Morgunblaðið - 29.09.1959, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 29.09.1959, Blaðsíða 22
22 MORCVTSBLAÐlb Þriðjudagur 29. sept. 1959 Ben. G. Waage endur- kjörinn forseti ÍSÍ íþróttaþing ÍSÍ fjallaði um mórg mál — en aðalmál þingsins voru fjárhagsmál ÍÞRÓTTAÞING ÍSÍ var eins og drepið hefur verið áður á sett í Reykjavík á föstudags- kvöld og lauk þinginu laust eftir miðnætti í fyrrinótt. Þing ið sátu fulltrúar víðs vegar að af landinu eða frá rúmlega 20 af þeim 31 héraðssambönd- um og bandalögum sem rétt eiga til þess að hafa þar full- trúa. I Forseti íslands, Ásgeir Ás- geirsson, verndari íþróttasam bandsins, var viðstaddur setn- ingu þingsins og flutti þar á- varps- og hvatningarorð. Mest rætt um fjármál Þingið fjallaði um fjölmörg inál og störfuðu á því 4 nefndir. Á föstudagskvöldið var flutt skýrsla framkvæmdastjórnar og reikningar lagðir fram. Á laugar- dag voru ræddar þær tillögur sem fyrir þinginu lágu og síðan störfuðu nefndir. Þær skiluðu af sér á sunnudag og þá stóðu fund- ir þingsins í 10 stundir — með aðeins klukkustundar matarhléi. Stuttri fram tíð spáð — en bíóið orð/ð 10 ára — MÉR líður alltaf bezt og er ánægðastur þegar ég finn að fólkið, sem kemur til okkar, er ánægt og fer í góðu skapi frá okkur, sagði Hjalti Lýðs- son er við hittum hann á förnum vegi á dögunum og hann ljóstraði því upp að fyr- írtæki hans, Stjörnubíó, yrði 10 ára í dag. Stjörnubíó er yngsta kvik- myndahús höfuðborgarinnar en hefu'r frá upphafi skipað virðu- legan sess moðal þeirra. Til kvik- myndahússins var í upphafi mjög vandað og vegna góðra mynda, er sýndar hafa verið, nýtur Stjörnubíó og hefur noiið mik- illa vinsælda. Stjörnubíó rúmar 512 manns í sæti og hefur frá því það var stofnað fylgzt vel með nýjungum í sinni grein. Á sínum tíma voru teknar til sýninga þrívíddarkvik- myndir, en þær hlutu aldrei al- mennar vinsældir, hvorki hér á landi né erlendis og sagði Hjalti að án efa væri orsökin gleraugun, sem hver sýningargestur varð að nota og aldrei þóttu þægileg. Nú hefur bióið svonefndan Cinema- scope-útbúnað, en þó hann sé er hægt að sýna allar almennar myndir og svonefndar breið- tjaldsmyndir. Við spurðum Hjalta að þvi hverjar hefðu verið vinsælustu myndir er sýndar hefðu verið á þessum fyrsta áratug. Hjalti sagði að vinsælustu myndir bíósins á þessum fyrsta áratug hefðu verið „Draumgyðj- an mín“, sem sýnd var samfleytt f 7 vikur. Næst kemur myndin „Stúlkan við fljótið“, sem sýnd var í nær 4 vikur, og „Rock around the clock“, sem sýnd var f 3—4 vikur, en nær alltaf fyrir troðfullu húsi svo að hana hafa fleiri séð en sýningartíminn gef- ur hugmynd um. Minnsta aðsókn hefur .orðið að sænsku myndinni „Ævintýrið Alls voru á þinginu fluttar 75 ræður. Lengst stóðu umræður um fjárhagsmál og var það sam- dóma álit allra að gera þyrfti stórátak i þeim efnum umfram það sem verið hefur. Lágu ýmsar tillögur fyrir þar að lútandi, svo og greinargerðir og samanburður á styrkjum hins opinbera til íþrótta hér og hliðstæðra sam- banda á Norðurlöndum. Um mál þingsins og umræður verður nánar getið næstu dag- ana hér á siðunni. Stjórnarkjör Stjórnarkjör fór þannig að Benedikt G. Waage var endur- kjörinn forseti sambandsins til næstu tveggja ára. Hlaut hann 27 atkvæði en Guðjón Einarsson hlaut 15 atkvæði. Tveir seðlar voru auðir. Aðrir í stjórn sambandsms voru kjörnir Guðjón Einarsson, Hannes Þ. Sigurðsson, Stefán Runólfsson og Axel Jónsson UMSK. í varastjórn voru kjörnir: 1. Forseti íslands ávarpar íþróttaþingið. varamaður Atli Steinarsson, 2. varamaður Gunnlaugur J. Briem, 3. varamaður Bogi Þorsteinsson, 4. varamaður Valdimar Örnóifs- son og 5. varamaður Jón Ingi- marsson. Endurskoðendur voru kjörnir Stefán G. Björnsson og Þórarmn Hilmar10.4 sek—þriðji Valbiörn sigraði á 4.40 ÞRÍR ísl. frjálsíþróttamenn kepptu í boði þýzka sambands- W$m Sophia Loren í myndinni „Stúlkan við fljótið“ mikla" og var sýningum hætt eftir tvo daga. Þó er þetta sænsk verðlaunamynd, sem í Svíþjóð hlaut afbragðs dóma og mikla að- sókn og var vel til hennar vand- að í alla staði. En það eru ekki alltaf beztu myndirnar og dýr- ustu sem fá mesta aðsókn. Eins verðum við oft varir við það, að fólk dregur úr hófi að sjá myndir sem það er ákveðið í að sjá. En við getum ekki haldið uppi sýn- ingum á sömu mynd þótt góð sé nema takmarkaðan tíma. Það er dýrt að sýna fyrir kannski hálfu húsi áhorfenda. Meðalsýningar- tími er um það bil vika, segir Hjalti og við sýnum því um 50 kvikmyndir árlega. Barnakvikmyndir njóta gifur- legra vinsælda — og það er líka sérlega gaman af því, segir Hjalti, að sjá og finna að börnin skemmta sér. „Lína langsokkur“ er vinsælasta barnamynd okkar og þúsundir barna hafa séð hana og skemmt sér konunglega. Af úrvalsmyndum er Stjörnu- bíó hefur sýnt má nefna „Þetta getur alls staðar skeð“, amerísk verðlaunamynd, „Héðan til ei- lífðar", sem fékk 8 heiðursverð- laun, „Á eyjunni“, sem einnig fékk 8 heiðursverðlaun, „Brúin yfir Kwai-fljótið“. sem fékk sjö- föld Oscar-verðlaun, „Sölumaður deyr“ og „Rekkjan", sem báðar eru byggðar á leikritum er Þjóð- leikhúsið hefur sýnt og þannig mætti lengi telja. Af væntanlegum kvikmyndum sagði Hjalti okkur frá þessum: „Zarak“ — hin umtalaða mynd með Anitu Ekberg og Victor Mature. Það verður jólamyndin í ár. „1984“, gerð eftir sögu Orwells, sem komið hefur út í íslenzkri þýðingu, „Bonjour Tristesse", gerð eftir metsölubók Francoise Sagan, „Lykillinn", með Sophiu Loren og William Holden, „Me and the colonel", með Danny Kay, „Let’s rock“, með Faul Anka m. a., „Sigrún á Sunnu- hvoli“, sænsk úrvalsmynd og „Les Bijoutiers du clair de lune“, 'með Brigitte Bardot. — ®® _ Hjalti sagði að rekstur kvik- myndahúss væri ekki eins auð- veldur og sumir virtust halda. Samkeppnin um myndaval er mikil og byrjunarár hjá hverju kvikmyndahúsi eru erfið. Stjörnu bíói var ekki spáð mikilli fram- tíð fyrir 10 árum, sagði Hjalti, en þetta hefur allt farið betur en á horfðist og við erum ánægðir ef fólkið er ánægt, sagði Hjalti að lokum, maðurinn, sem um ára- tugaskeið rak umfangsmikla kjötverzlun en söðlaði svo um, stofnaði og reisti kvikmyndahús, sem á áratug hefur átt sívaxandi vinsældum að fagna. Afmælismynd Stjörnubíós verð ur „Ævintýr í langferðabíl", ein- stök gamanmynd frá Columbia- félaginu, í litum og Cinemascope. Með aðalhlutverkin fara June Allyson og Jack Lemmon. ins á hinu árlega minningarmóti um Rudolf Harbig en það mót fór fram í Dresden um helgina. Var áuangur fslendinganna mjög góður og til hins mesta sóma fyrir ísland, en til mótsins er boðið nokkitum keppendum frá frjálsíþróttasamböndum fjöl- margra landa. Valbjörn Þorláksson keppti í stangarstökki og bar sigur úr být um. Stökk hann 4.40 m. Hefur Valbjörn farið nær óslitna sigur- göngu á stórum og smá/um mót- um um Norðurlönd og víðar síð asta mánuðinn og var þetta góð- ur endahnútur á ferð hans. Hilmar Þorbjörnsson keppti í 100 m hlaupi. Hann varð þriðji í keppninni, en tími hans var 10,4 sek. — mjög gott afrek og bezta sem hann hefur náð í ár. Met hans er 10.3 sek. Jón Pétursson keppti í há- stökki. Hann varð þar þriðji í röðinni, stökk 1,90 metra. — FRÍ barst skeyti um árangur íslend- inganna í gær en ekki er þar get- ið árangur annarra. Fram sótti - KR skoraði Á SUNNUDAGINN fóru fram tveir leikir haustmóts knatt- spyrnumanna í Reykjavík. Valur sigraði Víking með 3 mörkum gegn 0 og KR sigraði Fram með 1:0. , Valur átti allt frumkvæði í leik sínum við Víking og vann verð- skuldaðan sigur. ☆ Leikur KR og Fram var öllu sögulegri. KR tefldi fram miklu af varamönnum sínum og urðu þeir æ fleiri er á leikinn leið því vegna meiðsla fóru A-liðsmenn af velli. Fram náði lengstum öllu betra taki á samleik og sótti oft mjög stíft að marki KR og átti Fram mörg góð tækifæri til marka, sem öll voru eyðilögð, sumpart fyrir hreinan klaufaskap Fram- ara sumpart fyrir atbeina KR varnarinnar. Leið svo leiktíminn nær allur að ekkert mark var skorað og töldu flestir að KR slyppi vel með jafnteflið — og núllin. En 4 mín. fyrir leikslok skorar Sveinn Jónsson fyrir KR. Halda því KR-ingar enn áfram óslitinni sigurgöngu sinni a þessu ári — en hér skall þó hurð nærri hælum, því Fram sótti, en KR skoraði. (Ljósm.: Sigurh. Vignir) Magnússon. Lýst var tilnefningu í sambandsráð ÍSÍ og ennfremur var kjörið í íþróttadómstól ÍSÍ. Gjafir og árnaðaróskir Við þingslit færði Gísli HaL- dórsson form. ÍBR íþróttasam- Ben. G. Waage. bandinu stóra og fagra loftmynd af íþróttaleikvanginum í Laugar- dal. Þá ávarpaði Hermann Stef- ánsson form. Skíðasambandsins Benedikt G. Waage, flutti honura afmælisóskir og færði honum heiðursgjöf frá Skíðasambandinu í tilefni 70 ára afmælis hans sem þakklæti fyrir áratugalangt starf hans' að íþróttamálum. Ármann' Dalmannsson form. íþróttabanda lags Akureyrar ávarpaði Bene- dikt G. Waage og flutti honam frumsamda drápu. Benedikt G. Waage hefur nú setið í stjórn ÍSÍ yfir fjörutíu ár og lengst af þeim tíma verið for- seti sambandsíns. Langþráður sígur Knattspyrnufélagið Víking- ur fór með sigur af hólmi í haustmóti 5. aldursflokks í knattspyrnu í Reykjavík. Er þetta fyrsta mótið sem Víkingur sigrar í um all- langt árabil. Er sigurinn eftirtektarverðari fyrir þá sök að Víkingar hafa verið að hefja uppbyggingarstarf inn í Smáíbúðarhverfi — langt frá þeim stöðum, sem félagið átti áður rætur sín- ar á. Það er og athyglis- vert að þennan sigur vinna Víkingar í yngsta aldurs- flokki og ef áfram verður haldið á sömu braut, getur þetta gert félagið sterkt síðar meir í öllum flokkum. Hyggja Víkingar gott til sigursins. Hinir ungu sigurvegarar Víkings hlutu 8 stig í mót- inu, unnu Þrótt 4:0, unnu KR 2:0, unnu Val 1:0 og Fram með 1:0. Fram hlaut 6 stig í mótinu. Á þessu móti vann Fram Þrótt með 20 mörkum gegn engu, er félögin mættust. 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.