Morgunblaðið - 17.04.1959, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 17.04.1959, Blaðsíða 20
VEÐRIÐ Austankaldi — létt skýjað. Hiti 4—6 stig. lortpnMaMfri 86. tbl. — Föstudagur 17. apríl 1959 Eftirmaður Adenauer. — Sjá bls. 6. L I*essi mynd er af hinu nauðstadda, hollenzka skipi, Henry Denny, par sem það andæfði tómt mót stormi og stórsjó djúpt í hafL Stjórnlaus orustuþofa hrapar við Carðskagavita UM klukkan sjö í gærkvöldi varð Sigurbergur vitavörður á Garð- skaga var undarlegrar ferðar bandarískrar orustuþotu, sem hafði verið að hefja sig til flugs af Keflavíkurflugvelli. Þótti hon- um sýnt, að þotan sem stefndi úr suðri áleiðis að vitanum myndi vera með öllu stjórnlaus, og benti allt til þess að hún myndi lenda í sjónum út af vitanum. Vitavörðurinn brá skjótt við og fór í útvarpssendistöð sem hann hefur og kallaði á nærstödd skip að koma til hjálpar. Voru togar- inn Ingólfur Arnarson og varð- skipið Albert næst staðnum og voru þegar reiðubúin að koma til hjálpar, ef flugvélin lenti í sjón- um. En þegar orustuþotan var skammt frá Garðskagavita skutu tveir flugmenn hennar sér út með þar til gerðum útbúnaði og svifu heilir á húfi niður til jarðar í fallhlífum. Flugvélin féll í flæð- armálið og gereyðilagðist. Flugmennirnir tveir John Q Hunt flugstjóri og Franklin D. Lamar flugliðsforingi skýrðu svo frá að þeir hefðu þá fyrir tæpum stundarfj órðungi lagt upp af Keflavíkurflugvelli í tveggja hreyfla Scorpion orustuþ. Er þeir voru komnir á loft urðu þeir þess varir að hæðarstýri flugvélarinn- ar voru úr sambandi, svo þeir réðu ekkert við hana, en hún hentist til og frá í loftinu. Þeim gafst að eins ráðrúm til að senda neyðarskeyti til flugturnsins, áð- ur en þeir köstuðu sér út í fall- hlíf. Þegar neyðarskeyti þeirra barst til flugturnsins voru þegar gerðar björgunarráðstafanir á flugvell- inum og þjrrilvængja send af stað. Sex mínútum eftir að flug- mennirnir höfðu komið til jarðar við Garðskagavita lenti þyril- vængjan þar, tók flugmennina formálalaust upp og sneri með þá til flugstöðvarinnar. Rán fann hollenzka skipið Neyðarástand. Skipið kemst ekki hjálparlaust til hafnar Veðurskipið Indía á vettvang í gœrkvöldi KUUKKAN 2.45 í gær flaug flug bátur Landhelgisgæzlunnar, Rán yfir hollenska skipið Henry Denny, og þar með var lokið leit skipa og flugvéla að hinu nauð stadda skipi. Áður höfðu skip heyrt til þess, og tekizt að miða það út. Reyndist það vera 110 sjó mílur undan Selvoginum, beint til suðurs. Fyrsta skip á vett- vang, hinu nauðstadda skipi til hjálpar, var veðurskipið Indía, sem þegar var lagt af stað til að- stoðar við leitina. í gærmorgun höfðu litlar sem engar fregnir borizt frá hinu nauðstadda skipi. Þá átti og blaða maður frá Mbl. stutt samtal við skipstjórann á hollenzka skipinu Friso, Klein að nafni, en þetta skip er nýkomið hingað, Klein skipstjóri, sem er venslað ur fyrsta vélstjóra á Henry Denny sagði að í fyrrakvöld um kl. 6.30 hefði allt verið í stakasta lagi um borð í hinu nauðstadda skipi, að öðru leyti en því, að einn skips mannanna hafði slasazt. Var ofsa veður þar sem skipið var, og hafði skipsmaðurinn handleggsbrotnað og skaddazt í andliti, vegna byltu er hann hafði hlotið. Henry Denny er frystiskip, sem er á leið til Vestmannaeyja til að taka þar fiskfarm fyrir Sölu- miðstöð hraðfrystihúsanna. Klein skipstjóri sagði að skipið væri traustlega byggt, Hann xvaðst telja, að um borð myndu vera a. m. k. 2 börn og ein kona, eigin kona skipstjórans. Milli klukkan 12 og 1 í gærdag heyrðu leitarskip til hins nauð- stadda skips. Meðal þeirra var Þór, tvö brezk herskip, togarinn Júní og einn brezkur togari. Tókst þeim að miða hið nauðstadda skip. Nokkru eftir kom bandarísk björgunarflugvél á vettvang og tók við gæzlunni yfir hipu nauð- stadda skipi af Rán, sem hélt síðan áfram gæzluflugi meðfram línunni. Ákveðið var að veðurskipið Indía sem þegar var farið af stað til leitar, skyldi halda förinni á- fram til aðstoðar við hið nauð- stadda skip, og var veðurskip- ið væntanlegt milli kl. 8 og 9 í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum Veð- urstofunnar var 8 vindstiga stormur á þeim slóðum, sem Henry Denny var, kl. 9 í gær- kvöldi. Talið var að veðrið lægði heldur í nótt. Hér er merktur á kort staðurinn, þar Denny í neyðarástandi í gær. sem Rán fann Henry Tólf nautgripir í fjósi Hóla bús jákvæðir við berklaprófun Heilbrigðisyfirvöldin hafa fengið málið i hendur Sjálfstœðisfélögin í Rangárvallarsýslu Sjálfstæðisféiögin í Rangárvalla2 efna til fundar að Hellu, laugar- daginn 18. þ. m. kl. 9 e. h. — Á fundinum verða tekin fyrir venju ljj aðalfundarstörf, kosin stjórn fulltrúaráú.. Ennfremur verður gengið frá framboðslista fyrir næstu kosn- ingar. Ingólfur Jónsson, alþingismað- na, hcfur framsögu um kjör- dæmamálið og stjórnmálaviðhorf ið. Allir sluðningsmenn Sjálfstæð- isfiokksins velkomnir á fundinn. Stjórnir Sjálfstæðisfélanna. Þegar þetta gerðist, voru leitar flugvélar frá Keflavíkurflugvelli á lofti, en þær voru komnar nokkru sunnar. Flugbátur Land- helgisgæzlunnar, er var hér úti yfir Faxaflóa, heyrði þessi sam- skipti og miðanir skipanna og baðst leyfis til þess að fara inn á leitarsvæðið og taka þátt í leit inni. ★ Við höfðum flogið í um það bil 2 klst. sagði Guðmundur Kjærne sted skipstjóri á Rán, er við sáum skipið. Reyndist það vera um 110 sjómilur út af Selvoginum. Okk ur tókst brátt að komast í sam- band við skipstjórann, sem sagði að neyðarástand væri um borð. Allar rúður í brúnni væru brotn ar og hefði brúin fyllzt af sjó, einnig hefði sjór komizt í korta klefa og loftskeytaklefa skipsins og öll siglingartæki væru í ó- lagi eða eyðilögð. Einnig væri vél skipsins í ólagi. Þá andæfði skip ið gegn stormi og stórsjó. Skip- stjórinn sagð, að um borð í skipi sínu væru alls 16 manns þar af fjórar konur skipsmanna og tvö börn. AKUREYRI, 16. apríl. — Komið hefur í Ijós við rannsókn á naut- -gripum á búinu á búnaðarskólan- um að Hólum í Hjaltadal, að 12 gripir reyndust vera jákvæðir við berklahúðprófun er fram fór þar fyrir skömmu. í gær átti Mbl. tal við héraðs- dýralækni Skagfirðinga, Guð- brand Hlíðar á Sauðárkróki, um þetta alvarlega mál. Dýralæknirinn sagði, að á þessu stigi væri ekki hægt að fullyrða hve alvarlegt þetta mál væri, hins vegar hefði það komið í ljós að fyrrgreindir tólf gripir hefðu tekið berklabakteríu. Þar með væri ekki sannað að hér væri um að ræða berkla er væru hættu- legir mönnum. Forsaga þessa máls er sú, að héraðslæknirinn á Hofsósi bað Guðbrand hlíðar dýralækni að framkvæma berklarannsókn á nautgripum Hólabúsins. Héraðs- læknirinn taldi sig hafa grun um að þar gæti verið um berkla að ræða. Guðbrandur framkvæmdi svo þessa rannsókn sem fyrr get- ur og telur hann augljóst að já- kvæð berklaprófun hafi komið fram. Dýralæknirinn hefur í sam- bandi við þessa berklaprófun einnig framkvæmt garnaprófun á nautgripunum og sent um þetta nákvæma skýrslu til yfirdýra- læknis í Reykjavík. Einnig mun berklayfirlækn- irinn í Reykjavík láta þetta til sín taka. Geta má þess að fullorðnu kýrn ar sem rannsakaðar voru hafa staðið geldar í um 2 mánuði og eru komnar að burði. Útlit þeirra og ástand telur Guðbrandur dýra læknir í góðu lagi. Guðbrandur dýralæknir segist hafa lagt til við yfirdýralækni að fyrrgreindum 12 gripum yrði lóg- að. Það er á valdi yfirmanna heilsugæzlu í Reykjavík að á- kveða hvert næsta spor verði í þessu máli. Að því er Mbl. hefur frétt mun það vera álit manna að sérfræð- ingur muni rannsaka fólk það er neytt hefur ógerilsneyddrar mjólkur frá Hólabúi. Er þar um að ræða eingöngu staðarmenn heima á Hólum. Hins vegar er öll sú mjólk sem flutt er frá bú- inu gerilsneydd í mjólkursam. laginu á Sauðárkróki. Þetta mál mun enn vera á rann- sóknarstigi og mun sú rannsókn leiða í ljós, hvort hér sé um að ræða hættulega smitun á berkl- um fyrir fólk það er neytt hefur mjólkur eða umgengizt gripina í fjósinu á Hólum. Simagin vann Friðrik MOSKVU, 16. apríl. — í dag voru tefldar biðskákir á skákmótinu í Moskvu. Þá fóru svo leikar að Portis vann Larsen og Simagin vann Friðrik Ólafsson. Jafntefli varð hjá Vasjukov og Lutikov. Þau urðu úrslit 9. umferðar, að jafntefli varð hjá þeim Larsen og Spassky, dr. Filip og Vasju- kov, Lutikov og Milev, Friðrik og Portis. — Skákir þeirra Bron- steins og Smyslovs og Aronins og Simagins fóru í bið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.