Morgunblaðið - 28.10.1958, Qupperneq 1
20 sídur
45.
Eftir 8 atkvæðagreiðslur vænkast
hagur Montinis og Agagianians
Fást úrslitin i páfagarði i dag ?
PÁFAGARÐI, 27. okt. —
(Reuter) — Átta sinnum
hafa kardínálarnir, sem lokað
ir eru inni í Sixtínsku kap-
ellunni greitt atkvæði í kosn-
ingunni um nýjan páfa. Allt
hefur verið árangurslaust
fram til þessa og aldrei náðst
tilskilinn % meirihluti og
einu atkvæði betur. Að öðru
leyti er ekkert vitað um hver
hefur verið atkvæðahæstur í
atkvæðagreiðslunum.
Hins vegar telja þeir, sem
kunnugastir eru í páfagarði,
að hinar mörgu árangurs-
lausu atkvæðagreiðslur aukí
helzt möguleika tveggja
manna að komast í páfastól-
inn, þeirra Montinis erkibisk-
ups af Mílanó og Agagianians
kardínála Armena. Þeir
benda á það, að hvorugur
þessara manna hefði getað
vænzt þess að fá mörg at-
kvæði í byrjun, því að kosn-
ing þeirra beggja brýtur
aldagamlar venjur.
Montini situr sem fastast í
Milano
Montini er ekki kardínáli. Það
hefur ekki komið fyrir í alda-
raðir, að maður utan kardínala-
samkundunnar sé kosinn páfi.
Montini hefur því ekki atkvæðis-
rétt og hefur ekki fengið inn-
göngu í Sixtínsku kapelluna.
Hann situr í biskupssetri sínu
norður í Mílanó. Ef útlit væri
fyrir að nann næði kosningu má
ætla að sent yrði eftir honum,
því að svo er fyrir mælt, að strax
og páfi hefur verið kjörinn skuli
hann ganga út og ávarpa og
blessa mannfjöldann á Péturs-
torginu.
Agagianian kardínáli er ekki
ítalskur, en annarra þjóða menn
hafa ekki hlotið kosningu í 435
ár.
Mistök með reykmerki
Kardínálarnir í Sixtínsku
kapellunni eru innilokaðir og
geta ekki gefið umheiminum til
kynna úrslit hverrar atkvæða-
greiðslu með öðrum hætti en reyk
upp af ofni þeim, þar sem þeir
brenna atkvæðaseðlana. Hafi
kosning ekki borið árangur
brenna þeir með seðlunum blautri
heyvisk, sem myndar dökkan
reyk, en seðlunum eintómum,
sem mynda hvítan reyk, ef páfi
er kosinn.
Við atkvæðagreiðslurnar, sem
fram fóru á sunnudaginn urðu
sífelld mistök við brennslu þessa
svo að tvisvar þann dag þóttist
mannfjöldinn sem beið fyrir utan
á Péturstorgi sjá það réttilega, að
reykurinn, sem upp úr stromp-
inum kom, væri hvítur. Við þetta
rak mannsöfnuðurinn upp marg-
raddað fagnaðaróp og fréttamenn
sendu fregnir út um allan heim,
að nýr páfi væri kjörinn. Jafn-
vel útvarpsstöð pófagarðs sendi
út þá fagnaðarfrétt að lokið væri
páfakjöri. Þetta reyndist þó ein-
tóm mistök.
Háttsettur embættismaður í
páfagarði kom þeim skilaboðum
með einhverjum óskiljanlegum
hætti inn til kardínálasamkund-
Vonbrigði yfir því að
Serkir hafna fundum
De Gaulle fyrirskipar allsherjarsókn
unnar, að þessi mistök hefðu vak-
ið mikla gremju og vonbrigði. Af
þeim fjórum reykmerkjum, sem
gefin voru frá Sixtínsku kapell-
unni í dag var og ljóst, að þessu
hefði verið komið í lag.
Margir eru þeirrar skoðun-
ar, að ekki muni þurfa nema
12 atkvæðagreiðslur til að
Ijúka páfakjöri og ætti því
þá að ljúka á morgun (þriðju-
dag).
Einn kardínálanna 51, sem
dveljast nú í Sixtínsku kapell
unni er rúmliggjandi í klefa
sínum. Það er Nicola Canali, 84
ára ítali, sem þjáist af hjarta
bilun. Það var ljóst þegar á laug-
ardaginn að hann væri lasinn,
því að hann þurfti oft að setj-
ast niður á leiðinni frá bifreið
sinni að Sixtínsku kapellunni.
Læknar segja að vel geti svo
farið, að flytja verði kardínála
þennan í sjúkrahús og yrði þá
að rjúfa innsigli á inngangi
kapellunnar.
Mynd þessi var tekin af Past
ernak er hann ræddi við vest-
ræna blaðamenn í garðinum
við íbúðarhús sitt daginn eftir
að hann hafði verið sæmdur
N óbels-verðlaununum.
Russarí kappi
að sprengja
kjarnorku-
sprengjur
NEW YORK, 27. okt. (NTB)
Sovétríkin neituðu í dag opin
berlega að fylgja því fordæmi
Bandaríkjanna og Bretlands
að stöðva tilraunir með kjarn
orkusprengjur í eitt ár frá
næstu mánaðamótum.
Valerian Zorin tilkynnti
þetta í stjórnmálanefnd Alls-
herjarþings SÞ.
Hann lýsti því yfir að Rúss
ar teldu sig hafa fullan rétt
til að sprengja jafnmargar
kjarnorkusprengjur eins og
Bandaríkin og Bretland hefðu
sprengt samanlagt frá 31
mars sl.
É>-
Þannig leit símskeytið frá Pasternak út, er han n svaraði skeyti sænsku akademíunnar. — Það
hljóðar svo: Ákaflega þakklátur, hrærður, hreykinn, undrandi, ruglaður.
gegn uppreisnarmönnum
Hafa Islendingar boð/ð
Fœreyingum oð ve/ðo inn-
an 12-mílna landhelgi?
Upplýsingar Kristians
Djurhuus lögmanns
PARÍS, 27. okt. —Reuter-
NTB— Útlagastjórn Serkja
hafnaði á laugardaginn til-
boði frönsku stjórnarinnar
um að hefja viðræður um
*---------------------------★
Þriðjudasur 28. október.
Efni blaðsins er m.a.:
BIs. 3: Jónas B. Jónsson kjörinn skáta-
höfðingi.
—• 6: Starfsemi Loftleiða út um
heim.
ísland nr. 10 í B-riðli (Skák-
bréf frá Miinchen).
— 8: Rogalandsbréf frá Árna Ey-
lands.
— 9: Kvenþjóðin og heimilið.
HlustaÖ á útvarp.
—■ 10: Forystugreinin: „í samráði við
vinnustéttirnar“.
Frægir rithöfundar hundeltir.
(Utan úr heimi).
— 11: Flokkun mannkynsins úrelt
— 13: List um landið.
Kvikmyndaþáttur.
—- 18: íþróttir.
★---------------------------★
vopnahlé í Alsír. De Gaulle
var staddur á sveitasetri
sínu í Colombey les Deux
Eglises, er honum barst
þessi frétt. Hann hefur íhug-
að ástandið í Alsír og rætt
við ýmsa ráðgjafa sína, en
ekki hefur hann kvatt ráðu-
neytið saman til aukafund-
ar.
Stjórnmálaritstjórar velta því
nú fyrir sér, hvað kunni að valda
því að útlagastjórnin hafnaði til-
boði de Gaulles, þar sem hún
hafði þó áður lýst sig reiðubúna
til slíkra viðræðna. í svari sínu
segir útlagastjórnin, að hún vilji
ekki ræða um vopnahlé, heldur
almennt um stjórnmálaástandið
í Alsír og sett var að skilyrði að
viðræðurnar færu fram í hlut-
lausu landi.
Það er álit manna, að skoðanir
meðal ráðherranna í útlagastjórn
inni hafi verið skiptar um það
hvort taka skyldi tilboðinu. Tveir
Eramh. á bis. 19
KAUPMANNAHÖFN, 27.
okt. (Einkaskeyti frá PaJi
Jónssyni) — Danska ríkís-
stjórnin hefur fengið tilboð
frá Islandi þess efnis að
færeyskir fiskimenn fái
ákveðin fiskveiðiréttindi
innan 12 mílna fiskveiði-
takmarka íslands, gegn þvi
að Danmörk veiti íslend-
ingum samsvarandi rétt-
indi við Grænland.
Krístian Djurhuus, lög
maður Færeyinga, gaf
þessar upplýsingar í ræðu
sem hann flutti í kvöld í
færeyska útvarpið. Skýrir
Berlingske Aftenavis fra
þessu í kvöld.
Lögmaðurinn bætti því
við, að danska ríkisstjórnin
væri ekki »eiðubúin að svo
stöddu að gera slík við-
skipti um réttindi Græn-
lands.
Upplýsingar þessar gaf
Kristian Djurhuus sem
svar við fyrri yfirlýsingu
Erlends Paturssonar um að
Færeyingar gætu fengið
fiskveiðiréttindi með færi
og línu innan íslenzkrar
fiskveiðilandhelgi, ef Fær-
eyingar höfnuðu hinni
brezku málamiðlunartil-
lögu varðandi landhelgi
Færeyja.