Morgunblaðið - 17.04.1959, Page 10

Morgunblaðið - 17.04.1959, Page 10
10 MORGTlWRt AfílÐ Föstudagur 17. aprfl 1959 Utg.: H.f. Arvakur Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargald kr 35,00 á mánuði innamands. 1 lausasölu kr. 2.00 eintakið. STERKARI AÐSTAÐA HÉRAÐANNA UTAN UR HEIMI J^ecýCtr ^&ctvid ^li iven rÁiát hvilzmyndcifeilzciri til -JJolluwoocl LlœdcL ómóbincf — en lywooc átti ehhi eyriói'iri Ji... HINNX ágætu og rök- föstu ræðu Jóns Sig- urðssonar alþm. á Reynistað í útvarpsumræðunum sl. þriðjudag minntist hann m. a. á þá mótbáru gegn hinni fyrir- huguðu kjördæmabreytingu, að með henni væri verið að skerða rétt strjálbýlisins til áhrifa á íslenzk stjórnmál og gera að- stöðu þeirra óhægari í barátt- unni fyrir hagsmunamálum þeirra. Um þetta komst hinn reyndi þingmaður og dugmikli bóndi að orði á þessa leið: „Með allstórum kjördæmum með 5—6 þingmönnum hafa hér- uðin innan hvers kjördæmis miklu sterkari aðstöðu að öðru jofnu, til að koma fram áhuga- málum sínum en með því að vera skipt upp í einmenningskjör- dæmi. Þetta liggur í þvi, að í stað eins þingmanns hefur sama kjör- dæmi 5—6 þingmenn, sem ber skylda til að berjast fyrir nauð- synjamálum kjördæmis síns á Alþingi. Auk þess verða þessir þingmenn, eins og nú hagar til, venjulega úr þrem flokkum á Alþingi, og hafa því aðstöðu til að vinna að framgangi málanna hver i sínum flokki. — Þessu fylgir sá stóri kostur, að engin hætta er á, að þessi stóru kjör- dæmi einangrist, eins og átt hef- ur sér stað með einmenningskjör- dæmin. Þegar þingmaður ein- menningskjördæmis lendir í harðri stjórnarandstöðu, er ekki dæmalaust að hann og kjördæmi hans sé látið gjalda þess hjá stjórnarflokknum, þannig að hann komi engu máli fram á Alþingi. Slíkum refsingum er ekki hægt að koma fram gagnvart 5—6 þingmanna kjördæmi, sökum þess, að þegar hlutfallskosning er viðhöfð, mundi refsiaðgerðin bitna jafnframt á flokksmönnum1 stjórnarflokkanna á Alþingi úr því kjördæmi. Þessi skipan er því að mínu áliti mjög sterk fyrir dreif- býlið. Styðst ég þar við 17 ára reynslu, sem þingmaður kos- inn hlutfallskosningu í tví- menningskjördæmi“. Hrakspár Framsóknar 1942 Þessi ummæli Jóns á Reyni- stað hafa vissulega við fyllstu rök að styðjast. Engum hugsandi manni getur blandazt hugur um það, að það er sterkari aðstaða fyrir einstök héruð hinna stóru kjördæma að geta snúið sér til fimm þingmanna úr 2 eða 3 flokkum, heldur en til eins þing- manns. Stækkun kjördæmanna mun einnig leiða til þess, að draga mun úr pólitískum deilum um almenn hagsmunamál fólks- ins þar. Meiri líkur skapast fyrir því, að réttlætið verði látið ráða. En því miður hefur oft verið pottur brotinn í þessum efnum. Sérstaklega hafa Framsóknar- menn ekki hikað við það að níð- ast á pólitískum andstæðingum og sitja á hagsmunamálum heilla héraða, sem ekki hafa viljað beygja kné sín fyrir ofríki Fram- sóknarmanna. Þegar hlutfallskosningar voru teknar upp í 6 tvímenningskjör- dæmum árið 1942, vantaði ekki hrakspár af hálfu Framsóknar- manna. Þeir hömruðu á þeirri fullyrðingu, að með þessu væri verið að „skerða rétt dreifbýlis- ins og sveitanna", til áhrifa á þjóðmálin. Tilgangurinn væri að draga úr fjárframlögum til vega, brúa og annarra nauðsynlegra framkvæmda í strjálbýlinu, og þá einkanlega í tvímennings- k j ör dæmunum. Fólkið í þessum héruðum hef- ur nú fengið reynslu af hlutfalls- kosningunni. Afleiðing þeirra hefur orðið sú, að í 4 tvímenn- ingskjördæmum af 6 hafa Sjálf- stæðismaður og Framsóknarmað- ur verið kosnir saman á þing. ★ En engum, ekki einum ein- asta íbúa þessara kjördæma dettur í hug að' halda því fram, að af þessu hafi leitt verri aðstöðu til þess að koma hagsmunamálum héraðanna fram. Þvert á móti hefur þeim aldrei gengið betur en síðan þessi breyting varð að koma málum sínum fram og fá litið á þau af sanngirni og réttlæti. Sama sagan myndi gerast í stóru kjör- dæmunum Nákvæmlega sama sagan mun gerast í stóru kjördæmunum, þegar hin nýja kjördæmaskipan hefur verið samþykkt. Þingmenn hinna ýmsu flokka, sem þar fengju fulltrúa myndu hafa með sér nóið samstarf um mál hérað- anna. Flokkar þeirra mundu áfram hafa hagsmuna að gæta í því að láta fólkið finna að mál- um þess væri sinnt, ekki síður eftir kjördæmabreytinguna en áður. Sá flokkur eða þingmaður, sem drægi sig í hlé og einangr- aði sig frá fólkinu í kjördæminu í heild eða í einstökum byggðar- lögum þess, hlyti að tapa kjör- fylgi, á nákvæmlega sama hátt og þingmaður í einmennings- kjördæmi, sem vanrækir hags- muni kjördæmis síns. Allt leiðir þetta af eðli máls- ins og liggur öllum hugsandi mönnum í augum uppi. Tengslin við þingmanninn myndi heldur ekki rofna. Leiðir það af þvi sem þegar er sagt, að fylgi flokkanna í stórum kjör- dæmum fer eins og áður í litlu kjördæmunum eftir því, hvernig þeir og málsvarar þeirra halda á málum fólksins. ★ Þegar á allt þetta er litið, verður það auðsætt, að strjál- býlið þarf síður en svo að ótt- ast hina nýju kjördæmabreyt- ingu. Hún treystir samvinnu héraðanna, sameinar krafta þeirra og hvetur til aukinnar víðsýni og réttsýni gagnvart hagsmunamálum fólksins „ÉG var klæddur smóking — en átti ekki svo mikið sem eitt cent í vasanum. . . .“ Þannig hefir kvikmyndaleikar- arinn David Niven lýst fyrstu fundum sínum við Hollywood. — Fyrir nokkrum dögum skartaði hann einnig í smóking í kvik- David Niven vann mér miklar vinsældir með leik sínum i „Rauðu akurliljunni“. * myndaborginni, en þá voru að- stæður breyttar. Við mikil fagn- aðarlæti tók hann þá á móti Óskarsverðlaununum fyrir leik sinn í hlutverki ofurstans í kvik- myndinni „Separate Tables“. ★ Fyrir 25 árum var David Niven í skiprúmi á japönsku flutningaskipi. Siglt var suður með vesturströnd Bandarikjanna, og var ferðinni heitið til Panama. Komið var við í San Fransisco og nokkru af farminum skipað þar á land. Skipshöfnin fékk land- gönguleyfi, og voru margir orðn- ir dálítið hifaðir. þegar þeir gengu frá borði, þar á meðal Skotinn ungi, David Niven. Og hann kom ekki til skips aftur. — í einni af kránum, sem hann heim sótti við þetta tækifæri, hitti hann nefnilega nokkra góða vini sína, yfirmenn á brezkum tund- urspilli, sem lá í höfninni í San Fransisco. Þeir skemmtu sér sam an langt fram á kvöld og um nóttina var gleðskapnum haldið áfram um borð í tundurspillin- um. — Næsta dag vaknaði ungi Skotinn þar um borð — og þar sem timburmennirnir létu óspart til sín taka, var hann nokkuð lengi að átta sig á umhverfinu, en þegar hann loks rankaði til fulls úr rotinu, gaf honum held ur en ekki á að líta. Hann var kominn út á rúmsjó! ★ Skipherrann var allt annað en hrifinn af hinum smókingklædda laumufarþega sínum. — Skammt frá tundurspillinum var um þetta leyti myndarleg freigáta, sem leit út fyrir að vera frá því um 1700. Skipherrann mælti svo fyrir, að róið skyldi með þann smókingklædda yfir í freigátuna. — Var svo gert, og enn minnist Niven þess, er hann steig þar um borð eins og það hefði gerzt í gær. — Sjóliðsforingjarnir í ensk um einkennisbúningum „módel“ 1787 stóðu í skipulegri röð á þil- farinu. — Charles Laughton og Clark Gable höfðu á hendi stjórn skipsins, en nafn þess var „HMS Bounty". — Það var gert hlé á töku myndarinnar, þegar David Niven steig um borð. Þetta ein- stæða atvik varð svo óbeint til þess, að hann gerðist kvikmynda leikari. ★ Hann varð fljótlega góður vin- ur leikaranna um borð í „Bounty". Oð árangurinn varð til raunakvikmyndun í Hollywood. Þar fékk Niven enn ástæðu til að troða upp í sínum fína smóking. — Það, sem hann gerði fyrir framan kvikmyndavélina við þessi fyrstu kynni sín af henni, var að lesa klúra smásögu — og hefir sennilega þótt gera það all- vel, a.m.k. fékk hann fljótlega nokkur smáhlutverk. Hægt og bítandi, en öruggt jók hann hróð- ur sinn sem leikari, unz hann var orðinn hin „enska týpa nr. 2008“, eins og hann hefir kallað sjálfan sig. — Satt að segja vissi hann þó varla sjálfur, hvað hann var að gera fyrstu árin í Hollywood. Hann hefir sjálfur lýst því svo, að hann hafi ekki haft hugmynd um, hvers efnis kvikmyndir þær voru, sem hann var ráðinn til að koma fram í — og varla vitað, hvers konar persónu hann var að leika hverju sinni. Og það er ekki svo undarlegt, þó að hann væri ekki strax eins og heima hjá sér í kvikmynda- borginni, því að hann hafði ekki á nokkurn hátt búið sig undir þetta starf. — Menntun sína hafði hann hlotið í skozkum her- skóla. Hann hafði hlotið offisers- nafnbót, en yfirgaf herdeild sína eftir þriggja ára þjónustu. — Hann gefur þá skýringu á því, að sér hafi verið meinilla við að þurfa að fara snemma á fætur á morgnana. — Á árunum 1932— ’35 flæktist hann um Kanada, Bandaríkin og Kúbu og vann fyr- ir sér á hinn margvíslegasta hátt. Heimildarritið „Who’s Who“ læt ur þess t.d. getið, að hann hafi um skeið starfað sem blaðamað- ur og síðan sem viskísali. — Þá er það kunnugt, þótt hljótt hafi farið, að hann tók eitt sinn þátt í uppreisn á Kúbu. Var hann þar foringi í skotliðasveit upp- reisnarmanna. En þótt David Niven vekti ekki á sér neina almenna athygli fyrstu árin eftir komu sína til Hollywood, var a.m.k. einn mað- ur í kvikmyndaborginni, sem trúði statt og stöðugt á hæfileika hans. Og sá var enginn annar en sjálfur Samuel Goldwyn. Hann lokaði augunum fyrir öllum mis- tökum og víxlsporum Skotans unga, en Niven var helzt þekkt- ur í Hollywood á árunum fyrir 1940 sem einn mesti spjátrungur og drabbari borgarinnar, ásamt Errol Flynn, en það sannaðist á þeim, að líkur sækir líkan heim, því að þeir bjuggu einmitt saman um skeið. ★ En svo kom stríðið — og alvara þess truflaði Niven mitt I öllum gleðskapnum og gljálífinu. Hann fékk samvizkubit vegna gá- lausra lifnaðarhátta sinna, og varð alvarlega hugsandi — víst í fyrsta skipti á ævinni. Hann gekk í herinn og gegndi herþjón ustu til stríðsloka. Þar sýndi hann loks, hvað raunverulega bjó í honum. Þótti hann dugandi stjórnandi og ganga vasklega fram. Meðal annars var honum falið að stjórna litlum flokki manna, sem oft var sendur að baki víglínu fjadmannanna til rjósna og skæruhernaðar. Niven Framh. á bls. 13. Hamingjusamt hjónaband í Hollywood. — David Niven og hin „ sænska kona hans, Hjördis Genberg-Tersmeden.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.