Alþýðublaðið - 03.07.1920, Page 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ
3
£í|sábyrgðar|él. „^aívaka" h,f.
Kristjaníu Noregi
Allar venjulegar lífstryggingar,
barnatryggingar og lífrentur.
í slandsdeildin
löggilt af Stjórnarráði Iilands í desember 1919.
Ábyrgðarskjölin á íslenzkul Varnarþing í Reykjavík
Hellusundi 5, Reykjavtk.
Helgi Valtýsson.
2 kaupamenn Og2kaupakonur
: : óskast í nágrenni við Reykjavík. Upplýsingar í Ölgerðinni : :
Egill ^kalla^rímssou. — Sími 390.
goldið, ef hann fer frá brauðinu.
Vildu því flestir gera þá kröfu að
prestssetur yrðu bygð á ríkisins
kosnað og fengju prestar síðan
leigulausan bústað, eða þá gegn
íyrningargjaldi. Sanaþ. var að
leggja málið fyrir hjeraðsfundi.
Þá flutti biskup erindi utn Jón
Vfdalín I sambandi við það að nú
eru senn 200 ár sfnan hann dó.
Sig. Síversen, prófessor, flutti
erindi um »Opinberunarrit síðgyð-
ingdómins«. Biskup sagði frá
utanför sinni á síðastliðnu sumri
og sömuleiðis Sig. Sív. prófessor.
Loks voru flutt tvö erindi fyrir
almenning í dómkirkjunni, annað
af biskupi um »Trú og þekkingut
en hitt af dócent Magnús Jónssyni
um »Símon Péturs.
Dm daginn 09 Tegip.
ísland kemur hingað síðdegis
í dag. Var um 250 sjómílur undan
í gær kl. 4.
Snðurland kom í morgun að
austan. Margt farþega. Fer í fyrra-
málið ki. 9 upp á Akranes með
Góðtemplara. Nokkrir pantaðir
farseðlar sem ekki hafa verið sóttir,
verða seldir í dag eftir kl. 4 í
G.T.-húsinu.
Sterling fer kl. 6 annað kvöld
í hringferð austur um land.
Hljómleikar Páíis ísólfssonar
í gær voru vel sóttir, eins og
vænta mátti. Er hin mesta unun
að hlýða á hann. Skaði að hann
hefir eldti betra hljóðfæri að leilca á.
Vesta, skonnorta, kom með
kol til Geo Copland í gær.
Björn Árnason gulllsmiður er
nýlega látinn hér í bænum. Hann
var ágætur gullsmiður og listfeng-
ur, kominn á efri aldur.
Bétnr A. Jónsson söngvari
syngur ný lög í Bárubúð á morgun.
Stjórnarskrifstofnnnm verður
í júlí og ágúst Iokað á laugar-
dögum kl. 12 á hádegi.
Athygli manna skal vakin á
greininni um steinolíu, er byrjar
I blaðinu í dag, og heldur áfram
næstu daga. Hún upplýsir margt,
er áður hefir verið hulið almenn-
ingi.
Yeðriö í dag.
Vestm.eyjar . . . V, hiti 10,7.
Reykjavík .... SSA, hiti 9.8.
ísafjörður .... logn, hiti 12,3
Akureyri .... s, hiti 10.0.
Grímsstaðir . . . sv, hiti 90.
Seyðisíjörður . . logn, hiti 99-
Þórsh., Færeyjar A, hiti 9 5-
Stóru stafirnir merkja áttina.
Loftvog há, hæst um Færeyjar
og hægt stígandi. Hæg hlý suð-
læg átt.
Að iiorðan.
17. Og 19. júní. Á Akureyri
var 17. júní haldinn hátíðlegur, á
þann hátt, að aimennur frídagur
var. Auk þess gekst U. M F, A
fyrir fþróttamóti og hátíðahaldi,
sem eftir „íslending" að dæma
hefir verið nokkuð hátfðlegra, en
það mót er hér fór fram sama
dag. AIí starf við hátíðina var
ókeypis, enda rann ágóðinn óskift-
ur til Heilsuhælis Norðuriands.
Ymsar íþróttir voru sýndar, svo
sem: Ieikfimi, af ifklega eina Ieik-
fimisfiokknum hér á landi sem nú
er samæfður að nokkrum mun,
og er hann sagður ágætur; hlaup
(100 og 1000 m.), sund, stökk,
knattspark o. fl. Höfum vér því
miður ekki enn getað náð í skýrslu
Barnavagn lítið notað-
ur til sölu. Agreiðsía vfsar á.
Kona, með tveggja ára barn
óskar efttr kaupavinnu á góðu
heimili í sveit. Uppl. á Bergstaða-
stíg 22 niðri.
Karlmannsúr fundið.
Afgreiðsla vísar á
Kartöflur og laukur ódýrast í
Kaupfélagi Reykjavíkur (Gamla
bankanum).
Verztunin „Hlíf“ á Hverfisgötu
56 A, sími 503 selur: 12 tegundir
af góðu, finu Kaifibrauði, 3 teg-
af Sirius suðusúkkulaði, Kakao og
Sukkulade sælgæti, Kreyns vindla,
góða og ódýra, Reyktóbak, Nef-
tóbak, skorið og óskorið, Skólp-
föturnar alþektu, Vatnsfötur, email-
leraðar Ausur, Steikarpönnur, Borð-
hnífa, Alumineum gaffla, Matskeið
ar og Teskeiðar, afar ódýrt. Vasa-
hnffa, Starfhnffa og skæri.
Kaupið nú þar, sem ódýrast er.
um hve vel þessar fþróttir hafa
gengið.
Á Siglufirði var 17. júní að
litlu minst, nema með fánum; en
aftur á móti gengust konur fyrir
ailmiklu hátfðahaldi 19. júní.
Annarsstaðar Norðanlands mun
lítið hafa verið um dýrðir víðast
hvar.