Morgunblaðið - 20.11.1958, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.11.1958, Blaðsíða 2
2 MOECl lSBL AÐ1Ð Flmmtudagur 20. nðv. 1958 Aðsfandendur hvattir til þess að geta meiri gaum að útivist og félagsskap barna sinna Skýrsla Barnaverndarneindar um afbrot Reykjavtkurbarna /957. BLAÐINU hefur borizt skýrsla Barnaverndarnefndar Reykjavík ur, um störf nefndarinnar á ár- inu 1957, og er þess þar getið meðal annars, að tala afbrota sé nokkru hærri það árið en verið hafði á árinu 1956. Er það einkum „flakk og útivist", sem um er að ræða. Þá greinir frá því í skýrslunni, að einstöku leigubílstjórar hafi gerzt sekir um að selja börnum og ungling- um áfengi. 1 skýrslunni hvetur nefndin foreldra og forráðamenn barna, að gefa meiri gaum að útivist og félagsskap barna sinna. Tala afbrota barna á aldrin- um 6—16 ára varð á árinu 1957 alls 603. Þar af frömdu piltar 464 afbrot en stúlkur 139. Alls hafa mál 254 pilta og 94 stúlkna komið til kasta nefndarinnar. Mest er um að ræða það sem kallað er í yfiriitinu, „flakk og útivist", en vegna þess, hefur nefndin látið til sín taka málefni 214 barna alls. Langsamlega flest afbrotin fremja 15 ára ung- lingar, en í þeim aldursflokki eru á skýrslunni 114 piltar og 61 stúlka. Hnupl og þjófnaður barna eru alls 172 og kunnugt er um 78 börn, sem frömdu skemmdir og spell. ölvunartil- fellin eru alls 44, 26 meðal pilta og 18 stúlkna. Lauslætismál 29 stúlkna voru tekin fyrir hjá nefndinni. Hjúkrunarkona nefndarinnar hafði bein afskipti af 144 heim- ilum í bænum. Afskiptin voru flest vegna veikinda, en 33 til- fellum var um að ræða ölvun, 26 ýmis vanhirða og á 21 heimili kom hjúkrunarkonan vegna fá- tæktar húsbændanna. Á árinu útvegaði barnavernd- amefnd 183 bömiun og ungling- um dvalarstaði, annað hvort á barnaheimilum, einkaheimilum hér í bæ eða í sveitum. Sum fóru til langdvalar, önnur til sumar- dvalar. Vegna erfiðra heimilis- ástæðna, slæmrar hirðu og óhollra uppeldisáhrifa, var 142 börnum komið fyrir til fósturs. 32 börnum var hjálpað vegna þjófnaðar og níu vegna flakks, lausungar og lauslætis. Þá greinir frá því að nefndin hafi mælt með 35 ættleiðingum. „Hafa mæðurnar í flestum til- fellum valið börnum sínum heimili með það fyrir augum að framtíð þeirra væri betur borgið en ef þær sjálfar önnuðust upp- eldi þeirra“, segir í skýrslunni. Á vegum nefndarinnar dvöld- ust 180 börn á barnaheimilum sumarlangt. Þess er getið að á upplökuheimilinu í Elliða- hvammi hafi 67 börn dvalizt, en á vistheimili fyrir afvegaleidda drengi í Breiðuvík, var 21 dreng- ur. í greinargerð jiefndarinnar segir m. a. á þessa leið: Brotafjöldi er nokkru meiri en árið 1956. Hækkunin er mest undir liðnum „flakk og útivist“, eða um 200 brot. Stafar þetta af því, að mjög var hert á eftirliti með veitinga- og dansstöðum. Þá hefur nokkuð aukizt til- hneiging barna til skemmdar- verka og verðar ekki hjá því Dagskrá Albingis í DAG eru boðaðir fundir í báð- um deildum Alþingis á venjuleg- um tíma. Eitt mál er á dagskrá efri deild- ar: Læknaskipunarlög, frv. — 1. umr. Á dagskrá neðri deildar eru tvö mál: 1. Búnaðarmálasjóður, frv. — 1. umr. — 2. Ferðaskrif- stofa ríkisins, frv. — 1. umr. komist að álíta, að virðingarleysi barna og ungmenna fyrir verð- mætum fari mjög í vöxt. Nokkuð ber á því að börn fremji afbrot eftir að sá tími er liðinn, er þau hafa heimild til útivistar, skv. 19. gr. lögreglu- samþykktar Reykjavíkur. Því miður virðist svo sem ýmsir for- eldrar geri sér litla rellu út af því, að börn þeirra flækist úti á ólöglegum tíma. Unglingar safn- ast saman á „sjoppum“ og leið- ast þá gjarna út í afbrot og ó- knytti án vitundar foreldra eða annarra uppalenda. — Helzta ánægja þessara barna er oft í því fólgin að sækja fjarlæga skemmtistaði. Venjulega eiga þau aðgang að einhverjum ákveðnum leigubílstjórum, sem aka þeim. Einstöku bílstjórar eru svo kærulausir, að þeir kaupa áfengi fyrir börn og ung- linga eða selja þeim, og dæmi eru til þess, að bílstjórar hafa látið afskiptalaust alls konar ó- siðsemi í bifreiðum þeirra. Rétt er að taka skýrt fram, að hér eiga aðeins fáir menn hlut að máli í stórum hóp, en nauðsyn- legt er að slíkir menn verði látn- ir sæta hinum þyngstu viðurlög- um. Nokkuð ber á því, að börn fái að fara inn á dansstaði óátal- ið af forsvarsmönnum slíkra skemmtana, bæði hér í Reykja- vík og nágrenni. Þá eru einnig brögð að því, að börn fari ó- hindruð í kvikmyndahús, þó að um bannaðar myndir sé að ræða. Af þessum myndum læra þau margt óæskilegt, sem síðan end- urspeglast í leikum þeirra og athöfnum. Nefndin hefur orðið þess vör, að nokkuð ber á því, að börn segja foreldrum og for- ráðamönnum beinlínis rangt til um ferðir sínar og athafnir, er þau eru um slíkt spurð, og er nauðsynlegt, að foreldrar gefi meiri gaum að útivist og félags- skap barna sinna. Nefndin hvet- ur foreldra til að stuðla að því, að börn læri strax að hlýða lög- unum. Það mim öllum verða fyr- ir beztu. Svo virðist sem áfengisneyzla barna fari í vöxt. Varð lítið vart við það áður fyrr, að börn innan fermingaraldurs neyttu áfengis, en á árinu 1957 hefur nefndin fengið nokkur slík mál til með- ferðar. Vistheimilið í Breiðuvík hefur mjög auðveldað nefndinni störf að því er varðar mál drengja, er gerzt hafa brotiegir við lög á einn eða annan hátt. Hins vegar vantar enn tilfinnanlega sam- bærilegt heimili fyrir stúlkur og torveldar það mjög störf nefnd- arinnar svo og kvenlögreglunn- ar, sem á við sömu erfiðleika að stríða í þessu efni og barna- verndarnefndin. Samkvæmt upplýsingum kven lögreglunnar hefur hún á árinu haft afskipti af 67 stúlkum á aldrinum 12—18 ára vegna úti- vistar, lauslætis, þjófnaðar og áfengisneyzlu. Ágæt samvinna er milli kvenlögreglu og barna- verndarnefndar og er nefndin mjög ánægð með þá aðstoð, er lögreglan veitir henni í störfum hennar. í barnavemdarnefnd eiga nú sæti: Guðmundur Vignir Jósefs- son, hrl., frú Jónína Guðmunds- dóttir, Magnús Sigurðsson, skólastjóri, frú Kristín Ólafs- dóttir, frú Valgerður Gísladótt- ir og Hallfríður Jónasdóttir. — Þess er og að geta að frú Guðrún Jónasson, bæjarfulltrúi, er lézt í haust, átti sæti í nefndinni og var varaformaður hennar. Þor- kell Kristjánsson, fulltrúi, og Þorbjörg Árnadóttir, hjúkrunar- kona, eru starfsfólk nefndarinn- ar. — Steingrímur Baldursson Varði doktorsritgerð í efnaeðlisfrœði Segovia ákaft fagnað í gærkvöldi SEGOVIA hélt fyrstu tónleika sína fyrir félaga Tónlistarfélags- ls. Húsið troðfylltist, svo að mönnum kom saman um, að þeir hefðu aldrei séð fleiri sálir saman komnar í Austurbæjarbíói. Þurfti að fá mikið af láusum stólum, þar sem nokkrir af hinum sætis- lausu komu sér fyrir, en margir stóðu allan tímann. Hrifning áheyrenda var mjög mikil og því meiri, sem á kvöldið leið. Var Segovia ósparari á auka lögin en margir þeir snillingar, sém áður hafa komið hingað og þó minni séu ef til vill en hann. ÞRIÐJUDAGINN 28. október varði Steingrímur Baldursson doktorsritgerð í efnaeðlisfræði við Chicagoháskóla. Steingrímur er 28 ára að aldri, sonur hjónanna Margrétar Símon ardóttur og Baldurs Steingríms- sonar, skrifstofustjóra sakadóm- araembættisins í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá stærðfræðideild Menntaskólans í Reykjavík vorið 1949 með hæstu einkunn, sem gefin hefur verið í deildinni. Að því loknu veitti Menntamálaráð honum 4 ára styrk til náms í efnaeðlisfræði. Var hann 3 ár við Kaliforníu- háskóla í Berkeley og síðan 1 ár í Chicago, þar sem hann lauk meistaraprófi sumarið 1953. Að því loknu hóf hann rannsóknar- störf við Enrico Fermi kjarna- fræðastofnun Chicagoháskóla í samvinnu við prófessor Joseph E. Mayer. Doktorsritgerð Stein- gríms fjallaði um niðurstöður rannsókna þessara. Ritgerðin nefnist Lambda- Helíum er eitt af frumefnunum, lofttegund, sem þéttist í vökva við um —269° C. Við frekari kæl- ingu ætti vökvinn að verða fast efni, ef um hann giltu sömu lög- mál og um aðra vökva. Svo er ekki, en hins vegar breytast ýms- ir eiginleikar hans á óvæntan hátt, og má segja, að nýr vökvi myndist við kælinguna. Sú breyt- ing verður við um — 271" C (2,19° ofan við lægsta hitastig, sem unnt er að ná) og nefnist lambda-breytingin. Hún hafði komið í ljós við tilraunir ýmissaa vísindamanna, en ekki hafði tek- izt að skýra orsakir hennar tii fullnustu. Rannsóknir Steingríms beindust að því, að auka skiln- inginn á þessu fyrirbrigði, og tókst honum eftir 5 ára starf að finna nýja leið til að samræma orkuskammtakenninguna og nið- urstöður rannsóknanna á lambda breytingunni. Steingrímur mun koma heim til íslands innan skamms og starfa hér að rannsóknum um breytingin í fljótandi helíum. a. m. k. eins árs keið. Baban dæmclur til dauða LONDON 19. nóv. — Bagdad- útvarpið skýrði svo frá í dag, að herdómstóll hefði dæmt Ahmed Mukhtar Baban, fyrrum forsæt- isráðherra í stjórn Faisals kon- ungs, til dauða. Mun dómnum verða fullnægt með hengingu. Var hann m.a. fundinn sekur um að hafa tekið þátt í samsæri, sem miðaði að því að steypa sýr- lenzku stjórninni úr Stóli og hafa ætlað að koma á „ólöglegu" sam- bandi íraks og Sýrlands. Jafn- framt var han* sakaður um að hafa gerzt formælandi erlendrar íhlutunar í málefni Líbanons og Sýrlands — og hafa átt drjúgan þátt í því að írak gekk í Bagdad- bandalagið. Baban var forsætis- ráðherra, þegar byltingin var gerð í írak 14. júlí í sumar. Fjór- ir aðrir írakskir stjórnmálamenn hafa verið dæmdir til dauða að undanförnu. Fjölmargir hafa jafnframt verið dæmdir til langr ar fangelisvistar. Féll fyrir hand- sprengjum NICOSIU, 19. nóv. — Kyriakos Matsis, einn af leiðtogum EOKA, var felldur í dag. Brezkir her- menn króuðu hann inni í fylgsni og þegar Matsis neitaði að koma út vörpuðu hermennirnir tveim handsprengjum inn í fylgsnið. Matsis hefur á undanförnum ár- um verið valdamesti foringi EOKA að Grivasi einum undan- skildum. Hafði miklu fé verið heitið til höfuðs honum. Fara Genfartundirnir algerlega út um þúfur? GENF 19. nóv. — f dag héldu fulltrúar stórveldanna 10. fund sinn um eftirlit og stöðvun kjarn orkutilrauna. Ekki náð.st sam- komulag og þykir nú illa horfa, því að Rússar höfnuðu annarri málamiðlunartillögu Breta og Bandaríkjamanna. Fulltrúi Rússa krafðist þess enn einu sinni, að fyrst y.ði gengið Irá samkomu- lagi um stöðvun tilrauna áður en farið væri að ræða eftirlitskerfi til umsjónar því, að samkómu- lagið yrði ekki rofið. Vesturveld- in halda hins vegar fast við það, að samkomulag verði fyrst gert um eftirlitskerfi, þá verði auð- veldara og öruggara að semja um stöðvun tilrauna. Miðlunartillaga Vesturveld- anna var á þá leið, að bæði atriði málsins, stöðvunarsamkomulagið og eftirlitskerfið, yrðu sameinuð og einn sáttmáli látinn gilda um bæði, en Rússar féllu ekki frá þvi, að málin yrðu rædd í tvennu lagi — og í fyrrnefndri xöð. Hin breytta miðlunartillaga, er lögð var fram í dag, var þess efnis, að tíagíkráin yrði „h.ut- laus“ og Jevfiiegt yrði ao ræða málin að v.id — þó ekki sameig- inlega. Ef Rússar hefða gengið að þessu, hefðu báðir aðilar getað rætt þau atriði málsins, sem þeir kjósa heizt aö ræða fyst — og leiðin jafnfvamt opin til tveggja formleg- a san.r.inga eins og Rúss ar krefj ist. Er það mál rr.anna, að tilga.ngs laust muni reyr.ast að halda ráð- stefnunni áfram úr því að enn hefur ekki náðst samkomulag um dagskrána. Á 10 ríkja ráðstefnunni, sem ræða átti varnir gegn hugsan- legri skyndiárás, er ástandið svip að. í upphafi var áætlað, að sú ráðstefna yrði einungis tæknileg. Rússar krefjast nú hins vegar breiðari umræðugrundvallar, enda eru stjórnmálamenn fyrir nefndum kommúnistaríkjanna, en vísindamenn formælendur nefnda Vesturveldanna á ráð- stefnunni. Vilja Vesturveldin ekki sætta sig við pólitískar um- ræður úr því að annað hafði ver ið ákveðið, enda væri lítils ár- angurs að vænta af slíku stappi, segja stjórnmálafregnntarar. Óðinn sigldi á Sandgerðisbát SANDGERÐI, 19. nóv. — Þrettán bátar komu til Sandgerðis í dag og höfðu þeir alls 1453 tunnur síldar. Aflahæstur var Víðir II með 285 tunnur, næst Hrönn II með 185, þriðji Rafnkell með 179. Það óhapp vildi til, þegar Hrönn var að leggja af stað til lands, að varðskipið Óðinn sigldi á bátinn bakborðsmegin, rétt fyrir aftan miðju, og skemmdist hann talsvert, en komst þó án aðstoðar í land. Búizt er við að viðgerð taki þrjár vikur. — Axel. NEW YORK, 19. nóv. — Bretar munu nú leggja fyrir Allsherjar- þingið ályktunartillögu þess efnis að S. Þ. hvetji Tyrki og Grikki til samstarfs við Breta í Kýpur- máiinu til lausnar. Tillagan hefur ekki verið birt, en aðalatriði hennar mundn vera þau, að Alls- herjarþingið lýsi yfir hryggð vegna hefndarverkanna á Kýpur, stuðningí við tiiraunir Breta til samkomulags við eyjarskeggja, Grikkja og Tyrkja i málinu Brezk kona myrt við sýr- lenzku landamœrin Var á skemmtigöngu við Galileuvatn TEL AVIV, 19. nóv. — Eftir tveggja sólarhringa leit á landi og í lofti fannst frú Mary Doran, kona flugmálaráðunauts brezka sendiráðsins í ísrael. Konan hafði verið myrt á strönd Galileuvatns- ins og var lík hennar marg- sundurskotið. Eiginmaður henn- ar var í leitarflokknum, sem fann líkið. ísraelsstj órn hefur kært sýr- lenzku stjórnina fyrir eftrlits- sveitum S.Þ — og sakar Sýrlend- inga um morðið. Samkv upp- lýsingum eítirlitsmaana S.Þ. fannst slóð berfættra manna, sem taldir eru hafa verið morðingj- arnir, í áttina að sýrlenzku landa- mærunum. Frú Doran var 48 ára gömul. Hún hafði venð í ísrael ásamt manni sínum og einkasyni í 11 mánuði og var einsömul á skemmtigöngu, er hún var myrt. Doran var frægur brezkur flug- maður úr síðari heimsstyrjöld- inni og var sæmdur miklum tignarmerkjum fyrir frammi- stöðu sína í viðureigninni við Nazista.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.