Morgunblaðið - 04.07.1959, Side 10
10
MORCuyrtr4 Ðtb
Laugardagur 4. Júlí 1959
latfrlðfrifr
Utg.: H.f. Arvakur Reykjavtk.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsscn.
Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Árni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og aígreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargald kr 35,00 á mánuði innamands.
1 lausasölu kr. 2.00 eintakið.
EITT REKUR SIG Á ANNARS HORN
UTAN IIR HEIMI
—-----------------------/
Athyglisverf mál á döfinni i Louisiana:
Fylkisstjórinn úrskurðaður í gœzlu-
varðhald, að ósk eiginkonu sinnar, er
áleit hann geðveikan
— Hefur nú komist til valda að nýju,
vegna traustrar aðstöðu i fylkinu
ISKRIFUM Tímans um
kjördæmamálið rekur eitt
sig á annars horn, bæði
fyrir og eftir kosningar. Öðrum
þræði heldur blaðið því fram, að
hin nýja kjördæmaskipun muni
hafa í för með sér geysilega fjölg
un stjórnmálaflokka, og þar með
hinn mesta glundroða og upp-
lausn í íslenzkum stjórnmálum,
Á hinn bóginn hamra Tíma-
menn svo á því, að kjördæma-
breytingin muni fyrst og fremst
verða stærsta stjórnmálaflokki
þjóðarinnar, Sjálfstæðisflokkn-
um, til hagsbóta. Minni flokkarn-
ir muni molna sundur í átökun-
um milli Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins með þeim
árangri að Sjálfstæðisflokkurinn
muni græða mest. Til þess að
bjarga Alþýðuflokksmönnum og
kommúnistum, bjóða svo Tíma-
menn þeim að ganga 1 Framsókn-
arflokkinn!
Allir sjá, hversu andstæðu-
kenndur þessi málflutningur
er. Ef hin nýja kjördæmaskip-
un verður fyrst og fremst
stærsta stjómmálaflokknum
til hagsbóta, getur hún naum-
ast haft í för með sér fjölgoin
flokka og aukinn glundroða í
stjórnmálum þjóðarinnar.
Ef litið er til þeirra landa, sem
FIAMSÓKNARMENN halda
áfram að bjóða Alþýðu-
flokksmönnum og komm-
únistum að ganga í Framsóknar-
flokkinn. Segir Tíminn í forystu
grein sl. fimmtudag, að sókn
Sjálfstæðisflokksins verði því að-
eins stöðvuð, að „vinstri menn
dragi úr sundrungu sinni og þoki
sér saman í sterka fylkingu. Leið
in til þess er að efla flokk með
frjálslyndri og þjóðlegri stefnu“.
Þá vita menn það. Framsóknar
flokkurinn er þá eftir allt saman
„frjálslyndur og þjóðlegur". En
í hverju skyldi frjálslyndi hans
og þjóðlegheit birtast?
Er það frjálslyndi að berjast
með hnúum og hnefum gegn því,
að Alþingi sé skipað nokkurn
veginn í samræmi við vilja þjóð-
arinnar? Er það frjálslyndi að
leggja á það höfuðkapp, að ala á
úlfúð milli sveita og sjávarsíðu,
og reyna að fá fólkið í sveitum
HVERS vegna töpuðu komm
únistar svo mjög í Al-
þingiskosningunum s. 1.
sunnudag?
Svarið við þeirri spurningu er
ekki langsótt. Almenningur í
landinu hefur séð í gegnum
skrípaleik kommúnista. Alþýðu-
bandalagsgæran er fyrir löngu
orðin gegnsæ. Jafnvel harðsoðn-
ir kommúnistar hafa orðið megna
óbeit á þessari gæru, sem Hanni-
bal Valdimarsson lagði flokknum
til, þegar hann hafði brotið öll
sín skip í Alþýðuflokknum. Hann
er nú eins og „hafrekið sprek á
annarlegri strönd“. Kommúnist-
ar, sem þekkja gagnsleysi þessa
spreks munu fyrr en varir kasta
lengsta reynslu hafa af hlutfalls-
kosningum í stórum kjördæmum,
til dæmis Norðurlandanfta, ná-
granna okkar, kemur það í ljós,
að þetta kosningafyrirkomulag
hefur þar haft í för með sér
trausta og heilbrigða stjórnar-
hætti. Flokkum hefur ekki fjölg-
að þar óhóflega. Hins vegar hafa
lýðræðissinnaðir smáflokkar lif-
að þar sjálfstæðu lífi um áratugi
og átt sinn þátt í því, í sumum
landanna a.m.k., að móta stjórn-
arstefnuna. Á þetta t.d. við um
radikalaflokkinn í Danmörku og
bændaflokkinn í Svíþjóð.
En bæði í Noregi og Svíþjóð
hafa stærstu flokkar þessara
landa, þ.e. jafnaðarmannaflokk-
arnir, haft hreinan meirihluta um
lengri eða skemmri tíma.
Allt bendir til þess, að réttlát-
ari kjördæmaskipun muni hafa
sömu áhrif á íslandi og meðal
frændþjóða okkar á Norðurlönd-
um. Með henni skapast möguleik
ar á heilbrigðara stjórnarfari.
Þjóðin mun bera meira traust til
Alþingis, þegar hún veit, að það
er nokkurn veginn rétt mynd af
vilja hennar í frjálsum kosning-
um. Og Alþingi og ríkisstjórn
mun verða færara um að vinna
störf sín til gagns fyrir land og
lýð.
og borgum til þess að hata hvert
annað?
Nei, slíkt ber ekki vott um
frjálslyndi, heldur argasta aftur-
hald. Yfirgnæfandi meirihluti
þjóðarinnar gerir sér það líka
ljóst, að Framsóknarflokkurinn
er eini afturhaldsflokkur þessar-
ar þjóðar. Hann hefur I áratugi
misnotað ópólitisk verzlunarsam-
tök samvinnumanna á hinn herfi-
legasta hátt 1 þágu pólitískra
klíkuhagsmuna sinna. f slíku
framferði birtist hvorki frjáls-
lyndi né þjóðlegheit.
Það er mikilvægasta verk-
efni íslenzkra stjórnmála í
dag, næst á eftir efnahagslegri
viðreisn og áframhaldandi upp
byggingu bjargræðisvega þjóð
arinnar að brjóta klíkuvald og
afturhald Framsóknarflokks-
ins á bak aftur. í baráttunni
gegn þessu klíkuvaldi, verða
allir frjálslyndir íslendingar
að sameinast.
því á haf út eða láta það verpast
sandi gleymskunnar.
En almenningur á íslandi er
að snúa baki við kommúnistum,
vegna þess að fólkið man svik
þeirra og hringsnúning í vinstri
stjórninni. Það hefur ekki leng-
ur neina þýðingu fyrir kommún-
ista að æpa um „kauprán", þegar
reynt er að koma í veg fyrir að
sú verðbólgualda, sem vinstri
stjórnin skapaði, eyðileggi ís-
lenzkt atvinnu- og efnahagslíf.
Fólkið man að kömmúnistar lækk
uðu kaup og skertu kaupmátt
launa meðan þeir sátu í ríkis-
stjórn. Þá hikuðu þeir heldur
ekkí við að semja um áframhald-
andi „herílandi”. Á kommúnist-
um tekur þess vegna enginn hugs
andi íslendingur mark lengur.
SÍÐUSTU vikurnar hefur fátíð-
ur atburður gerzt í Louisiana-
fylki í Bandaríkjunum og er raun
ar ekki enn séð fyrir endann á
honum. Þeir, sem við sögu koma,
eru fyrst og fremst fylkisstjórinn,
Earl Kemp Long, og eiginkona
hans, en samkvæmt frásögn „The
New York Times“ eru málavextir
í aðalatriðum þessir:
Eiginkonan óskar gæzlu-
varðhalds
Þann 27. maí sl. réðist Long
fylkisstjóri mjög heiftarlega gegn
andstæðingum sínum í fylkisþing
inu, en hældi sjálfum sér á hvert
reipi fyrir hæfni sína og snilli í
stjórnmálum. Þótti flestum nóg
um. Þrem dögum síðar var hann
svo, að ósk konu sinnar, fluttur
með valdi í flugvél til geðveikra
sjúkrahúss í Galveston í Texas.
Lét eiginkona hans svo ummælt,
að „fylkisstjórinn hefði gjörsam-
lega ofreynt sig. Hinn 3. júní var
svo, samkvæmt beiðni frú Long,
úrskurðað af dómstóli í Texas, að
fylkisstjórinn skyldi hafður í
gæzluvarðhaldi, þar eð það v^eri
„honum fyrir beztu og öðrum til
verndar svo og honum sjálfum".
Þegar hann hafði þannig verið í
haldi í rúma viku, mæltist Long,
sem kvað sig vera „fylkisstjóra í
útlegð vegna brottnáms", til þess
af dómstólinum í Texas, að hann
yrði látinn laus. Og þann 17. júní
féllst hann svo á, að ganga undir
læknisskoðun í Louisiana og var
þá fluttur loftleiðis til sjúkrahúss
í New Orleans í fylki sínu.
Fylkisstjórinn úrskurðaðWr
geðveikur
Þar með var hann laus að nýju,
því að daginn eftir strunsaði hann
út úr sjúkrahúsinu og hraðaði sér
til Baton Rouge, höfuðborgar
fylkisins. En það varð þó aðeins
skamma stund í þetta skiptið,
því að ríkislögreglan kom strax
til skjalanna með handtökuskip-
un, sem úrskurðuð hafði verið af
dómstóli í fylkinu, enn að tilmæl-
um konu hans, og var Long nú
fluttur nauðugur í geðveikra-'
sjúkrahús eitt í Louisiana. Þar
rannsakaði geðveikralæknir fylk-
isstjórann daginn eftir, og komst
að þeirri niðurstöðu, að hann
væri kleifhugasjúklingur með
hugvillur og þjáðist af ofsóknar-
imyndunum, auk tilhneiginga til
tilfinningasveiflna.
f ávarpi ,sem útvarpað var af
segulbandi i síðustu viku, ásak-
aði fylkisstjórinn konu sína um
að vera „eina af afbrýðusömustu
konum, sem Guð hefði nokkru
sinni skapað“, og lýsti því jafn-
framt yfir, að heílsa sín hefði
aldrei verið í betra lagi en ein-
mitt nú. Frúin, sem orðin var
langþreytt á málarekstrinum,
gafst þá algjörlega upp á að halda
málnu til streitu og yfirgaf fylk-
ið. Fylkisstjórinn krafðist þegar
skilnaðar að lögum, en þau hjón
hafa verið gift -í aldarfjórðung.
Nýir embættismenn gefa
heilbrigðisvottorð
Á föstudaginn í fyrri viku kom
Long fylkisstjóri svo fyrir rétt
vegna kröfu sinnar um endur-
heimting sjálfræðis. Áður en
réttarhöldin hófust, notaði fylk-
isstjórinn vald sitt til þess að
svipta forstjóra ríkisspítalanna
embætti svo og yfirmann sjúkra-
. húss þess, er hann hafði verið til
1 rannsóknar á. Samtímis skipaði
hann eftirmenn þeirra að sínu
skapi, og þegar rétturinn var
settur lagði hann fram skriflega
yfirlýsingu frá þessum nýju em-
bættismönnum um að hann hefði
verið látinn laus, þar eð „ekkert
væri við hann að athuga“. Og
dómstóllinn komst að þeirri nið-
urstöðu, að enginn grundvöllur
væri fyrir frekara gæzluvarð-
haldi. Æstir áheyrendur létu hins
vegar í Ijós andúð sína á fylkis-
stjóranum: „Auðvitað er hann
brjálaður", hrópaði einn þeirra.
„Bandbrjálaður“.
Hyggst tryggja áframhald-
andi völd
Fylkisstjórinn lét ekki uppi að
svo stöddu, hvenær hann mundi
snúa aftur til Baton Rouge; lækn-
ar höfðu ráðlagt honum að halda
kyrru fyrir. Um síðustu helgi
brá hann sér til sveitaseturs sins
í nánd við Winnfield í Norður-
Louisiana. En Ijóst þykir, að hann
hafi í hyggju að ná sér niðri á
þeim embættismönnum og stjórn-
málamönnum, sem hann telur
hafa lagzt gegn sér í málinu.—
Fyrsta ráðstöfun hans eftir rétt-
arsigurinn var að setja lögreglu-
stjóra fylkisins af.
Kjörtímabil Longs fylkisstjóra
rénnur út í lok næsta árs. Og sam
kvæmt lögum fylkisins er honum
HONG KONG 28. júní. (Reuter).
Útvarpsstöð og blöð kínverskra
kommúnista hafa að undanförnu
birt miklar frásagnir af neyðar
ástandi í Suður Kína, sem stafi
af úrhellisrigningum. Einkum er
sagt, að ástandið sé slæmt í borg
inni Kanton og er því lýst með
fjálgum orðum í frásögn komm-
únista, að þarna hafi komið
mestu rigningar og mestu flóð
sem um getur í sögunni. Sagt er
að minnsta kosti 300 manns hafi
drukknað en að 2 milljónir
manna séu heimilislausir, upp-
skeran ónýt á stórum svæðum og
megi því vænta matvælaskorts í
Kína.
Þeir sem til þekkja segja, að
frásagnir kommúnista af þess-
um náttúruhamförum séu mjög
óheimilt að gegna því enn eitt
kjörtímabil. Hann hefur hins veg-
ar lýst yfir áformum um að
draga sig í hlé, áður en kjörtíma-
bil hans er á enda og skapa þann-
ig aðstöðu til að öðlast útnefningu
demókrata, sem í desember n.k.
munu velja frambjóðanda sinn.
við næstu fylkisstjórakosningar.
Þá hefur Long látið orð falla um
að hann muni ef til vill leita úr-
skurðar lækna sinna um það,
hvort rétt sé af sér, að leita eftir
endurkjöri, en- hann bætti við:
„Ef ég er sjálfur þeirrar skoðun-
ar, að þeim skjátlist, þá áskil ég
mér allan rétt til að fara ekki að
ráðum þeirra“. Lög Louisiana
fylkis heimila löggjafarsamkund
unni einnig að svipta fylkisstjóra
völdum vegna valdníðslu, en
fram til þessa hefur ekki orðið
vart neinnar tilhneigingar af
hennar hálfu til þess að grípa til
þessarar heimildar.
Áhrifamaður um árabil
Þess skal að lokum getð, að
Earl Long hefur verið mjög mik-
ils ráðandi í stjórnmálum fylkis
síns, allt frá því er eldri bróðir
hans, Huey P. Long, öldunga-
deildarmaður, var myrtur árið
1935, en hann hafði þá um all
langt skeið haft flesta þræði í
hendi sér. Earl fæddist hinn 26.
ágúst 1895 í snauðu landbúnaðar-
héraði í Louisiana, lauk embætt-
isprófi í lögum árið 1926 og snéri
sér að stjórnmálum tveim árum
síðar. Hann hefur gegnt fylkis-
stjóraembætti nokkrum sinnum
og var síðast kjörinn árið 1956.
ýktar. Það er að vísu rétt að
rigningar og illviðri hafa gengið
yfir Hong Kong og Kanton að
undaníörnu, en ekki að ráði
verri en oft áður á þessum tíma.
Öruggar fregnir frá Kanton
herma líka að ástandið sé ekki
nærri eins ljótt, eins og kommún
ísku fréttastofurnar lýsa.
En hversvegna búa kommúnist
ar til þessar sögur eða ýkja erfið
leikana. Það þykir ljóst hver sé
ástæðan til þess. Undanfarna
mánuði hafa þeir mjög haldið á
lofti tölum um aukningu mat-
vælaframleiðslu í hinu nýja
kommúnuskipulagi. Reyndin
mun þó vera allt önnur en að
matvælaframleiðsla hafi aukizt
og hefur gætt matvælaskorts í
Kína síðan um áramót. Nú er
hinn kommúníski áróður kominn
í óefni og á að af--..a matvæla-
skortinn með ýktum sögum um
náttúruhamfarir.
ÞJÓÐLEGUR OG FRJÁLSLYNDUR
FÖLKIÐ SÉR GEGNUM SKRÍPA
LEIKINN
Earl K. Long, fylkisstjóri, á leið úr réttarsalnum.
Kommúnu-mistökin af
sökuð með náttúru-
hamförum