Morgunblaðið - 20.11.1958, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.11.1958, Blaðsíða 10
10 MORCVWBLAÐIt) Fimmtudagur 20. nóv. 1958 Utg.: H.f. Arvalrur, Reykjavfk. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Óla, sími 33045 Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480 Askriftargjald kr 35.00 á mánuð: innanlandp. í lausasölu kr. 2,00 eintakið. ÞÖGN LÚÐVÍKS OG FJARST ÍÐ- UR ÞJÓÐVILJANS ,Vonum að Jboð verði drengur' Xyrone með dætrum sínum, Rominu, 7 ára, og Taryn, 5 ára. egar brezkur varðskips- foringi hótaði að skjóta íslenzkt gæzluskip í kaf, er það var að sinna löggæzlu- störfum, sást sú hætta, sem vof- ir yfir íslenzkum sjómönnum, sem gæta landhelginnar, í eins skýru Ijósi og unnt var. Þá var það, sem Ólafur Thors, formað- ur Sjálfstæðisflokksins, kvaddi sér hljóðs á Alþingi og bauð fram af hálfu flokksins „ein- lægt samstarf". Ólafur Thors kvaðst nú leggja til „að við slíðr- um vopnin og tökumst í hend- ur“. Jafnframt kvaðst hann „í nafni Sjálfstæðisflokksins, óska þess, að ríkisstjórn íslands beri tafarlaust fram kröfu um, að þegar í stað verði kallaður sam- an fundur æðstu manna NATO- ríkjanna, svo sem ráð er fyrir gert í sáttmála Atlantshafsbanda- lagsins, þegar svipað stendur á og þótt minna. tilefni væri, til þess að Bretar verði þar hindr- aðir í hernaðaraðgerðum hér við land nú þegar, og að þannig verði girt fyrir, að næstöflugasti fóst- bróðirinn í bandalagi NATO- þjóðanna, drepi þegna minnsta bróðursins og hins eina þeirra, sem er vopnlaus . . .“ ★ Forsætisráðherrann Hermann Jónasson og utanríkisráðherrann Guðmundur í. Guðmundsson tóku sterklega undir orð Ólafs Thors og þakkaði sá síðarnefndi sér- staklega samstarfsboð Sjálfstæð- ismanna. En það var einn maður, sem sat í þingsalnum gneypur og orðlaus. Það var Lúðvík Jósefs- son, sjálfur sjávarútvegsmálaráð- herra kommúnista. Þessi ráðherra gaf þó út reglugerðina um út- víkkun landhelginnar og ber ekki minnsta ábyrgðina á meðferð landhelgismálsins, eins og hún hefur verið í sumar. Samt fann hann enga ástæðu til að taka til máls, þegar stærsti flokkur lands- ins bauð fram fullt samstarf um málið, í þágu alþjóðar og til verndar sjómannanna. Þessu skyldu allir landsmenn taka eftir. Næst gerist svo það, að utan- ríkismálanefnd kemur saman, en þar áttu Sjálfstæðismenn tvo fulltrúa. Ríkisstjórnin sat einnig þann fund, og var viðhorfið til málsins þar rætt. Síðan voru brezku ríkisstjórninni send ákveð in mótmæli af íslendinga hálfu. ★ Þegar hér var komið, fannst kommúnistum tími til kominn að láta til sín heyra. Og nú var Þjóðviljinn látinn tala í stað þagnar Lúðvíks. Ekki tók þó Þjóðviljinn til máls til þess að fagna boði Sjálfstæðismanna um samstarf, heldur var slegið á þá útréttu hönd með óhróðri, níð- skrifum og látlausum hártogun- um. Kommúnistar hafa ætíð vilj að eyrnamarka sér landhelgis- málið. Það átti að vera eins konar sönnun þess, að þeir hugsuðu, stjórnmálalega, eins og „íslenzk- ir menn“. Það átti líka að vera þeim eins konar umbun, eftir öll stóru loforðin, sem þeir hafa kingt i efnahagsmálunum og varnarmálunum á undangengn- um tveimur árum. En með fram- kómu Sjálfstæðismanna á þingi, þegar Ólafur Thors tók í nafni flokksins, forystu um að gera ákveðna tillögu um að kæra Breta fyrir ofstopa hér við land, fannst kommúnistum dregin burst úr nefi sínu, því að þeir hafa eingöngu hugsað um land- helgismálið út frá þrengstu flokkshagsmunum. Af þessu stafa öll gífuryrði Þjóðviljans og fjar- stæður eins og þær „að tillaga Ólafs Thors sé runnin beint frá Bretum". Það sést Ijóst, í hvern vanda kommúnistar eru komnir, þegar þeir telja að tillaga um að kæra Breta fyrir ofbeldi sé runn- in frá Bretum sjálfum! Þegar stungið er upp á að fundur æðstu manna Atlantshafsbanda- lagsins verði kallaður saman „til þess að Bretar verði þar hindr- aðir í hernaðaraðgerðum hér við land nú þegar“, þá á slík tillaga að vera „runnin frá Bretum“, eins og það heitir á máli Þjóð- viljans! Lúðvík þagði á Alþingi og sannarlega fór honum betur að þegja en Þjóðviljanum að tala, úr því að blaðið hefur ekk- ert annað að bera fram í land- helgismálinu en slíkar fjarstæður og fúkyrði. Hvorki á Alþingi né í utanríkis málanefnd hefur fallið nokkurt orð frá Sjálfstæðismönnum eða öðrum flokkum um, að á möguleg um fundi með bandalagsþjóðum okkar ætti að ganga til samninga um landhelgismálið. Siðasta of- beldi Breta leiddi hins vegar í ljós, svo skýrt sem verða mátti, þann voða, sem stafar af fram- komu Breta hér við land og fs- lendingar eiga samningslegan rétt á því, að svo alvarlegur voði verði tekinn til meðferðar af æðstu mönnum NATO, ef íslend- ingar óska þess. ★ Bretar horfa eins og aðrir á það, sem hér gerist. En enginn skyldi láta framkomu kommún- ista villa sig. Þó sá flokkur hugsi eingöngu um landhelgismálið út frá hentistefnusjónarmiðum síns eigin flokks, þá hugsar þjóðin um það á annan veg. Landhelgismál- ið er þjóðmál. Jafnvel langt inn í raðir kommúnistanna sjálfra er hugsað um málið á þann hátt. Það er aðeins harðasti Moskvukjarn- inn, sem að skrifum Þjóðviljans stendur. Það er sá hópur manna, sem aldrei hefur óskað eftir öðru en sem mestum illindum og vandræðum út af landhelgis- málinu, í þeim tilgangi einum að spilla með því vestrænni sam- vinnu. Það er sú hugsun, sem stjórnar gerðum kommúnista- broddanna. Þeir hafa aldrei kært sig um samhug og samstöðu, inn á við og út á við og þess vegna var það, sem Lúðvík Jósefsson þagði um daginn á Alþingi. Þess vegna er það líka, sem Þjóðvilj- inn er nú daglega látinn blása í háværustu herlúðra sína til að rægja Sjálfstæðismenn og for- mann flokksins, Ólaf Thors, alveg sérstaklega. En þeir sem á okkur horfa, bandalagsþjóðir okkar og vinir, hvar sem er, munu skilja hvað fyrir kommúnistum vakir annars vegar og fyrir þjóðinni sjálfri hins vegar. fslenzka þjóð- in er eitt. Kommúnistar eru ann- að. Landhelgismálið ber glöggt vitni um þá staðreynd. — sagði Tyrone Power og kvaddi vin sinn TYRONE POWER lifði alltaf í voninni um að eignast son. — Eiginkona hans, hin 26 ára gamla Debbie Minardos, á von á barni í febrúar n. k. Þegar Tyrone Pow- er lézt skyndilega á laugardaginn í Madrid var það síðasta von hans, að barnið yrði piltur. „Það hljómar e. t. v. einkenni- lega,“ sagði Tyrone við kunn- ingja sinn nokkrum dögum áður en hann lézt, „en það er mjög mikilvægt fyrir mig að eignast son. Pabbi var iíka leikari, hann hét Tyrone Power — og afi og langafi báru þetta sama nafn. Ég verð að eignast son, sem getur borið þetta nafn áfram.*' ooo#ooo Nú er þessi 45 ára gamli Banda ríkjamaður og heimsfrægi leikari látinn án þess að hafa eignazt son. En enn er von. Og það er meira en litið táknrænt fyrir Tyrone Power, að hann skyldi hníga niður frammi fyrir kvik- myndavélinni. Linda Christian, önnur konan hans, sagði eitt sinn: „Lífið byrjar ekki fyrir Tæ fyrr en hann gengur fram á svið- ið. Heimilislífið er honum leið- inleg og þreytandi bið milli þátta“. ooo#ooo Og biðirnar voru ekki langar í lífi Tyrone Power. Hann varð „stjarna“ á einni nóttu, þegar hann var 23 ára að aldri. Síðan hefur hann nær óslitið verið í sviðsljósinu að undanskildum herþjónustutíma hans á styrjaldr arárunum. Fyrsta myndin hans var „Lloyd’s of London“ — og þeir, sem séð höfðu „unga há- vaxna manninn með barnslega andlitið“ gleymdu honum ekki, enda fylgdu brátt ótal myndir. „Þær voru allt of margar,“ sagði Tyrone — „ég var hættur að leika, sýndi mig aðeins“. „Alex- anders Ragtime Band“, „Marie Antoinette", „Suez“, • „Merki Zorro“ — og fleiri, sem allir kannast við. ooo#ooo Nafn Tyrone Power varð fljótt tengt nöfnum margra heims- frægra kvenna. Eitt sinn var það Sonja Henie, annað sinn Janet Gaynor o. s. frv. — og alltaf bjuggust menn við því að Tyrone væri í giftingarhugleiðingum. Það var ekki fyrr en árið 1939, að hann varð ástfanginn fyrir al- vöru. Þá var það fögur frönsk leikkona, Annabella. Þau giftust í apríl það ár. Og styrjöldin skall á. Tyrone Power gekk í sjóherinn, þá hafði hann leikið í 25 kvikmyndum. Þegar styrjöldinni lauk var Tyr- one breyttur maður. Styrjaldar- árin höfðu hert hann og þroskað, viðhorf hans voru breytt, Holly- wood fór í taugarnar á honum og Annabella átti ekki hug hans lengur. Þau skildu árið 1948. „Ef við hefðum átt barn — þá hefðu viðhorfin verið önnur“, sagði hann. ooo#ooo „Eg þoli ekki lengur hetju- myndirnar“, sagði hann, „ekki þennan innantóma glans.“ Um stundarsakir yfirgaf hann Hollywood og fór að leika á Broadway. Hann kynntist Lindu Christian — og giftist henni. Þau höfðu fyrst hitzt í Róma- borg. Og brúðkaupið fór einnig fram í borginni eilífu. Lögreglan varð að senda fjölmennt varalið á vettvang til þess að bjarga brúðhjónunum undan aðdáend- um Tyrone Power. Þau gengu á fund Píusar páfa og hlutu blessun hans. Og Linda ól manni sínum tvö börn. „I hvert sinn óskaði ég þess svo heitt, að það yrði sonur, en í bæði skiptin varð það stúlka," sagði hann. Þau skildu fyrir tveimur árum og Lindu voru dæmdir milljón doll- ara auk álitlegrar fjárhæðar til uppeldis dætrunum Rominu, 7 ára og faryn, 5 ára. ooo#ooo Power sökkti sér niður í leik- listina meira en nokkru sinni fyrr. Meðal myndanna, sem hann lét í síðustu- árm, voru „Mississ- ippi Gambler", „The Eddie Duch- in Story“ og „Seven Waves Away“. Hann var kenndur við margar konur, m. a. Mai Zetter- ling, sem frægt var. En í maí- mánuði sl. giftist hann Debbie Minardos. Þá hafði hann nýlokið við að leika í myndinni „The Sun Also Rises“, en þar hafði Ava Gardner leikið aðalhlutverk ið á móti honum. Mánuði eftir brúðkaupið und- irritaði hann samning um að leika í myndinni „Solomon og Sheba“, sem hann aldrei lauk við. Hann hné niður í einu síð- asta atriði myndarinnar og var liðið lík skömmu síðar. Innan skamms átti hann að fara til New York og fara með annað aðalhlutverkið í önnu Kareninu á móti Ingrid Bergman á Broad- way. En síðasta för hans vestur yfir varð með öðrum hætti en áætlað. ooo#ooo Þegar Tyrone Power og kona hans voru á leið til Madrid til þess að vinna að myndinni, sem aldrei var lokið, höfðu þau stutta viðkomu í London. Einn af kunningjum Tyrone fylgdi hjón- unum út á flugvöll, þegar þau héldu áfram til Madrid. „Debbie á von á barni í febrú- ar. Við vonum, að það verði drengur," var það síðasta, sem Tyrone Power sagði við þennan vin sinn. Árshátíð Sjálf- stæðisfélaganna i Keflavík ÁRSHATÍÐ Sjálfstæðisfélaganna í Keflavík verður haldin í Ung- mennafélagshúsinu í Keflavík, laugardaginn 22 .nóv. kl. 9 síðd. Eins og undanfarin ár verður vel vandað til hátíðarinnar og dagskráin verður sem hér segir: í. Stutt ávörp. 2. Guðm. Jóns- son óperusöngvari syngur ein- söng. 3. Ævar Kvaran leikari les upp. 4. Guðmundur Jónsson og Ævar Kvaran syngja glunta- söngva. Gestir félaganna verða að þessu sinni Ólafur Thors alþing- ismaður og Pétur Benediktsson bankastjóri og konur þeirra. Aðgöngumiðar verða seldir í Ungmennafélagshúsinu á laugar- dag frá kl. 2—4 og við inngang- inn. Allt Sjálfstæðisfólk er vel- komið á meðan húsrúm leyfir. Ur myndinni Solomon og Sheba — Tyrone Power og Gina Lollobrigida. Myndin verður nú tekin upp á nýti og mun Yul Brynner fara með hlutverk Tyrone Powers.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.