Morgunblaðið - 31.12.1958, Side 7

Morgunblaðið - 31.12.1958, Side 7
MORGZJNBLAÐIÐ 31 MiðvOöidagur 31. des. 1958 fyrir rökstutt álit samtaka at- vinnuveganna. Þá voru þeir ann- markar á lögum þessum, að bæjar- og sveitarfélögum var í engu bættur tekjumissir við niður fellingu „stríðsgróðaskattsins“, svo hætt er við, að um sinn megi einkafyrirtækin búa við svipuð skattalok og verið hefur eða þangað til heildarendurskoðun hefur verið gerð á tekjustofnum bæjar- og sveitarfélaga. Verður að vænta þess að slík endurskoð- un verði ekki látin dragast lengi slík knýjandi nauðsyn sem hér er á lagfæringu. Tæknilegar framfarir — nýjar iðngreinar Á árinu hafa ýmis iðnaðarfyrir- tæki aukið og endurbætt vélakost sinn og ný iðnfyrirtæki hafa ver- ið stofnuð, sem tekið hafa upp framleiðslu á vörum, sem ekki hafa verið framleiddar hér áður. Iðnaðarmálastofnun íslands hef- ur eins og undanfarin ár lagt þýðingarm'ikinn skerf til aukinn- ar iðnþróunar og bættrar tækni. Verður þetta ekki nánar rakið hér að öðru leyti en varðar stærsta iðnaðarfyrirtæki lands- ins, Sementsverksmiðjuna, sem tók til starfa á miðju ári. Sementsverksmiðjan Bygging sementsverksmiðjunn- ar á sér langan aðdraganda. Lög um byggingu verksmiðjunnar voru samþykkt á Alþingi snemma árs 1948 en á Alþingi bar málið fyrst á góma árið 1935 og hafði því þá verið hreyft löngu áður. Árið 1949 var síðan ákveðið að verksmiðjan skyldi reist á Akra- nesi eftir að gengið hafði verið úr skugga um að ágætur skelja- sandur til framleiðslunnar fannst á svonefndu Sviði undan Akra- nesi og líparít var fáanlegt ná- lægt Þyrli í Hvalfirði. Árið 1951 var síðan byrjað að undirbúa byggingu verksmiðjunnar og surn arið 1953 var gengið úr skugga um að allar áætlanir um að dæla skeljasandinum upp af botni Faxaflóa stóðust, og var þá dælt upp 215 þúsund tonnum af skelja- sandi. Haustið 1954 hófust Sjálfar- byggingarframkvæmdir og var verksmiðjan vígð og tók til starfa 14. júní sl. Verksmiðjan framleið- ir portlandsement, sem kom á markaðinn snemma í ágúst og hefur reynzt ágætlega. Þegar verksmiðjan tók til starfa voru byggingar ekki fullgerðar en hef- ur miðað vel áfram síðan og er nú að mestu lokið. Upphaflega var ráðgert, að verksmiðjan fram leiddi 75 þúsund tonn af sementi, en framleiðslan hefur farið langt fram úr áætlun og munu verða framleidd um 50 þúsund tonn á þessu ári, sem svarar til 110 þús. tonna ársframleiðslu. Hafa um 27 þús. tonn af framleiðslunni þegar verið seld innanlands og myndi salan hafa verið meiri, ef ekki hefði verið leyfður innflutningur á sementi að ófyrirsynju, enda er verð sementsins sambærilegt við verðið á innfluttu sementi. Sementsnotkun fslendinga hefur mest verið 90 þús. tonn á einu ári hingað til, þannig að reynt verður að flytja út það, sem er umfíam þarfir landsmanna, og er það mál þegar í athugun. Hins vegar er líklegt að sements- notkun landsmanna muni talsvert aukast við tilkomu verksmiðjunn ar t. d. í sambandi við stein- steypta þjóðvegi og götur. Hrá- efnanotkun verksmiðjunnar er, miðað við sementsframleiðsluna eingöngu, Um 175 þús. tonn af skeljasandi og um 20 þús. tonn af líparíti. í verksmiðjunni munu vinna um 80 manns. Ráðgert er að á næsta ári verði hafin fram- leiðsla áburðarkalks (95% kalk). Er hægt að framleiða um 20 þús. tonn af áburðarkalki án þess að skerða framleiðslu á sementinu. Bygging sementsverksmiðjunn- ar mun þegar tímar líða verða talinn þýðingarmikill áfangi á leið þjóðarinnar til aukinnar iðn- væðingar og bættra lífskjara. Rannsóknarmálin Hagnýtar vísindalegar rann- sóknir í þágu atvinnuveganna eru nú almennt viðurkenndar sem einn mikilvægasti liður allr- ar framleiðslustarfsemi. Hér á landi hefur þessu ekki verið gef- inn jafn mikill gaumur og skyldi og hefur margt valdið. Undanfarin ár hefur skilningur manna á gildi rannsóknanna þó íarið vaxandi og höfum við eign- ast hóp góðra sérfræðinga á þessu sviði. Hins vegar skortir mjög á, að þeim hafi verið búin sómasam- leg aðstaða til að sinna rann- sóknunum og skapa þannig mögu leika til bættra framleiðsluhátta og aukinnar og fjölbreyttari fram leiðslu. Það mun ekki hallað á aðra þótt því sé haldið fram, að iðnaðurinn sé og hafi verið horn- reka í þessu og að náðarsól fjár- veitingavalds ríkisins hafi skinið öðrum atvinnuvegum heitar. Nokkur framtakssöm iðnfyriræki hafa sett á fót eigin rannsóknar- stofur, en þessi viðleitni hefur af skiljanlegum ástæðum aðeins get- að þróast í mjög smáum stíl. Iðn- aðardeild atvinnudeildar háskól- ans hefur í mörgu unnið gott starf, en það hefur að mestu beinzt að lausn daglegra vanda mála, vöruprófunum o. fl. en fjár magn vantað til frekari rannsókn arstarfsemi. Auk fjárhagsvand- ans er annað vandamál í rekstri rannsókna fyrir iðnaðinn óleyst en það er stjórn stofnunarinnar og samband hennar við atvinnu- veginn og gildir það raunar einn- ig um aðrar rannsóknarstofnanir. Félag ísl. iðnrekenda hefur gert ákveðnar tillögur um framtíðar- skipulag rannsóknarmála iðnað- arins. Eitt af þeim atriðum, sem mest áherzla hefur verið lögð á er, að stjórn stofnunarinnar verði að meirihluta skipuð fulltrúum iðnaðarins. Er þetta í alla staði eðlileg krafa, þar sem telja má að hagnýtar rannsóknir nái ekki fyllilega tilgangi sínum nema mjög rsáið samband sé og verði á milli rannsóknarstofnunarinnar og fyrirtækja þeirra, sem nýta eiga árangur rannsóknanna. Lokaorð Af því sem að framan segir n»á ráða að ekki hafi verið beggja skauta byr fyrir iðnaðinn í hei'.d á árinu sem er að líða. Það sem fram horfðj var auk þess sem áður er getið, að á árinu var lagð- ur hornsteinn að Efra-Sogsvirkj- uninni sem mun að fullu taka til starfa árið 1960 með 27.000 kw viðbót við rafmagnsframleiðslu landsmanna og verða mikilvæg fyrir iðnaðarþróunina eins og fyrri virkjanir Sogsins. Löggjöfin um útflutningssjóð var iðnaðin- um hagstæð að því leyti, að þar var iðnaðurinn í fyrsta sinn um alllangt árabil settur til borðs með hinum aðalatvinnuvegunum varðandi kaup á hráefnum og rekstrarvörum auk þess sem hann nýtur nú í fyrsta sinni jafnréttis við hina atvinnuvegina varðandi uppbætur á útflutta vöru, en það er fyrsta skrefið til þess að um útflutning á innlendum iðnaðar- vörum geti orðið að ræða, en að því ber að stefna. Auk þess iðnaðar sem fyrir er, gefa þeir iðnaðarmöguleikar, sem bundnir eru við virkjun fallvatna landsins og hagnýtingu á jarð- gufu, okkur ástæðu ti þess að ætla og vona að ísland geti orðið hlutgengur aðili í efnahagssam- starfi hinnar frjálsu Vestur- Evrópu vegna yfirburða í iðnað- arframleiðslu, sem byggjast mundi á þessum náttúruauðæf- um. En hvort sem þær vonir ræt- ast eða ekki er iðnaðurinn í dag orðinn einn af máttarstólpum þjóðfélagsins og á eflingu þessa framtíðaratvinnuvegar veltur að miklu leyti hvort hægt verður að halda uppi núverandi lífskjörum í landinu og bæta þau. Gleðilegt nýár! Pökkunarstúlkur og flakarar óskast á komandi vertíð. Hraðfiystihúsið Frost h.f. Hafnarfirði, sími 50165. Auglýsing frá pípugerð Keflavíkur Bendum hérmeð útgerðarmönnum á Suðurnesjum á, að vér höfum til afgreiðslu frá pípugerð vorri í Keflavík vélsteypta netasteina. Pöntunum veitt móttaka í síma 552. Pípugerð Keflavíkur !=^<^Ci^Cr^C^<^Cbrf(^Q=^<?^CbKCr^<i=<ö=>'Q==<ó=<<I=«?=''Cb=<(; QLkL ,t t leouecfi nyar Þökkum viðskiptin á liðna árinu. (( Blikksmiðjan Sörli s.f. * Sörlaskjóli 68. ({ ( t .y I | í 3 i I 3 i I 1 C 3 1 i i I i (jle&ilecft nýar ! Þökkum viðskiptin á liðna árinu. matarbCðir Hafnarstræti 5 Skólavörðustig 22 Laugavegi Réttarholts vegi 1 £ | Bræði-aborgarstíg 43 — Grettisgötu 64 (? Brekkulæk 1 — Skólabraut, Akranesi f Eimskipafélag íslands öskar viðskiptŒmÖnnum sínum um land allt ife&iíe. ýleöLlecjS nýaró með þökk fyrir viðskiptin Við sendum öllu okkar verkafólki og viðsk iptaimör>num beztu nýársóskir. Jón Gíslason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.