Morgunblaðið - 04.07.1959, Qupperneq 18
18
MORGVN BL'AÐlh
Laugardagur 4. júlí 1959
LiÖsmenn Noregs hafa sam-
tals leikið 260 landsleiki
Norðmenn gera tvær breytingar
a lidi sinu frá leiknum við Dani •
f GÆRKVÖLDI var væntanlegt hingað til iands landslið Noregs
í knattspyrnu, en liðið leikur landsleik við ísland á Laugardalsleik-
vanginum á þriðjudagskvöldið. Sá leikúr er einn leikjanna I 1. riðli
I vrópudeildar undankeppni Ólympíuleikanna — og er þriðji leik-
t*rinn í riðlinum. t hinum fyrsta vann Danmörk Island með 4:2 og
I öðrum leiknum unnu Danir Norðmenn með 2:1. Frá báðum leikj-
Uum hefur áður verið sagt.
Norðmenn hafa valið lið sitt og er það þannig skipað:
Rolf Pedersen Harald Hennum Björn Borgen
Kjell Christiansen Per Kristoffersen
Ragnar Larsen Thorbjörn Svenssen Arne Legernes
Reidar Christiansen Arne Natland
Asbjörn Hansen
Tvær breytingar
Frá leik sínum við Dani í Kaup
mannahöfn gera Norðmenn tvær
breytingar á liði sinu. Reidar
Christiansen kemur inn sem bak-
vörður í stað hins sterka Edgar
Falck, en hann meiddist í Kaup-
mannahafnarleiknum. Þá kemur
og Kjell Christiansen inn sem v.
innherji. Hvorugur þeirra er þó
nýliði. Reidar hefur leikið 14
landsleiki og er núverandi Nor-
egsmeistari og bikarhafi og Kjell
hefur leikið 22 landsleiki.
Liðsmennirnir
Reyndar einkennir það norska
liðið öðru fremur hve leikmenn
eru reyndir. Reyndastur er fyrir-
liði liðsins, miðframvörðurinn,
Thorbjörn Svenssen. Hann leikur
nú hér sinn 84. landsleik. Hann
er kunnastur norskra knatt-
spyrnumanna frá stríðslokum,
Finnskt met í 5000
sterkur í vörn svo af ber, dug-
legur og harður í horn að taka
þrátt fyrir sín 35 ár, fljótur, stór
og kröftugur.
Meðal varamanna er elzti mað-
ur liðsins, Gunnar Thoresen, 39
m hlaupi
Á ÍÞRÓTTAMÓTI á Olympíu-
leikvanginum í Helsingfors sl.
þriðjudagskvöld setti Finninn
Matti Huttonen nýtt finnskt met
l 1500 m. hlaupi. Tími Huttonens
var 13.51.8 min. og er hann fyrsti
Finninn, sem hleypur þessa vega
lengd undir 14 mín.
Fyrra metið átti Olavi Vuoris-
alo, en það var 14.01.6.
í 1500 m hlaupi sigraði Finninn
Olavi Salonen á tímanum 3.45,0,
annar var Norðmaðurinn Hamm-
arsland á 3.45.8 og þriðji Þjóð-
verjinn Böthling á 3.46.6.
Stangarstökkið vann Finninn
Landström, stökk 4.48 metra.
Per Kristoffersen
ára, og hefur leikið 65 landsleiki.
En svo gengið sé á röðina frá
markmanni, þá er Asbjörn Han-
sen 30 ára og hefur leikið 40
landsleiki. Arne Natland er 32
ára og hefur leikið 7 landsleiki,
Legernes er 28 ára og hefur leik-
ið 31 landsleik, Ragnar Larsen er
Norðmenn ætla sér
að vinna Islendinga
— og siðan Dani i september
I>AÐ er engin ástæða til að gráta.
Við höfum eftir sem áður mikla
möguleika til að komast í úrslita-
keppni Olympíuleikanna í Róm
á næsta ári, sagði framkvæmda-
stjóri norska knattspyrnusam-
bandsins Nicolai Johansen við
blaðamenn áður en norska lands-
liðið flaug frá Kaupmannahöfn á-
leiðis til Rykjavíkur.
Og svo bætti hann við: Að vísu
hefði allt verið bjartara hefðum
við unnið í Höfn, en þar sem við
vorum aðeins sigraðir með 1
marks mun, höfum við tækifæri
til að ná Dönum með því að
vinna ísland og síðan Dani er
þeir koma til Oslo. Og við skulum
ekki vera þeir svartsýnismenn að
halda að sigur yfir Dönum í Oslo
13. sptember sé ómögulegur. Dan-
ir töldu það upp á líf og dauða
fyrir sig knattspyrnulega séð að
sigra okkur á fimmtudagskvöld-
ið. Og þennan dag heppnaðist okk
ar liðsmönnum fátt af því sem
þeir reyndu, en enginn getur
talið mér trú um að norska liðið
sé það miklu lakara en hið
danska eins og í ljós kom í fyrra-
kvöld.
28 ára og hefur leikið 10 lands-
leiki, Björn Borgen er 22 ára og
er einn leiknasti knattspyrnumað
ur Noregs, mjög hættulegur leik
maður, en misjafnlega upplagð-
ur. Per Kristofferssen er 22 ára
og hefur leikið 14 landsleiki, Har-
ald Hennum er 31 árs og hefur
leikið 36 landsleiki, Kjell Kristi-
ansen er 34 ára og hefur leikið
23 landsleiki. Rolf Pedersen er
yngsti maður liðsins, tvítugur að
aldri, en hefur þegar leikið 5
landsleiki. Hann er fljótur og
skoraði t. d. eina mark Norð-
manna gegn Dönum, glæsilegt
mjög.
Leikur norska liðsins hefur þó
oftast einkennzt af mjög sterkri
vörn og hættlegum upphlaupum
upp kantana, en á þeim eru hættu
legustu sóknarleikmenn liðsins.
í norska hópnum sem hingað
kemur eru samtals 23 menn að
fararstjóranum, þjálfara og lands
1 ðsnefndarmönnum meðtöldum.
í ráði er að liðið fari ferð í boði
líkisstjórnarinnar til Þingvalla og
Hveragerðis, auk ferða hér innan
bæjar, en ekki er enn vitað, hvað
Norðmenn vilja láta lið sitt ferð-
ast mikið fyrir leikinn.
Eftir leikinn verður hóf fyrir
liðsmenn í Sjálfstæðishúsinu og
síðan kveðjudansleikur. — Heim
heldur flokkurinn á miðviku-
dagsmorgun.
Dómari í þessum leik verður
skozkur maður, J. P. Barkley að
nafni.
í kappróðrl
Kappróðramót
FYRSTA róðrarmót á þessu
sumri, innanfélagsmót Róðrarfé-
lags Reykjavikur, verður á morg
un, sunnudag, og hefst kl. 10 f.h.
suður í Nauthólsvík
Það er Róðrarfélag Reykja-
víkur, sem stendur fyrir móti
þessu, en er haldið snemma sum-
árs ár hvert.
Kepp-.in verður , þrem liðum:
1. Milli A og B liðs RfR.
2. Milli byrjenda.
3. Bændaróður, en þá verður
valið í liðin á keppnisstað.
A og B lið munu róa 800 metra,
en bæði byrjendaliðin og lið þau
sem veljast í bændaróðri munu
róa 400 metra. Allar keppnirnar
mun hefjast í Fossvogi innan-
verðum og enda í Nauthólsvík.
Undanfarin ár hefur verið
keppt milli Róðrardeildar Ár-
manns og Róðrarfélag Reykja-
víkur á þessu móti, en í ár fellur
hún niður vegna óviðráðanlegra
orsaka.
Að mótinu loknii verður skírð-
Reykjavík 64
stig Málmey 41
ur nýr róðrarbátur gerður fyrir
4 ræðara og stýrimann. RfR fékk
bát þennan frá Þýzkalandi í vet-
ur. Er hann hið fegursta fley.
Mun forseti Í.S.Í. Benedikt G.
Waage. framkvæn.a athöfnina.
Ferðir á vegum
Páls Arasonar
FERÐASKRIFSTOFA Páls Ara-
sonar efnir til fjórðu hringferð-
arinnar umhverfis landið, 8. júlí
n.k. Verður ekið norður yfir Kjöl
í þessari ferð. Um síðustu helgi
fóru bílar Páls yfir Kjöl og voru
það fyrstu bilarnir sem farið
hafa nú í sumar. Gekk ferðin að
óskum.
Á laugardaglnn hefjast 4 ferð-
ir á vegum Páls og er ein um
Suðausturland, sem er 7 daga
ferð og 10 daga ferð um Norður-
land og loks ferð í Þórsmörk, 2
daga ferð og jafnlöng í Surtshelli.
Fyrsta skemmtiferðin til Græn-
ÞRIGGJA daga vígslumót
Laugardalsleikvangsins hófst
í gærkvöldi, með ræðuliöldum
og fyrri hluta keppni í frjáls-
íþróttum milli úrvalsliðs
Málmeyjar í Svíþjóð og
Reykjavíkur. Eftir fyrri dag-
inn hafa íslendingar foryst-
una með 64 stigum gegn 41.
Er mótið hófst gengu lið borg-
anna fylktu liði til ieiks. Gunnar
Thoroddsen borgarstjóri flutti á-
varp, bauð alla keppendur og
fulltrúa héraðssambandanna vel-
komna, svo og hina sænsku gesti.
Hann ávarpaði gestina á sænsku
og afhenti síðan íþróttavalla-
stjórn Laugardalsvöllinn.
Fulltrúi Málmeyinga, Helge
Lþfgren, mælti nokkur orð og
færði kveðjur og gjöf til Reykja
víkur.
- Þá talaði Gísli Halldórsson,
form. ÍBR, þakkaði bæjarstjórn
og borgarstjóra fyrir völlinn sem
væri tákn þess velvilja er yfir-
völd bæjarins sýndu íþróttamönn
um.
1 keppninni sem getið verður
hér síðar urðu þessir sigurvegar-
ar:
100 m. hlaup: Nordbeck 10,8.
110 m. gr.hl.: Guðjón Guð-
mundsson 15,1.
Kúluvarp: Wachenfelt 15,13 m.
Hástökk: Jón Pétursson 1,80 m.
400 m. hl.: Hörður Haraldsson,
49,3 sek.
1500 m. hl.: Svavar Markússon
3:58,6 mín.
Langstökk: Einar Frímannsson
6,87 m.
Kringlukast: Þorst. Löve 45,80.
3000 m. hl.: KristL Guðbjörns-
son 8:42,6 mín.
/ stuttu máli
IKAIRÓ. —— Dag Hammarskjöld
kom í dag til Kairó að ræða við
4x100 m boðhlaup: Reykjavík Nasser um ferðir ísraelsskipa um
42,9 sek. I Súezskurð.
Vigslumótið i Laugardal
Reykjavík „landið"
hápunkturinn i dag
MÓTIÐ hefst með fimleikasýn-
ingu kvenna, sýna stúlkur úr Ár-
manni undir stjórn frú Guðrún-
ar Nielsen, síðan verður glímu-
sýning, sýna glímumenn úr UMF
R og Ármanni undir stjórn Lár-
usar Salómonssonar.
Keppni milli B-liðs Reykjavik-
ur og utanbæjarmanna í frjáls-
um íþróttum hefst kl. 14,30. —
Verður keppt í þessum grein-
um: 110 m grinuahlaupi — lang-
stökki — kringlukasti — 100 m
hlaupi — hástökki — 400 metra
hlaupi — 3000 m hlaupi og kúlu
varpi og 4x100 m boðhlaupi.
Að þessari keppni lokinni verð
ur keppt i knattspyrnu og hefst
leikurinn kl. 16.05. Leikur úr-
valslið Reykavíkur gegn utan-
bæ j armönnum.
Keppni hefst síðan aftur um
kvöldið kl. 20.00. Verður fyrst
leikfimisýning karla úr KR, ÍR,
og Ármanni. Siðan sýna karlar
frá íþróttafélagi ísfirðinga.
Síðari hluti bæjakeppninnar
milli Reykjavíkur og Málmeyjar
hefst kl. 20,30, og verður keppt
í þessum greinum:
200 m — stangarstökk — spjót
kast — 800 m hlaup — 400 m
hlaup — þrístökk — sleggjukast
— 5000 m hlaup og 4x400 metra
boðhlaup.
Stjória íþrótfavallanna falið að
sjó um Ieifavonginn í Langordol
Á bæjarstjórnarfundi í gær
bar Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri fram svohljóðandi tillögu:
„Bæjarstjórn ályktar að fela
stjórn íþróttavallanna fram-
kvæmdastjórn cg rekstur leik-
vangsins í Laugardal".
Borgarstjóri sagði, að svo sem
kunnugt væri hefði Laugardals-
nefndin lokið störfum og skilað
af sér leikvanginum. Væri eðli-
legast, að stjórn íþróttavallanna
væri falin framkvæmdastjórn og
rekstur leikvangsins og væri
nauðsynlegt að taka ákvörðun
um það efni nú þegar, en reglu-
gerð og rekstur íþróttavallanna
yrði endurskoðaður siðar.