Morgunblaðið - 20.01.1959, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 20.01.1959, Qupperneq 8
8 MORCVNPTAnifi Þriðjudagur 20. jan. 1959 Séra Bjarni Pálsson EINN af þeim mönnum, sem mér eru minnisstæðastir frá bernsku- árum mínum, er sóknarprestur- inn heima í átthögum mínum, séra Bjarni Pálsson. Hann kom oft að Torfalæk, þegar hann fór 1 embættiserindum að Blönduósi eða út um Ása, því að góð vin- átta var með honum og föður mínum. Hann skar sig úr öllum öðrum mönnum þar um slóðir sökum prúðmennsku og virðu- leika í allri framkomu, svo að maður fékk sem barn ósjálfrátt virðingu fyrir honum og stöðu hans. aHnn hafði líka féngið gott uppeldi og var ættaður vel. — Séra Bjarni var fæddur á Gils- stöðum í Vatnsdal, 20. janúar 1859, því að þar bjuggu þá for- eldrar hans. Þau fluttust síðar að Akri í Torfalækjarhreppi og áttu þar heimili til dauðadags, en þau voru Páll Ólafsson hreppstjóri og dannebrogsmaður og kona hans, Guðrún Jónsdóttir. Sveitungar þeirra héldu þeim veglega veizlu á Blönduósi á gullbrúðkaupsdegi þeirra og færðu þeim heiðursgjaf- ir, en slík heiðurssamsæti voru með eindæmum í þá daga. Páll var mjög myndarlegur öldungur, hagmæltur vel og hrókur alls fagnaðar. Faðir hans var inn annálaði söngmaður, Ólafur Jónsson á Gilsstöðum og var hann eyfirzkur að ætt, en móðir Páls hreppstjóra var Steinunn Páls- dóttir prests á Undirfelli, Bjarna- sonar prests Pálssonar á Melstað, er var kvæntur Steinunni, systur Bjarna Pálssonar landlæknis, en þau systkini voru í fjórða lið komin af Þórði á Marðarnúpi, bróður Guðbrands biskups, og er það húnvetnsk ætt allt frá land- námstíð. Hálfbræður Páls á Akri voru þeir Guðmundur í Kirkju- bæ, afi dr. Sigurðar Nordal og Aldarminning: Sr. Bjarni Pálsson prófastur i Steinnesi Jónasar læknis Kristjánssonar, og Frímann á Helgavatni, afi Valtýs Stefánssonar ritstjóra og frú Huldu, forstöðukonu kvenna- skólans á Blönduósi. Guðrún á Akri, móðir séra Bjarna í Steinnesi, var dóttir séra Jóns í Otradal, Jónssonar hrepp- stjóra á Kornsá, Jónssonar hrepp stjóra í Hvammi í Vatnsdal, Páls- sonar, en kona séra Jóns í Otra- dal var Ingibjörg dóttir Mála- Ólafs Björnssonar og Gróu Ólafs- dóttur, Guðmundssonar Skaga- kóngs. Guðrún á Akri var því fjórmenningur við Björn Ólsen prófessor og að 3. og 4. við séra Arnljót Ólafsson. Sézt af þessari upptalningu allri, að séra Bjarni í Steinnnesi var runninn af mjög merkum og gáfuðum húnvetnsk- um ættum í aldir fram. Þau Akurshjón áttu þrjár dæt- ur, er upp komust og urðu mynd- arhúsfreyjur heima í héraði, og syni tvo, er þau settu báða til mennta, þá séra Bjarna og Ólaf, yfirskrifstofustj óra borgarstj órn- ar Kaupmannahafnar. Séra Bjarni tók stúdentspróf 1884 og embættispróf úr Presta- skólanum, bæði með 1. einkunn,' vígðist prestur að Ríp 12. sept. 1886, en fékk Þingeyraklaustur árið eftir og þjónaði því til dauðadags. Hann bjó allan þann tíma á inu forna og fagra prest- setri klaustursins, Steinnesi. Um það leyti sem hann tók við brauð- inu, hafði Hjaltabakkaprestakall verið sameinað því og 1906 var einnig lagt undir það Undirfells- prestakall ásamt inu gamla Grímstungnaprestakalli. Starfs- svið séra Bjarna síðari ár hans náði því yfir svæði, sem hafði verið fjögur prestaköll allt fram yfir miðja 19. öld. Gefur að skilja, að mikinn dugnað hefur þurft til að þjóna svo stóru kalli, þegar prestur þurfti að prófa þekkingu allra barna í húsvitj- unarferðum sínum. Séra Bjarni kvæntist á fyrsta ári sínu í Steinnnesi Ingibjörgu Guðmundsdóttur hreppstjóra á Fagranesi á Reykjaströnd, Sölva- sonar, en hún fluttist ung að Ási í Hegranesi til þeirra merkis- hjóna Ólafs Sigurðssonar alþm. og Sigurlaugar Gunnarsd. og ólst þar upp. Frú Ingibjörg var stillt i e'tb til Jl eipziij bo'tcja't siíjl 1.—10. marz 1959 RAUPSTEFNAN - LEIPZIG IÐIVAÐAR- OG VÖRUSÝI\IKG 10.000 þátttakendur frá 40 löndum Eaupendur frá 80 löndum Kaupsteinuskírteini aígreiðir: , KAUPSTEFNAN í REYKJAVÍK L»kjargotu 6 A — Símar: 1 15 76 — 3 25 64 Upplýsiogar um viðskiptasambönd veitir: ! EIPZIGER M ESSEAMT * HAl N STR.18A * LEIPZIG CV UtUTSCHE DEMOKRATISCHE REPUBLIK kona og háttprúð og mun hafa verið mjög dugleg húsmóðir, sem ekki veitti af, því að ellefu börn eignuðust þau hjónin og búið var stórt, sem stjórna þurfti. Þrátt fyrir mikla ómegð og það, að þau hjónin byrjuðu búskap í lok versta harðindakaflans, sem gekk yfir Norðurland á síðustu öld, mun fjárhagur þeirra hafa verið mjög sæmilegur og komu þau börnum sínum vel til manns og mennta, en sjálfur kenndi séra Bjarni sonum sínum undir skóla. Skulu nú talin börn þeirra hjóna: Guðrún kennari, dáin um þrítugt, Páll lögfræðingur, dáinn 1929, Ólafur hreppstjóri í Braut- arholti á Kjalarnesi, kvæntur Ástu Ólafsdóttur, prófasts í Hjarðarholti, Jón héraðslæknir á Kleppjárnsreykjum, kvæntur Önnu Þorgrímsdóttur, ÞórðarsBn- ar læknis, dáinn 1929, Ingibjörg, gift Jónasi Rafnar yfirlækni, Guðmundur, búsettur í Reykja- vík, kvæntur Jóhönnu Magnús- dóttur, Hálfdan aðalræðismaður í Genúa, Gisli lögfræðingur, dá- inn 1938, Gunnar, fór til Amer- íku, Björn magister og Steinunn, gift Símon Jóh. Ágústssyni pró- fessor. Séra Bjarni var fríður maður og myndarlegur að vallarýn, enda talinn karlmenni að burð- um. Hann sómdi sér mjög vel við embættisstörf. Sjálfur hafði ég að vísu ekki mikið af prófast- inum að segja, nema sem barn, því að ég fór svo ungur í skóla að hann bjó mig ekki undir ferm- ingu, en ég heyrði mikið af hon- um látið sem kennimanni. Hann missti sína ágætu konu 1916 og varð hún ekki nema 49 ára göm- ul, en sjálfur dó hánn 1922 eftir þunga legu. Glæsilegi systkinahópurinn í Steinnesi er fyrir löngu allur fluttur á brott úr átthögunum, en hefur sýnt ræktarsemi sína til þeirra með því að gefa til byggingar nýja héraðsspítalans á Blönduósi mjög höfðinglega gjöf til minningar um foreldra sína. P. V. G. Kolka. SÉRA BJARNI PÁLSSON pró- fastur í Steinnesi á aldarafmæli í dag. Hann var fæddur á Gils- stöðum í Vatnsdal 20. jan. 1859, sonur hjónanna Páls Ólafssonar bónda og dbrm., síðar á Akri í Þingi og konu hans, Guðrúnar Jónsdóttur prests í Otradal. Hann var af merku og gáfuðu fólki kominn í báðar ættir, en ekki verður það rakið í þessum fáu línum. Þegar ég lít til baka og hverf í anda norður á mínar æsku- stöðvar, „heim í gamla hópinn minn, heim á fornar slóðir", minnist ég með virðingu og þakk læti séra Bjarna Pálssonar í Stein nesi, sóknarprests foreldra minna og heimilisvinar. Hann og faðir minn voru nágrannar allt frá bernsku þeirra. Annar alinn upp á Akri, hinn á Stóru-Giljá. Tókst Frú Ingibjörg Guðmundsdótlir þá þegar með þeim vinátta sem hélzt órofin, heil og sönn meðan báðir lifðu. Séra Bjarni var stúdent 1884, útskrifaðist úr prestaskólanum 1886, og vígður að Ríp sama ár, en Þingeyraklaustur var honum veitt 1887, og þjónaði hann því al]t til dauðadags 3. júní 1922. Hann undi vel hag sínum þar, sem margir virðulegir klerkar höfðu setið kynslóð fram af kyn- slóð. Næstur á undan honum var þar hinn þjóðkunni prestur séra Eiríkur Briem, síðar prestaskóla- kennari og prófessor. Séra Bjarni sat vel þetta und- urfagra og búsældarlega prestset- ur. Hann rak þar stórt bú og hélt jafnan staðinn í hefð og réttu gildi alla sína tíð. Hann var hag- sýnn vel og búmaður góður, enda kom það sér vel því barnahópur- inn var stór og hjúin mörg. 1 Steinnesi var jafnan margt í heimili. En hann var ekki aðeins góð- ur bóndi og forsjármaður sins heimilis sem og sinnar sveitar, hann var einnig í röð hinna mæt- ustu og merkustu presta. Þjóð vor hefur ætlað prestum sínum að stunda búskap með prestsskapnum allt fram á síð- ustu ár. Þeim var beinlínis ætlað að lifa af búskapnum, því að laun frá hinu opinbera voru sára- lítil. En þar sem bújarðir voru góðar og presturinn átti þau hyggindi, sem í hag koma, gat allt blessast og farið vel. Séra Bjarni sameinaði þetta hvort tveggja. Hann var góður bóndi og sæmd- arklerkur. Hann virðist hafa kunnað þá miklu list að þjóna í senn Guði Stillur og f rost — snjólítið ÞÚFUM, N.-fs., 17. jan. — Stillt veðrátta hefir verið hér um slóð- ir þessa viku, en frost nokkurt jafnan. Snjór er lítill á jörðu og færi ágætt alls staðar í byggð. Enn er farið á bifreiðum um Snæ- fjallaströnd, svo og um allan Naut eyrarhrepp. Dálítill ís er nú kominn innst á ísafirði og Mjófirði, en ekki er hann þó meiri en svo, að djúp- báturinn hefir getað haldið uppi áætlunarferðum með eðlilegum hætti. — P.P. Sjómenn háseta vantar á báta sem róa með línu og síðan net. Upplýsingar í Verbúð 3 (gömlu verbúðunum) og í síma 16168. Bíll til sölu Chevrolet 1947 6 manna í mjög góðu standi. Upp- lýsingar næstu daga hjá Jóhann Ólafsson & Co. Bifreiðaverkstæði. og gróðurmoldinni. Hann var dyggur þjónn kirkjunnar. Hús- vitjanir og önnur prestsstörf rækti hann með afbrigðum vel. Ræðumaður var hann góður og voru margar ræður hans mönn- um eftirminnilegar, ekki sízt sumar tækifærisræður hans. Hann var mikill mannþekkjari og voru mannlýsingar hans oft með þeim ágætum að trauðla gengu þeim úr minni er á hlýddu. Það er ekki langt síðan ég hitti gamlan Húnvetning, sem aldrei kvaðst gleyma mundu minning- arræðu, sem séra Bjarni hélt yf- ir velgefnum manni, en auðnu- leysingja. Enn mundi hann text- ann „Yfir kaldan eyðisand .. .. “ og sum atriði ræðunnar eftir meira en 40 ár. Hann var hollur ráðgjafi sókn- arbarna sinna. Til hans var leit- að er erfiðleika bar að höndum, af hvaða toga, sem þeir voru spunnir, hvort heldur andlegs eða líkamlegs eðlis. Honum var treyst til hins bezta í hverjum hlut. Sóknarbörnin vissu, að hann hafði bæði vitið og viljann til að ráða fram úr vandamálun- um. Og hann brást aldrei því trausti, sem til hans var borið. Hann, hinn gáfaði og góðgjarni maður, leysti oftast vandann, svo að flestum var léttara í hug, er þeir fóru af fundi hans. Þá var það og viðurkennt af öllum, sem til þekktu, að hann væri mikill mannasættir. Er svo bar við, að deilur risu meðal sóknarbarna hans, var hann laginn að greiða úr mólum og jafna misklíðina. Kom það sér þá að sjálfsögðu oft vel hve lögfróður hann var, eins og sumir af ættmönnum hans. Hygg ég að fáir ólöglærðir menn hafi staðið honum jafnfæt- is, hvað þá framar. Séra Bjarni var mikill að vall- arsýn, fríður, karlmannlegur og tiginmannlegur í.allri framgöngu, og sópaði að honum hvort heldur hann var í kirkju eða utan. Hann var kvæntur Ingibjörgu Guðmundsdóttur hreppstjóra að Fagranesi á Reykjaströnd. Hún var manni sínum góð eiginkona, ástrík móðir barna sinna, mikil- hæf og dugleg húsmóðir og skip- aði vel sæti sitt við hlið síns mæta manns. Var hún háttprúð og elskuleg í allri framgöngu og ávann sér vináttu og hylli sókn- arbarnanna. Hún, maddaman á Steinnesi eins og hún var jafnan nefnd með virðingu og hjarta- hlýju, var hinu ábyrgðarmikla starfi sínu vaxin og leysti það af hendi með sæmd og prýði. Minning þessara mætu og merku hjóna lifir vissulega Ijúf og helg í hjörtum hinna mörgu og glæsilegu barna þeirra svo og okkar gamalla sóknarbarna og annarra vina norður þar. Jósef Jónsson. Gerði skurð- aðgerð á sjálfum sér RÓM, 14. jan. — Casciotti, 27 ára gamall fyrrum undirforingi í ítalska hernum, hefur fanð fram á það við stjórnarvöldin, að hann verði hér eftir skráður kven- maður. Casciotti kom fyrir rétt í dag, þar sem hann skýrði svo frá, að allt frá æsku hefði hann verið í vafa um kynferði sitt — og þar af leiðandi lesið allt um kyn- líf, sem hann komst yfir. Ekki þorði hann að leita læknis, en eftir að hafa lesið sér til í mörg ár ákváð hann að framkvæma skurðaðgerð á sjólfum sér, sem nægja mundi til þess að taka af allan vafa um kynferði hans — og breyta honum í kvenmann. Það var í október 1954. Missti hann mikið blóð við að- gerðina, móðir hans sá, að ekki var allt með felldu. Kvaddi hún hjúkrunarlið til, var Casciotti fluttur til sjúkrahúss, þar sem læknar luku við aðgerðina. Málið verður tekið fyrii aftur — og rannsakað nánar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.