Morgunblaðið - 14.01.1959, Side 10

Morgunblaðið - 14.01.1959, Side 10
10 MORCrWfíT. AÐ1Ð Miðvikudagur 14. jan. 1959 ínr0íi®!#toMt)> Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. \ðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Ásmundsson. Lesbók: Árni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti f Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargald kr. 35,00 á mánuði innamands. í lausasölu kr. 2.00 eintakið. EFLING LANDHELGISGÆZLU OG BÁTAEFTIRLITS Reykingar er ekki hœgt að kalla löst, ef menn iðka þœr af stillingu og skynsemi sagði pípu- og fóbakskóngurinn Dunhill EGAR Alþingi kom saman í október sl. lögðu 10 þing- nenn Sjálfstæðisflokksins fram þingsályktunartillögu um eflingu landhelgisgæzlunnar og aukið eftirlit með bátafota lands- manna. Var á það bent að átökin um fiskveiðitakmörkin hefðu stóraukið þörfina fyrir aukna landhelgisgæzlu og bátaeftirlit. fslendingar gætu að vísu aldrei att kappi við herskip stórvelda, sem beittu vopnavaldi við strend- ur landsins. En þeir yrðu við venjulegar aðstæður að geta haldið uppi réttarvörzlu á fiski- miðum sínum og verndað líf og veiðarfæri sjómanna sinna. Þessi tillaga Sjálfstæðismanna hefur nú hlotið einróma sam- þykki Alþingis. Ber vissulega að fagna því að þingmenn allra flokka sameinuðust um sam- þykkt tillögunnar og hin bezta samvinna ríkti um afgreiðslu hennar. Nýtt varðskip Eins og kunnugt er, samþykkti Alþingi tillögu frá Sjálfstæðis- mönnum árið 1956, þar sem heim- iluð var bygging nýs varðskips. Var þá höfð í huga fyrirhuguð frekari útfærsla fiskveiðitakmark anna. Því miður dróst það nokk- uð á 3ja ár að sú ríkisstjórn, sem nú hefur nýlega látið af völdum, framkvæmdi þessa tillögu. En nokkru eftir að t.illaga Sjálf- stæðismanna um eflingu land- helgisgæzlunnar kom fram á sl. hausti, var samið um smíði nýs varðskips, samkvæmt heimild þeirri sem fólst í tillögunni frá 1956. Er smíði þessa skips nú að RÚMUR mánuður er nú liðinn síðan •tj órnar- kreppan hófst í Finn- landi. Kekkonen forseti hefur gert hverja tilraunina á fætur annarri til þess að koma á þing- ræðisstjórn í landinu. Hann hefur falið öllum reyndustu stjórnmála- leiðtogum Finna myndun ríkis- stjórnar. En tilraunir þeirra hafa reynzt árangurslausar. Ástæða þess að svo þunglega horfir í finnskum stjórnmálum liggur í augum uppi. Við síðustu kosningar urðu kommúnistar stærsti þingflokkurinn og fengu 50 þingsæti af 200 í finnska þing- inu. Að kosningunum loknum var mynduð ríkisstjórn jafnaðar- manna og borgaraflokkanna. Ut- an við stjórnina stóð þó nokkur hluti jafnaðarmannaflokksins, er nýlega hafði klofnað út úr hon- um. Rússar litu þessa stjórn óhýru auga. Töldu þeir að með myndun hennar væri stefnt til hægri í finnskum stjórn- málum. Rússneski sendiherrann í Helsingfors var kallaður heim, viðskiptasamningar við Rússa fengust ekki endurnýjaðir og at- vinnuleysi hófst í einstökum iðn- greinum, sem mjög eru háðar við- skiptunum við Rússland. Auðsætt þótti, að rússneski björninn væri farinn að sýna Finnum klærnar. hefjast. Mun það verða af svip- aðri stærð og stærsta skip land- helgisgæzlunnar er nú. Sem betur fer hefur nokkuð dregið um skeið úr landhelgis- brotum brezkra togara í einstök- um landshlutum. Þeir hafa í bili hætt veiðum undir herskipa- vernd innan 12 mílna fiskveiði- takmarkanna úti ’fyrir Vestfjörð- um. Ómögulegt er á þessu stigi málsins að fullyrða nokkuð um það, hvert þeir muni beina þunga sóknar sinnar á næstunni. En vissulega er nú kominn tími til þess, að brezk stjórnarvöld geri sér ljóst, að hernaðaraðgerðir þeirra gagnvart fslendingum eru stórfelt alþjóðlegt hneyksli, um leið og þær eru svartur blettur á skjöld brezku þjóðarinnar. Hættið ofbeldisaðgerðunum Þeirri áskorun hefur nýlega verið beint til brezku stjórnar- innar hér í blaðinu, að láta nú af ofbeldisaðgerðunum gagnvart ís- lendingum, þannig að vinsamleg skipti geti á ný tekizt á milli þessara grannþjóða, sem áréiðan- lega vilja eiga gott eitt saman í framtíðinni, eins og á liðnum tíma. Um undirtektir brezkra yfirvalda undir þessa áskorun er ekki vitað ennþá. ■ En hvað sem því líður, verða íslendingar jafnan að gera sér ljósa nauðsyn þess að halda uppi þróttmikilli landhelgisgæzlu og eins full- komnu eftirliti eins og frek- ast er kostur með fiskiskipa- flota sinum. Kekkonen forseti taldi hér horfa í mikið óefni og í árslok- in var niðurstaðan sú að flokkur hans, Bændaflokkurinn, rauf rík- isstjórnina í þeim tilgangi að koma á víðtækara stjórnarsam- starfi, sem væri Rússum geðþekk- ara. En þetta hefur ekki tekizt ennþá. Jafnaðarmenn og hægri flokkurinn standa fast gegn stjórnarsamvinnu við kdtnmún- ista. Þeir óttast, að þátttaka kommúnista í ríkisstjórn leiði yf- ir Finna sömu hættuna og þjóðir Tékkóslóvakíu, Póllands, Ung- verjalands og Rúmeníu og fleiri landa horfðust í augu við, þeg- ar fámennum kommúnistaflokk- um þeirra voru fengin sæti í rík- isstjórn. Niðurstaðan varð sú, að kommúnistar hrifsuðu til sín völdin í öllum þessum löndum í skjóli rússnesks vopnavalds. Finnar óttast slíkar afleiðingar af stjórnarþátttöku kommúnista í sínu landi. Um öll Norðurlönd vekur á- standið í Finnlandi nú mikinn ugg og ótta. Engu skal spáð um það hvað ofan á verður, en auðsætt er að hvert það land, sem verður Sovétríkjunum mjög háð viðskiptalega, leiðir yfir sig mikla hættu. ALFRED Dunhill er látinn. Svo að segja hver karlmaður í heim- inum veit, hver Dunhill var. Og þeir, sem hafa ánægju af að reykja pípu og bera skvn á eæði hinna ýmsu píputegunda, kunna öll skil á Dunhill og pípunum hans með hvíta blettinn á munn- stykkinu. Dunhiillpipurnar eru sem sé beztu pípur, sem hægt er að fá. En Dunhill er einnig þekkt ur fyrir sérstakar tegundir pipu- tóbaks og ýmislegt annað, sem til þarf, ef menn reykja pípu, t.d. pípuhreinsara, svo að eítt dæmi af mörgum sé nefnt. ★ Pípu- og tóbakskonungurinn Dunhill varð 86 ára. Fyrir nokkr- um árum lét hann af störfum og fól yngri mönnum forsjá fyrir- tækis síns. Dunhill kenndi Eng- lendingum að reykja pipu og sannfærði allan heiminn um, að engar pípur kæmust til jafns við ÞAÐ er nú talið nokkurn veginn öruggt, að kosningar verði í Eng- landi í vor. Að öllum líkindum fara þær fram 14. eða 28. maí — og er 14. maí talinn líklegri. Trún aðarmenn Ihaldsflokksins munu þegar hafa fengið fyrirmæli um að hefja undirbúning að kosninga baráttunni, og segja má, að hún hafi raunverulega hafizt sl. mánudag, er Macmillan lagði upp í fjögra daga ferðalag um norð- austurhluta Englands, en íhalds- menn eru taldir hafa sigurmögu- leika í sex kjördæmum á þessu svæði. Macmillan mun halda ræð ur allvíða á þessu ferðalagi. ★ Hvers vegna vilja íhaldsmenn kosningar einmitt í vor? Sterlings pundið er mjög traust eins og er, og líklegt til að standa af sér þær hræringar, sem jafnan fylgja kosningum og kosningabaráttu. Búazt má við, að í haust verði sterlingspundið ekki eins hart. Útflutningsverzlunin er í betra lagi, en hún hefir verið um langt skeið. Atvinnuleysi hefir að vísu aukizt ofurlítið undanfarið, en svo til öruggt er, að úr því muni rætast um mánaðamót marz og apríl. Iðnaðarframleiðslan mun ná hámarki í apríl. Stórpólitískir viðræðufundir milli austurs og vesturs verða að öllum líkindum haldnir í apríllok eða í maí. Bankavextir í Engandi verða sennilega lækkaðir á næstunni og dregið úr veltuskattinum. Er nýja fjárhagsáætlunin verður lögð fram, fær ríkisstjórnin einn ig tækifæri til að létta á ýmsan hátt fjárhagslegar byrðar þegn- anna, þar sem efnahagsástandið i Englandi um þessar mundir leyfir slíkt. þær, sem gerðar væru í Lundún- um. Fyrst í stað fékkst Dunhill við söðlasmíði og vegnaði vel i þeirri grein, því að hann var bæði lag- inn og hugkvæmur. Þegar bílarn ir komu til sögunnar, setti hann á laggirnar fyrirtæki, er fram- leiddi alls konar hluti í bíla. ★ « Dag nokkurn venti Dunhill kvæði sínu í kross og opnaði litla tóbaksbúð í Duke Street í Lund- únum. Árið 1910 sendi hann á markaðinn fyrstu pípuna með hvítum bletti, og með henni lagði hann undir sig allan heiminn. Ekki leið á löngu, þar til fyr- irtækið var orðið stórt. Nú eru Dunhillpípurnar alls staðar jafn eftirsóttar — í Reykjavík, New York og Haparanda. Þær eru góð útflutningsvara og seljast fyrir harðan gjaldeyri. Dunhill-fyrir- tæki eru nú viða — auk Lundúna ★ Kosningar fara alltaf fram í Englandi á fimmtudögum. Fyrsta fimmtudag í maímánuði, þann 7. verða bæjar- og sveitastjórnar- kosningar á nokkrum stöðum í Englandi ,svo að útilokað er, að ENSKA kvikmyndaleikkonan Dawn Addams hefir nú ákveðið að láta kvikmyndirnar lönd og leið, til þess að fá að hafa son sinn, Stefán, hjá sér. Dawn Add- ams skildi fyrir nokkru við mann sinn, Vittorio Massimo greifa, en greifinn harðneitaði að láta Stef- án litla í hendur móðurinnar nema því aðeins að hún segði má nefna New York, Toronto og París. Alfred Dunhill iðkaði hina göf- ugu íþrótt pípureykinganna á vísindalegan hátt og hefir skrifað nokkrar bækur um pípur og tóbak. í einni bókinni kemst hann m.a. svo kænlega að orði: Reyk- ingar er ekki hægt að kalla löst, ef menn iðka þær af stillingu og skynsemi. MC.MILLAN Macmillan á kosningaferða- lagi um norðaustur hluta Englands þann dag fari þingkosningar fram. Ef fimmtudagarnir 21. og 28. yrðu fyrir valinu, myndi sá böggull fylgja skammrifi, að Hvítasunnuhátíðin kynni að trufla gang kosningabaráttunn- ar. Langlíklegast er því að Mac- millan velji 14. maí. skilið við kvikmyndirnar. Nýlega skýrði Dawn ítölsku blaði frá því, að hún myndi nú hætta að fást við kvikmyndaleik, setjast að í Róm og verja tíma sínum til að ala upp son sinn. Hún hefir í hyggju að verða fréttaritari brezks blaðs í Róma- borg. HVAÐ ER AÐ GERAST I FINNLANDI? Norðurlönd uggandi Macmillan velur að öll um líkindum 14. maí ti! kosninga

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.