Morgunblaðið - 28.07.1959, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.07.1959, Blaðsíða 3
ÞrlSjudagur 28. júlí 1959 3IORCVl\BLAÐlf) 3 Sigríður j ein af 15 ! i Fegurðardrottningin ís- S lenzka varS að vísu ekki Miss | Universe, en hún var ein aí ^ þeim 15, sem komust í úrslit s í keppninni um þann titil á ) Langasandi á laugardagsmorg • un. Hefur mörg stúlkan orðið s að sætta sig við minna en að S vera talin ein af 15 fegurstu ■ stúlkum heims. ; Sigríður er sú þriðja í ann- s arri röð og japanska stúlkan S Akiko Kojuma, sem hreppti • hinn eftirsótta titil er í sömu ( röð, lengst til hægri. S S Borgarbíó fær breiðtjald AKUREYRI, 27. júlí. — Borgar- bíó hér í bæ hefur verið lokað undanfarnar 2 vikur, meðan unn- ið hefur verið að uppsetningu breiðtjalds í kvikmyndahúsið. — Því er nú lokið og var fyrsta sýning á hinu nýja tjaldi í gær- kvöldi. Er tjaldið að vonum mun stærra en hið gamla og þykir hinn mesti fengur að því. — Þá hefur einnig nýlega verið skipt um linsur í kvikmyndavélum hússins, sem rúmar um 300 manns í sæti. — Magnús. STAKSTflNAR „Öðru vísi mér áður brá“ Undir þessari fyrirsögn segir Alþýðublaðið sl. föstudag: „Ritstjóri Xímans hefur orðið umræðuefni fólks með nokkuð óvæntum hætti. Hann hefur sem sé orðið fyrstur þingmanna til að flytja á Alþingi tillögu um mál gersamlega óskylt stjórnarskrár- breytingunni eða kjördæmamál- inu. Fólk rifjar nú upp þau orð Tímans í síðasta mánuði að ekki væri um annað kosið en kjör- dæmabreytinguna og ekki kæmi til greina að ræða önnur málefni á sumarþinginu. Þingmenn og aðra rak því í rogastanz, er þeir augum litu þessa tillögu strax á öðrum fundi þingsins í fyrradag, og að einmitt ritstjórinn skyldi verða til þess að brjóta þetta boð- orð sitt með því að fleygja inn á alþingi tillögu til þingsályktunar um 67 milljón kr. aukið framlag til íbúðalána, án þess að rök- stutt sé, hvaðan þessara peninga skuli aflað. Jómfrúartillaga þing- manns Framsóknarmanna í Reykjavík varð því aðeins löðr- ungur í eigið andlit, en Iitill greiði fjárvana húsbyggjendum sem sjá alvarleg málefni sín dreg in inn í ábyrgðarlausan skrípa- leik, sem er orðinn almennt að- lilátursefni“. Bíll með ferðafólk velfur norðanlands Xvær af aðalpersónum sögunnar. Ný framhaldssaga AKUREYRI, 27. júlí. — Það ó- happ varð síðdegis á sunnudag- inn, að fólksbifreið, sem í voru 5 farþegar af þýzka skemmti- ferðaskipinu „Adriadne“ fór út af veginum rétt neðan við neðstu beygjuna í Vaðlaheiði austan- verðri, skammt ofan við bæinn Skóga, og valt nokkrar veltur, þar til hún loks staðnæmdist á hvolfi. Það var ungur maöur, sem bif- reiðinni ók; kastaðist . hann út úr henni og hlaut slæman skurð á hnakka. Meiðsli anarra í bif- reiðinni munu hafa verið minni. ökumaðurinn var fluttur í sjúkra húsið á Akureyri, þar sem gert var að meiðslum hans, en far- þegarnir fóru um borð í skemmti ferðaskipið aftur í umsjá skips- læknisins, sem komið hafði á staðinn og hugði að áverkum ÍEnginn hringdii i nllnn dnginn j | EINS og kunnugt er af frétt- > S um tók nýja símaskráin i i gildi í gær og aðfararnótt ■ \ mánudagsins var gengið frá j S breytingum á síðustu númer- i S um, sem var breytt. Þetta • • mun hafa valdið fólki nokkr- ; ; um vandræðum og munu S S ekki allir hafa áttað sig á ■ í breytingunum. Þannig var ; j hringt til blaðsins síðdegis í S \ gær frá bæjarskrifstofunni 5 í og skýrt frá því. að þangað \ • hefði ekki verið hringt allan s S daginn. Var símanúmeri bæj i s arskrifstofanna í miðbænum \ • breytt úr 11200 í 18800 og s s gildir það fyrir bæjarskrif- S S stofurnar í Austurstræti 16. • \ Hafnarstræti 20 og Fræðslu- s S ksrifstofuna í Vonarstræti 8. S i Á bæjarskrifstofunum fannst • \ mönnum sem þeir væru komn ; S ir í sumarfrí í gær, en þeir S S gerðu ráð fyrir auknum síma \ 'i hringingum er menn gerðu; ( sér grein fyrir númeraskipt- s S unum. S þeirra. Bifreiðin skemmdist mjög mikið. „Adriadne“ kom til Akureyr- ar skömmu fyrir hádegi á sunnu daginn og fóru margir farþeg- anna austur að Goðafossi. Var ferð bifreiðarinnar heitið þang- að, þegar óhappið varð. — Magnús. Bif reiðaáreks íur skammt frá Akra- nesi AKRANESI, 27. júlí. — Um hálf þrjúleytið laugardaginn 25. júlí varð bifreiðaárekstur á þjóðveg- inum fyrir ofan Akranes milli Óss og Hvítaness. Nánari atvik eru þau að Opel-Caravan bifreið var á leið frá Akranesi. í henni voru sex manns. Þegar komið var rétt inn fyrir svokallaðan Langa- mel ,en þar er nokkur hæðarmun ur á veginum, kom bifreið á móti og ennfremur önnur bifreið frá Akranesi á eftir Opel-Caravan- bifreiðinni. Opel-Caravan-bifreiðin og bifreiðin ,sem á móti kom stað- næmdust með stuttu millibiJi hvor á sinni vegarbrún. Bifreiðar stjórinn í síðari bifreiðinni frá Akranesi ætlaði fram úr Opel- Caravan-bifreiðinni, en sá sér það ekki fært vegna þess hve stutt var á milli bifreiðanna tveggja og lenti á hægra aftur- horni Opel-Caravan-bifreiðarinn- ar með þeim afleiðingum að hún rann út af veginum. Telpa, sem var aftast í Opel- Caravan-bifreiðinni, handleggs- brotnaði, en frekari meiðsli urðu ekki á mönnum. Báðar bifreið- arnar skemmdust nokkuð mikið. Nýtt þingskjal Á ALÞINGI í gær var útbýtt frumvarpi til laga um endur- lán eftirstöðva af erlendu láni samkv. 22. gr. fjárlaga fyrir ár- ið 1959. Flutningsmenn eru Páll Þorsteinsson, Björn Pálsson og Ólafur Jóhannesson. hefst í blaðinu á morgun. Hún heitir Leopoldville og er eftir Hans Wolfgang, vinsælan þýzk- an skáldsagnahöfund. Leopoldville er höfuðborg Kongó, en það er hið mikla ný- lenduríki Belgíu í Mið-Afríku. Borgin stendur við hið mikla Kongófljót, sem fellur á landa- mærum Kongóríkis og frönsku Mið-Afríkuð, en ein aðalborg þess lands, Brazzaville, stendur við Kongófljót andspænis Leo- poldville. Úran (uranium) finnst í jörð í Kongó, en úr þeim málmi fæst kjarnorka, eins og kunnugt er. Úran er því dýrmætt og dýrt og úranæði getur gripið menn að sínu leyti eins og gullæðið í Kanada um aldamótin. Þar er líka vettvangur gróðamanna, braskara og smyglara. Þessi saga fjallar að miklu leyti um þetta efni, um baráttu milli þessarar starfsemi annars vegar og kristi- legrar mannúðarhugsjónar hins vegar, sem vinnur að því, að bæta hag og auka menningu hinna innbornu blökkumanna. Inn í þetta fléttast svo óstir, eins og vera ber í skáldsögu, og er sálarlífi þeirra söguhetja lýst vel og rækilega. Sagan er spennandi og vel þess verð, að fylgzt sé með henm frá upphafi. Afneitar Eysteini Þessu svarar Ximinn á laugar- dag: „Það er algerlega rangt, a3 Tím inn hafi nokkru sinni haldið því fram, að ekki mætti ræða önnur mál á aukaþinginu en stjornar- skrármálið. Þvert á móti hélt Tíminn því fram fyrir kosning- arnar, að aukaþingið ætti að fresta stjórnarskrármálinu til frekari athugunar og samkomu- lagstilrauna, og af því hlaut óhjákvæmilega að leiða, að auka þingið fjallaði um ýmis önnur mál. Þessi er enn afstaða Fram- sóknarflokksins". Þegar Tíminn skrifar þelta gleymir hann ekki einungis ótelj- andi ummælum sjálfs sín heldur og lokaboðskap Eysteins Jónsson- ar til þjóðarinnar fyrir kosning- arnar. En þá sagði hann hinn 24. júní: „Það er verið að kjósa til auka- þings, .scm eingöngu á að fjalla um frumvarp það um nýja kjör- dæmaskipun, sem samþykkt hef- ur verið í fyrra sinn, en þessi nýja skipan öðlast ekki gildi nema kjósendur í landinu ljái henni fylgi sitt við kosningarnar með því að kjósa þá menn á þing, sem hana vilja samþykjtja". Gömul uppsuða kommúnista Einar Olgeirsson og Þjóðviljinn eru nú rétt einu sinni farnir að skrifa um nauðsyn „samstarfs alþýðunnar á stjórnmálasviðinu“, sem á að koma fram í „skipu- lögðu kosningasamstarfi Alþýðu- bandalagsins og Alþýðuflokks- ins“. Um þetta skrifaði Einar sl. föstudag og Þjóðviljinn áréttar það á sunnudaginn. Kommúnist- ar láta eins og hér sé mikið ný- mæli á ferðum. Af einhverjum ástæðum tekur Tíminn undir það og býsnast jafnvel yfir, að Mo'g- unblaðið þegi um þessi stórtíð- indi. Sannleikurinn er sá, að þetta er sama uppsuðan og komm únistar hafa oft boðið upp á áð'ir. Þegar að þeim hefur þrengt, þá hafa þeir ætíð reynt að ala á sundrungu andstæðinga sinna undir yfirskini óslökkvandi sam- einingaráliuga. Sameiningarhjal kommúnista nú sannar einungis að þeir eru enn hinir sömu og áður, og verð- ur það ekki talið til stórtíðiuda. Fylgizt með frá byrjun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.