Morgunblaðið - 20.01.1959, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.01.1959, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐ1Ð Þriðjudagur 20. jan. 1959 Andlegur leiðtogi Norðmanna Berggrav biskup látinn NÝLEGA er látinn í Noregi Ei- vind Berggrav biskup og fer jarð arför hans fram í Osló í dag. Hann varð 74 ára gamall. Þar er fallið frá eitt mesta mikilmenni Noregs á þessari öld, andlegur leiðtogi þjóðar sinnar í blíðu og stríðu. Meðan Hákon konungur og norska ríkisstjórnin héldu baráttunni áfram frá Bret- landi eftir hernám Þjóðverja 1940, var það Berggrav biskup, sem framar öllum öðrum sam- einaði þjóðina heima fyrir í ósveigjanlegu viðnámi gegn út- lenda valdinu. Nafn hans varð á þeim tímum frægt víða um lönd fyrir þá djörf ung, er þessi frjálsborni leiðtogi smáþjóðanna sýndi í skiptum sínum við Þjóðverja. Munu þær minningar m.a. hafa átt sinn þátt í því, að eftir stríð varð hann svo að segja sjálfkjörinn forustu- maður í alþjóðlegu kirkjusam- starfi. Hann varð t.d. aðalfull- trúi Lútherstrúarsafnaðarins í al- kirkjuhreyfingunni og forseti al- þjóðlega biblíusambandsins. ★ Berggrav var stórvirkur rit- höfundur. Hann stofnaði og rit- stýrði áhrifamesta kirkjuriti Norðurlanda „Kirke og Kultur“ í hálfa öld og hann skrifaði fjölda bóka. Margar þeirra fjölluðu um sálfræðileg efni, en meðal þeirra er líka jafn bráðskemmtileg minn ingabók og þjóðlífslýsing, eins og „Biskupinn af Hálogalandi", sem varð á sínum tíma metsölubók víða á Norðurlöndum og kom líka út hér á landi. En fyrst og fremst var Berg- grav þó hinn kraftmikli kenni- maður, -frábær ræðumaður, skap- mikill, hugmyndaríkur og alþýð- legur. ★ Hann fæddist 25. október 1885 í Stafangri sonur Otto Jensens Rogalandsbiskups. Tók hann síð- ar upp ættarnafnið Berggrav. Hann varð stúdent 1903, lauk kandídatsprófi í guðfræði 1908 og stundaði síðar framhaldsnám í guðfræði og heimspeki í Lundi, Cambridge, Oxford og Marburg. I fyrstu var hann hikandi, hvort hann ætti að taka vígslu. Skömmu eftir aldamótin voru að hefjast miklar kirkjudeilur í Noregi milli hreintrúarmanna og, ný-guðfræðinga. Við þessar deil- ur komu efasemdir upp í huga Berggravs. Honum fannst trú sín ekki nógu sterk til þess að taka að sér kennimannsstarfið. í stað þess gerðist hann í 11 ár kennari, fyrst við lýðháskólann á Eiðs- velli og síðan rektor fylkisskóla Raumaríkis. Kennaraár hans voru mikilvægur undirbúnings- tími og urðu honum ómetanleg hin nánu kynni af æskunni við nám og störf. Árið 1919 tók hann loks vígslu, varð sóknarprestur í lítilli sveit- arsókn nokkru fyrir norðan Osló í fimm ár. Taldi hann það hafa verið sín mestu þroska og mót- unarár í guðstrúnni og ritaði hann þá doktorsritgerð sína „Á þröskuldi trúarinnar.“ Á árunum 1924—29 var hann prestur við fangelsið í Osló. Þá ritaði hann merkilega sálarlífsathugun „Sál fangans og sál okkar“. ★ Árið 1929 var hann skipaður biskup í Hálogalandsbiskups- dæmi í Norður-Noregi. Umdæmi hans var nær allt fyrir norðan heimskautsbaug víðlent og tor- fært en ibúarnir harðgerir og innhverfir. Þetta var erfið staða og Berggrav lenti í mörgum mannraunum, sem ollu honum heilsutjóni, sem hann beið aldrei fullkomlega bætur. En kirkja og kristindómur döfnuðu undir stjórn þessa manns, sem gerði sér Eivind Berggrav biskup svo mikið far um að skilja lífs- baráttu fólksins. Berggrav var síðan 1937 skipað ur Osló-biskup og þar með orð- inn fremsti maður norsku kirkj- unnar. Hann hafði milliafstöðu innan norsku kirkjunnar, var aldrei tengdur neinni ákveðinni hreyfingu. Hreintrúarmennirnir sem eru mjög öflugir í Noregi réðust oft á hann og kölluðu hann frjálslyndan, en hann var aldrei öfgafullur í kenningum og bar virðingu fyrir hreintrúar- mönnum. Hann hafði sínar eigin skoðanir, sém hann byggði á al- mennri skynsemi. Hann var ekki fyrir það að taka afstöðu í hrein- um trúfræðilegum deilum, en beindi stöðugt athyglinni að sál- fræðilegri og menningarlegri þýð ingu Guðstrúarinnar. Skyldusparnaðurinn alræmdi. ,,Rauður“ skrifar: EG ætla, Velvakandi minn góð- ur, að segja þér frá dálitl- um hrakningi, sem ég lenti í um daginn í sambandi við skyldu- sparnaðinn alræmda. Raunar snertir þessi „hannibalismi" mig ekki persónulega — svo er guði fyrir að þakka — heldur var ég fulltrúi annars manns í þessu máli. Þannig er mál með vexti, að kunningi minn einn norðanlands bað mig að innleysa fyrir sig skyldusparnaðarbók sína, ásamt því fé, sem hann átti inni. — Ég fór til ríkisféhirðis og sótti bók- ina, án þess að nokkuð bæri til tíð inda. Var mér sagt þar, að ég mundi geta vitjað peninganna í veðdeild Landsbankans. — Ég kvaddi þá frómu menn, sem gæta ★ Hann var staddur í Stokk- hólmi í apríl 1940, þegar Þjóð- verjar gerðu innrás í Noreg. Þeg- ar hann heyrði þessar ógn- þrungnu fregnir hvarf hann þeg- ar heim til Osló. Eftir undankomu konungs og ríkisstjórnar var norska þjóðin heima fyrir stjórnlaus undir hinu þýzka oki. En brátt sameinaðist hún undir forustu kirkjunnar. Á þessum erfiðleikatímum varð Berggrav sameiningaraflið. Hann beitti sér fyrir því að sverðin voru slíðruð í trúarbragðadeilun- um og stofnuð var samfylking kirkjunnar, sem öll stríðsárin stóð óhagganlegan vörð um þjóð- arrétt Norðmanna. í skiptunum við Þjóðverja reyndi á snara og örugga hugsun. Það kom sér og vel í erfiðum samningatilraunum við þá, að Berggrav talaði þýzku reiprenn- andi. f fyrstunni barðist hann fyr ir því, að Þjóðverjar viðurkenndu bráðabirgða landsstjórn, sem skipuð væri mönnum er norska þjóðin treysti. Þetta varð árang- urslaust og þann 17. júní 1940 höfnuðu Þjóðverjar þeim tilmæl- um og kusu heldur að líta á Quisling, sem „fulltrúa þjóðar- innar.“ ★ í febrúar 1941 skarst svo al- gerlega í odda milli Berggravs og Þjóðverja, þegar allir norsku biskuparnir og Berggrav fremst- ur þeirra gáfu út hið fræga hirðisbréf, sem varð leiðarljós norsku kirkjunnar og norsku þjóðarinnar öll stríðsárin. Það ásamt „Grundvallarreglum kirkj unnar' var ákveðnasta opinbert mótmælaskjal, sem gefið var út í nokkru hinna hernumdu landa á stríðsárunum. Aðalefni þess var, að þegar yfirvöldin í landinu fremdu ofbeldi og órétt og þvinguðu sálir manna, þá yrði kirkjan að vera á verði. Stigjuk- ust nú árekstrarnir, þar til allir „gulls" ríkissjóðsins, og þakkaði góða afgreiðslu og greiðar upp- lýsingar. Gekk síðan út í norðan- gaddinn og beindi för minni vestur í Hafnarstræti — í veð- deildina. Frá Heródesi til Pilatusar. AR spurði ég eftir manni þeim, sem mér hafði verið vísað til. — Nei, því miður — skyldu- sparnaður skjólstæðings míns hafði ekki fengið inni í veðdeild Landsbanka íslands. En hvar þá: — Ja, að öllum líkindum í Búnaðarbankanum. Aftur mátti ég bjóða nepjunni byrginn til þess að elta þessa Hannibalsaura — en nú var gang- an stutt, sem betur fór. — Það var hlýlegt að koma inn í Bún- aðarbankann, og ég notaði tæki- færið til þess að líta í Kringum mig í hinum glæsilegu salarkynn um, áður en ég bar upp erindið. Þegar mér var farið að hiýna ofurlítið sneri ég mér að ungum, hvatlegum manni og sagði hon- um erindi mitt. Hann visaði mér á „kollega" sinn þar skammt frá, og var sá hvorki ungur né hvat- legur í framgöngu, enda tók það ærna stund — og þolinmæði — að fá hann til að svara fyrirspurn minni. — Loks leit þessi hægláti starfsmaður bændabankans upp ffá blaði sínu og svaraði: „Nei, við höfum þetta bara fyrir Reykjavík". Ég gerðist nú vondaufur um, að mér mundi takast að heimta þessa fáu aura kunningja míns, en spurði þó hægláta manninn, hvar hann teldi að helzt væri að | leita þeirra. — „Tja, í Lands- biskupar Noregs lögðu niður embætti sín í febrúar 1942 til þess að mótmæla ofbeldisverkum Þjóðverja og fylgisveina þeirra. Þjóðverjar svöruðu með því að handtaka Berggrav biskup. En slíkur var virðuleiki hans og svo sterk var samfylking kirkjunn- ar, að þeir þorðu ekki að flytja hann í Grini fangabúðirnar, held ur höfðu hann í stofufangelsi í sumarbústað hans í Asker. Nokkru áður en stríðinu lauk, GJÖGRI, Ströndum: — Árið 1958 var að mörgu leyti óhagstætt ár hjá Árneshreppsbúum — kalt vor, gróður kom seint, geysilegir ó- þurrkar voru, lambahöld góð, en meðalþyngd dilka var 2—3 kg. lakari en haustið 1957. Tekjur munu því vera mun minni hjá hreppsbúum en 1957 og er hin nýja hreppsnefnd farin að kvíða fyrir að leggja á útsvör á vori komanda. Bryggjan á Gjögri var lengd um tæpa 5 metra og gert við þær skemmdir, sem urðu á henni rétt eftir að búið var að lengja hana um 12 m. sumarið 1957. Sölvi Friðriksson sá um verkið, og gekk það fljótt og vel, þrátt fyrir óhagstæða veðráttu. Að áliðnu sumri sendi vega- málastjóri tvo sérfræðinga til að mæla fyrir vegi til Veiðileysu. Um tvær leiðir var að velja, önn- ur frá Trékyllisvík og yfir Göngu mannaskörð og hin leiðin frá Gjögursvegi og inn Kjörvogshlíð og varð sú síðarnefnda fyrir val- inu. Ekki var í það skipti mælt fyrir veginum nema að Naustvík, sem er bara smáspotti af því sem átti að mæla fyrir. Megn óánægja ríkir meðal margra hreppsbúa út af vegaleysinu innan hrepps og þess má geta, að um þriðjungur hreppsbúa býr við algert vega- leysi, svo ekki er einu sinni hægt að koma til þeirra vinnslutæki til að slétta tún. Þetta er ótrúlegt en því miður satt. Og þetta er í bankanum, býst ég við“, sagði hann og horfði í öfuga átt. Ég stundi því upp, að ég kæmi beint úr veðdeild Landsbankans, og þar hefði ekki fundizt einn ein- asti eyrir af þessu fé. Bænda- bankamaðurinn hægláti kvað enga von til þess — auranjia væri eflaust að leita í sparisjóðs- deildinni, ekki veðdeildinni. Ég held, að ég hafi gleymt að kveðja þegar ég gekk út. Mér var satt að segja farið að renna í skap. Og gott ef ég bölvaði ekki Hannibal svolítið um leið og ég hratt upp hurðinni á Lands bankanum. Þegar ég loks komst að við afgreiðsluborðið og stamaði fram spurningu um það, hvort hugsazt gæti, að nokkrir skyldusparnaðar aurar vinar míns norðanlands hefðu fengið þarna húsaskjól, var ég við búinn svarinu: „Nei, það er í Útvegsbankanum!" — En, viti menn — áður en ég var fyllilega búinn að átta mig, voru pening- arnir komnir í vasa minn, og ég var á leiðinni yfir Pósthússtrætið til hess að senda þá norður. Margt skrýtið í kýr- hausnum. EINS og ég sagði áðan, varð ég hálfgramur á meðan á þess- um skringilega eltingaleik stóð, enda var ég dálítið tímabundinn. En nú er mér löngu runnin reiðin, og ég skrifa þér þetta fyrst og fremst til gamans. — Það er ó- mögulegt að neita því, að það er margt skemmtilega skrýtið í „kýrhaus" hins opinbera". tókst honum að sleppa úr haldi. Fór huldu höfði í Osló í nokkr- ar vikur, en þegar Hákon kon- ungur steig á land, í lendingunni fyrir framan ráðhúsið í Oslo, var það Berggrav biskup, sem bauð hann velkominn. Berggrav kenndi hjartabilun- ar og fékk lausn frá starfi sínu 1951. Hann var heilsulítill síð- ustu árin, en vann þó mikið starf, aðallega við hið alþjóðlega kirkju samstarf. umdæmi Hermanns Jónassonar á árinu 1959. Þess má geta að á Djúpavík eiga heimilisfeður flestir eina belju og nokkrar kind ur og verða að kaupa töðu hver og einn fyrir 8—10 þús. kr. um árið. Nóg land er til ræktunar, en ekki hægt að rækta af áðurgreind um ástæðum. Atvinna er stopul á Djúpavík og hefir verið undanfarin ár. Ef ekki breytist til batnaðar um at- vinnu hér í hrepp á þessu ári, má búast við mikilli fólksfækkun á næstu árum. Hér er fólk yfirleitt búið að búa vel um sig hvað húsnæði snertir, en vantar atvinnu. Marga sem hafa flutt héðan tekur það sárt, að fara frá góðu húsi, sem síðan grotnar niður því enginn getur selt, og verða svo að leigja dýrt húsnæði annars staðar. Héð- an hefur margt fólk flutzt undan farin ár, og standa fjölda mörg ágæt hús auð. Langmestu erfiðleikar Árnes- hreppsbúa er þó læknisleysið. Má það kallast dæmalaust að ráðandi menn skuli ekki finna einhver ráð til að leysa þennan vanda á ein- hvern viðunandi hátt. Hreppur- inn er ekki fjölmennur, enda virð ist mannslífið metið lágu verði í þessu byggðarlagi. Hér er svo til samgöngulaust á veturna, oft leiðir lokaðar til að ná til læknis, hvað sem fyrir kemur. Svo er hin hlið málsins, hve gífurlegur kostn aður er því samfara að koma frá sér fársjúku fólki. Eru þess mörg dæmi, að einstaklingar hér hafa orðið að kaupa Katalínuflugbáta til þess að sækja sjúka, og er kostnaðurinn við það slíkur að erfitt er einstaklingi að rísa undir því. Er augljóst að þeir sem' fyrir slíku verða, standa eftir ör- eigar. Má taka nærtækt dæmi: Einn heimilisfaðir hér í hreppn- um hefur orðið að greiða á sl. tveimur árum um 20 þús. kr. til þess að koma sjúklingum til læknis. Á sama tíma hafa tekj- ur hans verið 60 þúsund krónur og má öllum vera ljóst hvílíkt hörmungarástand þetta er. Ein- hver ráð hlýtur að mega finna til úrbóta. Ef ekki eru tök á að skylda lækna til dvalar í slíkum héruðum, ætti þó að vera hægt að hafa fullgildar hjúkrunarkonur til staðar. Gæti það orðið til mik- illa bóta, þótt það yrði vitanlega aldrei fullnægjandi. Er þetta m.a. ein veigamesta ástæðan til hins mikla brottflutnings úr hreppn- um. Við þessa erfiðleika bætist skortur á ýmsum nauðsynjavör- um. Hér er t. d. steinolíulaust, hráolíulaust, skrifpappírslaust, haframélslaust. Þann 17. júní síðastliðinn varð Elísabet Sigmundsdóttir, Melum, stúdent og útskrifaðist úr Mennta skólanum á Akureyri og er þetta fyrsti kvenstúdentinn, sem Strandasýsla á. — Foreldrar hennar eru Sigrún Guðmunds- dóttir og Sigmundur Guðmunds- son bóndi. Saltaðar voru 900 tunnur af saltsíld hjá h.f. Djúpavík sl. sum- ar og er það helmingi minna en árið 1957. Hér í hrepp vona menn að kjör- dæmaskipunin verði löguð svo skjótt sem auðið er og við fáum duglegan og athafnasaman þing- mann eða þingmenn. — Regína. skrifar ur daglega lifínu Fréttabréf trá Ströndum: Lœknisleysi — atvinnu- leysi — vegaleysi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.