Morgunblaðið - 20.01.1959, Page 12

Morgunblaðið - 20.01.1959, Page 12
12 MORGTJISBLAÐIÐ Þriðjudagur 20. jan. 1959 Námskeið í föndri Starfsemin hefst að nýju 26. janúar. Innritun á nám- skeiðin í föndri verður að Fríkirkjuvegi 11 (bakhúsi) í kvöld og næstu kvöld kl. 8—10. Innritunar- og námskeiðsgjald er kr. 20.00. Ungu fólki á aldrinum 12—25 ára heimil þátttaka meðan húsrúm leyfir. TÓMSTUNDAHEIMILI UNGTEMPLARA. Skrifstofuhúsnœði óskast Höfum kaupanda að 300—500 ferm. skn'ifstofuhúsnæði. Má vera fokhelt, helzt á góðum stað í bænum. Útborgun mjög mikil. Mýja fasteignasalan Bankastræti 7 — Sími 24300. og kl. 7,30—8,30 e.h. 18546. Handrið og hlið og hvers konar skrautsmíði úr járni. — Sýnishorn fyrirliggjandi. (Danskur kunnáttumaður.) Upplýsingum og tilboðum svarað strax. hf. Dvergasteinn Hafnarfirði — Sími 50407. ALLT Á SAIVfA STAÐ NÍKOMNIR HSjóðdeyfar i eftirtaldar bifreiðar. Buick Morris Chevrolet Opel Chrysler Plymouth Dodge Pontiac De Soto Skoda Ford Studebaker Fiat Vauxhall G.M.C. Volkswagen Kaiser Willys-jeppa Mercedes Benz Wolseley og universal (langir). Útblástursrör í Willys-jeppa. Einnig fyrirliggjandi útblástursrör í metratali %”/l%” og 2”. Hafið þér athugað hvort hluturinn, sem yður Vcu.Lar í bílinn, fæst hjá Agli. Egill Vilhjálmsson hf. Laugavegi 118 — Sími 2-22-40. Ingibiörg minning F. 12. sept. 1885. D. 9. jan. 1959. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, haf þú þökk fyrir allt og allt. ÞESSAR linur komu mér í hug, | er ég frétti andlát frænku minn- ar, Ingibjargar Jónsdóttur, en greftrun hennar fór fram í gær, þann 19. janúar frá Dómkirkj- unni. Ingibjörg var af traustu og góðu fólki komin. Hún fæddist þann 12. september 1885 að Lambastöðum í Sandvíkurhreppi og var því 73 ára er hún lézt. Foreldrar hennar voru merkis- hjónin, Margrét Þóroddsdóttir og Jón Jónsson, sem bjuggu að Jónsdóttir Lambastöðum í Sandvíkurhreppi fyrstu uppeldisár hennar. Snemma fór að bera á mann- kostum og hæfileikum Ingibjarg- ar. Hún var vinur vina sinna, og góð dóttir, og umhyggjusöm við foreldra sina. Árið 1912 flutt- ist hún til Reykjavíkur með for- eldrum sínum. Árið 1924 giftist Ingibjörg, Jónasi Kristjáni Jónas- syni, sem var mesti dugnaðar- og sæmdarmaður, en hann and- aðist árið 1942. Þau Ingibjörg og Jónas eignuðust einn son, Ingi- mar, viðskiptafræðing, og er sár harmur kveðinn að heimili hans við andlát hennar. Ég kynntist Ingibjörgu sem barn, eftir að hún fluttist hingað til Reykjavíkur. Við systurnar vorum heimagangar á hinu vist- lega heimili hennar. Þar fannst okkur ávallt gott að koma. Ingi- I ðnaðarhúsnœði óskast leigt ca. 1—300 ferm. Tilboð sendist af- greiðslu Mbl. merkt: „Smíðar — 5693“ fyrir laug ardag Skrifstofustúlka óskast Fyrirtæki í miðbænum vill ráða til sín stúlku til skrif- stofu- og afgreiðslustarfa. Krafizt er vélritunarkunnáttu og nokkurar bókfærsluþekkingar. Eiginhandar umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist afgr. Mbl, fyrir miðvikudagskvöld, merktar: „Skrifstofa — 5695“. Skattfromtöl Tökum að okkur skattframtöl. Vinsamlegast pantið tíma fyrirfram í síma 19740 og 16573. Málflutningsstofa Guðlaugs & Einars Gunnars Einarsson Aðalstræti 18, 2. hæð. Góð FRAMMISTÖÐUSTtJLKA óskast. Mokka-Espresso-kaffi sími 23 7 60. Skólavörðustíg 3a. Bókbandsnemi getur komist að í Ríkisprentsmiðjunni Gutenberg. Upplýsingar ekki gefnar í síma. Sondgerði Oss vantar mann til að annast afgreiðslu Morgunblaðsins í Sandgerði frá 1. febr. n.k. Upplýsingar gefunr Axel Jónsson, kaupm. IVámskeið í gömlu dönsunum Nýtt framhaldsnámskeið í gömlu dönsunum er haf- ið. Einnig kenndir tangó og enskur vals. Kennari verður frú Sigríður Valgeirsdóttir. Kennsla og inn- ritun hefst þriðjud. 20. þ.m. kl. 7,30 í Silfurtunglinu. — Verið með frá byrjun. ÞJÓÐDANSAFÉLAG REYKJAVlUK. björg var með afbrigðum barngóð og hafði ánægju af aðsjágleðibros okkar, er hún vék einhverju að okkur, og það gerði hún ávallt. En þetta voru ekki hennar einu kostir. Hún hafði fengið í vöggu- gjöf hina beztu eiginleika, er hverja konu mega prýða. Hún var hjálpsöm við alla er bágt áttu, trygglynd og traust, glaðlynd og geðgóð, en þó föst fyrir, ef henni þótti einhverjum misboðið. Hún var góðum gáfum gædd og hafði t. d. mikla frásagnargáfu og kunni vel að koma fyrir sig orði. Hún var örugg og grand- vör til orðs og æðts. Um.iyggja hennar fyrir foreldrum sánum var frábær, enda dvöldu þau síð- ustu æviár sín á heimiii hennar. Á því heimili var og Sigríður Jakobsdóttir, sem hjá Ingibjörgu hefur búið um árabil og mat hana mikils. Svo lánsöm var Sigríður að eiga síðar það hlutskipti, að vera henni stoð og stytta i veik- indum hennar, og geta launað þannig góða sambúð. Við andlát þessarar merku konu, setur marga hljóða, en sár- astur er þó harmur kveðinn að einkasyni hennar, sem unni henni heitt, og nýlega hefur stofnað sitt eigið heimili. En það er bót harmi gegn, að eiga góðar minn- ingar um fagurt mannlíf. Minningin lifir þótt maðurinn deyi, og fögrum minningum fær mölur né ryð eigi grandað. Við, sem eftir lifum, vitum, að þér, sem var trúuð kona, mun nú verða falið annað verkefrd í ríki hins eilífa Guðs, og þar munu opnast þér andans fögru dyr og engla þú sjá, er barn þú þekktir fyrr. Laufey Guðjónsdóttir. Fáir bátar róa frá Dalvík DALVÍK, 14. jan. — Frá því um áramót hefir tíð verið hér óstillt og umhleypingasöm. Engin stór- viðri, en stöðug norðanátt með nokkurri snjókomu. Vegurinn til Akureyrar var opnaður í dag, en var áður ófær öðrum farar- tækjum en dráttarbílum. Heldur hefur stillt til þessa síðustu daga, en verið hörkufrost allt ofan í 18 stig. Ekki eru róðrar hafnir enn að neinu ráði, enda fáir sem stunda það að þessu sinni. Þrír hinna stærri báta, Baldvin, Júlíus og Bjarmi fóru nokkru eftir áramót og stunda róðra frá Keflavík, en áformað er að Hannes Hafstein *rói héðan eins og síðastliðinn vet- ur. Hann kom úr sinni fyrstu sjó ferð í dag með rýran afla 5—6 skippund. Hefir m.b. Freyja, sem er lítill þilfarsbátur fengið svip- aðan reiting hér inni á firðinum undanfarna daga. Ekki er Björgv in enn farinn á veiðar, mun bíða eftir togútbúnaði, sem væntan- legur er frá Englandi á næstunni. — S.P.J. 34-3-33 Þungavinnuvélar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.