Morgunblaðið - 04.07.1959, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.07.1959, Blaðsíða 12
12 MORCVNBLABIÐ LAU5?arðaEUr 4. tólí 1959 Ní ÓNOTUÐ Pfafí saumavél af nýjustu gerð til sölu. Vélinni fylgir taska. Upplýsingar hjá Heildverzlun JÓNS BERGSSONAR Laugavegi 168 — Sími 35335. Gaddaskór NÝKOMNIR Stærðk: 39 — 45 kr. 242. Vindsœngur Kr. 250. — og 446. — V E R Z L U N Hans Petersen hff. Bankastræti 4 — Sími 13213. Eitt htsndrað þusund krónisr í ríkistryggðum skuldabréfum til 15 ára til sölu. Tilboð merkt: „Peningar — 9373“ sendist Mbl. íyrir mánudagskvöld. .'TIVOLl' ' TÍVOLÍ Útiskemmtun í Tívol í kvöld. — Opnað kl. 8. Listamennirnir LOTT og JOE ANDERS sýna margskonar þrautir á háum hjólum. Kynnir BALDUR GEORGS, sem jafnframt sýnir töfrabrögð. DANSAÐ verður á palli STRATOS kvintettinn leikur. Söngvari: Jóhann Gestsson. Fjölbreytt skemmfitæki Bflabraut — Rakettubraut •— Parísarhjól — Bátarólur — Skotbakkasalur -- Automatar — Speglasalur — Bátar. FJÖLBREYTTAR VEITINGAR TlVOLlBlð sýnir teikni- og gamanmyndir, sem ekki hafa verið sýndar áður hér á landi. FJÖLBREYTT DYRASYNING Strætisvagn ckur frá Miðbæjarskólanum frá kl. 8. Siml 15300 Ægisgötu 4 MÁLNINGARSPRAUTUR AUKAMUNN ST YKKI AUKAKÖNNUR Sendum gegn póstkröfu MYNDLISTAR fyrirliggjandi REYKTO EKKI í RÚMINO! Húseigendafélag Reykjavíkur f jr Amokstrarkrani á vörubíl, til sölu. — Upplýs- ingar í síma 33599. l Trilla Til sölu góð 1 tonna trilla. — j Verð 8000. —- Upplýsíngar í síma 50622. — Aðeins ein trúarbrögð vinna nú á, í vaxandi mæii, í heiminum: I SLAM Hvað vitið þér um þessi trúar- brögð? — Þér fáið ókeypis upp- lýsingar á sænsku sða ensku ef þér skrifið „Ahmadíja hreyfing Islams“, Gunnar H. Eiríksson, Báltgatan 4. Stockholm, Svíþjóð. Húsmæðraskólinn Holbæk í fögru umhverfi. Um klukku- stundar ferð frá Kaupmanna- höfn. Tekur á móti ungum stúlk- um á 5 mánaða námskeiði í heim ilisstörfum frá 4. nóv. og 4. maí. 3ja mánaða námskeið byrjar 6. jan. Skólaskrá og uppl. sendar eftir beiðni. . . . & . SKIPAUTGCRB RIKISINS HERÐUBREIÐ austur um land íhringferð hinn 9. þ.m. — Tekið á móti flutningi á mánudag til Horna- fjarðar. Djúpavogs, Breiðdals- víkur, Stöðvarfjarðar, Borgar- íjarðar, Vopnafjarðar. Bakka- fjarðar og Þórshafnar. — Farseðl ar seldir árdegis á miðvikudag. Samkomur K. F. U. M. — Almenn samkoma annað kvöld kl. 8.30. Gunnar Sigurjónsson cand theol. talar. Félagslíf 7 daga ferð um suð-austurland hefst 4. júlí. — 8 daga hringferð um ísland 8. júlí. — Þúrsmerkurferð laugar- daginn kl. 14. — Ferð í Surtshell ir laugardaginn kl. 14. Ferðaskrifstofa Páls Arasonar, Hafnarstræti 8, sími 17641. Gunnar Bergskála F. 18. okt. 1901. D. 30. apríl 1959. GUNNAR Einarsson var fæddur að Varmalandi í Sæmundarhlíð í Skagafirði á fyrsta ári aldar- innar. Fátækra manna og við f rumstæð skilyrði þeirra tíma ólst hann upp. Ungur réðst hann í það fram- tak að ganga í Hvítárbakkaskóia Sigurðar Þórólfssonar, er var á þeim tíma ein af fáum leiðum fátækra sveitadrengja til þess að afla sér almennrar þekkingar og andlegs þroska. Langskólaleiðin var torsótt af slíkum, og því fá sótt. Og hinn ungi kennaraskóli íslands honum sennilega of dýr. í skóla þessum dvaldi hann tvö skólaár (1918—T9). — Heim kominn aftur í hlíðina sína fögru, stundaði hann svo næstu íjögur árin barnakennslu þar og víðar í Staðarhreppi. Á þeim árum öndverðum kvæntist hann og gerðist fjölskyldufaðir. Konan, Hildur Jóhannesdóttir, var ung ljósmóðir í Staðarhreppi, mynaar kona og vel geíin. í hjónabandi sínu (1922—1931) eignuðust þau mörg börn. En aðeins 3 þeirra komust til fullorðinsára: Dætur tvær Fjóla og Ragna nú starfandi konur í Keflavík og Reykjavík. Einn sonur, Jóhann Þór dó full- orðinn. Hafði þá lært smíðaiðn, var mjög efnilegur ungur maður. Á þessu nefnda tímabili eða fram til 1930 stundaði Gunnar ýmist unglingakennslu á heimilum í Staðarhreppi eða sjómennsku og aðra veiðimennsku á Sauðár- króki og víðar. Árið 1930 réðist Gunnar til barnakennarastarfs í Skefilstaða hreppi (Hvamms- og Ketusókn- um). En það svæði er öll strand- lengjan austan á „Skaganum", allt frá Skagatá og inn til botns Laxárdals. En sá dalur liggur frá Skaga og suður með Tindastóli vestanverðum. En vestan Skag- ans liggur Skagaheiði allt til byggða Skagastrandar. — Slíkt byggðarlag með dreifðum býlum á löngum útskaga gegn norðri, vantandi hentuga kennslustaði hvað þá heldur fast heimavista- setur hlýtur að vera erfitt kennslusvæði. En Gunnar hófst handa. Reisti sér nýbýli, -byggði myndarlegt hús ,ræktaöi land í kring og hóf barnakennslu í sveit inni. Vann einnig að öðrum trún aðarstörfum sveitarinnar. Gjörð- ist nú fjölskyldufaðir á ný. Unnu þau nú, hann og síðari kona hans Halldór Traustadóttir Reykdal samhentum traustum höndum og hiklausum vilja að heill og hags- munum fjölskyldu sinnar og sveit arinnar og þá einkum barnanna í þessu nýja umhverfi. Af 5 börn- um þeirra eru nú uppkomin, dóttir gift burtu og sonur rúml. tvítugur, efnilegur piltur, sem nú reynir á til forstöðu með móður sinni. Þrjú börn yngri. Öll eru börnin mannvænleg. Sá, sem þetta ritar og sem hef- ir um áratugi unnið að forustu- störfum í Kennarafélagi Skaga- fjarðar, hefir þar verið samfélagi Gunnars Einarssonar, flytur hér þessi kveðju- og minningarorð ekki einungis fyrir sakir skyld- unnar heldur og af innri þörf og þökk til hans. Og þá ekki sérstak lega og ekki fyrst og fremst fyrir allt það, sem honum var ósjálf- rátt vel gefið, sem var margt, því að hann var óvenjulega fjöi- hæfur maður. Og þess ber að sjálfsögðu að geta. Hann var skarpgreindur maður, ágætlega skáldmæltur, glöggu-r vel að hugs un og dómgreind, og alveg sér- staklega vissi hann glögg skil á ýmis fyrirbrigði eigi síður efnis- leg en andleg. — Hann var sterk- þroskað náttúrubarn að gerð með óvenjusterka eðlisávísunargáfu SVEIlVBJÖRN DAGFINNSSON EINAR VIDAR Málflutningsskrifslofa , Hafnarstræti 11. — Sírni 19406. Einarsson I — minning þess, snerpur og næmleik í beit- ingi hennar. Þess vegna var hann m.a. slíkur veiðimaður á láði og legi að fádæmi eru. Haft er t.d. fyrir satt, að hann muni hafa ráðið niðurlögum h. u. b. 2000 meindýra í Skaga- heiði og annar staðar. Enda gat hann með raunhæfri nákvæmm rakið háttu og „hugsangang" hins íslenzka refs, svo að undrun sætti) — Þau gagnmerku átök hans í viðskiptum á því sviði höfðu líka a. m. k. í eitt skipti nær kostað hann lífið: Er skot- vopnið bilaði og skaðaði hann svo að hann dróst nær dauða en lífi til mannabyggða með sprengt augo og skothylki fast í andlitinu. Eitt hinn mörgu dæma þess úr sögu mannlegs lífs, hvilíkar hörmungar maðurinn getur þol- að, og þó með dáð hetj unnar komist lifandi frá. — Skal það ei frekar rakið hér. En hér er þegar byrjað að drepa á það, er miklu fremur ber að minnast og mjög að þakka, hversu Gunnar beitti fjölhæfni gáfna og eiginda, það sem honum fór sjálfrátt um hug og hendur í striti og starfi líð- andi stundar. Ber þess þá sérstaklega að minnast, hvílíkur kennari barna og leiðtogi hann reyndist við erf- iðar aðstæður. Um það ber ljóst vitni, hversu vinsæll og vel lát- inn hann var af forsjármönnum barnanna, og hve ástsæll hann var meðal barnanna sjálfra, er hann umgekkst með kærleik og skilningi á eðli þeirra • og þörf- um. Enda lagði hann sérstaka áherzlu á það í starfi sínu að vinna að trúarlegu og siðferði- legu uppeldi barnanna. Slíkir kennarar eiga sín laun, sína fögru heillaríku umbun í sjálfu starfinu, því að þar er það Drottinn sjálfur, sem ávöxtinn gefur. Vér stfcttarbræður Gunnars, og um leið starfsbræður hans og fé- lagsbræður um aldarfjórðungs- skeið, töldum oss hann traustan og vakandi útvörð barnafræðslu og menningarmála í einu afskekkt ásta og erfiðasta kennslusvæði héraðs vors, Skagafjarðar. Og v’ér lögðum framt á að fá hann með á fundi vora, þar sem rædd voru málefni stéttar og starfs og blandað geði með góðum vinum. Og nú, þegar þessa er eigi fram ar kostur, er hér með flutt kveðja vor og kær þökk fyrir líf hans og starf og einnig samstarf að því leyti sem um slíkt var að ræða. Góði vinur! — Vanmáttugur til hjálpar fylgdist ég með í þinni löngu og þungu sjúk- dómsþraut. — Ég vildi að hún hefði endað á annan hátt, með annarskonar sigri. En Drott- inn vildi annað. Og verði hans vilji. Hann blessi ástvinum þínum sorgina og söknuðinn en líka endurfundavonina. — Hann leiði þig sjálfan á eilífð- arbrautinni á landi lifenda- J. Þ. Bj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.