Morgunblaðið - 28.08.1958, Side 14
14
MORGVNBLAÐ1Ð
Tfmmtudagur 28. ágúst 1958
— Utan úr heimi
Framh. af bls. 8.
að miklu leyti í sundlaugum og í
sjónum frá því hún var 6 ára.
Hún réði sig sem skrifstofustúlku
hjá olíufélagi við Persaflóa, „til
þess að komast nær Ermarsundi".
Þegar hún hafði safnað nógu fé
fór hún rakleitt með flugvél til
Calais í Frakklandi.
Ermarsundið var kaldara en
Persaflói. En alls synti Florence
fimm sinnum yfir Ermarsund,
þrisvar vestur yfir frá Frakk-
landi og tvisvar austur yfir frá
Englandi. Það er dáð, sem enginn
karlmaður hefur enn leikið eftir
henni. Um tíma átti hún met bæði
fyrir karla og konur austur yfir,
13 klst. og 55 mín. og fyrir kon-
ur vestur yfir 13 klst. og 23 min.
Florence lét ekki þar við sitja,
heldur synti hún yfir Gibraltar-
sund og yfir Bosporus. Að lok-
um reyndi hún við Juan de Fuce
á vesturströnd Kanada. Þar gafst
hún upp. Það þarf ekki að taka
það fram, að enginn hefur sigrað
Juan de Fuce, vegna kulda.
Önnur kona sló met Florence
Chadwick vestur yfir. Það var
Brenda Fisher, sem synti það ár-
ið eftir á 12 klst. 42 mínútum.
Hún er ættuð frá Grimsby og er
faðir hennar togaraskipstjóri.
Þegar hún óð upp í fjöruna við
Dover var hún yfir sig glöð og
hrópaði til fylgdarmanna sinna:
Sendið þið strax skeyti til pabba,
hann er á togaranum „Leeds
Union“ að veiða þorsk á íslands-
miðum.
Sama kvöldið fór Brenda Fish-
er á dansleik í Dover og var ekki
síður kát og fjörug.en hinir veizlu
gestirnir.
Þær eru nú báðar hér Margate
að æfa sig, Greta Andersen og
Brenda Fisher. Þær eru báðar
mjög sterkar og vöðvastæltar
konur, Greta er grennri og snögg-
ari í hreyfingum, Brenda sígur
líklega meira í og er sterkari.
Það væri vissulega gaman að sjá
þær glíma.
Þær keppa báðar yfir Ermar-
sundið og margir eru þeir sem
telja, að þær verði körlunum of-
jarlar.
Fjórum sinnum fleiri gefast upp
Eins og ég hef sagt áður má
ætla að alltað fjórum sinnum
fleiri gefist upp við Ermarsund
en hafa það. Þar með er ekki
sagt, að allir þeir sem gáfust upp
hafi verið dáðlaus lítilmenni.
Þvert á móti börðust þeir flestir
hetjulegri baráttu. Sögurnar
af þeim eru ekki síður hetjusög-
ur, þar sem orkunnar var neytt
til hins ýtrasta, þar til frumur
líkamans beinlínis hætta að hlýða
boðum viljans.
Hugsið ykkur t.d. Egyptann Att
allah. Hann var roskinn maður,
um fimmtugt, sex sinnum reyndi
hann við Ermarsund á eigin veg-
um, ekki á vegum ríkisins. í eitt
skiptið var hann 27 klst. í ísköld-
um sjó Ermarsundsins, tvisvar
var hann örskammt undan Dover,
en straumar báru hann frá landi
í bæði skiptin.
Eða Paraguay-maðurinn, sem
lagði af stað í blíðviðri en á miðj u
sundi gerði storm og braut á öTd-
um svo að sundmaðurinn og báts-
menn voru í mikilli lífshættu.
Bráðlega varð sundmaðurinn
vankaður og sjóveikur og missti
rétta stefnu. Þegar hann hlýddi
ekki fyrirskipun um að koma
uppúr, várð að taka hann með
valdi. En hann barðist á móti
með hnúum og hnefum. Hann var
dreginn upp í bátinn, en í æð-
inu sló hann ræðarann útbyrðis,
svo hann var næstum drukknað-
ur. Hann varð að liggja lengi í
sjúkrahúsi.
Eða egypzki sundmaðurinn
sem var dreginn örmagna upp í
bát sinn eftir 17 klst. í sjónum.
Hann hrópaði: Gefið mér bómull
til að þurrka augun. Honum var
fenginn bómullarhnoðri en í stað-
inn fyrir að strjúka augun með
honum stakk hann honum upp í
sig og borðaði.
Sú fyrirætlun að synda yfir
Ermarsund verður mörgum sem
sterkasta ástríða. Þegar alþjóða-
keppni skyldi fara fram 1951
sóttu 140 menn frá öllum hlutum
heims um þátttöku. Aðeins 70
voru valdir. Var ekki talið fært
að þeir yrðu fleiri af skipulags-
ástæðum. Meðal þeirra sem hafn-
að var, var enskur járnsmiður 44
ára, risi að vexti og 9 barna faðir.
Hann sótti enn um þátttöku í
keppninni 1952 og 1954 en var
enn neitað. Þá ákvað hann að
synda einn og fylgdarlaust yfir
Ermarsund. í fyrstu tilraun í júlí
1954, varð hann að gefast
upp eftir 8 klst., þegar hann var
svo heppinn að finnskt flutn-
ingaskip tók hann upp. Seinni
tilraunina gerði hann 7. septem-
i ber. Hann synti aleinn út á sjó-
inn en dró á eftir sér gúmmíkút
sem hann hafði fest í steikta
kjúklinga og flösku af rommi.
Hann kom ekki aftur fram á lífi.
Þremur vikum síðar rak lík hans
á land í Hollandi.
Þetta eru helztu sögurnar, sem
maður heyrir hér í æfingastöð-
inni Margate um þá mörgu og
miklu kappa, sem reynt hafa að
sigra Ermarsundið. Sumum hef-
ur tekizt það, öðrum ekki.
Þ. Xh.
—Hlustað á úfvarp
Framh. af bls. 6
ensku og svo þýtt, mikill söngur
o.s.frv. —
Á afmælisdag Reykjavíkur-
kaupstaðar talaði Einar Ásmunds
son, hæstaréttarlögmaður Um
daginn og veginn. Var ræða hans
öll um okkar ágætu höfuðborg,
sköruleg ræða og athyglisverð.
Ef til vill verður hún birt hér
í blaðinu og ætti svo að vera, að
mínu áliti. Hann gat þess, m.a.
að menn athuguðu það oft ekki,
að þegar þeir eru að skamma
Reykjavík, þá eru þeir að
skamma sjálfa sig, því hér eru
nú menn, sem hingað hafa flutt
úr öllum sveitum, bæjum og
kaupstöðum landsins. Esja, hið
fagra fjall, er t.d. „eins og illa
uppborinn fjóshaugur“ — og
álíka smekklegar glósur sagðar
og birtar í blöðum. — En meðal
annarra orða — ætli Reykvíking-
ar fái ekki að greiða talsverðan
hluta af þeim 90 millj. kr. sem
ríkið hefur tekið að láni erlendis
til Efra-Sogsvirkjunarinnar auk
þess helmings sem bærinn á í afl-
stöð þessari? Og er sjálfsagt ekk-
ert við það að athuga, þótt Reyk-
víkingar leggi sinn skerf til þessa
þjóðþrifafyrirtækis, sem gerir
Sementsverksmiðju og Áburðar-
verksmiðju fært að starfa, — í
þarfir alþjóðar. Ég gat þess ný-
lega að Sementsverksmiðjan
væri illa staðsett á Akranesi.
Bæjarstjórn Rvíkur hefur nýlega
fjallað um þetta mál, það er raf-
magnsleysi á Akranesi snertir.
Auðvitað kemur fleira til greina,
svo sem flutningur sementsins til
Reykjavíkur og fleiri staða hér
nærlendis. Vissulega átti þessi
verksmiðja að standa í Gunnu-
nesi eða þar nálægt, sem mest er
notað af sementi.
★
Lokið er lestri sögu Peter
Freuchen „Sunnufell“, er Sverr-
ir Kristjánsson fór með í 24 lestr
um. Peter Freuchen þekkir sitt
fólk, bæði hina frumstæðu Eski-
móa, sem hann dvaldi lengi með
og svo menningarfrömuðina
dönsku í Grænlandi. Þetta er
menningarsaga, rituð í gaman-
sömum stíl og mjög hlutlaus, að
því er Dani snertir. Ég hlustaði
jafnan á sögu þessa hafði ekki
lesið hana áður og þykist hafa
fengið talsverðan fróðleik af
hnni, enda þótt ég hafi áður
lesið mikið um Grænland. .—
„Byssa og Svaði“ heitir skemmti-
leg frásögn um ferðalag á hestum
er Sigurður Jónsson frá Brún
flutti 21. ágúst. Er ekki á allra
færi að segja svo vel frá ferða-
lagi á hestbaki, enda vita allir
að Sigurður kann lagið á því.
Vafalaust er mikið hlustað á er-
indi þau er Sigurður frá Brún
flytur. Þau eru þess virði.
Þorsteinn Jónsson.
íslenzki fáninn blakti loks við hún
Vilhjdlmur Einarsi
íslands d EM
STOKKHÓLMI, 23. ágúst — Það
virtist ekki blása byrlega — en
það endaði vel. Klukkan 1 e. h. í
dag gerði þvílíka rigningu að við
íslendingarnir hér höfum aldrei
annað eins séð — en kl. 7 í dag
var íslenzki fáninn dreginn að
hún við hátíðlega verðlaunaaf-
hendingu á gamla Stadion.
Við höfum aldrei séð fegurri
fána á stöng, enda var það síð-
asta von íslands, síðasti kep'p-
andinn og síðasta stökk hans,
sem eiginlega dró hann að hún.
Hvílík gleði, hvílíkur léttir, eftir
vonir og óskir og bænir — ár-
angurslausar. Það var Vilhjálm-
ur Einarsson, sem þannig sneri
sorg okkar í gleði. Fyrir hans
afrek var það, sem ísland komst
á blað meðal þjóðanna í hinni ó-
opinberu stigakeppni og fyrir
hans afrek var það, sem 32 þús-
und áhorfendur á Stadion þenn-
an dag fengu að sjá íslenzka fán-
ann — og meðal áhorfendanna
var Gústaf Adolf Svíakonungur.
Það þýðir vart fyrir mig að
reyna að lýsa rigningunni í dag
og afleiðingum hennar á leik-
vanginum. Til slíkrar lýsingar
skortir orð. Að það hafi verið
eins og hellt úr fötu, er lítil
sem engin lýsing. Það var ský-
fall og það ekki einu sinni held-
ur oft og bilin á milli þeirra
voru brúuð með þéttri og meiri
rigningu en íslendingar hafa að
jafnaði kynnzt. Rigningin var
það „Evrópumet", sem eyðilagði
afrek flestra þennan dag, og
snerti flesta þennan dag.
Leikvangurinn varð eins og á
hann hefði verið varpað
sprengju. Öll merki á hlaupa-
brautunum þurrkuðust út á auga
bragði. Það var reynt aftur og
aftur að setja þau — en árang-
urslaust. Fólkið reyndi að finna
afdrep hvar sem gafst. í dyra-
gættum, þar sem venjulega
myndu geta staðið 10 manns
stóðu 30 og fór vel á með öllum.
Alls staðar þar sem skjól var,
var „pakkað" meira en í Klepps-
hraðferðina um hádegisbil. En
öllum kom vel saman og nutu
frábærra afreka íþróttamann-
anna þráct fyrir erfið skilyrði.
Þrístökkskeppnin hófst kl.
15,30. Við blaðamennirnir, sem
höfðum farið að heiman kl. 10
um morguninn í blíðu veðri og
þurru, stóðum rétt áður frakka-
lausir í dyrum blaðamanna-
klúbbsins, 200 metra frá Stadion.
Á þeirri leið urðum við gegnvot-
ir. Við getum þá hugsað hvernig
þrístökkvurunum 18, sem áttu
að keppa, leið eftir að verða að
standa í þessari ausandi rign-
ingu frá 15,30 til klukkan 6.
Þessar aðstæður ásamt með
meiðslum þeim er Vilhjálmur
hafði orðið fyrir gerðu að litlu
sem engu vonir okkar um að
hann kæmist í 6 manna úrslit.
Þegar hann og gerði sit fyrsta
stökk ógilt styrkist trú okkar á
að örlög íslenzka hópsins hér
væru ráðin. En Vilhjálmur
kunni sig á þessum velli og tók
rigningu og hinum erfiðu að-
stæðum betur en við blaðamenn-
irnir.
Þegar byrjaði að rigna höfðu
segl verið breidd á þristökks-
brautina, en er þeim var lyft upp
er keppni hófst voru eiga að síð-
ur pollar á brautinni. Tók um
hálftíma að þurrka þá upp og
störfuðu að því margir vallar-
starfsmenn. Þeir helltu olíu á
brautina og kveiktu í og reyndu
að þurrka hana, en illa gekk, því
stöðugt rigndi ofsalega. En bálin
settu sinn svip á blautt umhverf-
ið. —
í fyrstu umferð gerðu 7 menn
ógilt, en lengst stökk Schmidt,
Póllandi, 15,94 metra. Eftir fyrstu
umferð nægði Vilhjálmi 14,85 m
;on — síðasta von
— brást ekki
til að verða 6. maður. Við von-
uðum hið bezta.
í annarri umferð undirbjó
hann sig vel og stökk 15,22 m.
Sjaldan hefur þyngra fargi verið
létt af tveim blaðamönnum og
útvarpsmanni en þá. Við vissum
að þetta nægði honum til 6
manna úrslita. Og þegar hann í
þriðju umferð náði 15,35 m var
hann í 4. sæti er til endanlegra
úrslita kom — Það þýddi 3 stig
til íslands.
Þeir sex, sem komust í endan-
leg úrslit, voru Schmidt með
Vilhjálmur
15,98, Rajkhovsky 15,48, Malcher-
czyk, Póll., 15,56, Vilhjálmur
15,35, Rahkarno, Finnl., 15,18, og
Battista, Frakkl., 15,18.
Þegar 18 menn höfðu stokkið
þrjú stökk hver og 6 manna úr-
slit skyldu hefjast, var brautin
að gryfjunni einn pollur og alger-
lega ónothæf. Var úrslitakeppnin
flutt að annarri gryfju. Það
þýddi nýja mælingu atrennu-
brauta keppendanna sex, og
kannski ógild stökk. Við vorum
þó ánægðir með að Vilhjálmur
skyldi vera fjórði og gerðum
okkur ekki frekari vonir.
I 4. umferð byrjaði Malcher-
czyk með 13,04 og Rajkhovsky
stökk 15,39 m. Vilhjálmur var
næstur og undirbjó sig vel.
Meðal' annars hætti hann við
stökkið þegar truflun kom frá
hátalara. Þetta gerði hann þrátt
fyrir rigninguna og kuldann, er
hann vildi geta einbeitt sér al-
gerlega að stökkinu. Þetta er að
kunna að keppa á stófmóti. Hann
stökk og stökkið var mjög gott
unz að þriðja stökkinu kom.
Þá náði hann ekki fótunum
fram, en ferðin var slík, að
hann fór kollhnís í gryfjunni og
kom á fæturna. Eigi að síður
mældist stökkið 15,14 metrar.
Örn blaðamaður gaf mér oln-
bogaskot og sagði: „Hvað held-
urðu að hefði skeð, ef þetta stökk
hefði heppnazt."
En Battista, sem var síðastur í
stökkröð náði 15,42 m og fjórða
sætinu af Vilhjálmi. Þá voru
stigin orðin tvö, sem ísland átti.
Og í fimmtu umferð náði Mal-
cherczyk 15,82, svo allar vonir
okkar um verðlaun þurrkuðust
út. Þá stökk Rajkhovsky 16,02 og
tók forystuna. Vilhjálmur átti
gott stökk, en rauðum fána var
veifað til merkis um ógilt stökk.
Schmidt svaraði Rajkhovsky
með 16,43 metrum við gífurlegan
fögnuð og Battista náði 15,48.
Þetta töldum við úrslitin og ekki
bætti úr að nú gerði enn eitt
skýfallið.
En Villijálmur hafði ekki sagt
sitt síðasta orð. Keppnisskap
hans kom í ljós. Þegar allt blés
á móti, veðráttan, góður árangur
keppinautanna og almenn
óheppni íslenzka flokksins, stælt-
ist hann á örlagastund. Allir ís-
lendingar höfðr Iokið sinni
keppni. Hann var á vellinum til
að segja síðasta orðið af íslands
hálfu. Hann einbeitti sér lengi
að stökkinu og þegar hann
lenti í gryfjunni, kváðu við gíf-
urleg fagnaðarlæti áhorfenda.
Stökkið mældist 16,00 m. Hann
hafði tryggt íslandi — og sér —
brosnverðlaun og 4 stig.
Þegar þeir Schmidt, heimsmet-
hafinn Rajkhovsky og Vilhjálm-
ur mættu á verðlaunapallinum
og tóku á móti verðlaunum var
Vilhjálmi ákafast fagnað.
Ég held að stór happdrættis-
vinningur hefði ekki gert okkur
Einarsson
íslendingana, sem þarna vorum,
glaðari. Okkur fannst allt í einu
þessi blauti leikvangur vera fal-
legur — sá fallegasti í heimi.
Klukkustund síðar var verðlaun-
um úthlutað. Fáni íslands var
dreginn að hún ásamt þeim
pólska og rússneska.
Engum nema kannski Pólverj-
um og Rússum gat blandazt hug-
ur hver fánanna þriggja var fal-
legastur.
A. St.
Úrslit urðu sem hér segir á
laugardaginn:
Kúluvarp: — 1. Rowe, England,
17,78 m.; 2. Lipsnis, Rússlandi,
17,47 m.; 3. Skobla, Tékkósló-
vakíu, 17,12 m.; 4. Lingnau,
Þýzkalandi, 17,07 m.; 5. Maconi,
Ítalíu, 16,98 og 6. Losjilov, Rúss-
landi 16,96 m.
5000 m hlaup; — 1. Krzyszkow-
iak, Póllandi, 13.53,4 mín.; 2.
Zimmy, Póllandi, 13.55,2 mín.;
3. Pirie, Englandi, 14.01,6 mín.;
4. Clark, Englandi, 14. 03,8 mín.;
5. Artinuk, Rússlandi, 14.05,6
mín. og 6. Iharos, Ungverja-
landi, 14.07,2 mín.
Þrístökk: — 1. Schmidt, Pól-
landi, 16,43 m.; 2. Rjachovski,
Rússlandi, 16,02 m.; 3. Vilhjálmur
Einarsson, íslandi, 16,00 m.; 4.
Malcherczyk, Póllandi, 15,83 m.;
5. Battista, Ítalíu, 15,48 m. og
6. Rahkamo, Finnlandi, 15,18 m.
Kúluvarp kvenna: — 1. Wern-
er, Þýzkalandi, 15,74 m.; 2.
Tyshkevich, Rússlandi, 15,54 m.;
3. Press, Rússlandi, 15,53 m.; 4.
Lúttge, Þýzkalandi, 15,19 m.;
5. Allday, Englandi, 14,66 m. og
6. Coman, Rúmeníu 14,55 m.
200 m. lilaup: — 1. Germar,
Þýzkalandi, 21,0 sek.; 2. Segal,
Englandi, 21,3 sek.; 3. Delecour,
Frakklandi, 21,3 sek.; 4. Mandlik,
Tékkóslóvakíu, 21,4 sek.; 5.
Brightwell, Englandi, 21,9 sek. og
6. Konovalov, Rússlandi, 22,0 sek.
200 m. hlaup kvenna: — 1. Jan-
iszewska, Póllandi, 24,1 sek.; 2.
Sadau, Þýzkalandi, 24,3 sek.;
3. Itkina, Rússlandi, 24,3 sek.;
4. Zabelina, Rússlandi, 24,6 sek-
og 5. Stubnick, Þýzkal., 25,7 sek.