Morgunblaðið - 24.07.1959, Side 6
MORVUIVBLAÐIÐ
FSstudagtir 24. jölí 1959
Carlo Schmid gerði
kenningu Machia-
vellis merkileg skil
VESTUR-ÞÝZKI stjórnmála-
maðurinn og fræðimaðurinn
dr. Carlo Schmid prófessor,
hélt fyrirlestur í hátíðasal Há
skólans sl. þriðjudag um
skilning rithöfundarins Nicolo
Machiaveilis á manninum. Fer
hér á eftir stuttur úidráttur
úr fyrirlestrinum.
>AÐ kann að þykja undarlegt, að
þýzkur prófessor skuli halda fyr-
irlestur á íslandi um viðhorf
Machiavellis, þar sem ísland er
vígi demokratískra erfðahug-
mynda og rótgróins siðgæðis á
öilum sviðum opinbers starfs, en
Maohiavelli aftur á móti boðberi
samvizkulausra kennmga, sam
afneita öllu siðgæði í stjómmál-
um. En hvernig svo sem því er
varið, þá eru hugmyndir Evrópu-
þjóða um, hvað pólitík er, unct'r
verulegum áhrifum frá Machia-
velli og hafa meira að segja haft
áhrif þar sem kenningar Flórens-
búans sjálfs hafa mætt mót-
spyrnu. — Ég vil aðeins minnast
á Friðrik mikla í Prússlandi,
sem hefur farið eftir kenningum
Machiavellis meir en nokkur
annar og lét sig samt hafa það
að „hrekja" skoðanir Machia-
vellis í riti á æskuárum sínum.
Alkunna er og að Shakespeare
var undir áhrifum frá Machia-
velli, og sýnir það, hve gífurleg
áhrif hugmyndaheimur þessa
manns hefur haft, og það á hugi
menntuðustu manna.
>að, sem mestu máli skiptir í
hugsun Machiavellis, er, að hann
greinir stjórnmál frá siðgæðis-
legri guðfræði, hann spyr ekki
lengur, hvað manni beri að gera
tál þess að forða sálarheill smr.i
frá voða, þót't hann fáist við
stjórnmál, heldur hvað manni
beri að gera til þess að komast
að settu marki á útreiknanlegan
hátt. I>áð eru ekki óskir okkar
segir Machiavelli, ekki hugmynd
ir okkar um það, sem ætti að
vera, sem ráða gangi málanna,
heldur staðreyndirnar og þær or-
sakir, sem til þeirra liggja. Þess
vegna á sá, sem ætlar að breyta
pólitískt, eingöngu að spyrja
sjálfan sig: Hvaða öfl eru hér að
verki? H að ber mér að gera íil
þess að hafa þau áhrif á þessi
öfl, að þau stefni að því mark-
miði, sem mér er hagstæðast?
Heimur Machiavellis er að öllu
leyti hér á jörðu. Sem stjórnmála
maður hefur hann engan áhuga
á eilífðinni. Hann segir ekki, að
maðurinn verði að breyta illa, en
hann segir, að maðurinn verði að
vera fær um að breyta illa, ef
hann geti ekki náð nauðsynlegu
marki í pólitík á annan hátt.
Þannig gegnir sagan engu til-
gangshlutverki í augum Mach'.a-
vellis. Hún á sér ekkert takmark,
í henni skiptast sífellt á ris og
föll. Engin æðri stjórn er á rás
viðburðanna og engin framför.
Þar sem við þykjumst sjá eitt-
hvað þess háttar eygjum við ósk-
ir okkar, en ekki söguna. Heim-
urinn er ávallt hinn sami. Kraft-
ar þeir, sem eru að verki í heím-
inum, eru hinir sömu, þeir eru að
eins að verki meðaí mísmunandi
þjóða á hinum ýmsu tímum.
Þannig eru það aflfræðileg lcg-
mál, sem ráða gangi sögunnar.
Stjórnmálamanninum má þannig
hiklaust líkja við verkfræðing-
inn, sem notfærir sér þekkingu
sína á lögmálum náttúrunnar við
smíði véla, sem hann síðan notar
til að gera sér náttúruna undir-
gefna. Machiavelli hefur orðið á
undan Francis Bacon í því, sem
hinn síðarnefndi orðaði: natura
parendo vincitur. Því verður þó
gkki neitað, að í þessari heims-
mynd, sem byggir svo mjög á
aflfræðinni, eru þó nokkrir há-
spekilegir „blettir“. Tvær guð-
legar verur stjórna rás viðburð-
anna, virtú og fortúna: viljinn,
sem stjómast og beinist að á-
kveðnu marki af skynseminni
(virtú), og og raunveruleiki
staðreyndarinnar, sem getur jafn
vel grandað hinum marksækn-
C a r1o Schmid
asta manni, áður en hann hefur
náð settu marki. Manninum er
aðeins fært að vefa úr þráðurn
fortúnu, en ekki að slíta þá. Und-
ir áhrifum þessara krafta gerist
sagan. Efni hennar er eingöngu
pólitísk hegðun mannsins, en hún
er aftur ekki annað en viljinn til
sjálfsákvörðunar og mátturinn til
að sigra.
Sérhver verknaður gerist á
tveimur sviðum, á siðgæðissvið,-
inu og á aflfræðilega sviðinu í
rás viðburðanna, þar sem ekki
er um að velja hugtökin „gott“
og „illt“, heldur „rétt“ og
„rangt". Þetta tvíhliða ástand
hefur í för með sér, að breytnin
á pólitíska sviðinu lýtur öðrum
lögmálum en breytnin á siðgæð;s
sviðinu. Sá, sem ætlar að reynast
mikill á þessu síðara sviði, verð-
ur í breytni sinni að hlýða kal:i
kærleikans, en það þýðir, að hún
má aðeins verka á sigurinn y‘ir
honum sjálfum, en ekki á árang-
urinn. Sá, sem hins vegar ætlar
sér að breyta rétt á pólitíska
sviðinu, verður að miða gerðir
sínar við þarfir tækninnar, sem
eru skilyrði fyrir árangrinum, án
þess að hann taki nokkurt tiilit
til boðorða siðgæðisins. Pólitíkin,
sem þannig ber að líta á sem til-
gang eingöngu, leyfir alls ekki, að
spurt sé um „gott“ eða „ilit“,
heldur um „verkandi“ og „ekki
v.erkandi", eða „rétt“ og „rangt".
Enginn er skuldbundinn til að
fara inn á svið stjórnmálanna,
það er ef til vill betra að gera
það ekki, ef mönnum er umhugað
um sálarheill sína. Ef menn af*ur
á móti fara inn á þetta svið, eru
menn dæmdir til að fara jftir
lögmálum þeim, sem þar gilda,
að viðlagðri algerri misheppnan.
Þessi mynd sögunnar kann að
virðast ómannleg, en enginn mun
geta neitað því, að hún hefur
vissan mikilfengleik til að bera.
Og það mun. hafa verið þessi eig-
inleiki, sem hefur hrifið svo mjög
menn eins og Shakespeare, Ric-
helieu, Filippus II Spánarkonung,
Napóleon og Lenin.
Sjötugur;
Gestur Guðmundsson
í Reykjahlíð
MER ER það í barnsminni þegar
móðir mín sagði mér frá því, er
þekkt og ástsæl ljósmóðir hér í
Reykjavík hélt yngsta bróður
hennar undir skírn. Sveinninn
skyldi heita Kjartan, en „ljósan"
var heyrnarsljó, og er prestur-
inn spyr, hvað barnið eigi að
heita, er svarið: Gestur. Og því
nafni var barnið skirt. Afi minn
á þá að hafa sagt: Þetta er ekki
verra nafn, þótt það sé ekki sótt
í Laxdælu.
Og nú á Gestur Guðmundsson
frá Bergsstöðum í Reykjavík, 70
ára afmæli í dag. Hann hefir með
starfi sínu komið talsvert við
sögu hér í okkar bæ. Löngum
kallaði hann sig ökumann og það
með réttu. Áður en bílaöldin
rann upp annaðist hann hvers
konar flutninga á vörum og efni.
Hafði hann þá jafnan úrvals
hesta, sem fór það mikið orð af,
að jafnvel „danskir" töluðu um,
að „Púlli“ og „Sóti“ gæfu ekki
eftir klárunum í Kaupmanna-
Svíar svara Rússum
STOKKHÓLMI, 22. júlí. NTB-TT — Östen Undén, utanríkisráðherra
Svía, afhenti í dag svar sænsku stjórnarinnar við yfirlýsingu Rússa
í sambandi við þá ákvörðun Krúsjeffs að heimsækja ekki Norður-
lönd í sumar, eins og ráð hafði verið fyrir gert.
ekki komið í veg fyrir þá andúð,
sem Rússum hefur verið sýnd í
Svíþjóð, þá vill stjórnin benda
þeim á að í Svíþjóð ríkir bæði
prentfrelsi, málfrelsi og funda-
frelsi, sem byggt er á sænskum
erfivenjum og sænskum lögum.
Kveðst stjórnin harma yfirlýs-
ingu Rússa frá 19. júlí, þar sem
sagt er að heimsókn Krúsjeffs
hafi verið frestað, því að heim-
sóknin hefði getað stuðlað að
auknum skilningi milli Svía og
Rússa og eflt samstarf landanna.
Þá segir að ástæðurnar, sem Rúss
ar færi fram fyrir frestuninni séu
þær, að sænsk blöð, félagasamtök
og einstakir stjórnmálamenn hafi
barizt gegn heimsókninni og
sýnt Krúsjeff óvirðingu. Sænska
stjórnin vill benda á að Rússar
gera alltof mikið úr þessari and-
úð, ekki sízt þar sem þeir lýsa
því yfir í sömu andrá að vinátta
Rússa og Svía sé alkunn stað-
reynd. Þegar Rússar áfellast
sænsku stjórnina fyrir að hafa
Danir svara ekki
Frá Kaupmannahöfn berast
þær fréttir að danska svarið við
orðsendingu Rússa verði afhent á
morgun í Moskvu danska sendi-
herranum. Svarið er í stórum
dráttum sama efnis og yfirlýsing
H. C. Hansens á dögunum í sam-
bandi við þá ákvörðun Krúsjeffs
að heimsækja ekki Danmörku, að
því að danskir blaðamenn segja,
en svarið verður ekki birt opin-
berlega fyrr en á morgun.
skrifar úr.
daqlega lifinu
]
Miður hlýleg framkoma
við viðskiptavin
INGIMAR Jónsson, forstjóri
Bólsturgerðarinnar hf. skýrði
Velvakanda í gær frá alveg fá-
heyrðum dónaskap, sem hann
varð nýlega fyrir.
Hann kvaðst oftast hafa dvalið
einhverja daga á hverju sumri á
sumarhótelinu í Bifröst, og líkað
það vel.
Nú í sumar hringdi hann þang-
að uppeftir rétt eftir að hótelið
var opnað, upp úr miðjum júní,
og talaði við hinn nýja hóte.-
stjóra. Bað hann um að fá þar
gistingu fyrir fjóra í góðum her-
bergjum frá því þriðjudaginn 14.
júlí og fram á næsta sunnudag,
og jafnframt um veiðileyfi í tvo
til þrjá daga í ánni Þverá sem
hótelið ráðstafar að einhverju
eða öllu leyti. Það var sagt alveg
sjálfsagt, tekin niður nöfn beggja
mannanna, sem ætluðu að
koma þangað með konur sínar,
og skýrt t-Á því hvað veiðileyfið
kostaði, hvernig komizt yrði
bezt að ánni, rædd veiðin í henni
o. s. frv.
Ekki meira þó ég
. sviki þig
TVEIMUR dögum áður en ferða
fólkið ætlaði svo að halda í
Borgarfjörðinn, hringdi Ingimar
þangað. Þá brá svo við, að hótel-
stjórinn kannaðist ekkert við
að hann hefði nokkurn tíma beð-
ið þar um herbergi, hvað þá veiði
leyfi. Eftir nokkurt þjark kvaðst
hann þó finna í bókum sínum að
hann hefði lofað herbergi í einn
dag, en engu veiðileyfi. Og það
væri óumbreytanlegt.
Ingimar kvaðst ekki geta skoð-
að þetta öðru vísi en sem bem
svik við sig.
___ Það er ekki meira þó ég
svíki þig, heldur en þegar þú
sveikst hjón sem ég þekki um sð
senda þeim innskotsborð,
svarið sem hann fékk.
Fannst Ingimar þetta furðuleg
framkoma af hendi manns, sem
hann hafði aldrei heyrt nefndan
og ekki þekkir einu sinni í sjón.
Hann sneri sér því til Hjartar
Hjartar, sem mun hafa með B.f-
röst að gera. Hjörtur virtist alveg
forviða á þessari framkomu,
rengdi frásögnina ekki, lofaði að
hringja uppeftir, athuga málið og
láta Ingimar síðan vita. Það hef-
ur ekki gerzt enn.
Ingimar er að vonum gramur
yfir þessari framkomu við hann,
einkum þar eð hjónin sem hann
hafði boðið uppeftir höfðu af sér
ferð til Austfjarða.
Gæsirnar komu fram
með dularfullum hætti
SL. miðvikudag birtist hér
dálkunum úídráttur úr bréfi
frá konu nokkurri, sem sagði
alið upp, en svo hurfu 20. júní
ásamt ungum sínum úr hreiðurs-
stað sínum suður á Seltjarnar-
nesi. En endirinn á sögunni er
svo flókinn að Velvakandi verð-
ur að viðurkenna að hann skilur
ekki vel hvað gerzt hefur, en
leggur málið fyrir lesendur sína
til lausnar.
Kvöldið áður en frásögnin birt-
ist í blaðinu fékk Velvakandi
skilaboð frá umræddri konu,
Ástríði Sigmundsdóttur, um að
var gæsirnar væru komnar fram og
hefði lögreglan sleppt þeim á
Tjörnina. En blaðið var komið
í prentun og ekki hægt að kippa
bréfinu til baka.
f gær barst svo bréf frá Sig-
urði Runólfssyni, sem hefur það
starf á hendi að gefa fuglunum.
Hann segir, að skv. dagbók sinni
hafi gæsirnar verið komnar í
Hljómskálagarðinn að kvöldi 21.
júní, og þá verið látnar inri í
andagirðinguna, en fluttar út úr
henni 19. júlí. Þariia er úm sömu
gæsir að ræða, því kvenfuglinn
bar merkið 85.
Velvakanda skilst nú helzt, að
gæsirnar hafi labbað sér með
unga sína niður í Hljómskála-
garð eftir að þeir skriðu úr eggj^
unum, og viljað koma þeim á
vatn, en engum dottið í hug að
leita þeirra þar. Eða getið þið
fundið nokkra betri skýringu á
höfn, sem flyttu Carlsberg milli
kránna. En Gesti var þaö í blóð
borið, að hann leit ’ hestana
sem vini sína og félaga.
En Gestur má vera okkur a8
öðru leyti eftirminnilegur. Hana
er, að öðrum ólöstuðum, í röð
fremstu jarðræktarmanna hér 1
Reykjavík. Þegar hann hófst
handa á því sviði, voru ekki fyr-
ir hendi traktorar, jarðýtur eða
slik tæki — en Vatnsmýrin, NorS
urmýrarblettirnir og síðar Foss-
vogshlíðin fengu að finna fyrir
handatiltektum hans. Kargaþýfi
og mýrarflóum kom hann í rækt.
Er hann fluttist frá Bergsstöðum
reisti hann sér bú að Reykjahlíð.
sem nú er löngu komii inn I
byggð bæjarins. En áður var blóm
legt að horfa yfir slétt og gró-
in tún frá bústað hans niður á
Hafnarfjarðarveginn.
Gestur hafði löngum mikinn
búrekstur hér í bænum. Nú er
þetta af eðlilegum ástæðum mikl-
um erfiðleikum bundið. Gestur
hefir þó ekki gefizt upp. Mér er
fortalið, að hann sé enn í röð
fremstu fjáreigenda hér í Reykja
vík og nágrenni — en nú þarf
hann að hafa í seli — hefir fé
sitt á jörðum nálægt bænum.
Og maðurinn sjálfur? Hann er
enn sjálfum sér líkur. Hár, grann
ur, karlmannlegur, yfirvara-
skeggið mikið og strítt. Þannig
sá ég hann að Lágafelli fyrir
nokkrum dögum, er hann var
þar staddur við jarðarför. í tali
er hann einnig sá sami: einþykk-
ur og nokkuð óþjáll, þegar um
hluti er að ræða, sem honum
finnast skerða athafnarfrelsi sitt
— en að öðru leyti hressilegur
og oft gamansamur.
Og í dag er Gestur sjötugur.
Ég vil ljúka þessum fáu línum
með því að árna honum, hans
góðu konu og börnum allra
heilla.
— O.G.
sögu tveggja gaesa, sem hún hafðimálinu?
Heimsmeistaramót
unglinga í skák
HEIMSMEISTARAMÓT ungl-
inga í skák hófst í Sviss þann
17. þ.m. og mun standa yfir til
8. ágúgt; fer keppnin fram í borg
unum Múnchenstein og Basel, og
senda 30 þjóðir einn þátttakanda
til keppninnar hver.
Meðal .þátttakenda, sem MbL
er kunnugt um, eru Svend Ham-
ann, Danmörku, A. Mostafa, Eg-
yptalandi, C. Bielicki, Argentínu,
R. F. J. Wostyn, Belgíu, J. Steí-
anov, Búlgaríu, D. Grimshaw,
Kanada C. Clemens, Vestur-
Þýzkalandi, U. Kúttner, Austur-
Þýzkalandi. D. E. Rumens, Eng-
landi, F. Kuijpers, Hollandi, R.
Primavera, Ítalíu, B. Parma,
Júgóslavíu, C. Maalouf, Líbanon,
R. Biever, Luxemburg, J. J. A.
Munoz, Mexico, J. R. Philips,
Nýja-Sjálandi, R. Hoen, NoregL
W. Weinwurn, Austurríki, H.
Naseer, Pakistan, H. Halén, Sví-
þjóð, W. Erny, Sviss, J. A. Mast-
ro, Spáni, V. Hort, Tékkóslóva-
kíu og A. Tomson, Sovétríkjun-
um, en auk þeirra taka þátt i
mótinu unglingar frá FinnlandL
Frakklandi, írlandi, ísrael, Filips-
eyjum og Póllandi.
Túnasláttur kom-
inn vel á veg í N-ls.
ÞÚFUM, ?1. júlí. — Síðustu viku
var enginn þerrir, svo hey hefir
safnazt fyrir. Á sunnudag og
mánudag var góður þurrkur. Náð
ist þá nokkuð inn og sumt komið
vel á veg með þurrk. Gras er
orðið ágætt, enda gróðrartíð á-
kjósanleg, heitt og votviðri. Þeir
sem hafa súgþurrkun hafa hirt
nær allt. Túnasláttur kominn vel
á veg víðast hvar, en sumsstað-
i ar var byrjað seint eða nýlega.
— PP.