og Pétur Pétursson?
Hefðuð þið þá ekki getað sýnt
enn betur fram á það hve ís-
lendingar færu mikils á mis að
búa ekki við kommúnisma — eða
er það ekki? Hefði það ekki
styrkt áróður ykkar um hagsæld-
ina í kommúnistaríkjunum
meira en nokkru sinni áður?
Karl talar um framleiðslu-
aukningu í Lettlandi. Veit hann
ekki, að lífskjör fólks í Eystra-
saltsríkjunum voru mjög góð
fyrir stríð? Iðnvarningur Lett-
lands frægur um alla Evrópu
fyrir gæði — og þangað fóru
völlur hinnar sönnu lífshamingju. I ferðamenn hópum saman af því
Á íslandi er gott að vera, ég er' að þar var svo ódýrt að lifa. Þeg-
ar Rússar sölsuðu landið undir
sig fluttu þeir allar vörubirgðir
úr landinu til Rússlands. Og
meira en það, þeir fluttu hundruð
þúsunda manna nauðungarflutn-
ingi austur til Síberíu úr Eystra-
saltsríkjunum. Ég hef sjálfur orð
ið sjónarvottur að dýrslegri fram
komu þeirra, ég heí haft kynni
af kommúnismanum, en ég hef
ekki setið í veizlum „Kadara"
Eystrasaltsríkjanna — og fundið
gleði þeirra. Ég hef sjálfur flúið
þá gleði — og „gleðiáhrifin", sem
komu fram á alþýðu þessara
landa.
í 40 ár hafa einræðisherrar í
Kreml lofað alþýðunni gulli og
grænum skógum. Rússland er
auðugt land — og Rússar þyrftu
ekki að gerast ræningjar til þess
að lifa góðu lífi. En enda þótt
þeir hafi rænt önnur lönd, þá
lifir alþýðan enn við ill kjör. Það
er ekki nóg að reisa félagsheimili
og skjóta gervihnöttum. Það er
ekki nóg að sýna tölur um fram-
leiðsluaukningu. Segið mér: Hver
er framleiðsluaukningin í Ung-
verjalandi síðasta árið?
Þeir, sem halda, að þið séuð
málsvarar verkamanna ættu að
hugleiða, hvers vegna þið látið
þessa mestu svívirðu mannkyns
óátalda. Hvers vegna þið reynið
ekki að rétta lettneskum verka-
mönnum hjálparhönd, Lvers
vegna þið reynið að hylma yfir
mestu ódæðisverk allra .'lda.
Ég spyr líka: Hvers vegna ger-
ið þið það? Hvert rennur arður-
inn af allri framleiðsluaukning-
unni í kommúnistaríkjunum úr
því að kjör þeirra, sem verkin
vinna, eru ekki bætt? T. d. í
Lettlandi, sem var mtkið velmeg-
unarland fyrir stríð, en þó hefur
enn aukið framleiðsluna að því
er þið segið. Samkvæmt lögmál-
um okkar ættu kjör verkafólks-
ins þar að hafa batnað enn meira.
j En samt flýja allir, sem geta —
og eiga varla garma utan á sig.
Ekki biðu Lettland og Lithauen
mikið afhroð í stríðinu, a. m. k.
ekki miðað við Eistland. Það veit
ég. Ekki hefur tekið 14 ár að
reisa Lettland úr rústum.
Eru það kannske hinir gleði-
snauðu málaliðar Stalins og
Krúsjeffs, sem fá arðinn í þókn-
unarskyni fyrir að reyna að
svipta fleiri þjóðir frelsi?
Fyrir Í1 árum kom ég fyrst til
íslands, þá til Vestmannaeyja,
í kjördæmi Karls Guðjónssonar.
í sumar kom ég aftur til Vest-
mannaeyja — og mikil var breyt-
ingin. í Eyjum hefur mikið verið
byggt. Þar er risið stórt hverfi
einbýlishúsa — og það eru verka-
menn og sjómenn, sem eiga flest
þessara húsa. Margs konar heim-
ilistæki eru til á flestum heimil-
um, þetta gefur bezt til kynna
hve velmegun er hér mikil. En
þið kommúnistar veigrið ykkur
samt ekki við að reyna að
slá ryki í augu almennings og
telja honum trú um, að hér séu
allir daglaúnavinnumenn rændir,
en í ríkjum kommúnismans, sem
hundruð þúsunda flýja árlega,
sé sæluríki verkalýðsins.
Hamingjan hefur ráðið ferð
minni, ráðið því, að ég komst
til íslands. Ég veit, að hvergi er
betra að vera. Ég er af smáþjóð
— og ég kann bezt við mig með
smáþjóðum. Ég skil þeirra sjónar
mið. Þess vegna vil ég verða
tryggur því landi, sem mér hefur
reynzt svo vel. En ég þekki hug-
arfar kommúnismans — og ég vil
vara alla íslendinga við ykkur —
gleðisnauðu óheillamenn, sem
vegsömuðuð Stalin og dýrkiðvald
ið. Við höfum tengzt lýðræðis-
þjóðunum sterkum böndum —
og sannir f slendingar — hvar sem
þeir annars standa í flokki —
skilja og vita, að þau bönd meg-
um við aldrei rjúfa. Ykkar gleði-
stund yrði harmur íslands.
Eðvaid Iiinriksson.
Halla, Hal og Davíð Linker.
Linkershjónin komin til landsins
H I N N kunni kvikmyndatöku-
mað^ir, Hal Lniker, kom hingað
til lands nýlega, ásamt Höllu
konu sinni og Ðavíð syni þeirra
hjóna. Munu þau dveljast hér í
tíu daga. Hal Linker heimsótti
ritstjórn Mbl. um daginn og sagði
frá ýmsu, sem á daga fjölskyld-
unnar hefur drifið upp á síðkast-
ið. —
Þau hafa v«rið á ferðlagi víðs
vegar um suðurlönd, m.a. í
Portúgal, á Spáni, í Marokkó,
Tangier, Gibraltar, Ítalíu og
Grikklandi.
í Grikklandi var þeim hjónum
tekið með kostum og kynjum,
er það vitnaðist, að frúin var frá
íslandi. Svo sem kunnugt er
greiddu íslendingar atkvæði með
Grikkjum, er Kýpurmálið var á
dagskrá SÞ, og virðast Grikkir
muna þeim það mjög vel. Fjöldi
manna í Aþenu kunni góð skil á
íslandi, og vissu þeir gjörla hvar
það var og vissu að það- var land-
ið, sem hafði stutt málstað þeirra.
Einn af leiðsögumönnum þeirra
hjóna hafði lesið verk eftir Lax-
ness og kunni góð skil á bókum
hans.
Frá Grikklandi héldu Linkers-
hjónin til Istambúl, en þaðan með
rússnesku skipi til Oddessa. Síðan
dvöldust þau þrjár vikur í Sovét-
ríkjunum, ferðuðust víða um og
tóku mikið af myndum. Frá Len-
ingrad fóru þau með lest til Hels-
inki og stóðu þar við í nokkra
daga, en komu beint þaðan hing-
að um Stokkhólm og Osló.
Hér mun Hal Linker sýna
nokkrar kvikmyndir, sem eru á
sýningarskrá, sem hann hefur
sýnt í sjónvarpi í Bandaríkjun-
um. Eru það myndir af dular-
fullum særingadansi í Kóngó, ís-
lenzk mynd, en þar kem-
ur Halla fram í íslenzka bún-
ingnum og loks er mynd áf perlu
köfurum við Japan. Myndirnar
verða sýndar í Gamla bíói á föstu
dag og laugardag kl. 7.
AV
♦ *
MM8ID CE
♦v
♦ *
Hæstiréttur íjall-
ar iim Little Rock
WASHINGTON, 25. ágúst. NTB-
Reuter. — Hæstiréttur Banda-
ríkjanna kunngerði í dag, að
hann mundi halda sérstakan fund
á fimmtudaginn þar sem tekið
verður til meðferðar kynþátta-
vandamálið við menntaskólann í
Little Rock í Arkansas-fylki.
Hæstiréttur, sem er æðsta dóms-
vald Bandaríkjanna, mun taka til
meðferðar kæru frá samtökum
sem beita sér fyrir auknum rétt-
indum blökkumanna þess efnis,
að blöndun kynþáttanna í mennta
skólanutn í Little Rock hefur ekki
komið til framkvæmda, enda
þótt áfrýjunardómstóllinn í St.
Louis hafi þegar skorið úr um
það, að jafnt hvítir menn sem
svartir skuli eiga frjálsan að-
gang að skólanum.
EINS og áður hefur verið getið
hér í blaðinu, tilkynntu 13
þjóðir þáttöku í opna flokknum
á Evrópumeistaramótinu í Ósló.
Aðeins 15 þjóðir mættu til leiks
og komu forföll þessara þriggja
þjóða (Póllands, Líbanons og
Sviss) það seint, að búið var að
raða niður leikum og draga um
þátttökuröð. Þess vegna urðu
forráðamenn mótsins að fara eft-
ir keppnistöflu yfir 18 þátttak-
endur og láta ávallt þrjár þjóðir
sitja yfir. Einnig var ákveðið að
gefa þeim þjóðum er sitja yfir
hverju sinni vinningsstig, eins og
þær hefðu keppt og unnið þær
þjóðir er ekki mættu til leiks.
Að vonum beinist athyglin á
mótinu helzt að norsku keppend-
unum, og einnig hafa áhorfendur
fylgzt vel með leikum heims-
meistaranna frá Italíu, Englend-
inganna og Frakka, svo og leik-
um hinna Norðurlandaþjóðanna.
Aðsókn að mótinu hefur verið
mjög góð, og það, sem á mestan
þátt í því er glerhúsið svokall-
aða, en í það eru ávallt valdar
góðar sveitir og er aðstaða, eins
og áður hefur verið getið í þætti
Faubus vill
íá að loka
WASHINGTON, 26. ág. — Faubus
fylkisstjóri vill fá heimild til að
loka skólunum í Little Rock, ef
svertingjabörn eiga að fá leyfi
til að sækja skólann. — Faubus
sagði í dag, að nauðsyn bæri til
að koma í veg fyrir, að óeirðirnar
frá í fyrra endurtækju sig.
þessum, sérlega góð fyrir áhorf-
endur, sem fylgjast betur með
þar en við önnur borð.
Nokkur spil frá EM í Ósló
íslenzka kvennasvejtin tapaði
eins og kunnugt er fyrir belgísku
sveitinni. Hér á eftir kemur spil
frá þeim leik:
Á 10 4
6 5 4
Á 9 8
D G 4 2
G 8 7 6 5 2
G 3 2
5 4
5 3
K 10 7
3
9 8 4
D G 10 9 6
D 6 2
D 8
Á G 10 7
G 7 2
N
V A
S
G 2
K 3 2
8
Á K 10, 9
6 5 3
N
V A
S
♦
♦
10
D G 9 6
3 2
Á K 10 9
8 6
K D 9 3
Á K D 9 8 7
K 10
7
Eggrún og Magnea sátu A—V
í opna salnum, en Kristjana og
Laufey N—S í þeim lokaða. —
Okkar dömur spiluðu 6 lauf
dobluð, en þær belgísku spiluðu
6 tígla. Sagnirnar unnust á báð-
um borðum og græddi íslenzka
sveitin þrjú stig á spilinu, en allt
kom fyrir ekki, leikurinn tapað-
ist.
Eins og sést á spilunum, þá
eiga norður og suður mjög góða
fórn, annaðhvort í hjarta eða
spaða. Er einkennilegt að á hvor-
ugu borðinu skyldi sú fórn hafa
verið reynd.
íslenzka kvennasveitin sigraði
þá finnsku með 76:49. Hér á eftir
koma tvö spil frá þeim leik og
sýna þau bæði að íslenzku döm-
urnar hafa bæði verið harð-
skeyttari og betri í sögnum en
þær finnsku:
♦ A D 5
V Á 8 5 4
♦ K 7 5 4 3
♦ 4
Suður gefur, austur—vestur á
hættu.
í opna salnum opnaði Eggrún
á 1 tígli, vestur pass, Magnea
sagði 2 tígla og það var passað
í kring, einn niður.
í lokaða salnum gengu sagnir
nokkuð á annan veg.
Þar opnaði suður líka á 1 tígli,
vestur sagði pass, norður 1
hjarta, austur 2 lauf, suður 2
hjörtu, vestur 2 spaða, norður
pass, austur 3 lauf, suður pass,
vestur 4 lauf, norður pass og
austur 5 lauf, sem var passað.
Þær Laufey og Vigdís spiluðu
því 5 lauf, sem unnust léttilega
eftir útspilið hjarta-ás, og þarf
ekki annað en staðsetja spaðaás-
inn hjá suðri. Þetta spil gaf ís-
lenzku dömunum 6 stig.
A
V
♦
*
♦ 62
V G 6 5 4 3
2
♦ 65
* K5 2
D G 8 2
K 8
10 4 3
A 8 6 3
N
V A
S
9
♦
*
Á.K10 7
5 4
7
G 9
10 9 7 4
Á D 10 9
Á K D 8 7 2
D G
Austur gaf og A—V á hættu.
I opna salnum spilaði Eggrún
6 tígla, sem auðvitað unnust, því
að laufkóngurinn var á réttum
stað, en í lokaða salnum spiluðu
finnsku dömurnar 3 grönd og
fengu 11 slagi.
íslenzka kvennasveitin græddi
því 5 stig á þessu spili.