Morgunblaðið - 28.10.1958, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 28. okt. 1958
MORGVTSHI AÐIB
19
Kirkjuþingið
Frh. af bls. 2.
flutti þessa ræðu, bað hann tíð-
indamann Mbl. að geta þess, að
ekki hafi mátt skilja orð hans
svo á kirkjuþingi um daginn, er
rætt var um frumvarp um bisk-
upskjör, og ráðherrann minntist
á endurreisn fornra sögustaða, að
hann vilji láta flytja Alþingi fra
Keykjavík og austur til Þing
valla.
★
Gísli Sveinsson, fyrrum sendi-
herra, og varaforseti þingsins
tók næstur til máls. Gísli drap
nokkuð á þá skipan er Jón Helga
son var látinn gegna störfum
áfram eftir að hafa náð hámarks-
aldri embættismanna. Kvað
Gísli það hafa verið algjöra lög-
leysu. Sama máli gegndi um
framlengingu á starfi presta hér,
þar væru lögin þverbrotin. Bisk-
upar og prestar verði auðvitað
að lúta lögunum um hámarksald
urinn. Síðan lýsti ræðumaður
fyrir þingheimi hvernig við slík
um vanda er brugðizt í Noregi,
þar sem hámarksaldurinn er 7C
ár. Þar er i þeim tilfellum, að
menn séu hæfir til að gegna
embættum sínum áfram, ákveð-
ið af stjórnvöldunum, að viðkom-
andi maður skuli gegna embætti
sínu áfram eitt ár í senn, en þó
aldrei lengur eo fimm ár. Gísii
kvaðst vera samþykkur frum-
varpi því sem komið er fram á
Alþingi um framlengingu bisk-
upsdóms Ásmundar, og kvaðsc
vona að stjórnarflókkar og
stjórnarandstaða gætu orðið sam
mála um málið, og það var a
Gísla að skilja, að hann væri fús
til málamiðlunar milli flokkanna
í málinu. — Var auðheyrt að
ræðumaður beindi máli sínu
einkum til kirkjumálaráðherra.
Að lokum upplýsti Gísli Sveins-
son að kirkjuráði hefði einnig
verið sent margnefnt frumvarp
til umsagnar.
Séra Þorgrímur Sigurðsson á
Staðastað tók þessu næst til
máls. Hann kvaðst þora að full
yrða, að er prestar efndu til
undirskrifta með áskorun un.
framlengingu á biskupsdómi As-
mundar Gúðmundssonar, hefðu
þeir talið það mál jafnauðsótt og
fyllilega eins eðlilegt og í þann
tíð er kirkjumálaráðherra, sem
einnig þá var Hermann Jónasson
framlengdi embættistíð Jóns
biskups Helgasonar. Kvað séra
Þorgrímur að þrátt fyrir upp-
lýsingar lögfróðra manna nú,
um að framlenging biskups-
dóms fengi eigi staðizt frá
lagalegu sjónarmiði, væri skoð-
un sín á málinu óbreytt, að
í dag væri ekki annar maður
hæfari til biskups en Ásmundur
Guðmundsson. Það er bezt fyrir
kirkjuna að hann verði enn um
skeið biskup hennar, sagði ræðu-
maður.
Séra Jón Auðuns dómprófast-
ur tók næstur til máls og kvað
stuðning sinn við ályktun kirkju-
þings í máli þessu leggja frek
ari áherzlu á ákvörðun sína,
er hann ásamt fjölda ann-
arra presta landsins, skrifaði
undir áskorendaskjalið um að
Ásmundur biskup yrði enn um
skeið biskup landsins.
Séra Þorsteinn Gíslason tók
mjög í sama streng og séra Jón
Auðuns.
Einnig tóku til máls Jón Jóns-
son og próf. Magnús Már Lárus
son. Töldu þeir mjög óheppilegt
að mál þetta hefði verið sent
kirkjuþingi til meðferðar, og lét
Jón Jónsson þess getið, að það
myndi þangað hafa verið sent,
til þess að láta þingið „skandali-
sera“, en ekki gerði ræðumaður
neina grein fyrir þessari fullyrð-
ingu, sem vakti furðu þing-
manna. Einn þingfulltrúa bað
Jón að gera nánari grein fyrir
þessari fullyrðingu, en hún
fékkst ekki.
Að lokum var borin upp og
samþykkt samhljóða ályktun
kirkjumálanefndar, um að kirkju
þing lýsi stuðningi sínum við
efni frumvarps þess um breyting
á lögunum um biskupskjör, sem
nú liggur fyrir Alþingi.
Þessu næst var tekin fyrir til-
laga til þingsályktunar um kostn
að af byggingu kirkjuhúss þjóð
kirkjunnar. Frá allsherjarnefnd
þingsins kom frumvarpið með
öllu óbreytt, eh sagt verður nán-
ar frá frumvarpi þessu síðar.
Biskup lagði áherzlu á að þing-
ið yrði að hraða störfum, því lög-
um samkvæmt skuli þvi ljúka á
föstudaginn.
Horfur daufar á stofnun
fríverzS. svœðis Evrópu
PARIS, 27. okt. —NTB— Það
hefur nú komið í ljós, svo ekki
verður lengur um það villzt að
djúpstæður ágreiningur ríkir
milli Breta og Frakka um und-
irstöðuatriði varðandi stofnun
fríverzlunarsvæðis Evrópu, sem
hafi ákveðið samband við tolla-
bandalag Evrópu. Það er sá
ágreiningur fyrst og fremst sem
veldur því að lítið hefur miðað
Enn valdaskipti
í Pakistan
Karachi, 27. okt. (Reuter)
ÞAÐ kom mönnum á óvart í dag
í Pakistan, að Iskander Mirza,
forseti landsins gaf út tilkynn-
ingu um, að hann hefði ákveðið
að víkja fyrir félaga sínum Mo-
hammed Ayub Khan hershöfð-
ingja og afhenda honum allt vald
ríkisins.
í tilkynningunni eru greindar
eftirtaldar ástæður til valdaaf-
sals Mirza.
1) Að tveggja manna stjórn er
ekki eins skjót sem einn maður
að taka áríðandi ákvarðanir.
2) Það er álit margra, að ef við
stjórnum tveir, þá hljóti að
koma að því að skoðanaágrein-
ingur komi upp milli okkar.
Það var Iskander Mirza for-
seti, sem lýsti því yfir þann 7.
október sl. að hann tæki öll völd
ríkisins í sínar hendur og leysti
upp ríkisstjórn, þing og stjórn-
arskrá landsins. Samtímis lýsti
hann yfir gildistöku herlaga í
landinu og fól Ayub Khan hers-
höfðingja framkvæmd herlag-
anna.
PILTAR
Cf (innnsfuna
? ég-hrinqanfl /
AfJftefrvef/ 8 ’V
Vonbrigói
Framh. af bls. 1
ráðherranna, þeir sem rótttæk-
astir voru lýstu sig mótfallna
viðræðum og hermir orðromur
að þeir hafi á úrslitastundu feng-
ið stuðning Nassers.
Múhameðstrúarmenn í Algeirs-
borg hafa lýst vonbrigðum sín-
um yfir því að útlagastjórnin
skyldi hafna tilboði de Gaulles,
og er það álit franskra manna
að þetta geti orðið upphafið af
miklum flótta úr herbúðum
serkneskra uppreisnarmanna.
Guy Mollet foringi franskra
jafnaðarmanna og ráðherra í
stjórn de Gaulles, sagði í dag,
að serkneska útlagastjórnin
hefði gert mikla skyssu, er hún
hafnaði tilboðinu. Nú væri það
sýnt að öfgamennirnir hefðu
hrifsað til sín völdin.
Parísarblaðið Paris-Presse
birtir sarntal við Saad Dahlab
talsmann útlagastjórnarinnar.
Hann segir, að útlagastjórnin
sé enn fús að hefja samn-
ingaviðræður. Kjarni vanda-
málsins, segir hann, er að de
Gaulle vill ræða við okkur
eins og franska uppreisnar-
menn, en við viljum að-
eins ræða við hann sem full-
trúa annarrar þjóðar.
Yfirstjórn franska hersins í
Alsír segir, að 661 uppreisn-
armaður hafi fallið í Alsír í
síðustu viku. Nú er franska
herstjórnin að undirbúa alls-
herjarsókn gegn uppreisnar-
mönnunum og mun það ætl-
un de GauIIes, er hann fyrir-
skipar þessa sókn að lokið
verði við að „hreinsa“ landið
áður en þingkosningar fara
fram í lok nóvember
Mýtt karSmannsreiðhjól
var tekið úr porti hjá Morgunbl. í sl. viku. Þeir, sem
gætu gefið upplýsingar um hjól þetta, eru vinsaml.
beðnir að hrinsria í Morgunblaðið strax.
Simi 2-24-80
Húsmæ^rafélag Rcykjavíkur
heldur fund í Borgartúni 7, miðvikudaginn 29. þ.m.
kl. 8,3u e.h.
Umræðuefni:
I. Heimilin og dýrtíðin.
II. Vetrarstaríið.
III. Kaffi.
Allar húsmæður velkomnar.
áfram viðræðum í Maudling-
nefndinni svonefndu.
Ágreiningurinn' milli Breta og
Frakka er sá, að Frakkar telja
fríverzlunarsvæði Evrópu loka-
markið, en Bretar vilja tengja
það við fríverzlunarkerfi, sem
nái út um víða veröld. Frakkar
vilja að stefnt verði að því að
tengsl fríverzlunarsvæðisins
verði æ meiri við Evrópumark-
aðinn og þannig skapist ný, stór
verzlunar og atvinnulífsheild,
sem jafnist á við Bandaríkin og
Sovét-Rússland.
Bretar vilja hins vegar þrátt
fyrir þátttöku í fríverzlunar-
svæðinu hafa leyfi til þess að
lækka tolla á vörum frá ákveðn-
um löndum. Slíkt eru Frakkar
hræddir við, því að það kynni
að veikja aðstöðu þeirra á brezka
markaðnum í samkeppni við
japanskar og bandariskar vör-
ur.
Það er varla hægt að vænta
þess að mikill árangur náist í
viðræðum þessum, fyrr en aðild-
arríkin koma sér saman um
hvor leiðin skuli farin og
kveða á um það en_ anlega hvað
eigi að felast í hugtakinu „fri-
verzlunarsvæði“.
Formaður nefndar þeirrar,
sem liefur haft þessi mál til
meðferðar á vegum OEEC, en
hann er Bretinn Reginald
Maudling, var í dag svartsýnn
á að nokkur árangur næðist.
Birtist viðtal við hann í
franska blaðinu Le Monde.
Segir Maudling, að hann hafi
verið bjartsýnn í júlí s. 1. en
nú hafi málið gjörbreytzt.
Hann bætir við: — Ég veit það
með vissu, að það myndi valda
miklum vonbrigðum meðal
allra evrópskra manna, ef eng-
inn árangur næðist.
SENBISVEIN
vantar okkur nú þegar á ritstiórna-
skrifstofuna kl. 10—6.
Aðalstræti 6 — Sími 22480.
Mínar beztu þakkir færi ég vinum og vandamönnum
sem heiðruðu mig á 60 ára afmæli mínu 8. okt. síðast-
liðinn með heimsóknum, gjöfum og heillaskeytum.
Guð blessi ykkur öll.
Kristín Sigurgeirsdóttir, Efstabæ, Ólafsvík.
Innilegt þakklæti sendi ég öllum þeim, sem með heim-
sóknum, gjöfum og skeytum gerðu mér sjötugsafmæli
mitt, 14. okt. sl., ógleymanlegt.
Sigurður Ó. Snædal.
Hjartanlegar þakkir færi ég öllum þeim, sem glöddu
mig með gjöfum, skeytum og heimsóknum á 85 ára af-
mæli mínu 23. okt. s.l.
Guð blessi ykkur öll.
Halldóra G. Halldórsdóttir,
(frá Bolungarvík). Elliheimilinu Grund.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
GUÐMUNDUB V. EINARSSON
stýrimaður, Vesturbraut 15, Hafnarfirði,
andaðist laugardaginn 25. október í St. Jósepsspítala
Hafnarfirði.
Fyrir hönd aðstandenda.
Ingibjörg Magnúsdóttir.
Bróðir minn
JÖRUNDUR GlSLASON
vélstjóri,
andaðist sunnudaginn 26. október.
Jón Gíslason.
Móðir okkar
HÓLMFRlÐUR JÓNSDÓTTIR
lézt 27. þ.m. að heimili dóttur sinnar Grettisgötu 28.
Börn hinnar látnu.
Þakka af öllu hjarta samúð ykkar allra vegna fráfalls
mannsins míns
SVEINMARS JÓNSSONAR
Guð verndi ykkur.
Hólmfríður Þóroddsdóttir.
Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur samúð
og vinsemd við andlát
SIGURÐAR Þ. GUÐMUNDSSONAR
prentara.
Sérstaklega þökkum við Hinu íslenzka prentarafélagi
og læknum og öðru starfsfólki Bæjarsjúkrahússins fyrir
lipurð og hjálpsemi í veikindum hins látna.
Guðs blessun fylgi ykkur öllum.
Þorbjörg Ingimundardóttir,
Ragnhildur Sigurðardóttir, Þórður Yngvi Sigurðsson,
Innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur stunúð við
andlát og jarðarför konunnar minnar
INGUNNAR ÓLAFSDÓTTUR
frá Sviðholti.
Sigurgeir Guðnason, systir og barnabörn.