Morgunblaðið - 28.10.1958, Blaðsíða 18
18
MORCUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 28. okt. 1958
Sextán ára piltur vann til þrettán
verðlaunapeninga á fáunt mótum
A SUNNUDAGINN bauð Frjáls-
íþróttasamband íslands til kaffi-
drykkju miklum fjölda eldri og
yngri frjálsíþróttamanna. Var
samsætið haldið í Nausti og þar
voru afhent verðlaun frá öllum
þeim mótum sumarsins sem ekki
höfðu áður verið afhent verðlaun
fyrir.
Það voru margir, ungir efnis-
og skyldi sá hljóta til eignar er
fyrstur hlypi 1500 m undir 3:50,0
mín. Það gerði Svavar í sumar.
Afhenti Ben. G. Waage þennan
bikar.
Jón Hjartar, hinn gamalkunni
spjótkastari, kvaddi sér hljóðs og
hyllti Jóel Sigurðsson, sem um
20 ára skeið hefur verið einn okk
ar bezti eða bezti maður í spjót-
kasti. Afhenti Jón honum að gjöf
frá gömlum spjótkösturum ljósa
stiku eina fagra og kvað gjöfina
vera þakklætisvott fyrir, að Jóel
skuli hafa verið „eina ljósið“ í
spjótkasti hérlendis um langt
skeið. Var máli Jóns vel tekið,
enda skörulega flutt og röggsam-
lega.
Ýmsar hvatningarræður voru
fluttar og var hóf þetta hið á-
nægjulegasta.
Fram vann ÍR 16:11
Leikrit Strindbergs, „Faðirinn", hefur nú verið sýnt 8 sinnum
vif ágæta aðsókn. Leikritið var sýnt 5 sinnum á sl. leikári og
3 sinnum nú í haust. Eins og kunnugt er, er leikritið eitt af
meistaraverkum leikbókmenntanna, enda hefur það fengið
mjög góða dóma, bæði hjá gagnrýnendum og áhorfendum. Nú
eru aStins eftir tvær sýningar á „Föðurnum“ og er næstsíðasta
sýningm í kvöld. —
Aston Villa vann Bolton
menn og gamlir og reyndir garp-
ar, sem fóru með allþunga byrði
verðlaunapeninga frá hófi þessu.
Athyglisverðast var þó að 16 ára
piltur Kristján Eyjólfsson ÍR,
veitti þarna viðtöku 13 pening-
um auk verðlaunaskjala, því að
yfirleitt eru ekki veittir verð-
launapeningar öðrum en fyrsta
manni á drengjamótum, nema
hinum stærstu. Hafði Kristján
hlotið verðlaun þessi fyrir sig-
ur í mörgum ólíkum íþróttagrein
um og virðist þarna vera á ferð
inni ný „stjarna“, svo mjög sem
hann ber af jafnöldrum sínum
nú. Ýmsir aðrir piltar höfðu unn
ið til margra verðlauna, enda
hafa margir unglingar náð mjög
athyglisverðum árangri í sumar.
Tignust verðlaun er þarna
voru afhent var Forsetabikarinn.
Hlaut hann Hilmar Þorbjörnsson
Á fyrir bezta afrek unnið 17. júní
í sumar — fyrir 100 m hlaup á
10,5 sek.
Þá var Kristleifi Guðbjörns-
syni afhentur Juuranto-bikarinn
sem gefinn var af Erik Juuranto
ræðismanni fyrir nokkrum árum
og skyldi vinnast til eignar af
þeim manni er fyrstur næði til-
skildu afreki í 3000 eða 5000 m
hlaupi. Náði Kristleifur því með
tíma sínum í 3000 m hlaupi 8:
23,4 mín., sem er betra en Skráð
drengjamet á Norðurlöndum var
um sl. áramót, en ekki er vitað
hvort einhver norrænn piltur
hefur náð í sumar betra afreki
en Kristleifur.
Þá hlaut Svavar Markússon
KR að gjöf bikar frá ísl. veitinga
þjóni í Kaupmannahöfn. Hafði
hann gefið bikarinn fyrir nokkru
HANDKNATTLEIKSMEIST-
ARAMÓT Reykjavíkur hófst að
Hálogalandi á þriðjudaginn sl.
og var ipótinu haldið áfram á
sunnudagskvöld. Urðu þau ó-
væntu úrslit að Fram vann ÍR
með 16 mörkum geng 11 og
sýndu svo góðan leik, að þeir
geta orðið skeinuhættir jafnvel
Reykjavíkurmeisturunum KR.
Á laugardagskvöldið fóru fram
7 leikir, og urðu úrslit þessi:
í 2. fl. kvenna vann Valur Ár-
mann með 5:4 og Víkingur vann
Fram með 7:0.
í m.fl. kvenna vann KR lið
Þróttar með 10:7.
í A-riðli 3. flokks pilta vann
Ármann KR með 7:4 og Þróttur
vann Val með 7:3.
í B-r'iðli sama flokks vann
Fram Víking með 6:4.
I A-riðli 2. fl. vann Ármann
Víking með 13:3.
Á sunnudagskvöldið fór fram
keppni í 3. fl. karla B og skildu
þá Víkingur og Fram jafnir 5:5.
Einnig kepptu KR og Valur.
í m.fl. karla vann Fram ÍR
með 16:11. Náði Fram góðri byrj
un 6:0 og gerði þar með út um
leikinn. Þó ÍR næði um tíma að
lækka þetta forskot niður í 3
mörk (12:9) þá tókst þeim ekki
að ná undirtökum í leiknum og
endanleg úrslit urðu 5 marka
sigur Fram. Átti markvörður
þeirra og Ágúst Þór mestan þátt
þar í.
Úrslit á laugardag
1. deild
Aston Villa — Bolton 2:1
Blackburn — Arsenal 4:2
Blackpool — Everton 1:1
Chelsea — Leicester 5:2
Manch. Utd. — West Bromwich 1:2
Newcastle — Manchester C. 4:1
Nottingham F. — Preston 0:1
Portsmouth — Luton 2:2
Tottenham — Leeds 2:3
West Ham — Burnley 1:0
Wolverhampton — Birmingham 3:1
2. deild
Barnsley — Ipswich 3:0
Brighton — Leyton 2:2
Bristol C — Sunderland 4:1
Cardiff — Stoke 2:1
Charlton — Lincoln 3:2
Grimsby — Scunthorpe 1:1
Huddersfield — Swansea 3:2
Liverpool — Sheffield W 3:2
Middlesbrough — Fulham 2:3
Rotherham — Bristol R 3:3
Sheffield U — Derby 1:2
3. deild
Bournemouth — Bradford C 4:0
Bury — Accrington 3:1
Chesterfield — Doncaster 2:0
Colchester — Hull 1:3
Norwich — Wrexham 2:2
Plymouth — Notts Co 3:0
Q.P.R. — Halifax 3:1
Reading — Brentford 3:1
Rochdale — Newport 1:1
Southend — Southampton 1:1
Stockport — Swindon 2:0
Tranmere — Mansfield 2:2
ALDREI hefur keppnin í ensku
deildarkeppninni verið jafnari
um margra ára skeið. Ekkert lið
virðist geta tekið hreina forystu,
en liðin skiptast á um forystuna.
Arsenal hefur aftur komizt í
efsta sæti, liðið tapaði að vísu
illa í Blackburn, en sigraði í Ast-
on Villa á miðvikudag 1:2. West
Bromwich sigraði United í Manc
hester og hefur WBA unnið
þrjá síðustu leiki ,en Manchester
Utd. ekki unnið leik síðan 13.
sept., annars hefur velgengni
Newcastle vakið mesta athygli,
en liðið hefur unnið fimm af síð-
ustu sex leikum sínum og er að-
ens einu stigi neðar en efstu liðin.
Neðsta liðið Aston Villa sigr-
aði Bolton á Villa Park með 2:1,
við mikinn fögnuð yfir 30 þús.
áhorfenda. Leeds sigraði Totten-
ham í London á laugardag. Yfir
40 þús. áhorfendur komu að sjá
Tottenham vinna annan stórsig-
ur, því Leeds hefur gengið mjög
illa undanfarið, en það urðu mik-
il vonbrigði hjá áhorfendum þeg-
ar Tottenham tapaði 2:3, eftir að
hafa unnið fyrri hálfleik 2:1.
Tottenham hafði áður unnið
fjóra leiki og gert tvö jafntefli í
síðustu sex leikunum. Manchest-
er City er komið í neðsta sæti
með aðeins óhagstæðari marka-
hlutföll en Leicester, sem tapaði
í Chelsea 5:2.
í annarri deild hafa tvö lið bor
ið mikið af í haust, en þau eru
Sheffield Wednesday og Fulham.
Liverpool hefur sigrað þessi „ó-
sigrandi“ lið hvort á eftir öðru.
Fyrir laugardagsleikiria hafði
Wednesday unnið sjö leiki í röð
og ekki tapað síðan í Stoke 25.
ágúst og enn leit út fyrir að SW
bæri sigur úr býtum, en þeir
höfðu 2 yfir í hálfleik. Graham
Leggatt skoraði þrjú mörk í fyrri
hálfleik fyrir Fulham sem sigraði
Middlesbro að heiman 2:3.
Plymouth heldur enn foryst-
unni í 3. deild með 27 stig, Read-
ing hefur 23, Southend 21, Hull
City 20 og Southampton, Colch-
ester, Tranmere og Queens Park
Rangers hafa 19 stig hvert.
í 4. deild er keppnin aftur að
harðna, þ.e. York tapaði heima
fyrir Exeter 0:2. York City er
samt enn efst með 23 stig, Port
Vale og Coventry 22 stig hvort,
Exeter City 21, Walsall, Shrews-
bury, Millwall og Gillingham
hafa hlotið 20 stig hvert.
1. deild
Arsenal 15 8 2 5 41:24 18
W olverhampton 14 8 2 4 31:19 18
Bolton 14 7 4 3 27:18 18
Preston 15 7 4 4 28:22 18
West. Brom 14 6 5 3 36:22 17
Luton Town .... 14 5 7 2 26:18 17
Newcastle 14 8 1 5 31:26 17
West Ham Utd. 14 7 1 6 30:29 15
Chelsea 14 7 1 6 36:36 15
Blackburn 14 5 4 5 33:25 14
Nottm. Forest .... 14 6 2 6 26:22 14
Burnley 14 5 4 5 23:21 14
Blackpool 14 4 6 4 15:17 14
Manchester U. 15 4 5 6 30:26 13
Tottenham 14 5 3 6 33:33 13
Portsmouth 14 4 4 6 24:31 12
Leeds Utd 14 3 6 5 15:23 12
Everton 14 5 1 8 25:41 11
Birmingham .... 14 4 3 7 17:29 11
Aston Villa 15 4 3 8 22:38 11
Leicester 14 3 4 7 24:37 10
Manchester C. 14 3 4 7 21:37 10
2. deild
Sheffield Wedn. 14 11 1 2 43:15 23
Fulham 14 10 3 1 39:19 23
Stoke City 15 9 2 4 29:25 20
Bristol City .... 14 8 1 5 34:23 17
Bristol Rovers 14 7 3 4 28:23 17
Charlton 14 7 3 4 32:28 17
Liverpool 14 7 2 5 28:24 16
Sheffield Utd. 14 5 4 5 20:14 14
Barnsley 14 6 2 6 25:28 14
Huddersfield .... 14 5 3 6 23:16 13
Cardiff City .... 13 6 1 6 22:23 13
Leyton Orient 14 4 5 5 20:21 13
Grimsby Town 14 4 5 5 25:33 13
Derby County 15 4 5 6 20:27 13
Middlesbro 14 4 4 6 25:18 12
Brighton 14 3 6 5 19:35 12
Swansea Town 13 4 3 6 24:25 11
Ipswich Town.... 14 4 3 7 18:24 11
Rotherham 14 4 3 7 19:32 11
Scunthorpe 14 2 5 7 19:31 9
Lincoln City .... 14 3 2 9 26:33 8
Sunderland 14 3 2 9 17:38 8
4:4
Á SUNNUDAGINN mættust
landslið Dana og Svía á Rásunda-
vellinum í Stokkhólmi. Leik
lyktaði með jafntefli 4:4. Svíar
höfðu forystu og náðu 3:2. Þá
jöfnuðu Danir og skoruðu síðan
4. markið, þá tókst Svíum að
jafna. Báðir voru með sín sterk-
ustu landslið. Danir eru að von-
um hrifnir mjög.
UMF Stokkseyrar
50 ára á þessu ari
Á ÞESSU ári minnast mörg
hinna eldri ungmennafélaga
hálfrar aldar afmælis síns.
Eitt þeirra er Ungmennafélag
Stokkseyrar sem var stofnað 35.
marz árið 1908.
Hefir félagið alltaf starfað síð-
an. Á fyrstu starfsárunum var
félagslífið með miklum blóma,
átti það þá marga áhugasama og
ágæta starfskrafta, einkum á
íþróttasviðinu. Vöktu glímumenn
félagsins mikla eftirtekt og þóttu
Sundlaugin á Siglufirði
yfirbyggð
Verður einnig notuð
sem íþróttahús
SIGLUFIRÐI, 27. okt. — í til-
efni þess að yfirbygging sund-
laugar Siglufjarðar varð fok-
held s. 1. laugardag, bauð bæj-
arstjórn Siglufjarðar forystu-
mönnum íþróttahreyfingarinnar
á staðnum og fleiri aðiium að
skoða bygginguna.
- SKAK
Framh. af bls 6
13 vinninga, eða 68,4%. Ennfrem-
ur var Filippseyingurinn Borja
verðlaunaður fyrir bezta árang-
ur einstaklings í C-flokki, eða
13% vinning í 19 skákum. Mikið
var um ræðuhöld í veizlunni og
gagnkvæmar afhendingar gjafa.
Þjóðverjar héldu þetta XIII.
ólympíumót skáklistarinnar með
miklum myndarbrag. Mætti
margt gott segja um framkvæmd
mótsins en fátt eða ekkert til
álösunar. Framkvæmdastjóri var
Ludwig Schneider, formaður
bayerska skáksambandsins, skák-
stjóri Willi Fohl frá Hamborg
og skákdómari Alois Nagler frá
Zúrich.
Bæjarstjóri, Sigurjón Sæmunds
son, bauð gesti velkomna, og
gerði grein fyrir aðdraganda
byggingarinnar og gangi verks-
ins. Grunnflötur byggingarinnar
er 710 ferm., lofthæð í sal 6,2 m.
og alls er byggingin 5270 rúmm.
Fyrirhugað er að setja gólf yfir
þróna hluta árs og nota þá hús-
ið sem íþróttahús. Gufuböðum
verður í framtíðinni komið fyrir
í byggingunni, svo og sólskýli
sunnan hennar og barnaleikvelli,
sem gerður verður næsta sumar.
Verður þessi bygging nokkurs
konar æskulýðshöll Siglfirðinga.
Bragi Magnússon varðstjóri
þakkaði bæjarstjórninni fyrir
hönd íþróttafélaganna þann dugn
að og þá framsýni sem þessi
bygging bæri glöggan vott um
Fyrsti áfangi þessa verks, yfir-
bygging laugarinnar, var boðinn
út og lægsta tilboði tekið. Verk-
takinn, Bjarki Árnason, bygg-
ingameistari og starfsfólk hans,
hefur leyst verk sitt af hendi af
dugnaði og prýði.
Þetta er eitt af þeim málum á
stefnuskrá núverandi bæjar-
stjórnarmeirihluta, sem vel er á
veg komið þegar á fyrsta starfs-
ári hans. Mun sundlaugin um
ókomna framtíð verða samastað-
ur siglfirzkrar æsku og veglegt
framlag til íþróttamála staðarins.
—Stefán.
bera af öðrum er þá íþrótt stund-
uðu á þeim tíma. Átti það oft
marga þátttakendur á íþrótta-
mótum við Þjórsártún sem unnu
til verðlauna fyrir afrek sín. En
nú hefir dregið mjög úr starfs-
áhuganum í þessu ágæta félagi
og þeim fækkað sem tileinka sér
hugsjónamál ungmennafélags-
skaparins. Hefur þó sá félagsandi
er ríkti meðal brautryðjandanna
á fyrstu árunum reynzt mörgum
hollt veganesti og mörgu góðu til
vegar komið til heilla og fram-
fara sveitinni og einstaklingum
hennar.
Þeir fáu sem enn eru ofan
roldar af stofnendum þessa féiags
minnast þeirra góðu áhrifa er
þeir urðu þar fyrir og þess eld-
móðs er greip hug þeirra þegar
þessir „Vormenn íslands" voru að
hefja starf sitt fyrir hálfri öld.
Félagið minntist afmælisins
með samkomu fyrsta vetrardag
í samkomuhúsi staðarins.
Kom þá einnig út afmælisrit,
sem nokkrir félagar hafa skrifað
í endurminningar frá fyrri árum
félagsstarfseminnar.
Ásgeir.
Skákmótinu loldð
HAFNARFIRÐI. - Skákmóti þvi,
sem staðið hefir yfir hér undan-
farið, lauk á sunnudaginn, og
urðu þeir Sigurgeir Gíslason og
Gunnar Gunnarsson efstir og
jafnir með 5 vinninga hvor, næst
ir urðu Birgir Sigurðsson og
Halldór Jónsson með 4V2. —
Annars urðu úrslit í síðustu um-
ferð, sem hér segir:
Sigurgeir og Gunnar gerðu
jafntefli, Skúli vann Stíg, Birgir
Hauk og Halldór vann Kristján.
Röð keppendanna, var sem hér
segir: 1—2 Sigurgeir Gíslason og
Gunnar Gunnarsson 5 v., 3—4
Birgir Sigurðsson og Halldór
Jónsson 4% v., 5 Skúli Thoraren-
sen 3V2, 6 Stígur Herlufsen 3,
7 Haukur Sveinsson 2% og 8
Kristján Finnbjörnsson 0. — G.E.