Alþýðublaðið - 26.10.1929, Side 2
ALPÝÐUBL-AÐIB
Nýtt Sacco-Vanzetíi-mál.
Verklýðsofsóknir í
Amexíku.
Tvö ár eru liðin síðan amerísk-
ir auðvaldsdómstólar dæmdu tvo
saklausa verkamenn til lífláts.
Verkamenn þessir höfðu ekkert
annað til saka unnið en þaö, að
hafa aðrar stjórnmálaskoðanir
en drottnunum líkaði. — Mál
þeirra Saccos og Vanzettis vakti
geysiathygli um gjörvallan heim.
I flestum löndum voru mótmæli
samin og send til Bandaríkjanna
og öll máls-meðferð auðvalds-
dómaranna var fordæmd af millj-
ónum manna. —■ Frægir rithöf-
undar töluðu máli þessara fátæku
verkamanna, en ekkert dugði.
Þeir voru taldir hættulegir þjóð-
félaginu og auðvaldið sat við
sinn keip. Sacco og Vanzetti voru
dæmdir til dauða og líflátnir í
rafmagnsstólnum í Sing-Sing að
nóttu til.
En blóð þeirra Saccos og Van-
zettis hefir ekki sezt að sjónum
amerískra íhaldsmanna. — Nú er
nýtt mál á uppsiglingu í Amer-
iku, sem þegar hefir dregið að
sér athygli alls heimsins, og hef-
ir því verið líkt við Sacco-Van-
zetti-málið fræga. Og nú eru það
ekki að eins tveir alþýðumenn,
sem ákærðir eru, heldur sjötíu.
Saga málsins er þessi:
Eftir að stríðinu lauk hafa
vefnaðariðju samsteypufélögin
amerísku flutt alla aðalstarfsemi
sína til Suðurríkjanna, sérstak-
lega til Norður- og Suður-Caro-
línu og Tennesee. Ástæðan fyrir
þessu er sú, að þarna fæst ódýr
vinnukraftur. Þar er mikill fjöldi
svertingja og innflytjenda, sem
til skamms tíma höfðu alls eng-
in samtök eða félagsskap. —
Fyrir nokkru hófu verkamenn þar
samtakastarf og varð nokkuð á-
gengt, en erfiðlega hefir gengið
að vekja gvertingjana, sem eri)
víða mjög ómentaðír og hafa
enga eða litla stéttarmeðvitund.
f vor varð kaupdeila milli iðn-
aðarverkamannanna, er fóru fram
á hærri laun og meira öryggi í
verksmiðjunum, og nokkurra
iðjuhölda. Meðal þeirra var hið
volduga félag Jenckes & Co. í
Gastoníu í Norður-Carolínu.
Atvinnurekendur vísuðu kröf-
um verkamanna þegar á bug, og
hófu verkamenn þá verk-
fall. Atvinnurekendur ráða öllu
,í ríkinu, jafnt í fjármálum og
stjórnmálum. Þeir fengu því þess
vegna þegar til leiðar komið, að
herlið var sett á verkfallsstöðv-
arnar, og skyldi það verða til
taks, „ef eitthvað út af brygði“,
eins og auðvaldsblöðin komust
svo sakleysislega að orði. —
Verksmiðjueigendur fengu og
verkfallsbrjóta í lið með sér, ér
hófu vinnu á ný.
Nú ráku iðjuhöldarnir verka-
menn út úr íbúðum þeim, er þeir
höfðu leigt þeim, og stóðu verk-
fallsmenn því á götunni með
konur sínar og börn, húsnæðis-
lausir — allslausir, en þó fullir
af þori til að berjast fyrir rétti
sínum til hinstu þrautar. — En
líklegt er, að þeir hefðu gefist
upp, ef stéttarbræður þeirra ýms-
ir, bæði innlendir og útlendir,
hefðu ekki brugðist drengilega
við þeim til hjálpar. — Þessir
vinir verkfallsmanna keyptu
tjöld og settu þau upp í hverfi
og verkamennirnir fluttu í þau.
Síðan settu þeir upp skrifstofu
í eigin húsi, og nú hófu verka-
menn starfsemi sína af alefli
með hjálp styrktar-vina sinna.
Þeim tókst að fá mikinn fjölda
verkamanna í samtökin og þau
urðu öflugri með hverjum degi.
Þegar atvinnurekendur sáu, að
verkfallsmönnum óx fiskur um
hrygg og samtök þeirra efldust
þrátt fyrir ofsóknir iðjuhölda,
urðu þeir næstum ærir. — Þeir
sendu því einka-lögreglu sína á
stað. Hún brauzt inn í skrifstofu
verkamanna, rændi hana og
sprengdi húsið síðan í loft upp.
Hin opinbera lögregla þóttist síð-
an rannsaka málið, og eftir að
„rannsókn" hennar var lokið lýsti
hún yfir því, að ómögulegt væri
aö hafa upp á sökudólgunum.
7. júní gerðist svo sá atburður,
sem hleypti öllu i bál og brand,
og nú er næstum því borgara-
styrjöld í Gastoníu. Þennan dag
ræðst lögreglulið undir forystu
Aderholts lögregluforingja inn í
tjaldþorp verkamanna, en þeir
spyrna á móti. Alt í einu byrjar
skothríð frá báðum flokkum.
Tveir lögreglumenn særast og
annar þeirra, Aderholt, til ólífis,
—: Á dánarbeði sínum sagði Ad-
erholt, að hann hefði ekki fariÖ
rétt að og hann óskaði ekki eftir
því, að nokkur maður yrði ásak-
aður fyrir að hafa valdið dauða
sinum. — Það er heldur alls ekkj
upplýst, hvort Aderholt féll fyrir
skoti frá verkatniinnum eða ó-
happaskoti frá lögreglutmi sjálfri,
En yfirvöldin tóku ekkert til-
lit til þessara yfirlýsinga og óska
Aderholts. Þvert á móti. Þau
hófu þegar enn grimmari ofsókn-
ir á hendur verkamönnum, og
nú var sem þeir væru alveg rétt-
lausir. 70 þeirra voru dregnir fyr-
ir lög og dóm. Þar af eru 16 á-
kærðir fyrir ásetningsiriorð, en
hinir 54 fyrir morðtilraun.
Málareksturinn hefir staðið
lengi yfir. Æsingar eru miklar
og málið hefir vakið geysiathygli
um heim allan. Verkamenn og
jafnaðarmenn í öllum lönditm
•hafa safnað fé til styrktar verk-
fallsmönnum og mótmælum rign-
ir yfir amerísku dómstólana. —
Tvisvar sinnum hefir orðið að
fresta réttarhöldum, í annað sinn
vegna þess, að einn af kviðdóm-
endunum varð alt í einu brjálað-
ur og kastaði sér út ttm glugga
á dómshöllinni. — Einn merk-
asti lögfræ'öingur Bandaríkjanna,
sem mikið gerði til að verja Sac-
co og Vanzetti, ver mál verka-
mannanna.
Danska blaðið „Politiken“ birt-
ir nýlega forystugrein um þetta
mál með fyrirsögninni: „Gaston-
ía. — Dómsmorð." — Þar segir
svo:
„Amerískur málarekstur hefir
sína sérstöðu. Oft brosum við
Evrópumenn að honum, en oft
fyilir hann okkur undrun og
reiði.
Varla hefði nokkurs staðar í
víðri veröld, annars staðar en í.
Bandaríkjunum, annað eins mál
komið upp og apa-málið
fræga. Allir muna eftir apa-
málinu og kennaranum Scope,
er var dæmdur frá embætti fyrir
að hafa kent vissa náttúrufræði-
skoðun. Eða hugsið ykkur fyrir-
hrigðið Ku-Klux-Klan, sem auk
allra sinna kátlegu siða berst
hlífðarlausri og grimmri baráttu
í þágu þríeiningarinnar: Trúar-
ofstæki — auðvald — kyn-
flokkahatur.
Ástæðan fyrir þessu nýja máli,
— Gastoníu-málinu, sem hefir
verið nefnt: Hið nýja Sacco-Van-
zetti-mál, er einmitt sú sama,
hinn sérstaki Ameríkanismi, sem
hrinti af stað apa-málinu og
hefir alið Ku-Klux-Kian . . .“
Gastoníu-málið er að eins nýtt
dæmi upp á bardagaaðferöir am-
eríska íhaldsins.
V.
Stórílóð á Slgluíirðl.
FB„ 25. okt.
Frá Siglufirði er símað: Óstilt
tíð og illviðrasamt að undan-
förnu. í dag er norðan-stórhríð,
mikil fannkoma, frost og stór-
brim með sjávarflóði. Gengur
sjór yfir varnargarðinn norðan á
eyrinni og hefir flætt yfir allan
norðurhluta hennar. Flætt hefir
inn í mörg hús og flúði fólk
úr nokkrum húsum í nótt. Flóðið
er nú komið suður undir aðal-
götuna. — Ofsarok var í nótt og
sleit vélbátana „Valdimar“ og
„Kristbjörgu" frá bryggjum.
Skemdust þeir mikið og einnig
bryggja, .sem „Valdimar" lenti á-
Stóran pramma, fullhlaðinn 380
tn. síldar, sem einkasalan á, sleit
einnig frá frambryggjunni og rak
inn á leiruna.
Línuveiðararnir „Hlér“, „Al-
den“, „Fróði“ og „Nonni“ liggja
'hér inni. — Góður þorskafli var,
er síðast gaf á sjó.
FB„ 24. okt.
Þjöðverjar og eldspýtnaawð-
valdið.
Frá Berlín er símað: Stjórnin í
láni Þýzkalandi 125 milljónir
sænska eldspýtnahringsins, hafa
gert samníng. um, að_ hringurinn
láni Þýzkalandi 125 milljónir
dollara með 6«/o vöxtum. Lánið
endurgreiðist á 50 árum. Þýzkt
hlutafélag fær í staðinn einkasölu
á eldspítum í Þýzkalandi. Sænski
hringurinn ræður yfir helmingi
hlutabréfanna, en Þjóðverjar hin-
um helmingnum.
Barist enn i Kina.
Frá Shanghai er símað: Friðar-
umleitanir á milli Feng-yuh-si-
angs og Nankingstjórnarinriar
virðast engan árangur hafá borið.
Feng sækir á við Han-fljótiÖ.
Nankinghernum veitist erfitt að
stöðva framsókn hans.
FB„ 25. okt.
Skotið á italska krónprlnzinn.
Frá Bruxelles í Belgíu er sím-
rð: Italska krónprinzinum, sem
hér er staddur, var sýnt bana-
tílræði í gær. Hann sakaði ekki
Hann kom hingað til þes$ að
vera viðstaddur skemtihald af
tilefni trúlofunar hans og dóttur
belgisku konungshjónanna. Þeg-
ar hann kom þarigað gerði ‘ít-
alskur stúdent, Rosa að nafni,
tilraun til þess að skjóta hann,
en hæfði ekki. Lögreglan hand-
tók þegar stúdentinn, sem var
nýkominn frá París, en gat með
naumindum komið í veg íyrir,
að æstur mannfjöídinn tæki harín
úr höndum sér. — Stúdentinn
kvað það hafa vakað fyrir sér
að béina athygli alheims að hætt-
unni, sem stafar frá svartliða-
stefnunrii.
Flugmaður ferst?
Frá New-York-borg er símað:
Menn óttast alment, að Atlants-
hafsflugmaðurinn Ditemann hafi
farist. Fregn frá ónafngreindu
eimskipi segir, að eyðilögð flug-
vél hafi sést af skipinu skamt
frá Nýfundnalandi. Flugvélin var
máluð svört og gul, eins og flug-
vél Ditemanns. Kona flugmanns-
ins segir, að hann hafi upphaf-
lega ætlað að leggja leið sína
yfir Island og Grænland, en
breytt fyrirætlun sinni áður en
hann lagði af stað.
Smiði risaflugvéla.
Félagið „General Motors" hefir
myndað nýja verksmiðjudeiíd,
sem ætlast er til að smíði flug-
vélar með 12 mótorum, .svipaðiár
risaflugvélinni „Dox“.
Um tvo uppreisnarmenn og æsku-
lýð Evrópn
ætlar séra Sigurður Einarsson
að flytja fyrirlestur í Bæjar-
þingssalnum i Hafnarfirði á
morgun kl. 4. Ætlaði séra Sig-
urður að halda þennan fyrirlestur
hér fyrst, en bæði kvikmyndahús-
in voru leigð öðrum. Þetta er
án efa mjög fróðlegt og gott er-
indi, og séra Sigurður er þektttr
að því að vera ágætur fyrirles-
ari.